Tíminn - 11.05.1972, Page 3
Fimmtudagur 11. maí 1972
TÍMINN
3
Húsbyggjendur segjast
greiða 25% meira fyrir
steypuna
— en Verðlagseftirlitið heimilaði
10% hækkun á steypu
Klp-Reykjavik.
Þeir sem staöiö hafa i hús-
byggingum að undanförnu,
hafa haft orö á þvi, aö steypa
frá steypustöðvunum hafi
hækkaö mun meir en um þau
10%, sem þær fengu leyfi fyrir
i marz s.l. Er þvi haldið fram
aö hækkunin nemi allt aö 25%
Margir hafa talaö viö Verð-
lagseftirlitiö út af þessu, en
þaö hefur enn cngar sannanir
fengiö. Hjá steypustöðvunum
var hcldur tregt að fá upplýs-
ingar um þetta mál, — en þó
fékkst það upp, að um skipu-
lagsbreytingar hafi verið aö
ræöa, og aö steypan hafi þar af
leiöandi hækkaö nokkuð.
Hjá Verðlagseftirlitinu
fengum við þær fréttir, að i
marz s.l. hefðu steypustöðvar
fengið leyfi til að hækka verðið
um 10%, og að verð á steypu
yrði þá 1000 kr. á rúmmetir.
Siðan hafi margir haft tal af
Verðlagseftirlitinu og talið sig
geta fullyrt, að hækkunin hafi
orðið meiri en þessi 10%.
#Við höfum beðið fólk um að
koma með reikninga, þessu til
sönnunar, en við höfum enn
enga fengið og þvi er ekkert
hægt að gera i málinu.”
Forráðamenn steypustöðv-
anna vildu ekkert um málið
segja, er við höfðum tal af
þeim. bó fengum við það upp,
að ýmislegt hafi orðið þess
valdandi, að til hækkunnar
hafi orðið að koma. Sements-
verð hefði hækkað um 10% og
svo væri farið að gera meiri
kröfur en áður til steypunnar,
eins og t.d. að bæta i hana er-
lendum efnum og öðru, sem
gerði það að verkum, að dýr-
ara væri að framleiða hana en
áður.
Margt fleira kæmi til, eins
og að nú yrði sett á jafnaðar-
gjald i stað nætur- og
eftirvinnu. Og svo væri lika
rétt að geta þess, að verð á
steypu hefði ekki hækkað sið-
an 1969.
1 gær náðum við i tvo menn,
sem báðir eru að byggja
meðalstórt ibúðarhús ásamt
bilskúr. beir sögðu báðir, að
þeir borguðu nú i dag 24%
hærra verð fyrir sama magn
af steypu, og þeir keyptu fyrir
hina leyfilegu 10% hækkun.
Báðir voru þeir búnir að
reikna þetta út, og höfðu feng-
ið sömu útkomu.
Þeir töldu, að steypu-
stöðvarnar reiknuðu verðið nú
öðruvisi út en fyrir hækkun.
En hvernig svo sem það væri
nú gert, væri þetta 60 til 70
þúsund króna aukabaggi fyrir
þá, og munaði um minna. Að-
spurðir um, hvers vegna þeir
færu ekki með reikningana til
Verðlagseftirlistsins, svöruðu
þeir — „Við erum enn að
byggja. °g ef við gerum það,
þá fáum við ekki steypuna
áfram á vixlum, og þá töpum
við öllu.”
Hreindýr heimsóttu Eskfirðinga
ÞÓ-Heykjavík.
Atta hreindýr spókuöu sig á
hafnarbakkanum i fyrramorgun,
og dvöldu þau þar góða stund og
önduöu að sér fersku sjávarloft-
inu.
Sigmar Hjelm, fréttaritari
Timans á Eskifirði sagði, að það
hefði verið um kl. 6,að fólk varð
vart við hreindýrin á strandgöt-
unni fyrir ofan höfnina. Fór fólkið
þegar að skoða dýrin og ungur
piltur kom með myndavélina
sýna og tók myndir af dýrunum.
Þegar hann nálgaðist dýrin færðu
þau sig rólega niður i fjöruna og
siðan niður á hafnarbakkann.
Komst drengurinn mjög nálægt
dýrunum með myndavélina, og er
talið að hann hafi staðið i fjögurra
metra fjarlægð frá þeim.er hann
tók myndirnar, en yfirleitt er
mjög erfitt að komast i færi við
hreindýr.
