Tíminn - 16.05.1972, Síða 5
Þriðjudagur. 16. mai. 1972
TÍMINN
5
SAMVINNU-
SKÓLANUM AÐ
BIFRÖST SLITIÐ
39 nemendur luku burtfararpófi
Samvinnuskólanum Bifröst var
slitið mánudaginn 1. mai. Skóla
slitaathöfnin fór fram i hátiðasal
skólans að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Athöfnin hófst með yfir-
litsræðu skólastjórans, sira
Guðmundar Sveinssonar.
Nemendur skólans voru i vetur
79 talsins og þreyttu allir vorpróf,
40 i I bekk. og 39 i II. bekk.
A föstu starfsliði mennta-
stofunnarinnar urðu þær
breytingar,að ráðsmaður og hús-
vörður Bifrastar, Rafn
Guðmundsson.hætti störfum, en
við starfi hans tók Sigurður
Ólafsson, frá Litla-Skarði.
Óvenjulega margir auka-
kennarar störfuðu við skólann og
kenndu meðal annars tölvufræði,
vélritun og bókfærslu. Þá voru og
haldin námskeið fyrir nemendur
skólans i hagnýtum búðarstörfum
i Reykjavik i nóvembermánuði og
fengu þeir tækifæri til að vinna i
kjörbúðum Kron og Sláturfélag
Suðurlands. Enn gafst
nemendum tækifæri til að vinna
verkefni við rafreikni Háskóla
íslands. Erindaflokkur var
fluttur i skólanum um islenzka
bókmenntasögu af Helga
Sæmundssyni, ritstjóra, en Geir
Vilhjálmsson, sálfræðingur hélt
fyrirlestra um sa*lfræði og kynnti
nemendum 2. bekkjar hópsál-
fræði i verklegri þjálfun.
Námsárangur var mikill.
Hæstu einkunnir i 1. bekk hlutu:
Viðar G. Elisson, Reykjavik, 9.06,
Óskar Steingrimsson, Akureyri
9.03, og . Erna Snorrado'ttir,
Hvammstanga 9.00 Er það
óvenjulegt, að svo margir
nemendur i 1. bekk skólans hljóti
ágætiseinkunn. Fyrstu eink
unn hlutu 34 nemendur, þar
af fengu 22 einkunnina 8.00 og þar
yfir. Aðra einkunn fengu 3
nemendur og enginn lægri
einkunn. Allir nemendur 2.
bekkjar 39 að tölu luku burtfarar-
prófi. Námsárangri 2. bekkinga
ber eftirfarandi yfirlit vitni: A
lokaprófinu sjálfu hlutu tveir
nemendur ágætiseinkunn, þeir
Guðmundur Steinn Gunnlaugs-
son frá Hafnarfirði, 9.03 og
Gunnar Magnússon frá Akranesi,
9.00. Þegar árseinkunn er reiknuð
með verður niðurstaðan: Agætis-
einkunn hlýtur einn nemandi.
Fyrstu einkunn hlutu 35
nemendur, þar af fengu 27
einkunnina 8.00 og þar yfir. aðra
einkunn fengu 3 nemendur og
enginn lægri einkunn.
Að yfirlitsræðu lokinni las
skólastjóri að venju meðaltals-
einkunnir allra nemenda skólans.
Þá voru hinum brautskráðu
afhent prófskirteini sin.
Næst voru verðlaun veitt.
Umsjónarmenn skólans hlutu
viðurkenningu fyrir störf sin,
Agúst Már Grétarsson,
umsjónarmaður 1. bekkjar og
Björgúlfur Þórðarson, umsjónar-
maður 2. bekkjar og skólans alls.
Bókfærslubikarinnhlaut að þessu
sinni Friðrik Agúst Óskarsson frá
Laugum i Reykjadal. Verðlaun
Verzlunarmannafélags
Reykjavikur fyrir beztan
árangur i vélritun fékk Kristin
Ása Einarsdóttur frá Hafnarfirði.
Viðurkenningu frá þýzka sendi-
ráðinu fyrir hæfni i þýzku hlutu
þrir nemendur 2. bekkjar: Aslaug
Pétursdóttir frá Reykjavik 9.3,
Pétur Friðrik Pétursson frá
Hafnarfirði 9.25 og Ólafur G.
