Tíminn - 16.05.1972, Page 8
8
TÍMINN
ÞriðjutTagur. 16. mai. 1972
Aðalfundir Mjólkursamlags K.S.
og Kaupfélags Skagfirðinga
Nýlega eru afstaðnir aðalfundir
Mjólkursamlags K.S. og Kaupfé-
lags Skagfirðinga.
Tobias Sigurjónsson, Geldinga-
holti form. stjórnar K.S., setti
báða fundina og flutti skýrslu
stjórnar, en fundarstjóri á fund-
unum var Gisli Magnússon, Ey-
hildarholti.
Ársfundur Mjólkursamlagsins
P'undurinn var haldinn i Bifröst á
Sauðárkróki 21. april s.l. t. ýtar-
legri skýrslu Sólbergs Þorsteins-
sonar, samlagsstjóra, komu fram
m.a. eftirfarandi upplýsingar:
Innvegiö mjólkurmagn á árinu
1971 var kg. 7.772.943, og haföi
aukizt um 7,7% frá fyrra ári.
Meöalfeiti mjólkurinnar reyndist
3,828% og hafði aðeins aukizt frá
árinu 1970.
Neyzlumjólkursala var aðeins
um 10%> af heildarmagni innleggs
og fóru þvi um 90% af mjólkinni
til vinnslu.
Á árinu framleiddi samlagið
Ver/lunarhús Kaupfélags Skagfirðinga við Skagfirðingabraut, en þar er m.a. kjörbúð.
Smjörneyzlan nam 7.7
kg. á íbúa árið 1977
Á s.l. ári jókst smjör-
neyzla hérlendis mjög
verulega, og var til jafn-
aöar 7,7 kg á mann, og
er þaö svipaö og á hinum
Norðurlöndunum.
Neyzla sm jörs og smjör-
likis nam á s.l. ári sam-
tals 20 kg. á inann til
jafnaðar. Þessar upp-
lýsingar komu fram i
s k ý r s 1 u Ós k a r s
Gunnarssonar forstjóra
Osta og smjörsölunnar,
á lundi Osta og smjör-
sölunnar og Fram-
leiðsluráðs landbúnað-
arins, með mjólkur-
samlagsstjórum á föstu-
daginn. Alls sátu fund
þennan 20 — 40 manns,
og var tilgangur hans að
ræða markaðs og fram-
leiðslumál mjólkur-
iönaðarins.
Útsöluverð á smjöri kvað Óskar
vera mjög svipað hér og i Noregi
og Danmörku, eða alls staðar
milli kr. 160,00 og kr. 170,00 pr. kg.
Ostasalan jókst nokkuðá s.l. ári
og varð um 5 kg. á mann. Er þetta
svipuð neyzla og t.d. i Bretlandi,
en 3 — 4 kg. minna en á hinum
Norðurlöndunum.
Þróun mjólkurframleiðslunnar
i landinu á undanförnum árum
heíur verið með þeim hætti, að
ostaframleiðslan hlýtur i auknum
mæli að flytjast til mjólkurbú-
anna á Norðurlandi. Enn eru sum
mjólkurbúin varbúin þess að taka
að sér aukna ostaframleiðslu, en i
undirbúningi er nú nýbygging
Mjólkursamlags á Akureyri og
bygging nýrrar ostagerðar á
Húsavik. Er þess þvi að vænta, að
innan fárra ára verði betur fyrir
aöstöðu til ostaframleiðslu séð en
nú er og þar með möguleikum til
aukinnar fjölbreytni i ostagerð.
Ostur var á s.l. ári fluttur aðal-
lega til Bandaríkjanna, Sviþjóðar
og Bretlands litillega. t vetur
hefur verið fluttur út ostur i til-
raunaskyni til Tékkóslóvakiu og
Japan.
1 erindi Péturs Sigurðssonar,
cand.lac., fulltrúa hjá Fram-
leiðsluráði, kom m.a. fram, að á 4
sumarmánuðum koma til sölu-
meðferðar um 45% af heildar-
magni mjólkur. Horfur eru á 5 —
6% aukningu mjólkurframleiðslu
á næstu mánuðum miðað við s.l.
