Tíminn - 16.05.1972, Side 11
Þriðjudagur. 16. maí. 1972
TÍMINN
,n ;
Wítiefwdi; Frawiiikrtarfjok-kurfrtn
:: :FMinkv*inda»ti(iri; KH$f(árt 8en«’dtkf*Súrt, 'Rjtstjófatt Þiðrarirtrt ...
:: :• Þárarinsson táb)/ Artdrés KfMíáflSSOrt, ióft Holíáion,; tndrtfií
:: 0.: Þorsteinsson og Töma» KarlMOrt. Auðiýsinstaítiórl: Stelrt- .
Örífrtur Oislason. WllsfjórnarskrifstOÍU-r f €<Jdi)>(íi*inU/ sfmar
19300 — 12305. Skrifytofnr Bankastræfj 7. ~~ AtereWsiusfmi
: 1Í3Í3.:: Augiýsfngasími:: :195Í3,: xAfirar: skrifstofvr.x.simi.x.TStHlÖK:
Áskriflárgjald kr, U2$,ðQ & mánufii Innanfapds. f laUsa«>1<í
kr. li.ÖO stnUktfi. — BtaSaprírtt h.t. (Offnrti
r eldhúsdaginn
Sjaldan hefur komið i ljós greinilegri stefnu-
munur hjá stjórn og stjórnarandstöðu en i eld-
húsdagsumræðunum, sem lauk i gærkvöldi.
Þær umræður sýndu annars vegar hina djörfu
og alhliða umbrotastefnu, sem núverandi
stjórn fylgir, en hinsvegar neikvætt andóf og
tækifærisstefnu stjórnarandstöðunnar.
Þótt ekki séu nema tiu mánuðir siðan núver-
andi rikisstjórn kom til valda, er árangurinn
þegar orðinn glæsilegur. Þjóðareining hefur
náðst um þá stefnu núverandi stjórnarflokka
fyrir þingkosningarnar að færa fiskveiðilög-
söguna út i 50 milur ekki siðar en 1. september
1972 og að segja upp landhelgissamningunum
við Breta og Vestur-Þjóðverja. Verulegar horf-
ur eru á, að uppsögn samninganna tryggi, að
bráðabirgðasamkomulag náist við Breta og
Þjóðverja um takmarkaðar undanþágur i tak-
markaðan tima. Vinnufriður hefur verið
tryggður til tveggja ára i stað árlegra stór-
verkfalla áður. Kaup láglaunafólks hefur verið
sérstaklega hækkað og ellilaun og örorkubætur
hækkuð verulega. Lög verða sett um aukinn
stuðning við námsfólk, sem hefur erfiðasta að-
stöðu. Búið er að tryggja endurnýjun togara-
flotans og dreifingu hinna nýju togara milli út-
gerðarstaða, svo að þeir treysti jafnvægi i
byggð landsins. Framlög til verklegra fram-
kvæmda hafa verið stóraukin, einkum þó til
framkvæmda i strjálbýlinu. Grundvöllur hefur
verið lagður að þvi, með stofnun framkvæmda-
ráðs, að vinnuafl og fjármagn verið nýtt á sem
skynsamlegastan hátt.
Þannig mætti lengi áfram telja. En hvert er
svo framlag stjórnarandstöðunnar?
öðrum þræði er framlag hennar fólgið i
nöldri um það, að framkvæmdirnar séu alltof
miklar, fjárlögin séu of há og framkvæmda-
áætlunin of há. Þetta er eðlileg afstaða ihalds-
flokks eins og Sjálfstæðisflokksins, en sýnir
undirlægjuhátt foringja Alþýðuflokksins, að
fylgja honum i þessu eins og öðru. En eðlilegt
framhald af þessu væri, að stjórnarandstaðan
kæmi með lækkunartillögur. En sliku er ekki
að heilsa. í staðinn hafa stjórnarandstöðu-
flokkarnir flutt margar hækkunartillögur og
stutt allar tillögur um slikt efni. Svipuð hefur
afstaða þeirra verið i skattamálunum og
verðlagsmálunum. Þannig hafa þeir deilt á
nýju skattalögin, en siðan staðið að hækkun,
bæði á fasteignagjöldum og útsvari, og heimt-
að miklu meiri hækkun á t.d. heitu vatni, raf-
magni og fasteignagjöldum en leyft hefur ver-
ið. Framkoma þeirra hefur verið eins tæki-
færissinnuð og mótsagnakennd og framast er
hægt að hugsa sér.
