Tíminn - 16.05.1972, Qupperneq 10

Tíminn - 16.05.1972, Qupperneq 10
10 TÍMINN Þriðjudagur. 16. mal. 1972 TILRAUNASKÓLI í REYKJAVÍK —■ ■ Enn deilt um staðsetningu Tækniskólans: HEILDARÁLITSGERÐ UM DREIFINGU STOFNANA UM LANDIÐ NAUÐSYNLEG - sagði Jónas Jónsson EB-Reykjavik Enn urðu umræður um staðsetningu Tækniskóla islands á fundi I neðri deild Alþingis s.l. miðvikudag. Magnús Torfi ólafsson, manntamálaráðherra kvaðst styðja frumvarpiö eins og efri deild, gekk frá því en frum- varpið gerir nú ráö fyrir tveimur tækniskólum, i Reykjavik og á Akureyri, og að kannaðir verði möguleikar á þvi, að tækniháskóli risi i framtiðinni á Akureyri. Gylfi Þ. Gislason iagðist enn gegn þvi að tækniskólanum veröi valinn staöur á Akureyri. Hér væri um sérhæfðasta skóla landsins að ræða. Þess vegna myndi það koma niður á gerðum hans, yröi hann fluttur noröur. Gylfi sagði, að það væri heilbrigö stefna að dreifa stofnunum um landsbyggðina, og fyllilega kæmi til greina að flytja t.d. Fiski- félagið og Búnaðarfélagið til Akureyrar. Gisli Guðmundsson. (F) sagöi það fróðlegt að hlýða á ræðu Gylfa, „vegna þess, að ég minnist viðræðna, bæði á fundi og utan fundar, sem ég og fleiri áttum með honum um þessi mál 1963. Það varð þá að samkomulagi i bili, að inn i þau lög, sem þá voru samþykkt yrðu sett ákvæði um aö stefna skyldi að þvi að koma upp fullkomnum tækniskóla á Akur- eyri, og þetta stendur i lögunum frá þeim tima. Ráðherrann, sem átti að framkvæma þessi ákvæði laganna var Gylfi Þ. Gislason. Hann hafði til þess 7 ár. Hins vegar hef ég ekki orðið var við,að árangur hafi orðið þar af. Og nú er Gylfi Þ. Gislason kominn Gisli Guömundsson. Jónas Jónasson. á þa skoðun að það sé ekki grundvöllur fyrir tækni- skóla á Akureyri yfir höfuð, það skorti skilyrði. Má ég benda þing- manninum á, að Akureyri er álika f jölmenn nú eins og Reykja- vik var, þegar Háskóli tslands var settur þar á stofn 1911. Má ég benda á það, að Akureyri er orðin mikill og vaxandi iðnaðarbær, má ég benda á það, að i skyrslu, sem i upphafi hefur verið lesið upp úr hér á þingi, var gerð grein fyrir þvi, að tæknimenntuðum mönnum farifjölgani á Akureyri. Má ég benda á það, að fyrir 40 árum var verið aö ræða um að koma upp menntaskóla á Akur- eyri. Þá voru færð nákvæmiega sömu rök gegn þvi, og Gylfi Þ. Gislason var að færa gegn tækni- skóla á Akureyri, þ.e. að það myndi verða skortur á kennurum, en reynslan sýndi allt annað. Reynslan sýndi, að Mennta- skólinn á Akureyri hefur starfslið, aö ég ætla fullkomlega sambæri- legt við hliðstæðar mennta- stofnanir hér syðra”. Að lokum vakti Gisli athygli á þvi að hann futti fyrr i vetur til- lögu um að þingið lýsti þeim vilja sinum, að Tækniskóli íslands yrði fluttur til Akureyrar. Óskaði hann eftir þvi, að menntamálanefnd neðri deildar,sem hefur tillöguna til meðferðar, tæki afstöðu til hennar. Jónas Jónsson (F) sagði m.a.að nauðsynlegt væri að gera sér grein fyrir þvi að ætti að dreifa stofnunum um landið, ætti fyrst og fremst að sjá til þess, að setja nýjar stofnanir niður, þar sem heppilegt væri talið út frá þvi sjónarmiði, og i öðru lagi kæmi þá til greina að flytja mjög ungar stofnanir, sem ekki hefðu fest rætur sinar. Það yrði alltaf mjög mikli r erfiðleikar viö að flytja stofnanir, sem rótgrónar væru á sínum stöðum. Nú hefði sú hugmynd lengi verið uppi, að tækniskóli gæti átt rétt á sér á Akureyri. Væri þetta auðvitað út frá þeirri stefnu, að rétt væri að dreifa stofnunum um landið. Nú heföi ekki verið gerð heildarathugun á þvi, hvaða stofnanir ættu að vera annars staðar en i Reykjavik, Þess vegna væri ákaflega hætt við þvi, að hvert mál, sem kæmi