Af þessum átta dýrum voru 5
fullvaxin og 3 kálfar. Talið er að
þetta séu dýr, sem hafa haldið sig
sunnan við Oddsskarð i vetur. En
er dýrin yfirgáfu Eskifjörð tóku
þau stefnuna upp i fjallið i átt að
Sellátradal, en hann er fyrir sunn-
an Oddsskarð.
Jón Sigurðsson
70 ára 12. maí
Miðstjórn ASl og stjórnir Sjó-
mannssambands Islands og
stjórn Sjómannafélags Reykja-
vikur gangast fyrir samsæti til
heiðurs Jóni Sigurðssyni for-
manni Sjómannasambands Is-
lands i tilefni af sjötugsafmæli
hans þann 12.mai.
Samsætið verður haldio laugar-
dag þann I3.mai i Atthagasal
Hótel Sögu kl. 6.00
Þeir, sem óska að taka þátt i
samsætinu, tilkynni þátttöku sina
til skrifstofu Sjómannafélags
Reykjavikur, simi: 11915, skrif-
stofu ASI simi: 19348 eða til
Magnúsar Guðmundssonar
Hrafnistu 35133.
VIÐRÆÐUR UM LANDHELGISMALIÐ
ÞÓ-Reykjavik.
1 dag og á morgun fara fram
viðræður i Reykjavik á vegum,
Kynna starfsemi
Skálatúnsheimilisins
Alþjóðasambands flutninga-
verkamanna, milli Sjómanna-
sambands Islands og brezka
flutningaverkamannasam-
bandsins. I þessum viðræðum
verður einkum fjallað um land-
helgismálið, og hefur Jack Jon-
es, framkvæmdastjóri brezka
flutningaverkamannasam-
bandsins, látið hafa eftir sér, að
hann sé bjartsýnn á, aö honum
takist að fá forystumenn is-
lenzka sjómannasambandsins á
sitt band.
1 viðr-takaþátt f-Bretlands
hönd: Jack Jones, Dave Schen-
ton, Frich Annerl og Charles
Life, framkvæmdastjóri Al-
þjóðasambands flutningaverka-
manna. Jón Sigurðsson, for-
maður Sjómannasambands ts-
lands veröur i forsæti fyrir is-
lenzku fulltrúana.
- OG SELJA HANDAVINNU VISTMANNA
OÓ-Reykjavik.
A föstudag og laugardag verður
haldin sýning i Félagsheimili
Kópavogs á handavinnu, föndur-
munum, vinnubókaverkefnum og
fleira, sem heimilisfólkið i Skála-
túni i Mosfellssveit hefur gert.
Tilgangur sýningarinnar er tvi-
þættur, — að kynna starfsemi
heimilisins og vekja áhuga á mál-
efnum vangefinna og að sýna og
selja þá muni, sem þar eru búnir
til, en meðal þeirra er mikið af út-
saumi alls konar og teppum og
mottum. Agóðinn rennur til vist-
fólksins og verður notaður til
ferðalaga og skemmtana.
Siðan starfræksla heimilisins
hófst 1954 hafa dvalið þar samtals
112 vistmenn. Nú dvelja þar 52,
sem er nokkru fleira en gert er
ráð fyrir að heimilið taki, en eftir-
spurn er mikil og reynt er eftir
megni að taka við vangefnum,
sem þurfa á heimili að halda við
sitt hæfi, þar sem reynt er að
kenna þeim og koma hverjum og
einum til þess þroska sem tök eru
á.
Vistmenn á Skálatúni eru á
aldrinum 4ra til 28 ára, 18 drengir
og 34 stúlkur. 48 þeirra eru i ein-
hvers konar kennslu, þar af 20 i
bóklegu námi. 20 i handavinnu-
kennslu, 29 i föndri og forskóla-
kennslu 48 i söngkennslu og 39
stunda leikfimi reglulega. Sund-
námskeið eru haldin á vorin, en
fyrir nokkrum árum gáfu foreldr-
ar þeirra,sem þarna dvelja heim-
ilinu sundlaug, og er hún vel nýtt
allan ársins hring, þótt námskeið
standi þar ekki yfir nema tiltölu-
lega stuttan tima.