Rikisstjórnin hefur tvimælalaust sterka mál-
efnalega aðstöðu nú i þinglokin. Þar ber að visu
á einn skugga, þar sem er hrollvekjan eða
verðhækkanirnar, sem var frestað á verð-
stöðvunartimabilinu. En sú alda er senn liðin
hjá og hefur orðið minni en ella vegna verð-
lagsráðstafana rikisstjórnarinnar.
Agúst Þorvaldsson alþingismaður:
Hver er framleiðslu-
einingm
UM FATTer nú meira rætt i
heiminum en hungur milljona
manna. Töiur um fjölda
þeirra, sem velta, eru raunar
ekki taldar i milljónum heldur
milljöröum, og áhyggjur fara
vaxandi yfir því, aö tala hinna
sveltandi jaröarbúa aukist
hratt á komandi árum, þvi aö
ört gangi á gæöi jaröarinnar
og stór matarbúr eins og höf,
stöðuvötn og ár, þar sem
veiddar hafa verið milljónir
tonna af fiski, séu aö veröa svo
eitruö, aö fiskurinn drepist
eða verði óætur.
Ráðstefnur um þetta vanda-
mál eru haldnar, þar sem vis-
indamenn og stjórnmálamenn
reyna aö finna úrræöi, en
slikar ráöstefnur hafa hingaö
til lítinn annan árangur boriö
en þann aö auglýsa ráöaleysi
þeirra, sem um máliö fjalla.
EN A SAMA tima og Islend-
ingar heyra um þessi vand-
ræöi og áhyggjur margra
þjóöa, þá er þaö ein höfuðiðja
aö minnsta kosti eins af
stjórnmálaforingjum hér, for-
manns Alþýöuflokksins, Gylfa
Þ. Gislasonar, aö tala og rita
um þá ógn og skelfingu, sem
þjóöinni standi af þvf, aö hér
séu of margir bændur og aö
framleiösla þeirra sé bæöi of
mikil og alltof dýr. Hann hefur
aö undanförnu skrifaö all-
mikiö i blaö sitt, Alþýöublaöiö,
um þessi mál. Þar eru bændur
taldir vera of margir og fram-
leiöslueiningarnar of litlar.
Þar er taliö, að framleiöslan
byggist of mikið á innfluttu
kjarnfóðri.
Nú var þessi flokksforingi
ráðherra samfleytt i 15 ár, og
þegar hann fór úr ráöherra-
stóli á s.l. ári, þá haföi bænd-
um á islandi fækkað i hans
ráðherratið um 1000, svo að
hann getur státað af góöum
árangri, en þó þykir honum of
hægt hafa gengið á þessu sviöi
og auöséö, að honum þykja
hugsjónir sinar á þessum vett-
vangi ekki hafa rætzt meö
nógum hraða þótt sjötti hver
bóndi hafi orðiö að yfirgefa
eignir og óðul.
Nú er auðséö, að hinn fyrr-
verandi ráöherra býst viö
stöönun á þessu sviði, þegar
komin er til valda rikisstjórn.
sem hefur lýst yfir því.að hún
vilji bæta kjör bænda, og eru
þegar eftir stuttan valdaferil
hennar farin aö sjást þess
merki, aö hún vill efla bænda-
stéttina og efna þannig loforð
sin.
