Tíminn - 16.05.1972, Side 19
Þriðjudagur. 16. mai. 1972
TÍMINN
19
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Enginn Akurnesingur fór
með landsliðinu til Belgíu
5 voru settir út úr því s.l. sunnudag
þegar þeir mættu ekki á æfingu
Siðast liðinn sunnudag steig
Hafsteinn Guðmundsson einvald-
ur i knattspyrnu, þungt skref —
hann setti Akurncsingana Matthi-
as Hallgrimsson, Þröst Stefáns-
son, Teit Þórðarson, Eyleif Haf-
steinsson og Harald Sturlaugs-
son, út úr landsliðshópnum, sem
fór utan i morgun. Astæðan fyrir
þvi, að þeir voru settir út — er að
þeir hafa ekki mætt á landsliðs-
æfingar. Hafsteinn valdi strax
fimm nýja leikmenn i staðinn
fyrir Skagamennina, þeir eru:
Steinar Jóhannsson og ólafur Jú-
iusson frá Keflavik, Vestmann-
eyingurinn Tómas Pálsson,
Valsmennirnir Ingi Björn Al-
bertsson og Helgi Björgvinsson.
Ólafur og Helgi hafa ekki leikiö
áður ineð landsliöi.
Timinn náði tali af Hafsteini
Guðmundssyni, i gær, og spurði
hann uin máliö.
Hver er ástæðan, að Akur-
nesingarnir voru settir út úr
landsliðshópnum?
— Þeir hafa ekki mætt á siðustu
landsliðsæfingar — þeir mættu
ekki s.l. fimmtudagskvöld og á
laugardaginn tilkynnti Knatt-
spyrnuráð Akraness, að leik-
menmrmr gætu ekki mætt á sið-
ustu æfinguna hjá landsliðinu s.l.
sunnudag. Ég bað þá að athuga
vel^hvað þeir væru að gera, það
væri litið alvarlegum augum á
það, ef þeir mættu ekki á æfing-
una og fund, sem væri á eftir —
þar sem ræða átti um Belgiuferð-
ina. KRA tilkynnti þá, að það
mundi ekki breyta afstöðu sinni.
— Ég vissi, að leikmennirnir,
væru á æfingu f.h. á sunnud. — en
bjóst við,að þeir kæmu á fundinn,
sem haldinn var eftir landsliðs-
æfinguna. Þeirkomu ekki, en aft-
ur á móti fréttist — að þeir væru
að leika æfingaleik eftir hádegi,
— var þvi eins og KRA væri að
setja stólinn fyrir dyrnar hjá KSl.
Var ekki erfitt að setja Skaga-
mennina 5 út úr landsliðshópn-
um?
— Jú, það var mjög leiðinlegt,
sérstaklega svona rétt fyrir utan-
ferðina — en það var ekki annað
hægt að gera, annað hvort réði
KSt hvernig landsliðsæfingar
færu fram — eða félagsliðin.
Telurðu leikmennina, sem þú
valdir — koma með að fylla skörð
þau, sem Skagamennirnir skilja?
— Við höfum góða varamenn i
hópnum, og verður ekkert stór-
vandamál með liðiö. Ég vel ekki
leikmenn i landsliðið, nema ég
treysti þeim.
Þegar við höfðum samband við
Rikharð Jónsson, þjálfara Akra-
ness i gær, sagði hann — Ég get
ekkert sagt um þetta mál að svo
stöddu, við litum þetta það alvar-
legum augum, að við getum ekk-
ert sagt um málið — nerha á einu
bretti.
Eftirtaldir leikmenn, héldu
utan til Belgiu i morgun — þar
sem þeir leika tvo landsleiki 18.og
22.mai.
Sigurður Dagsson, Val
Þorbergur Atlason, Fram
Jóhannes Atlason, ÍBA
Ólafur Sigurvinsson, IBV
Guðni Kjartansson, tBK
Einar Gunnarsson, IBK
Marteinn Geirsson, Fram
Asgeir Eliasson, Fram
Guðgeir Leifsson, Viking
Óskar Valtýsson, IBV
Hermann Gunnarsson, Val
Elmar Geirsson, Fram
Helgi Björgvinsson, Val
Steinar Jóhannsson, tBK
Tómas Pálsson, IBV
Ingi Björn Albertsson, Val
Ólafur Júliusson, IBK.
tþróttasiðan óskar leikmönnum
og.fararstjórum liðsins — beztu
ferðar, og vonar að leikmennirnir
verði islenzku þjóðinni til sóma.
Góða ferð. SOS.
Víkingur fær
liðsstyrk — frá KR
Enn einn meistarflokksmaður I
knattspyrnu er búinn að yfirgefa
KR. Um s.l. helgi skipti Sigmund-
ur Sigurðsson, 23 ára, bakvörður
um félag. Er hann fjórði KR-,
ingurinn.ier héfur skipt um félag
á stuttum tíma. t vetur, fóru
Baldvin Baldvinsson (nú
Völsungum) og Björn Arnason
(nú Þrótt Nes) — fyrir stuttu fór
Jón Sigurðsson, tit Fylkis.
Sigmundur, sem hefur leikið 40
meistarflokksleiki (lékfyrst 1968)
með félaginu, mun i framtiöinni
leika fyrir Viking. Er þetta missir
fyrir KR, þvi að Sigmundur er
mjög góður bakvörður. Hann
mun koma til með að styrkja
Vikingsliðið.
En hvers á Sigmundur að
gjalda — gömul og úrelt lög KSI
um félagsskipti, gera það að
verkum, að Sigmundur má ekki
leika með Viking i sumar, þar
sem hann hefur leikið með KR á
þessu ári.
