Tíminn - 14.05.1972, Qupperneq 1
%
IGNIS
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIOJAN
SIMI: 19294
JtL. ak.
V.
/
Vertíð
lokið
Vertíftinni er lokift, og
sjóm ennirnir bera neta-
baujurnar i land. Vertiðin
hefur verið misjöfn, og
virðist sem verstöðvar á
Snæfellsnesi og nokkrir
staðir á Austurfjörðum iiafi
fariðbezt útúrhenni. Aftur á
móti er hljóðið i stærstu ver-
stöðvunum Sunnanlands
heldur dauft. Til að ininna á
vertiðarlokin, birtum við
þessa mynd af sjó-
manninum, sem er að bera
netabaujurnar á land i
Keykjavíkurhöfn.
Ti ni a m yn d (■ u n n a r).
Iceland Products
framleiðir á
annað hundrað
tegundir fiskrétta
Heildarsala fyrirtækisins nam
um 1820 millj. sl. ár
Aðalfundur Iceland Products Inc,
var haldinn fyrir nokkru i
Reykjavik. Heildarsala fyrirtæk-
isins jókst um 45% á s.l. ári, og
nam hún um 1820 milljónum
króna. Fyrirtækið hefur nú aukið
fjölbreytni franileiðslunnar og
framleiðir nú á annað hundrað
tegundir fiskrétta.
Iceland Products, Inc., er
framleiðslu- og sölufyrirtæki
fyrir frystar fiskafurðir i Band-
rikjunum í eigu Sambandsins og
frystihúsa, sem selja afurðir
sinar I gegnum Sjávarafurðadeild
Sambandsins.
Stjórnarformaður Iceland
Products, Inc., Erlendur Einars-
son forstjóri, setti fundinn og
stýrði honum. Erlendur flutti
siðan skýrslu stjórnar og skýrði
frá störfum stjórnarinnar á liðnu
starfsári.
Þvi næst flutti Othar Hansson,
framkvæmdastjóri Iceland
Products, Inc., skýrslu um rekst-
ur Iceland Products og dóttur-
fyrirtækja. Heiidarsala á árinu
1971 var 20.685.000 dollarar, eða
sem næst 1820 millj. króna, sem
er um 45% aukning frá fyrra ári.
Framleiðsla ýmissa fiskrétta i
verksmiðju fyrirtækisins var um
11.500 tonn árið 1971, en var 10.160
tonn árið áður.
Sala fiskrétta gekk vel á árinu,
og vann verksmiðjan úr mestum
hluta þeirra fiskblokka, sem
Sambandsfrystihúsin fram-
leiddu. Auk þess hefur reynzt
nauðsynlegt að kaupa vaxandi
magn ýmissa fiskblokka frá öðr-
um löndum til að mæta þörf verk-
smiðjunnar.
Ýmsar nýjar tegundir fiskrétta
bættust við framleiðslu verk-
smiðjunnar á árinu, og nemur
fjöldi þeirra fiskitegunda, sem
fyrirtækið hefur á boðstólum, hátt
á annað hundrað.
A árinu var lögð áherzla á að
auka og styrkja umboðsmanna-
kerfi fyrirtækisins i Bandrikj-
unum. Iceland Products hefur
reglulega kaupendur i 45 af 50
rikjum Bandarikjanna.
A fyrstu 4 mánuðum þessa árs
hefur orðið óvenjumikil aukning á
framleiðslu og sölu verksmiðj-
unnar, eða um 50% miðað við
sama timabil áðið áður.
Loks
ný
höfunda
lög?
EB—Reykjavik.
Loksins er komin veruleg
hreyfing á höfundalagafrum-
varpið i þinginu. Neðri deild af-
greiddi frumvarpið til efri deildar
i gær, þar sem það á eftirað
fara i gegn um þrjár umræður,
áður en það verður samþykkt, en
liklega verður að teljast, að frum-
varpið verði að lögum áður en
þetta þing er úti. Talsverður
þrýstingur hefur verið utan þings(
á það, að frumvarpiö verði sem
fyrst að lögum, enda engin furða,
þar sem þetta mál hefur verið á
döfinni ailan siðasta áratug.