VARLA verður um þaö
deilt, aö tslendingar búa viö
velmegun, og á hinn mikli og
dýrmæti sjávarafli, sem aörar
þjóðir kaupa fyrir síhækkandi
verö, þar meginhlut aö lifs-
gæöagnótt og gæfu okkar, en
landbúnaöurinn á þar einnig
drýgri hlut i, en margir virö-
ast vilja vita um.
tslenzka lambakjötiö og
islenzka kúamjólkin og vörur
úr henni eru sjálfsagt ein-
hverjar ómenguöustu vörur af
eiturefnum þeim, sem svo
mjög spilla nú viöa nátt-
úrunni. A slikri kjarnafæöu
lifir þjóöin, og samkvæmt
alþjóölegum skýrslum um
meöalævilengd manna eru
islendingar meö hæstan
meðalaldur. Ekki er vafi á
þvi, aö nóg og holl fæöa á stór-
an þátt i þeim glæsilega
árangri.
EN LANDBUNAÐUR á
tslandi hefur meira hlutverki
aö gegna en aö brauðfæða
þjóöina aö verulegu leyti.
Landbúnaöurinn veitir einnig
mikla og góöa atvinnu mörgu
fólki, og miklu fleira en viö
hann sjálfan vinnur.
Agúst Þorvaldsson
Hér hefur risiö upp veru-
legur iðnaöur úr landbúnaöar
framleiöslu, svo sem ullar- og
skinniönaöur, kjötiönaöur,
mjólkuriönaður og svo margs-
konar þjónustuiönaöur viö
landbúnaöinn sjálfan, eins og
áburðarframleiðsla, hey-
köggla- og heymjölsfram-
leiösla, vélaviögeröir, flutn-
ingaþjónusta og margt fleira.
Þá er hér veruleg garöyrkja
og ylrækt i gróöurhúsum, þar
sem matjurtir og blóm eru
ræktuö i islenzkri mold viö yl
úr iörum tslands.
Tugir þúsunda manna lifa
þannig beint og óbeint af land-
búnaöi og spara þjóöinni
milljarða króna árlega, sem
hún þyrfti til að gcta keypt
þetta allt frá útlöndum.
EN ÚR þvf aö þetta er
svona, af hverju er þá allt
þetta pólitiska moldrok og rif-
rildi i garð bænda og landbún-
aöar? Astæöurnar eru aöal-
lega tvær. Hin fyrri er sú, aö
þeir sem fyrir sliku standa eru
að reyna að sá tortryggni og
öfund I garð bænda og þeirra,
sem þá styðja, til að ná með
þeim hætti fylgi þeirra, sem I
þéttbýli búa, sér til pólitiskrar
fylgisaukningar og hin siðari
er hreinn þekkingarskortur á
starfi bænda.
Hér á landi er auövitaö, eins
og hvarvetn a annarsstaöar,
viö marga erfiðleika aö striöa
i landbúnaði frá hendi
náttúrunnar. Allar þjóöir
veröa aö búa viö slikt og taka
ýmsar byrðar af áföllum á
þvi sviöi á heröar allra sinna
þegna. Hér verður einnig, eins
og viðar þekkist, aö flytja ár-
lega úr landi nokkurn afgang
landbúnaöarvara meö upp-
bótum úr ríkissjóöi, sem er
hreinn gróöi, miöað viö aö
flytja þyrfti inn vegna þess aö
ekki væri nóg framleitt.
OFT ER talaö um, aö kjarn-
fóðurinnflutningurinn sé of
mikill og skaölegur, þvi aö
hans vegna veröi mjólkur- og
kjötframleiösla of mikil, og
siöan veröi aö flytja út afuröir
fyrir of lítiö verö. Hér er
venjulega um ýkjur einar aö
ræöa. An kjarnfóðurs fram-
lciða engar þróaöar landbún-
aðarþjóöir mjólk, kjöt/ flesk
eöa egg. tslendingar geta þaö
auðvitað ekki fremur en aðrir,
og aö framleiöa árlega
nákvæmlega þaö, sem þjóöin
þarf, og ekkert þar fram yfir,
j»etur enginn, hversu n-
akvæmar áætlanir og skipulag,
sera menn hefðu.