Er ekki kominn timi, til að
breyta þessum úreltu lögum — ef
leikmaður leikur 1-2 leiki með
félagi, er hann búinn að bindast
þvi i ár. Er hægt að bjóða ungum
knattspyrnumönnum upp á svona
lagað?
SOS.
A myndinni sést Sigmundur yfir-
gefa leikvöll — nú er hann búinn
að yfirgcfa KR.
„Það er erfitt að leika með Best - hann
getur stundum verið vandamál”‘“tbt"c“"
fram að liöið fer til Danmerk-
ur i byrjun ágúst?
— Lið eins og Manchester
United fer skiljanlega eftir
fyrirfram ákveðinni dagskrá
nokkuð fram i timann, en ef
boð eða óskir berast frá rétt-
um aðilum, er ég viss um/að
það væri hægt. Ég er viss um,
að strákarnir vildu koma
hingaö til að leika. Þaö væri
hægt að koma i miðri viku,
leika einn leik, það er stutt að
fara. Ég tala um þetta við
framkvæmdastjórann, Frank
O’Farrell, strax og ég kem
heim.
Hefurðu einhvern tima leik-
ið gegn islenzku liöi?
— Nei, hvorki með né á
móti, en ég sá i sjónvarpinu
leik Everton og Keflavikur á
Goodison Park, Liverpool. Og
fannst mér Keflavik sýna
mikla getu, miðað við hversu
fámenn islenzka þjóðin er.
Charlton var spurður aö þvi
hvort bróðir hans, Jackie
Charlton, hafi ekki veriö von-
svikinn eftir aö lið hans,
Leeds, tapaði fyrir Woves og
missti þar með af Englands-
meistaratitlinum, en Bobby
sagðist ekki hafa hitt bróður
sinn.
Að blaðamannafundinum
loknum sagði Charlton þaö
hafa komið sér á óvart, að
hafa ekki veriö spuröur um
álit sitt á landhelgismálinu —
en i slfkt blanda ég mér ekki,
sagði hann að lokum.
A laugardaginn afhenti
hann verölaun i FORD-keppn-
inni, á Laugardalsvellinum,
en á sunnudaginn fór hann
heim ásamt konu sinni,
Normu, sem ferðast meö hon-
um um heiminn i sambandi
við keppni þessa, en veröur að
láta sér nægja að feröast án
hans, eða sitja heim, þegar
um keppnisferöalag með Man.
Utd. er að ræða.
—kb—
— Ég held ég hafi leikið
minn siöasta landsleik fyrir
England og býst ekki við aö
verða valinn á ný. Sir Alf mið-
ar allt við undirbúninginn fyr-
ir HM i Munchen, ’74. Það
væri einna helzt.að ég yrði val-
inn eftir 2 ár, þegar HM er lok-
ið, sagði hinn heimskunni
knattspyrnumaður úr Man-
chester United, BOBBY
CHARLTON, á blaðamanna-
fundi á Hótel Esju, um einni
og hálfri klukkustund eftir að
hann steig úr þotu Flugfélags
tslands á Keflavikurflugvelli,
á föstudagskvöldið.
Hann, ásamt Normu, konu
sinni, var hingað kominn til að
afhenda verðlaun i knatt-
þrautakeppni FORD, sem háð
er viða um heim, með þátttöku
drengja á aldrinum sex til
þrettán ára.
— Já, þetta er i fyrsta skipti,
sem ég heimsæki tsland, en
áreiðanlega ekki það siðasta.
Ég kann vel við mig hér.
FORD-keppnin fór fyrst
fram i Amsterdam, Hollandi,
fyrir tveimur árum. Þá var
ekki ákveðið, hvort um áfram-
hald á henni yrði að ræða, en
vegna þess hversu vel tókst
upp þá, var ráðgert að halda
hana i fleiri löndum.
— Ég er ekki kominn hingað
til aö selja bila fyrir FORD,
heldur til að stuðla að þvi, aö
keppni eins og þessi verði
árangursrik. Ég vil koma þvi
tii leiöar að drengir, sem ef til
vill hafa ekki nógan kraft til
að leika meö skólaliðum sin-
um, fái tækifæri til að sýna
getu sina á annan hátt.
B. Charlton, sem leikið hef-
ur með aðalliði Manch. Utd. i
16 ár og unnið öll hugsanleg
verðlaun á knattspyrnusvið-
inu, var þvi næst spurður, hvað
hann hygöist gera/þegar hann
legði knattspyrnuskóna á hill-
una.
— Ég hef undirritað samn-
ing við félag mitt til fjögurra
ára i viðbót og af þeim býst ég
við að leika a.m.k. tvö ár.
Hvað þá tekur við, veit ég
ekki.
Framkvæmdastjóri ein-
hvers liðs?
— Ég vona að ég geti leikiö
sem lengst, og ég þykist vita,
að framkvæmdastjórar eins
og Bill Shankley, Liverpool og
Don Revie, Leeds, óski þess að
vera leikmenn á ný.
Eins og kunnugt er náði
Manchester United fimm
stiga forskoti um tima i 1.
deildinni ensku sl. leiktimabil,
en féll skyndilega hraðbyri
niður töfluna.
— Það liggja eflaust margar
ástæður bak viö það, en erfitt
er að imynda sér hvað i raun
og veru gerðist. Háttalag
George Best utan vallar gæti
verið ein ástæðan. Hann getur
stundum veriö vandamál, þaö
er eríitt aö spila með Best en
ef hann leikur skynsamlega er
allt i lagi. Hann er það hæfi-
leikamikill og stórkostlegur
leikmaöur.
Er ekki hægt að fá Man-
chester United til Islands til aö
leika? — en það kom nefnilega