Tíminn - 16.05.1972, Page 11

Tíminn - 16.05.1972, Page 11
Þriðjudagur. 16. maí. 1972 TÍMINN ,n ; Wítiefwdi; Frawiiikrtarfjok-kurfrtn :: :FMinkv*inda»ti(iri; KH$f(árt 8en«’dtkf*Súrt, 'Rjtstjófatt Þiðrarirtrt ... :: :• Þárarinsson táb)/ Artdrés KfMíáflSSOrt, ióft Holíáion,; tndrtfií :: 0.: Þorsteinsson og Töma» KarlMOrt. Auðiýsinstaítiórl: Stelrt- . Örífrtur Oislason. WllsfjórnarskrifstOÍU-r f €<Jdi)>(íi*inU/ sfmar 19300 — 12305. Skrifytofnr Bankastræfj 7. ~~ AtereWsiusfmi : 1Í3Í3.:: Augiýsfngasími:: :195Í3,: xAfirar: skrifstofvr.x.simi.x.TStHlÖK: Áskriflárgjald kr, U2$,ðQ & mánufii Innanfapds. f laUsa«>1<í kr. li.ÖO stnUktfi. — BtaSaprírtt h.t. (Offnrti r eldhúsdaginn Sjaldan hefur komið i ljós greinilegri stefnu- munur hjá stjórn og stjórnarandstöðu en i eld- húsdagsumræðunum, sem lauk i gærkvöldi. Þær umræður sýndu annars vegar hina djörfu og alhliða umbrotastefnu, sem núverandi stjórn fylgir, en hinsvegar neikvætt andóf og tækifærisstefnu stjórnarandstöðunnar. Þótt ekki séu nema tiu mánuðir siðan núver- andi rikisstjórn kom til valda, er árangurinn þegar orðinn glæsilegur. Þjóðareining hefur náðst um þá stefnu núverandi stjórnarflokka fyrir þingkosningarnar að færa fiskveiðilög- söguna út i 50 milur ekki siðar en 1. september 1972 og að segja upp landhelgissamningunum við Breta og Vestur-Þjóðverja. Verulegar horf- ur eru á, að uppsögn samninganna tryggi, að bráðabirgðasamkomulag náist við Breta og Þjóðverja um takmarkaðar undanþágur i tak- markaðan tima. Vinnufriður hefur verið tryggður til tveggja ára i stað árlegra stór- verkfalla áður. Kaup láglaunafólks hefur verið sérstaklega hækkað og ellilaun og örorkubætur hækkuð verulega. Lög verða sett um aukinn stuðning við námsfólk, sem hefur erfiðasta að- stöðu. Búið er að tryggja endurnýjun togara- flotans og dreifingu hinna nýju togara milli út- gerðarstaða, svo að þeir treysti jafnvægi i byggð landsins. Framlög til verklegra fram- kvæmda hafa verið stóraukin, einkum þó til framkvæmda i strjálbýlinu. Grundvöllur hefur verið lagður að þvi, með stofnun framkvæmda- ráðs, að vinnuafl og fjármagn verið nýtt á sem skynsamlegastan hátt. Þannig mætti lengi áfram telja. En hvert er svo framlag stjórnarandstöðunnar? öðrum þræði er framlag hennar fólgið i nöldri um það, að framkvæmdirnar séu alltof miklar, fjárlögin séu of há og framkvæmda- áætlunin of há. Þetta er eðlileg afstaða ihalds- flokks eins og Sjálfstæðisflokksins, en sýnir undirlægjuhátt foringja Alþýðuflokksins, að fylgja honum i þessu eins og öðru. En eðlilegt framhald af þessu væri, að stjórnarandstaðan kæmi með lækkunartillögur. En sliku er ekki að heilsa. í staðinn hafa stjórnarandstöðu- flokkarnir flutt margar hækkunartillögur og stutt allar tillögur um slikt efni. Svipuð hefur afstaða þeirra verið i skattamálunum og verðlagsmálunum. Þannig hafa þeir deilt á nýju skattalögin, en siðan staðið að hækkun, bæði á fasteignagjöldum og útsvari, og heimt- að miklu meiri hækkun á t.d. heitu vatni, raf- magni og fasteignagjöldum en leyft hefur ver- ið. Framkoma þeirra hefur verið eins tæki- færissinnuð og mótsagnakennd og framast er hægt að hugsa sér. Rikisstjórnin hefur tvimælalaust sterka mál- efnalega aðstöðu nú i þinglokin. Þar ber að visu á einn skugga, þar sem er hrollvekjan eða verðhækkanirnar, sem var frestað á verð- stöðvunartimabilinu. En sú alda er senn liðin hjá og hefur orðið minni en ella vegna verð- lagsráðstafana rikisstjórnarinnar. Agúst Þorvaldsson alþingismaður: Hver er framleiðslu- einingm UM FATTer nú meira rætt i heiminum en hungur milljona manna. Töiur um fjölda þeirra, sem velta, eru raunar ekki taldar i milljónum heldur milljöröum, og áhyggjur fara vaxandi yfir því, aö tala hinna sveltandi jaröarbúa aukist hratt á komandi árum, þvi aö