Sérþjálfaðir kennarar á hverju
sviði annast kennsluna. Auk
þeirra starfa við heimilið for-
stöðukona, matráðskona, tveir
þroskaþjálfar og 27 starfsstúlkur.
Skálatúnsheimilið var upphaf-
lega stofnað af umdæmisstúkunni
nr. 1. I.O.G.T.,en er sjálfseignar-
stofnun og er rekið á ábyrgð
heimilisstjórnar. Formaður
stjórnarinnar er Jón Sigurðsson,
borgarlæknir, aðrir i stjórn eru
Páll Kolbeins, Vilhjálmur Árna-
son lögfræðingur, frú Guðrún
Sigurðardóttir og Magnús
Kristinsson, forstjóri.
Sýnishorn af vinnu þeirra sem dvelja á Skálatúni (Timamynd G.E.)
VILL M0GGINN
EKKI ÚRKLIPPUR?
TK-Reykjavik
Mbl. ræðst að blaðafulltrúa
rikisstjórnarinnar i gær,
vegna þess að hann leyfði sér
að senda til fjölmiðla ljósrit af
blaðaúrklippu með frétt úr
brezka blaðinu Hull Daily
Mail, þar sem fjallað er um
landhelgismálið og viðræður
Geirs Hallgrimssonar við
brezka ráðamenn. Þessi úr-
klippa er send athugasemda-
laust af blaðafulltrúans hálfu,
nákvæmlega eins og allar þær
blaðaúrklippur úr erlendum
blöðum, sem blaðafulltrúinn
hefur sent öllum fjölmiðlum
undanfarna mánuði. Blaðaúr-
klippur þessar fiytja fréttir
um málefni er lsland varða.
Þessi þjónusta blaðafulltrúans
er ómetanleg og ber að þakka
hana en ekki vanþakka. Það
er Geirs Hallgrimssonar að
leiðrétta þau ummæli, sem
iiann telur ranglega eftir sér
höfð i erlendum blööum, en
ekki blaðafulltrúa rikis-
stjórnarinnar. Það var hins
vegar öllum þeim fjölmiðlum,
sem greindu frá yfirlýsingu
Geirs Hallgrimssonar á
Alþingi um þessa fregn i Hull
Daily Mail, til gagns og hag-
ræðis, að hafá þessa úrklippu
við hendina til að sjá hvernig
ummæli Geirs voru rangfærð i
þessu erlenda blaði. Arás Mbl.
á blaðafulltrúann fyrir þessa
þjónustu við blöðin er þvi
meira en ómarkleg. Það fer
Mbl. illa að krefjast heiða!
legara vinnubragða af öörum,
er það flytur slikar dólgsiegar
árásir á mætan embættis-
mann.
Hannes Jónsson blaða-
fulltrúi rikisstjórnarinnar
hafði þetta um málið að segja i
gær:
,,Að undanförnu hefur
embætti mittsent fjölmiðlum i
Reykjavik ljósrit af úr-
klippum úr erlendum blöðum,
þar sem landhelgismálið
hefur verið gert að umræðu-
efni. Hafa þannig verið sendar
út athugasemdalaust og meö
kveðjukorti ýmsar greinar,
þ.a.m. grein Benedikts
Gröndla og Ólafs Guðmunds-
sonar úr brezkum blöðum, svo
og greinar byggðar á frétta-
viðtölum, þ.á.m. greinar með
viðtölum við Jónas Arnason,
og grein Hull Daily Mail frá
27.april um viðræöur Geirs
Hallgrimssonar við brezka
þingmenn.
Hafi Hull Daily Mail birt
leiðréttingu eftir Geir
Hallgrimsson, verður hún að
sjálfsögöu send út með sama
hætti. Hingað til hefur þó
engin slik leiðrétting borizt
með blaðaúrklippum frá Bret-
landi og er mér ekki kunnugt
um að Hull Daily Mail hafi birt
leiðréttingu frá Geir
Hallgrimssyni. En ef og þegar
hún berst verður ljósrit af
henni sent á sama hátt.
Að gefnu tilefni skal tekið
fram, að æskilegt væri, að þeir
fjölmiðlar, sem ekki kæra sig
um þessa þjónustu embættis
mins, við þá, létu mig vita.
Verður þá hætt að senda þeim
slikar úrkiippur.”