ár Birgðir osta og smjörs eru nú
mjöglitlar. Aðalframleiðsluvörur
næstu mánaða verða þvi
ostur.smjör og undanrennuduft.
Ekki er gert ráð fyrir smjörút-
flutningi það sem eftir er ársins,
en ostaútflutn. ætti að verða
svipaður og s.l. ár.
Auk þeirra fyrirlesara, sem
þegar hafa verið nefndir, eru
Sævar Magndsson, cand. lac.,
Sveinn Tryggvason fram-
kvæmdastjóri, Guðbrandur
Hliðar dýraiæknir og Asgeir
Einarsson dýralæknir.
137 tonn af smjöri, 481 tonn af
mjólkurostum og 18 tonn af osta-
efni. Sala á skyri var um 72 tonn,
og af rjóma seldust 47,800 litrar.
Um áramótin siðustu voru
smjörbirgðir 78 tonn og mjólkur-
ostar 102 tonn.
Innleggjendur voru 315 og hafði
fækkað um 7. Meðalinnlegg
reyndist 24.671.00 kg. og hafði
vaxið um liðlega 2 þús. kg. frá
fyrra ári.
Heildargreiðslur til innleggj-
enda fyrir framleiðsluna 1971 er
um 120 milljónir, sem gerir 15.96
kr. á ltr., eða um 30 aura umfram
staðargrundvallarverð.
Aðalfundur kaupfé-
lags Skagfiröinga
Fundurinn var haldinn 27. og
28. april s.l. á Sauðárkróki.
Sveinn Guðmundsson, kaupfé-
lagsstjóri flutti þar yfirgrips-
mikla ræöu um hag og horfur fé-
lagsins, og skýrði reikninga þess
fyrir s.l. ár. 1 ræðu Sveins kom
m.a. fram, að félagsmenn voru i
árslok 1350, með um 3.110 manns
á framfæri, að þeim sjálfum með-
töldum. Heildarvelta kaupfélags-
ins og fyrirtækja þess var um 604
milljónir króna. og hafði vaxið
um 32,25% frá 1970.
Sala á vörum og þjónustu nam
um 283 milljónum króna, og hafði
aukizt um tæp 29% frá fyrra ári..
Sala á innlendum vörum var um
273 milljónir króna. Framleiðslu-
verðmæti Fiskiðju Sauðárkróks
nam kr. 48.5 milljónum.
úaunagreiðslur
Á s.l. ári greiddi Kaupfélag
Skagfirðinga og fyrirtæki þess kr.
66.6 milljónir f laun, fyrir utan
launaskatta, og höfðu launa-
greiðslur hækkað um 22,5% frá
fyrra ári. Framleiðendum var
greitt um 203,8 milljónir króna
fyrir innlagðar afurðir á árinu.
F'astráðið starfsfólk var i árslok
121.
Fóðurvöruverzlunin
P'yrir siðustu ár'amót tók kaupf-
élagið i notkun nýja bifreið, með
sérstökum dælubúnaði til flutn-
ings á kornuðu fóðri. Hefur sú
starfsemi gengið vel, og jafnvel
betur en búast mátti við svona
fyrst i stað. Einnig hefur S.S. ný-
lega tekið i notkun kornmyllu til
mölunar á mais og byggi. Kaup-
félagið hefur á hendi um 80-90%
af allri fóðurvörusölunni i hér-
aðinu. Fóðurvörurnar eru ágóða-
skyldar.
Fasteignir
Fasteignir félagsins eru um 35
að tölu, og sumar mjög verð-
Frá fundi Osta og smjörsölunnar meö mjólkurbússtjórum og Framleiösluráöi. (Tímamynd G.E.)
mætar. Þessar eignir eru bók-
færðar á kr. 85,8 milljónir,
samkv. nýja fasteignamatinu.
Vélar, tæki, bilar, o.þ.h. er bók-
fært hjá félaginu á kr. 18 mill-
jónir.
Sauðfjárslátrun
Kaupfélag Skagfirðinga slátr-
aði á siðasta hausti á þremur
stöðum, Sauðárkróki, Hofsósi, og
Haganesvik. Alls var slátrað
43.395 kindum, og var heildar
kjötinnlegg um 650 tonn. Að auki
varslátrað um 500 nautgripum og
280 hrossum og folöldum. Endan-
legt verð á kindakjöti til inn-
leggjenda varkr. 2,13 pr. kg. um-
fram verðlagsgrundvallarverð
eftir hækkun grundvallarverðsins
frá 1. marz 1971.