Sigurðsson frá Hnifsdal, 9.1.
Sam vinnustyttuna fyrir
kunnáttu i Samvinnusögu fékk
Guðmundur Steinn
Gunnlaugsson, Hafnarfirði. — Þá
afhenti formaður Nemenda-
sambands, Samvinnuskólans,
Kristin Bragadóttir,
Félagsstyttuna, verðlaunagrip,
sem veittur er bezta nemanda, er
bezt hefur unnið að félagsmálum.
Friðrik Ágúst Óskarsson frá
Laugum Reykjaddal.
Guðmundur Steinn Gunnlaugs-
son, er hæsta einkunn hlaut á
burtfararprófi, fékk sérstök verð-
laun fyrir ágætan námsárangur.
Hópur eldri nemenda
Samvinnuskólans setti sérstæðan
svip á skólaslitaathöfnina svo og
mikill fjöldi aðstandenda þeirra
nemanda, sem luku burtfarar-
prófi. Þrir eldri námshópar voru
mættir, þeir er brautskráðust
fyrir 10, 20, og 30 árum.- Úr hópi
gestanna tóku þessir til máls:
Fyrir hönd 10 ára nemenda talaði
Síra Guðmundur Sveinsson skólastjóri afhendir Guðmundi Steini
Gunniaugssyni Samvinnustyttuna.
Brautskráðir nemendur frá Samvinnuskólanum I vor.
Alfur Ketilsson skrifstofustjóri
Sauðarkróki. úr hópi nemenda,
er luku brottfararprófi fyrir 20
árum, talaði Jónas Hólmsteins-
son, fulltrúi Reykjavik. Þeir
Alfur og Jónas afhentu sem
sameiginlega gjöf hinna tveggja
nemenda - hópa vönduð tón-
flutningstæki ásamt magnara-
kerfi. Var þar um mjög dýra og
mikla gjöf að ræða,- Þá flutti
Þorkell Magnússon, aðalbókari
Borgarnesi ávarp fyrir hönd
þeirra, er luku námi i Samvinnu-
skólanum fyrir 30 árum. Þeir
gáfu peníngagjöf i
Menningarsjóð Jónasar
Jónssonar, en sá sjóður styrkir
efnilega nemendur til framhalds-
nams.
Við skólaslitin héldu eins og
venja hefur verið nokkrir heima-
manna stuttar ræður. Fulltrúi 1.
bekkjar var Agnes Ingvarsdóttir
frá Höfn i Hornafirði, 2. bekkjar
Sigurður Valdimar Bragason frá
Landamótase1 i Ljósa-
vatnshreppi, en Sigurður
Valdimar hafði verið formaður
skólafélagsins siðastliðinn vetur.
Af hálfu kennara talaði Snorri
Þorsteinsson, yfirkennari.
Undir lok skólaslitanna
ávarpaði skólastjóri hina braut-
skráðu nemendur, flutti þeim
árnaðar og hamingjuóskir, en
ræddi sérstaklega um æskuna og
samtiðina og þær vonir, sem við
æskuna væru nú tengdar að
skapa betri veröld.
Á hátiðahöldin við skólaslit
setti einsöngur Ruth L.
Magnússon, með undirleik
Christina Cortes sérstakan svip
svo og söngur nemendakórs
Samvinnuskólans. Kórinn söng
undir stjórn Guðjóns Pálssonar,
söngstjóra frá Borgarnesi.
Áður en heim var haldið, þágu
viðstaddir veitingar.
EINU SINNI ENN VEGNA ÁSK0RANA
Ruth L. Magnússon söng við skólaslitin við undirieik Christine Cortes
Tríð Steina Steingríms leikur
GÖMLU GÓÐU LÖGIN
"frá því hérna á árunum"
(með hæfilegri sveiflu)
fyrir matargesti okkar n.k.
mánudags og þriðjudagskvöld
Borðpantanir hjá yfirþjðni
sími 11322
VEITINGAHÚSIÐ
ÓDALÉ
VIÐ AUSTURVÖLL