ört gangi á gæöi jaröarinnar og stór matarbúr eins og höf, stöðuvötn og ár, þar sem veiddar hafa verið milljónir tonna af fiski, séu aö veröa svo eitruö, aö fiskurinn drepist eða verði óætur. Ráðstefnur um þetta vanda- mál eru haldnar, þar sem vis- indamenn og stjórnmálamenn reyna aö finna úrræöi, en slikar ráöstefnur hafa hingaö til lítinn annan árangur boriö en þann aö auglýsa ráöaleysi þeirra, sem um máliö fjalla. EN A SAMA tima og Islend- ingar heyra um þessi vand- ræöi og áhyggjur margra þjóöa, þá er þaö ein höfuðiðja aö minnsta kosti eins af stjórnmálaforingjum hér, for- manns Alþýöuflokksins, Gylfa Þ. Gislasonar, aö tala og rita um þá ógn og skelfingu, sem þjóöinni standi af þvf, aö hér séu of margir bændur og aö framleiösla þeirra sé bæöi of mikil og alltof dýr. Hann hefur aö undanförnu skrifaö all- mikiö i blaö sitt, Alþýöublaöiö, um þessi mál. Þar eru bændur taldir vera of margir og fram- leiöslueiningarnar of litlar. Þar er taliö, að framleiöslan byggist of mikið á innfluttu kjarnfóðri. Nú var þessi flokksforingi ráðherra samfleytt i 15 ár, og þegar hann fór úr ráöherra- stóli á s.l. ári, þá haföi bænd- um á islandi fækkað i hans ráðherratið um 1000, svo að hann getur státað af góöum árangri, en þó þykir honum of hægt hafa gengið á þessu sviöi og auöséö, að honum þykja hugsjónir sinar á þessum vett- vangi ekki hafa rætzt meö nógum hraða þótt sjötti hver bóndi hafi orðiö að yfirgefa eignir og óðul. Nú er auðséö, að hinn fyrr- verandi ráöherra býst viö stöönun á þessu sviði, þegar komin er til valda rikisstjórn. sem hefur lýst yfir því.að hún vilji bæta kjör bænda, og eru þegar eftir stuttan valdaferil hennar farin aö sjást þess merki, aö hún vill efla bænda- stéttina og efna þannig loforð sin. VARLA verður um þaö deilt, aö tslendingar búa viö velmegun, og á hinn mikli og dýrmæti sjávarafli, sem aörar þjóðir kaupa fyrir síhækkandi verö, þar meginhlut aö lifs- gæöagnótt og gæfu okkar, en landbúnaöurinn á þar einnig drýgri hlut i, en margir virö- ast vilja vita um. tslenzka lambakjötiö og islenzka kúamjólkin og vörur úr henni eru sjálfsagt ein- hverjar ómenguöustu vörur af eiturefnum þeim, sem svo mjög spilla nú viöa nátt- úrunni. A slikri kjarnafæöu lifir þjóöin, og samkvæmt alþjóölegum skýrslum um meöalævilengd manna eru islendingar meö hæstan meðalaldur. Ekki er vafi á þvi, aö nóg og holl fæöa á stór- an þátt i þeim glæsilega árangri. EN LANDBUNAÐUR á tslandi hefur meira hlutverki aö gegna en aö brauðfæða þjóöina aö verulegu leyti. Landbúnaöurinn veitir einnig mikla og góöa atvinnu mörgu fólki, og miklu fleira en viö hann sjálfan vinnur. Agúst Þorvaldsson Hér hefur risiö upp veru- legur iðnaöur úr landbúnaöar framleiöslu, svo sem ullar- og skinniönaöur, kjötiönaöur, mjólkuriönaður og svo margs- konar þjónustuiönaöur viö landbúnaöinn sjálfan, eins og áburðarframleiðsla, hey- köggla- og heymjölsfram- leiösla, vélaviögeröir, flutn- ingaþjónusta og margt fleira. Þá er hér veruleg garöyrkja og ylrækt i gróöurhúsum, þar sem matjurtir og blóm eru ræktuö i islenzkri mold viö yl úr iörum tslands. Tugir þúsunda manna lifa þannig beint og óbeint af land- búnaöi og spara þjóöinni milljarða króna árlega, sem hún þyrfti til að gcta keypt þetta allt frá útlöndum. EN ÚR þvf aö þetta er svona, af hverju er þá allt þetta pólitiska moldrok og rif- rildi i garð bænda og landbún- aöar? Astæöurnar eru aöal- lega tvær. Hin fyrri er sú, aö þeir sem fyrir sliku standa eru að reyna að sá tortryggni og öfund I garð bænda og þeirra, sem þá styðja, til að ná með þeim hætti fylgi þeirra, sem I þéttbýli búa, sér til pólitiskrar fylgisaukningar og hin siðari er hreinn þekkingarskortur á starfi bænda. Hér á landi er auövitaö, eins og hvarvetn a annarsstaöar, viö marga erfiðleika