FORMADUR Alþýöuflokks-
ins talar mikiö um þaö i grein-
Gylfa?
um sinum, aö gefiö sé meö út-
fluttum landbúnaöarafuröum,
og birtir um þaö tölur, hvaö
hér kosti aö framleiöa hvert
kílo þessara vara og hvaö
fyrir þær fáist erlendis.
Þannig fær hann auövitað
samanburð, sem hentar
honum vel á pappirnum, en
hann getur ekki um þaö i þess
um skýrslum sinum, aö hér er
um aö ræöa einskonar afgang,
i mesta lagi 10% af fram-
leiðslu okkar þegar vel árar.
Verður áreiöanlega miklu
minna i ár, vegna þess aö bú-
stofni landsmanna hefur
fækkaö á undangengnum
haröindaárum.
En hagfræöiprófessorinn
Gylfi Þ. Gislason getur ekki
um þaö, aö fleira er flutt út frá
tslandi meö allríflegri meö-
gjöf en landbúnaöarafuröir.
Hvaö hefur kostaö uppeldi og
ca 20 ára nám þeirra mörgu
menntamanna, sem flytjast úr
landi og koma ekki aftur?
Hvaö er sú meögjöf mikil, sem
þjóöin greiðir þannig árlega?
Hann gerir einnig mikiö úr
þvi, aö framleiöslu-einingin sé
of litil hér i okkar búskap, og
ef hún stækki, þá geti vörur-
nar hækkaö i verði. Ekki skal
um þetta dæmt hér, en varla á
hann viö þaö, aö bændur geti
enn bætt viö vinnutima sinn,
þegar aörar stéttir hafa fengið
hann styttan.
AF ÞVt aö háskólaprófess
orinn og fyrrverandi mennta-
málaráöherrann er flestum
kunnugri i skólakerfinu, þá er
engin goögá aö spyrja hann,
hvort honum þyki þá ekki lika
framleiðslueiningin i skóla-
kerfinu helzt til litil, þar sem
professorar eru sagöir hafa
einnar klukkustundar
kennsluskyldu á viku.
Gæti ekki vcrið ástæöa til
þess fyrir islenzka skattgreiö-
endur at athuga þaö, ekki
siður en framleiöslueiningar i
landbúnaði og útflutningsupp-
bætur á landbúnaðarafurð-
um?
Þeir menn, sem vegna
góöra hæfileika og mikillar
menntunar ættu aö geta veriö
leiösögumenn þjóöar sinnar,
mega ekki rofna úr tengslum
viö þær stéttir þjóðfélagsins,
sem bera mestan hita og
þunga af velmegun þeirri,
sem viö höfum náö. Fram-
leiðslan til lands og sjávar er
undirstaöan. Bændur og
þeirra búskapur er þar einn
mikilvægasti hlekkurinn.
Landbúnaöinn og bændur,
dreifða um allt landiö, verður
þjóöin aö hafa, ef hún á aö
eina landiö ein áfram og
halda gæöum þess i horfi. Þótt
slikt kosti fé, þá skilar þaö sér
aftur á margfaldan hátt og
þannigyaö ekki veröur metiö
þvi að þar viö liggur lif þjóöar-
innar, hér eftir sem hingað til.
ÞAÐ mun aldrei úr gildi
falla, sem örn Arnarson skáld
sagði í eftirfarandi ljóölinum:
,,t svip þeirra seintekna
bóndans, hins sagnfáa
verkamanns og sjómannsins
svarakalda býr saga og
framtið vors lands.”
Störf þessara manna eru
hornsteinar þeirra háu saia,
sem valdhafar og læröra
manna stéttir hafa látiö reisa
til aö þeir fái þar notið heföar
sinnar. Þeir, sem þar eiga
skjól sitt og athvarf, ættu aö
styöja og viröa vel bændur og
búalið, sjómenn og verka-
menn.
ÞRIÐJUDAGSGREININ
Þ.Þ.