til umræöu á þessu stigi, hlyti svipaðar mót- tökur eins og t.d. lýsti sér I ræðu Gylfa Þ. Gislasonar. Ef fyrir lægi ein heildaráætlun um þa*> hvernig ætti að byggja upp i-ndið með hinum ýmsu nai'°»ynle8}1 stofnunum þyrfti ek’1' að koma til deílna i nvert skipti sem mál e;‘is °S Jietta kæmi fyrir. Sejníia i ræðu sinni, sagöi j^.ias, að auðvitað væri ekki hægt að byggja upp tækniskóla á Akur- eyri nema með föstu kennara- liöi að langmestu leyti. Þar væru þó verkfræðingar og tækni- fræðingar, eitthvað á' annan tug manna i hvorum þessara hópa. Byggingar væru þær sömu sem þyrfti fyrir skólann, hvort sem hann væri á Akureyri i Reykjavik eða annars staðar. I lok ræðu sinnar sagði Jónas, að dálitið undarlegt væri, að þegar sótt væri á það, aö Tækni- skólinn yrði á Akureyri , þá væri eins og verið væri að taka svolitiö af þrýstingnum með þvi að setja inn i frumvarpið, að hluti skólans mætti vera á Akureyri. Væri ekki eðlilegra og verk- drýgra, að skólinn væri þar allur? EB-Reykjavik. Stjórnarfrumvarp um stofnun tilraunaskola, er nefnist sameinaður framhaldsskóli, var s.l. föstudag lagt fyri Alþingi. Samkvæmt þessu frumvarpi verður skólinn I Reykjavik og rekinn af rikinu og Reykjavikur- borg. Lagt er til(að ríkissjóöur greiði 60% af stofnkostnaöi skólans, en 40% greiðist af Reykjavikúrborg. A skólinn aö vera fyrir nemendur, sem hafa lokiö skyldunámi og veiti skólinn þeim tiltekin réttindi til sérnáms I framhaldsskólum eöa háskóla svo og menntun og þjálfun I ýmsum starfsgreinum. 1 greinargerð frumvarpsins segir, að veröi það að lögum verði stofnað til nýs skóla i tilrauna- skyni, sem ætlað sé að annast menntun allra nemenda ákveöins skólahverfis á tilteknu aldurs- stigi án tillits til fyrirhugaðar námsbrautar hvers og eins, og sameini skólinn þannig i eina heild hinar ýmsu tegundir skóla á framhaldsstigi. Ennfremur segir i greinargerðinni: ,,Þar sem hér er um að ræða frávik frá þvi skipulagi, sem nú er lögboðið, er nauðsynlegt að afla tilraun þessari laga- heimildar. Markmið þeirrar tilraunar, sem felst i stofnun sliks skóla, er sumpart hagkvæmara ytra skipulag, en þó umfram allt breytingar á hinu innra skóla- starfi, er miðaö að þvi að auka jafnrétti nemenda með ólika hæfileika og ólik áhugaefni og að draga úr þvi vanmati og van- EB-Reykjavik. Talsvcrðar deilur hafa orðið á Alþingi um stjórnarfrumvarpiö um Sölustofnun lagmetisiðnaðar- ins, einkum um stjórn stofnunar- innar, en lagt er til i frumvarpinu, að opinberir aöilar skipi meiri- hluta stjórnarinnar. Efri deild þingsins afgreiddi frumvarpið i siðustu viku, og b-8; ar það kom til 1. umræð'’ ‘“eöri deild s.l. miðviki>'íci8' sa8ði Magnús Kjartae'3011 iönaðarráð- herra, þega>- ',ann §erði Þar 8rein fyrir .fr-‘nvarPinu, að þar sem Pijcí-^jóði væri ætlað að leggja rfam stór óafturkræf framlög til stuðnings sölustofnuninni, væri eðlilegt að hið opinbera hefði meirihluta i stjórn hennar, en i frumvarpinu er lagt til að rikis- sjóður greiði 25 millj. kr. ár hvert i þessu skyni næstu fimm árin. Ráðherrann sagði ennfremur, að ef einkaaöilar ættu að fá meiri- hluta i stjórninni, væri hann þeirrar skoðunar, að gera þyrfti þær breytingar á frumvarpinu, að einkaaðilar legðu fram meiri- hluta fjármagnsins til stofnunar- innar i staö rikissjóðs. Gæti þessi breyting verið á þann veg, að framlag rikissjóðs yrði t.d. 10 millj- kr. hvert ár, og framlag einkaaðila 15 millj. kr. Björn Pálsson (F) sagði, að at- vinnurekendur ættu að hafa meirihluta i stjórn Sölustofnunar- innar, og hann taldi hæfilegt að rikissjóður greiddi aðeins 5 milljónir kr. á ári til hennar. Björn sagði ennfremur m.a., að rikið ætti