■■RM
Hægt að fækka ám
en fá samt fleiri dilka
OO-Reykjavik.
Meðal þeirra tilrauna sem
unnið er að á sauðfjárræktar-
búi Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins á Hesti i
Borgarfirði, er fóðrun lamba á
gervimjólk, sem fram fara
samhliða tilraunum með
hormónalyf, sem ám er gefið
svo að þær eignist fleiri af-
kvæmi. Tilraunirnar með
gervimjólkina hófust i fyrra
og bendir allt til.að þær gefi
góða raun, og að gæði kjöts og
fallþungi dilkanna sé ekki
siðri en þótt þeir gangi undir
ánum sumarlangt. Þetta getur
haft mikla þýðingu fyrir land-
búnaðinn, þvi með þessu móti
er mögulegt að framleiða
meiri afurðir með færri ein-
ingum, þ.e. ám, en nú er al-
mennt gert.
Stefán Scheving Thorsteins-
son, sauðfjárræktarráðunaut-
ur, hefur yfirumsjón með
rannsóknunum. Hann sagði
Timanum, að á búinu á Hesti
væri nú 930 fjár. Fullorðnar ær
eru um 700. Ilelmingur þeirra
eru bundnar i afkvæma-
rannsóknum, og venjulega eru
afkvæmarannsóknirnar mið-
aðar við 10 hrúta á ári.
Afkvæmarannsóknirnar eru
mjög viðamiklar. Er mældur
þroski dilkafallanna, sérstak-
lega vöðvaþroski og fitu-
þroski, og eins útvortis mál á
skrokkunum, með tilliti til að
bæta þá hvað snertir gæði.
Dætur þeirra hrúta, sem koma
bezt út i afkvæmarannsókn,
eru settar á til frekari af-
kvæmarannsókna til að sjá
hvernig vissir hrútar reynast
sem ærfeður. Eru ærnar i
afkvæmarannsóknum tveggja
og þriggja vetra, og er eftir
það hægt að segja til um kyn-
bótagildi hrútsins sem ærföð-
ur.
Fyrir utan afkvæmarann-
sóknirnar fara fram
fóðurtilraunir. A vetrum
Framhald á bls. 1 7.
Mallorca
og suður-
strönd
Spánar
heilla
SJ—Reykjavik.
Þátttaka Islendinga i
skipulögðum ferðum til ann-
arra landa fer vaxandi.
Mallorca og suðurströnd
Spánar eru vinsælustu
áfangastaðirnir enn sem
fyrr, enda ferðir þangað til-
tölulega ódýrastar. — Svo
virðist sem almenningur sé
að átta sig á þvi, að ódýrara
er að taka þátt i skipulögðum
ferðum ferðaskrifstofa en
ferðast upp á eigin spýtur,
sagði Guðni Þórðarson lor-
stjóri ferðaskrifstofunnar
Sunnu i viðtali við Timann.
Um helmingi fleiri ferða-
menn bæði héðan og frá öðr-
um löndum fara til Mallorca
en suðurstrandar Spánar,
sennilega vegna þess að þar
er meira úrval af hótelum og
fjölbreyttara skemmtanalif.
— Ferðaskrifstofan Sunna
skipuleggur ferðir i allar
áttir eins og undanfarin ár,
sagði Guðni Þórðarson enn-
fremur.
— Flestir fara til
Mallorca, margir einnig til
suðurstrandar Spánar, og
Kaupmannahafnarferðir eru
lika vinsælar. Nær upp-
pantað er i Mallorcaferðir
okkar i ágúst og spetember.
Framhald á bls. 1 7.