Tíminn - 16.05.1972, Side 7
Þriðjudagur. 10. mai. 1972
TÍMINN
7
Hver vill vera afi HHh
og hver vill vera amma?
Vandamál fólks eru marg-
visleg. Litla stúlkan hér á
myndinni, sem situr i fanginu á
móður sinni á sin vandamál.
Stúlkan heitir Pamela, móðir
hennar er sænsk, en faðirinn er i
Vestur-Indium. Þær mæðgur
búa i Huddinge, sem er skammt
utan við Stokkhólm, og þær eiga
★
enga nákomna ættingja i næsta
nágrenni. Litla stúlkan finnur
mikið til þess,að hún á ekki föð-
ur, eins og vinir hennar, og hún
saknar þess lika mikið, að geta
ekki brugðið sér i heimsókn til
föðurömmu og föðurafa. Þess
vegna setti hún þessa mynd af
þeim mæðgum i vikuritið Vecco
Revyn, og auglýsti eftir föður-
ömmu og föðurafa, sem þær
mæðgur gætu heimsótt um helg-
ar.
Myndasafn á
klettavegg
— Á klettavegg i Pamirfjöllum i
sovézku Mið-Asiu hefur fundist
heilt myndasafn, er nær yfir 35
metra svæði, og eru það mest
bardagamyndir. Sérfræðingar
hafa ákvarðað aldur þeirra um
2000 ár og telja, að myndirnar
séu gerðar af Sak-þjóðflokkn-
um, sem núverandi Tadsjukar
eru frá komnir.
Fundin óþekkt
freskumálverk eftir
Andrei Rublev
Fundizt hefur áður óþekkt
freskumálverk eftir hinn fræga
rússneska málara, Andrei
Rublev, málað i byrjun 15. ald-
ar. Fundust þau i turni dóm-
kirkju i grennd við Moskvu.
Málverk þetta, sem fannst, er
verið var að gera við kirkjuna,
er i björtum léttum litaskala,
ljósblátt, ljósrautt og blátt rikj-
andi. Málverkið á margt sam-
eiginlegt með öðrum verkum
Rublevs. Teikningin, efnisval og
meðferð eru frumleg en sam-
timis skyld öðrum þekktum
verkum Rublevs. Niðurstaða
sérfræðinganna, að Rublev væri
höfundur verksins, var staðfest
með efnagreiningu á málverk-
inu. *
Lill-Babs meö
nýjum félögum
Lill-Babls er ein vinsælasta
söngkona Sviþjóðar. Hún er nú
að leggja upp i söngför um Svi-
þjóð, og með henni i ferðinni
veröa þrir söngvarar, sem
nefna sig Tre Profiler, og auk
þess verður með i ferðinni trió,
sem leikur undir. Ungi mað-
urinn, beint fyrir aftan Lill-
Babs er sagður vera nyjasti vin-
ur hennar, en hún er oft milli
★
Atta mánaða og
syndur vel
Þessi litli kútur hér á mynd-
inni er ekki nema átta mánaða
gamall, en samt er hann flug-
syndur. Hann heitir Christ-
opher, og hefur lært að synda
hjá Lucille nokkurri, sem er
sundkennari i Los Angeles og
helgar sig sundkennslu smá-
barna, þ.e.a.s. þeirra, sem enn
eru ekki farin að ganga. Lucille
hefur i 27 ár kennt smábörnum
að synda. Venjulega kennir hún
ekki börnum, sem eru yngri en
fimm mánaða, en þó hefur hún
einu sinni haft barn i sundtima,
og það var ekki nema þriggja
mánaða. Cristopher var sex
mánaða, þegar hann byrjaði i
sundtimunum og þó hafði hann
aldrei komið i sundlaug áður.
Nú er hann orðinn mjög vel
syndur, og getur synt hálfan
annan metra i kafi, að sögn
móður hans..
tanna fólks i Sviþjóð, vegna
þeirra karlmenna, sem hún á
vingott við.
Sjálfvirkur
flotkrani
— Stærsti flotkrani i Sovétrikj-
unum hefur verið smiðaður i
skipasmiðastöðinni i Sevasto-
pol. Hann getur lyft allt að 300
tonna lóði i 40 metra hæð. Sjálf-
virkur rafeindastjórnbúnaður
útilokar mistök við vinnu með
krananum. Kraninn er tiltölu-
lega litill, 54,5 m á lengd og 25,3
m á breidd, og það ásamt mikilli
verkhæfni og orku gera hann
hagkvæman til noktunar við
byggingu stórra vatnsorkuvera,
m.a. við litil vötn, svo og til að
ferma og afferma skip i höfn-
um, skipalægjum og á rúmsjó.
★
Nýtt sterkt trefjaefni
yniivlon-H er trefjaefni, sem b-
úið hefur verið til i Sovétrikjun-
um og er sterkara og teygjan-
legra en öll þekkt náttúruleg
gerviefni. Sérfræðingar eru
þeirrar skoðunar, að þetta nýja
efni eigi að nota sem uppistöðu-
efni i hjólbarða til notkunar við
þungaflutninga. t flugvélaiðnaði
myndi notkun þess stuðla að
lengri endingu flugvélahjól-
barða. Færibönd gerð úr
Vniivoln geta flutt mörgum
sinnum meira en færibönd gerð
úr þeim efnum, sem venjulega
eru notuð.
N'
r~i
1 - v S3 b=!t
— Reyndu að vera ánægjuleg á svipinn. Þarna kemur fyrri konan
min.
— Ég skal segja yður, að bréfber-
inn okkar er alveg óþolandi. Hann
bitur aftur.
DENNI
DÆMALAUSI
Þetta er þó heldur skemmtilegra
heldur en að ganga.