ekki að leggja of mikið upp i hendurnar á mönnum. Það ætti að spara meira en það gerði. Taldi Björn bezt, að menn ynnu rækslu á tilteknum náms- brautum, sem skiptingu náms- brauta á aðskildar og ólikar skólagerðir hættir til að hafa i för með sér. Jafnframt stefnir tilraunin að þvi að gefa nemendum tækifæri til að velja sér námsbraut i sem fyllstu samræmi viö þann áhuga og getu, sem vaxandi þroski þeirra á framhaldsskólaaldrinum kann að leiða i ljós, og að hverfa frá þeirri hefð, að nemendum sé við ákveðinn aldur skÍDað i skóla. þar sem þeir eru i eitt skipti fyrir öll útilokaðir frá tilteknum náms- brautum. Sameining sem flestra námsbrauta i einni skólastofnun auðveldar mjög flutning milli námsbrauta og eykur þannig tækifæri nemenda til að velja sér endanlegan námsferil og starfs- feril við sitt hæfi. Megineinkenni hins sameinaða framhaldsskóla er þvi, að nemendur hans geta valið um fjölbreytt nám og mismunandi námsbrautir, hvort heldur til undirbúnings undir störf i hinum ýmsu greinum atvinnulifsins eða undir áframhaldandi nám i sér- skólum og háskóla eða öðrum menntastofnunum á háskólastigi. Sem dæmi um námsbrautir má nefna menntaskólanám, verzlunarnám, hússtjórnarnám, og iðn, iðju- og tækninám. Þótt svo sé til ætlazt, að skólinn bjóði kennslu allt að stúdentsprófi, er jafnframt gert ráð fyrir skemmri námsferlum, allt eftir eðli þess náms, er nemendur stunda og kröfum þeirra starfa eða sér- náms sem þeir stefna að.” sig upp sjálfir i stað þess s' heimta alltaf fé frá rikin>> l n- gæti rikið sparað 100 kr-> ef það greiddi aðei>’-' 0 millj. kr. á ári til Sölus1"'nunarinnar■ I lok -^011 sinnar sagði Björn p^j^on, að hann yrði ekkert hrif- ..m af þvi f ef t.d. Magnús Kjartansson iðnaðarráðherra skipaði einhvern yfir hann á búi hans fyrir norðan. Pétur Pétursson (A) sagðist vera meðmæltur þvi, að hið opin- bera hefði meirihluta i stjórn stofnunarinnar næstu fimm árin. Sagði Pétur, að með frumvarpinu væri stefnt i rétta átt. Karvel Pálmason (SFV) áleit, að i meginatriðum væri stefnt i rétta átt með frumvarpinu. Hins vegar kvaðst hann vera andvigur þvi, að hið opinbera hefði meiri- hluta i stjórn stofnunarinnar. Garðar Sigurðsson (AB) sagði, að óskiljanlegt væri, hvernig Karvel Pálmason, sem kenndi sig við flokk vinstri manna, gæti tek- iðundir þá skoðun, að einkaaöilar hefðu meirihluta i stjórn stofnun- ar, sem rikissjóður legði allt fjár- magn til. Lárus Jónsson (S) sagði m.a., að með frumvarpinu væri verið að gera merkilega tilraun til að koma á samvinnu milli framleið- enda og rikisins. Guðlaugur Gislason (S) lagöi áherzlu á, að framleiðendur hefðu meirihluta stjórnarinnar, þótt rikið legði stofnuninni til 25 millj. kr. á ári. Pétur Sigurðsson (S) taldi eðli- legt, að á meðan rikið legöi fjár- magn fram til stuðnings stofnun- inni, hefði það hönd i bagga með stjórn hennar. GISTIHUS - HEIMAVISTARSKOLAR Til sölu þvottahúsavélar. Upplýsingar á kvöldin i sima 19584. KAUP — SALA Það er hjá okkur sem úrvalið er mest af eldri gerð hús- gagna, Við staögreiöum munina, þó heilar búslóöir séu. Húsmunaskálinn Klapparstig 29 og Hverfisgötu 40b s. 10099 Og 10059. Nauðungaruppboð á v.b. Hólmsteini AR-27, áður auglýst i Lögbirtingablaðinu 22. og 29. október og 3. nóvember 1971, fer fram um borð i bátn- um sjálfum við bryggju á Stokkseyri föstudaginn 19. mai n.k. kl. 16,00. Uppboðið fer fram til lúkningar opinber- um sveitargjöldum til Stokkseyrarhrepps að undangegnum lögtökum 21. april 1971 og 8. april 1972. Sýslumaður Árnessýslu. Deilt um skipun stjórnar Sölustofnunar lagmetisiðnaðarins

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.