Tíminn - 11.05.1972, Side 11

Tíminn - 11.05.1972, Side 11
Fimmtudagur 11. mai 1972 TÍMINN 11 Umsjón: Alfreð Þorsteinsson Næturfundur um íþróttakennaraskólann Alf-Reykjavik — í — fyrrakvöld efndi stjórn íþróttakennarafélags íslands til fundar að Hótel Esju um málefni íþróttakennaraskólans. Var fundurinn mjög fjöl- sóttur, en á annað hundrað iþrótta- kennarar sóttu fundinn, sem stóð fram á nótt, en honum lauk ekki fyrr en á öðrum timanum. Á fundinum var einkum rætt um staðsetningu Iþróttakennara- skólans, hvort heldur hann ætti að vera i Reykjavík eða að Laugar vatni. Flestir þeirra, sem töluðu, M mæltu með þvi, að skólinn yrði að Laugarvatni, en helzti talsmaður þess, að skólinn verði fluttur til Reykjavikur, var dr. Ingimar Jónsson, formaður Iþrótta- kennarafélagsins. Meðal þeirra sem töluðu á fundinum, var Ragnar Arnals, formaður menntamálanefndar efri deildar Alþingis. Lýsti hann þeirr. skoðun sinni, að skólinn ætti að vera að Laugarvatni og kvaðst hann mundu beita sér fyrir því, að frumvarp það, um Iþróttakennaraskólann, sem neðri deild hefur þegar sam- þykkt, verði að lögum á þessu þingi. Annar alþingismaður, sem mætti á fundinum, Ellert Schram, kvaðst ekki hafa sannfærzt um það, að skólanum væri betur fyrir komið i Reykja- vik en að Laugarvatni. Meðal gesta á fundinum i gær voru m.a. Arni Guðmundsson, skólastjóri Iþr.óttakennara- skólans, og Þorsteinn Einarsson, iþróttafulltrúi rikisins. Engin merki um hauskúpur - þegar íslendingarnir slóguí Fyrir síðustu helgi kom heim frá Skotlandi 88 manna hópur islenzkra golfáhugamanna, sem dvalizt hafði i East Lothian i 9 daga. Þar var ieikið golf á einum átta völlum, sem voru hver öðrum betri, enda eru á þessum slóðum einhverjir mestu og beztu golfvellir i heiminum. Ferðin var farin á vegum Flugfélags Islands, og var þetta þriðja ferðin, sem félagið stendur fyrir á þessar slóðir. Ekki mun þessi ferð hafa gefið hinum tveim fyrri neitt eftir, enda var keppzt við að gera öllum til hæfis. Veður- guðirnir voru þó ekki nógu hlið- hollir þessum hóp. Að visu var alltaf hlýtt i veðri, en eina þrjá daga var nokkur vindur, og hann er litt vinsæll meðal þeirra, sem leika golf. Einn dagur var þó öllum öðrum betri, en það var þriðjudagurinn. Þá fór fram keppni um hinn vandaða Ferðabikar FI, sem keppt er um i þessum ferðum. Þegar keppnin fór fram, var glaða sólskin og hiti yfir 20 stig. Leikið var á North Berwick East Links, sem er 18 holu völlur, 6100 yardar á lengd og hefur par 69. Þessi völlur var upphaflega gerður árið 1894 og er mjög góður og skemmtilegur, eins og reyndar flestir vellir þarna i nágrenninu. A þessum velli fannst fyrir all löngu beinagrind af einhverjum fornaldarmanni, og ekki alls fyrir löngu kom það fyrir, að maður, sem var að slá upp úr sandgryf ju, sló bæði bolta sinn og hauskúpu upp á flötina úr sandinum. Ekki kom neitt af slfku upp úr gryfjunum, sem tslendingarnir slógu úr i sinni keppni — enda fagurlega slegið af mörgum, sem voru orðnir vanir þvi að lenda i sandgryfjum. 