aö striöa i landbúnaði frá hendi náttúrunnar. Allar þjóöir veröa aö búa viö slikt og taka ýmsar byrðar af áföllum á þvi sviöi á heröar allra sinna þegna. Hér verður einnig, eins og viðar þekkist, aö flytja ár- lega úr landi nokkurn afgang landbúnaöarvara meö upp- bótum úr ríkissjóöi, sem er hreinn gróöi, miöað viö aö flytja þyrfti inn vegna þess aö ekki væri nóg framleitt. OFT ER talaö um, aö kjarn- fóðurinnflutningurinn sé of mikill og skaölegur, þvi aö hans vegna veröi mjólkur- og kjötframleiösla of mikil, og siöan veröi aö flytja út afuröir fyrir of lítiö verö. Hér er venjulega um ýkjur einar aö ræöa. An kjarnfóðurs fram- lciða engar þróaöar landbún- aðarþjóöir mjólk, kjöt/ flesk eöa egg. tslendingar geta þaö auðvitað ekki fremur en aðrir, og aö framleiöa árlega nákvæmlega þaö, sem þjóöin þarf, og ekkert þar fram yfir, j»etur enginn, hversu n- akvæmar áætlanir og skipulag, sera menn hefðu. FORMADUR Alþýöuflokks- ins talar mikiö um þaö i grein- Gylfa? um sinum, aö gefiö sé meö út- fluttum landbúnaöarafuröum, og birtir um þaö tölur, hvaö hér kosti aö framleiöa hvert kílo þessara vara og hvaö fyrir þær fáist erlendis. Þannig fær hann auövitað samanburð, sem hentar honum vel á pappirnum, en hann getur ekki um þaö i þess um skýrslum sinum, aö hér er um aö ræöa einskonar afgang, i mesta lagi 10% af fram- leiðslu okkar þegar vel árar. Verður áreiöanlega miklu minna i ár, vegna þess aö bú- stofni landsmanna hefur fækkaö á undangengnum haröindaárum. En hagfræöiprófessorinn Gylfi Þ. Gislason getur ekki um þaö, aö fleira er flutt út frá tslandi meö allríflegri meö- gjöf en landbúnaöarafuröir. Hvaö hefur kostaö uppeldi og ca 20 ára nám þeirra mörgu menntamanna, sem flytjast úr landi og koma ekki aftur? Hvaö er sú meögjöf mikil, sem þjóöin greiðir þannig árlega? Hann gerir einnig mikiö úr þvi, aö framleiöslu-einingin sé of litil hér i okkar búskap, og ef hún stækki, þá geti vörur- nar hækkaö i verði. Ekki skal um þetta dæmt hér, en varla á hann viö þaö, aö bændur geti enn bætt viö vinnutima sinn, þegar aörar stéttir hafa fengið hann styttan. AF ÞVt aö háskólaprófess orinn og fyrrverandi mennta- málaráöherrann er flestum kunnugri i skólakerfinu, þá er engin goögá aö spyrja hann, hvort honum þyki þá ekki lika framleiðslueiningin i skóla- kerfinu helzt til litil, þar sem professorar eru sagöir hafa einnar klukkustundar kennsluskyldu á viku. Gæti ekki vcrið ástæöa til þess fyrir islenzka skattgreiö- endur at athuga þaö, ekki siður en framleiöslueiningar i landbúnaði og útflutningsupp- bætur á landbúnaðarafurð- um? Þeir menn, sem vegna góöra hæfileika og mikillar menntunar ættu aö geta veriö leiösögumenn þjóöar sinnar, mega ekki rofna úr tengslum viö þær stéttir þjóðfélagsins, sem bera mestan hita og þunga af velmegun þeirri, sem viö höfum náö. Fram- leiðslan til lands og sjávar er undirstaöan. Bændur og þeirra búskapur er þar einn mikilvægasti hlekkurinn. Landbúnaöinn og bændur, dreifða um allt landiö, verður þjóöin aö hafa, ef hún á aö eina landiö ein áfram og halda gæöum þess i horfi. Þótt slikt kosti fé, þá skilar þaö sér aftur á margfaldan hátt og þannigyaö ekki veröur metiö þvi að þar viö liggur lif þjóöar- innar, hér eftir sem hingað til. ÞAÐ mun aldrei úr gildi falla, sem örn Arnarson skáld sagði í eftirfarandi ljóölinum: ,,t svip þeirra seintekna bóndans, hins sagnfáa verkamanns og sjómannsins svarakalda býr saga og framtið vors lands.” Störf þessara manna eru hornsteinar þeirra háu saia, sem valdhafar og læröra manna stéttir hafa látiö reisa til aö þeir fái þar notið heföar sinnar. Þeir, sem þar eiga skjól sitt og athvarf, ættu aö styöja og viröa vel bændur og búalið, sjómenn og verka- menn. ÞRIÐJUDAGSGREININ Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.