Tíminn - 14.05.1972, Page 3

Tíminn - 14.05.1972, Page 3
14. mai 1972 TÍMINN 3 Arnes í Gnúpverja- hreppi áningarstaður í stórbrotnu umhverfi Félagsheimilið Árnes er sem kunnugt er eitthvert stærsta og glæsilegasta félagsheimili i sveit hér á landi og af engum vanefn- um byggt. Það stendur við veginn upp i Þjórsardal og að Búrfells- virkjun, og umhverfið er allt hið stórbrotnasta, Hekla og suður- jöklar blasa þaðan viö, og i Þjórs- ardai er mikil nátturufegurð, svo sem við Hjálparfoss og Gjána. og þar eru bæjarrústirnar á Stöng. Gnúpverjahreppur sjálfur er sérstæður að fegurð og tilbreytni mikil, þar sem flestir bæir eiga sér séstakt bæjarfjall. Gnúp- verjahrepp er ekki hægt að skoða eins og margar aðrar sveitir með þvi að aka þar fram með sam- felldri bæjarröð undir einni fjalls- hlið eða i beinum dal. Þar er hvert bæjarstæði sérstakur heim- ur og margt að skoða. Enginn vafi er á þvi, að ferða- menn munu leggja i auknum mæli leiðir sinar á þessar slóðir á næstu árum, og þarna mun verða áningarstaður, sem kemur i góð- ar þarfir. 1 Árnesi hefur nú verið opnað sumarveitingahús, og mun það taka jafnt á móti stórum ferðahóp um og einstaklingum. Þarna verður fullkomin matsala og önn- ur gestamóttaka, unnt að fá hvers konar veitingar allan daginn. 1 kynningarriti, sem Árnes hefur sent frá sér, segir að þar geti um 300 gestir setið að boröum i einu, og afgreiðsla getur farið fram i þremur sölum, mismunandi stór- um, svo að unnt er að afgreiða samtimis stóra hópa og færri menn saman. Þarna er einnig bensinsala og önnur ferðaþjón- usta. Árnes mun einnig geta tekið á móti nokkrum næturgestum, hefur nokkur herbergi til leigu, að þvi er forstöðukona veitingahúss- íns, frú Eva Fétursdóttir sagði. Þá sagði hún einnig, að tjaldstæði væru til reiðu á af- mörkuðu svæði á bökkunum við ána. og hægt væri að fá þar silungsveiðileyfi. Eva sagði, að hafðir yrðu á boð- stólum bæði almennir og alþjóð- legir réttir og islenzkir sérréttir. I ráði mun að hafa á hverju föstu- dagskvöldi diskotek þar sem góð- ar hljómsveitir lékju. í námunda er góð útisundlaug, þar sem fólk getur iðkað sund við góð skilyrði, og umhverfið býður upp á fagrar og margbreytilegar gönguleiðir. Eaug þessi er við orkuverið við Búrfell, og er að- gangur að henni ókeypis allan ársins hring. Fyrir dyrum mun standa að gera • ýmsar lagfæringar um- hverfis félagsheimilið og leiða þangað heitt vatn. Enginn vafi er á þvi, að þetta glæsilega félags- heimili Gnúpverja mun verða mikilvæg félagsmiðstöð fyrir sveitina og ágætur samkomustað- ur, jafnframt þvi að vera ferða- mannamiðstöð á sumrin, einkar vel sett á fjölsóttu ferðasvæði, sem býður upp á margþætta nátt- úruskoðun. -AK VINNA — SVEIT 15—16 ára stúlka óskast á stórt bú I Húna- vatnssýslu, einnig vantar 17 ára pilt. Upp- lýsingar i sima 40097 milli kl. 20 og 22. Sffnmk Rafgeymaþjónusta Rafgeymasala Alhliða rafgeymaviðgerðir og hleðsla. Notum eingöngu og seljum járninnihaldslaust kemisk hreinsað rafgeymavatn. Fljót og örugg þjónusta. Tækmver, afgreiðsla Dugguvogur 21. — Sfmi 33 1 55. Næg bflastæði. „SÖNNAK RÆSIR BlLINN" AFL HREYSTI LÍFSGLEÐI □ HEILSURÆKT ATLAS — æfingatlmi 10—15 mínútur á dag. Kerfiö þarfnast engra áhalda. Þetta er álitin bezta og fIjótvirkasta aöferðin til að fá mikinn vöðvastyrk, góða heilsu og fagran líkamsvöxt. Árangurinn mun sýna sig eftir vikutíma þjálfun. □ LÍKAMSRÆKT JOWETTS — leiðin til alhliða likamsþjálfunar, eftir heimsmeistarann f lyftingum og glímu, George F. Jowett. Jowett er nokkurs konar áframhald af Atlas. Bækurnar kosta 200 kr. hvor, sendum I póstkröfu ef óskað er. Setjið kross við þá bók (bækur), sem þið óskið að fá senda. □ VASA-LEIKFIMITÆKI — þjálfar allan likamann á stuttum tima, sérstak- lega þjálfar þetta tæki: brjóstið, bakið og hand- leggsvöðvana (sjá meðf. mynd). Tækið er svo fyrir- ferðarlltið, að hægt er að hafa það I vasanum. Tæk- ið ásamt leiðarvísi og myndum kostar kr. 350,00. SendiB nafn og heimilisfang til: ,,LlKAMSRÆKT1', pósthólf 1115, Reykjavík. NAFN .................................... HEIMILISFANG ............................... YOKOHAMA FYRIR SUMARIÐ HJÓLBARÐAR Höföatúni 8-Símar 86780 og 38900 SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA • VÉLADEILD

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.