1 keppninni tóku þátt á milli 70 og 80 keppendur, þar af einar 15 konur og tveir ung- lingar. Aðalkeppnin var um Ferðabikarinn, en hann var veittur fyrir sigur með forgjöf. Þá voru veitt verðlaun án for- gjafar, og svo verðlaun i kvenna- flokki. Orslit i keppninni með forgjöf urðu þau, að Gunnar Þorleifsson, GR, sigraði á 63 höggum nettó. I 2. og 3. sæti urðu þeir jafnir, Vil- hjálmur Arnason, GR, og Þor- varður Arinbjarnarson, GS, á 65 höggum nettó, en Vilhjálmur sigraði i aukakeppninni. Annars varð röð efstu manna þessi: Gunnar Þorleifsson, GR 80-17 = 63 Vilhjálmur Arnason, GR 82-17 = 65 Þorvarður Arinbj.GR 86-21 = 65 Guðmund. Ófeigs. GR 86-19 = 67 Guðmund. Þórarinss.GV 79-l1 = 68 Bezta árangri náði Þorbjörn Kjærbo, GS, en hann lék völlinn á 76 höggum, sem er aðeins 7 yfir par. Hann hefur lægstu forgjöf allra tslendinga eða 2, og kom þvi inn á 74 höggum nettó. Hann var þrem höggum betri en næstu menn, sem voru þeir Pétur Antonsson, GS, og Vestmannaey- ingurinn Guðmundur Þórarins- son (Týrsi), sem léku á 79 högg- um. A eftir þeim kom svo sjálf kempan Gunnar Þorleifsson á 80 Islandsmeistararnir gegn Skotum í kvöld í kvöld, fimmtudagskvöld, leika íslandsmeistarar Keflavlkur, gegn skozka l.deildar liðinu Morton. Fer leikurinn fram á Laugardalsvellinum og hefst kl. 20. Verður fróðlegt að vita, hvernig tslandsmeisturunum vegnar gegn þessu skozka liði. A myndinni að ofan sjást Skotarnir „hreinsa” frá marki, en Hermann Gunnarson er i fremstu vigllnu hjá íslenzka liðinu. (Tímamynd Gunnar.) Sárabót fyrir Fram Knattspyrnumönnum Fram hefur bætzt góður liðsmaður frá Selfossi. Einn af beztu leik- mönnum Selfoss, Gylfi Gislason, mun leika með Fram í sumar, en hann mun dvelja í Reykjavik a.m.k. fram til haustsins. Gylfi er iþróttakennari að mennt, og er óráðið hvort hann fer til Selfoss i haust. Eins og kunnugt er, hefur Fram misst marga leikmenn út á land. Þykir Frömurum það nokkur sárabót að fá Gylfa i staðinn. Tjarnarboðhlaup KR er á sunnudag Tjarnarboðhlaup KR fer fram nk. sunnudag, en keppt er i 10 manna sveitum eins og áður. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að tilkynna þátttöku sina til Olfars Teitssonar i sima 18000 i siðasta lagi föstud. I2.mai. I fyrra sigraði sveit KR i hlaupinu. Ford-keppninni lýkur í dag Útsláttarkeppninni á vegum F’ord, lýkur i dag, en i henni tóku þátt eitt þúsund drengir á aldrinum 8 til 13 ára —• Tiu stiga- hæstu drengirnir i hverjum aldursflokki keppa til úrslita og verður úrslitakeppnin á Laugar- dalsvellinum á laugardag kl. 15.00 — Þá mun hinn heimskunni knattspyrnumaður Bobby Charlton frá Manchester United afhenda verðlaun, en þrir efstu drengirnir i hverjum aldursflokki fá verðlaunabikara, en allir þeir, sem keppa til úrsiita fá minja- gripi, svo sem áritaða mynd af Bobby Charlton, sérstakt heiöursskjal og búningatösku. Bobby Charlton er væntanlegur hingað til lands siðdegis á föstu- dag, og hann heldur utan aftur á sunnudag. Mót í dag A fimmtudaginn (uppstigningardag) fer fram 18 holu höggleikur hjá GR, og hefst keppnin kl. 13.30. A sama tima fer fram keppni um Nessbjölluna hjá GN á Seltjarnarnesi. Ekki er okkur kunnugt um fleiri mót þennan dag, enda hefur okkur aðeins borizt kappleikja- skrá sumarsins frá þessum tveim Reykjavikurklúbbum. Þau hlutu öll 1. verðlaun i golfkeppni Islendinga í Skotlandi i siðustu viku. Talið frá vinstri: Gunnar Þorleifsson, sem sigraði í keppninni með forgjöf. Ágústa Guðmundsdóttir, sem sigraði I keppni kvenna og Þorbjörn Kjærbo, sem sigraði í keppninni án forgjafar. (Timamynd — klp — ) höggum. I kvennaflokki röðuðu frúrnar frá Vestmannaeyjum sér i þrjú efstu sætin. Agústa Guðmunds- dóttir lék á 69 höggum nettó, Sigurbjörg Guðnadóttir á 71 höggi, Jakobina Guðlaugsdóttir á 77 höggum og i 4. sæti kom Guð- finna Sigurþórsdóttir, GS, á 81 höggi. Agústa náði bezta árangri bæði með og án forgjafar, en hún lék á 93höggum. -klp-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.