Sláturbús
Gert er ráð fyrir að K.S. hefji á
þessu ári byggingu á nýju slátur-
húsi, er hafi möguleika á slátrun
á 3.000 kindum á dag, auk 40 naut-
gripa. Að auki verður ráðizt i
verulega stækkun á frystihúsi fé-
lagsins. Gert er ráð fyrir að nýja
sláturhúsið taki til starfa haustið
1973.
Iiöfuöstöövar fyrir K.S.
Starfsemi félagsins hefur verið
rekin i nokkuð dreifðum eining-
um, og hefur þvi verið sótt fast að
reyna að sameina sem flestar
rekstrareiningar, og i þvi sam-
bandi er beðið eftir afgreiðslu
bæjarstjórnar Sauðárkróksbæjar
með afgreiðslu á lóðaumsókn
K.S. á um 8.000 — 10.000 ferm. lóð
norðan M jólkursamlags, við
Skagfirðingabraut. t þvi húsnæði,
er þar yrði reist, er gert ráð fyrir
að sameina sem flestar vprzlanir
félagsins, og að auki flytja skrif-
stofurnar i þetta nýja hús. Þessi
bygging er mjög aðkallandi fyrir
kaupfélagið, þar sem félagið er
með mjög óhægan rekstur i
mörgum sinum húsum, og skrif-
stofur félagsins búa við alls ófull-
nægjandi aðstöðu.
Það er einlæg ósk og von for-
ráðamanna K.S., að bæjarstjórn
Sauðárkróksbæjar úthluti um-
ræddri lóð til félagsins nú innan
skamms, svo að hægt verði að
hefjast handa.
Keikningar félagsins
í reikningum félagsins kemur
m.a. fram, að heildarfyrningar á
húsum, vélum og tækjum nam kr.
12,2 milljónum, og hafði aukizt
um helming frá fyrra ári, m.a.
vegna endurmatshækkunar fast-
eigna. Að auki var varið til við-
halds húsa og tækja um 9,8 mill-
jónum. Rekstrarhagnaður ársins
var 11,5 milljónir tæpar, sem
komu til ráðstöfunar á aðalfundi,
og ráðstafaði fundurinn þvi fé
sem hér segir:
1. Lagt i varasjóð 4.000.000,00
2. Greitt til félaga-
samtaka 150.000,00
3. Arðsúthlutun til félags-
manna, i hlutfalli við við-
skipti þeirra við félagið
6% af ágóðaskyldri
vöruúttekt 7.000.000,00
4. Lagt i menning
arsjóð K.S. 300.000,00
5. Yfirfært til næsta árs 26.325J5
Samkvæmt venju fékk aðal-
fundurinn mörg og margvisleg
mál til afgreiðslu, sem gerðar
voru sérstakar samþykktir um,
en þeirra verður ekki getið hér s-
e'rstaklega.
Stjórnin
í stjórn Kaupfélags Skagfirð-
inga eiga nú þessir menn sæti:
Tobias Sigurjónsson Geldinga-
holti, form., Gisli Magnússon Ey-
hildarholti. varaform., Jóhann
Salberg Guðmundsson ritari,
Jón Eiriksson Djúpadal, Marinó
Sigurðsson Álfgeirsvöllum, Stef-
án Gestsson, Arnarstöðum og
Þorsteinn Hjálmarsson Hofsósi.
Og varamenn i stjórn eru þeir
Gunnar Oddsson, Flatatungu og
Magnús H. Gislason, Frostastöð-
um. Endurskoðendur félagsins
eru þeir Árni Gislason, Eyhildar-
holti og Vésteinn Vésteinsson
Hofstaðaseli.
Sveinn Guðmundsson kaupf.stj.
varð sextugur siðari fundardag-
inn, og þágu aðalfundarfulltrúar
og gestir fundarins veitingar
heima hjá kaupfélagsstjóranum
að loknum fundi.
S.kr. 1. mai 1972
HRT