Tíminn - 16.05.1972, Blaðsíða 24
Hrópaði „Hæ, George”
um leið og
hann skaut
að Wallace
Þriðjudagur. 16. mai. 1972
Tuttugu og fimm ára hvítur
maður handtekinn fyrir skotárás
ina á Wallace í gærkvöldi
NTB—Washington.
George Wallace,
fylkisstjóra íAlabama,
og einum þeirra, sem
nú keppa um
útnefningu sem
forsetaefni Demó-
krataflokksins, var
sýnt banatilræði i
gærkvöldi. Hann var á
framboðsfundi i
bænum Laurel, sem
er i Maryland, 55 km.
frá Washington,
þegar ungur, hvitur
maður snaraðist að
honum og skaut fimm
skotum úr litilli
skammbyssu á
Wallace. Þrjú skot-
anna hæfðu hann, eitt
i kvið, annað i öxl og
hið þriðja í fót. Tveir
menn aðrir urðu fyrir
skotum. Fylkisstjór-
inn var fluttur á
sjúkrahús og var
gerður á honum upp-
skurður i gærkvöldi,
en óvist var þá talið,
hvort tækist að bjarga
lifi frambjóðandans.
Wallace var nýbúinn að
ljúka ræðu sinni, þegar árásin
var gerð, en það var kl. 20 að
Islenzkum tlma. Hann gekk
niður úr skotheldum ræöu
stölnum, fór úr jakkanum og
ætlaði að fara að taka I hendur
áheyrenda, þegar 25 ára
gamall hvitur maður, ljós-
hærður skreyttur mörgum
merkjum meö myndum af
Wallace og kosningaslag-
orðum, gekk að fram-
bjóöandanum og hrópaði
„George, George”, vatt sér að
honum og dró upp skamm-
byssu og hleypti af fimm
skotum af stuttu færi. Skyrta
Wallace litaðist blóði og hann
féll á jörðina. Hélt tilræðis-
maöurinn áfram að skjóta á
hann, eftiraöhann var fallinn.
Tveir menn aðrir urðu fyrir
skotum, öryggisvörður, sem
særðist alvarlega og lögreglu-
maður, sem ekki er talinn I
lifshættu.
Eiginkonan stóð við
hlið hans
Eiginkona Wallace,
Cornelia, var við hlið manns
sins, og kastaði hún sér yfir
hann þar sem hann lá. Þegar
hún stóð upp, var ljósgul dragt
hennar lituð blóöi.
Mikil hræðsla greip mann-
fjöldann, þegar skothriðin
hófst og ruddist fólkiö æpandi
um staöinn.
Lögreglumenn og öryggis-
verðir héldu mannfjöldanum
frá hinum slösuðu og öskruðu
á móti, og báöu fólk um að
halda sig i hæfilegri fjarðlægö.
Kallað var á sjúkrabil, en
Wallace blæddi mikið og
óttuðust menn, að hann mundi
deyja i höndum þeirra, og
var hann þvi drifinn upp i
Frú Wallace kastaöi sér yfir mann sinn, eftir aö hann féll til jaröar fyrir skotum árásarmannsins. Hér
sést hún grúfa sig yfir hann. Simamynd.
„stationbil” og ekið á móts við
sjúkrabilinn. Höfð voru bfla-
skipti, þegar bilarnir mættust,
og var Wallace fluttur á Holy
Cross sjúkrahúsið, þar sem
honum var þegar gefið blóð.
Nixon fékk fréttirnar
strax
Maðurinn, sem skaut á
Wallace kom á framboðs-
fundinn á Kadilakkbil, árgerð
1971. Er hann frá Milwaukee i
Visconsinfylki. Meira var ekki
vitað um hann i gærkvöldi.
Nixon forseta var þegar i
stað tilkynnt um tilræðið.
Hann fyrirskipaði, að sér yrðu
fluttar fregnir af liðan fylkis-
stjórans i alla nótt.
Forsetinn fékk fréttirnar
beint af árásarátaðnum gegn
um öryggisþjónustuna. Hann
lét þegar I stað senda einn af
liflæknum sinum, sem er
sérfræðingur i meðferð
skotsára, til Holy Cross
sjúkrahússins i þyrlu.
1 sjúkrabilnum lá Wallace i
móki, en stundi upp, að hann
gæti ekki náð andanum.
Lögreglumaður, sem kraup
við hlið hans, skömmu eftir að
hann varð fyrir skotunum, tók
á pdls fylkisstjórans, og sagði
siðar, að hann fyndist ekki, og
að „þeim hefði tekizt það”.
A sjúkrahúsinu voru margir
læknar að bjarga lifi fram-
bjóðandans. Blóði var
stanzlaust dælt i hann, en
blóömissirinn var mikill. Við
rannsókn kom i ljós, að
Wallace hafði miklar innvortis
blæðingar, og að kúlan, sem
lenti' i kviði hans, hafði
skaddað mörg liffæri og sat
föst i hryggnum, sem einnig
var skaddaður.
Rétt áður en skurðaðgerð
hófst kl. 22.30, eftir islenzkum
tima, eða tveimur og hálfri
klukkustund eftir tilræðið, gat
Wallace sagt nokkur orð við
læknana.
Var bezt gætt
Frá sjúkrahúsinu bárust
ekki aðrar fréttir, en að
meiðslin væru hættuleg, en
læknar vonuðust til að geta
bjargaðlifi fylkisstjórans. Frá
Hvita húsinu bárust þær
fréttir, að ástandið væri mjög
alvarlegt. En fréttamenn
virtust hafa greiðari aðgang
að fréttum um liðan Wallace
þaðan, en frá sjúkrahúsinu,
sem var umkringt öryggis-
vörðum I gærkvöldi og nótt.
George Wallace var bezt
gætt allra þeirra
frambjóðenda, sem eru I kjöri
i yfirstandandi forkosningum.
Auk margra öryggisvarða,
sem leyniþjónustan lagði til
fylgdu honum eigin lifverðir,
sem eru úr úrvalsliði
Alabamalögreglunnar. Þar til
i gærkvöldi hafði hann varast
að koma nærri áheyrendum
sinum i kosningabaráttunni.
Yfirieitt hafði hann haldið
fundi innan dyra og umhverfis
ræðustóla, sem hann talaði úr
hafa jafnan verið skotheld
gler. Stóð aðeins höfuð hans og
herðar upp fyrir gler-
brúnirnar.
Fyrr i gær var pipt á fram-
bjóðandann á fundum, og fékk
hann ekki hljóð til að boða
stefnu sina, en á fundinum i
Laurel, sem haldinn var i
stórri verzlunarmiðstöð,
fögnuðu áheyrendur honum,
og bar ekki á neinum mótmæl-
endum. Þetta mun hafa ýtt
undir, að hann varð við
kröfum áheyrenda að stiga
niður til þeirra og þrýsta
hendur kjósenda. Og þá gekk
ungi maðurinn frá Wisconsin
fagnandi á móti honum og
hrópaði „Hæ, George”, og
skothriðin dundi.
Hér liggur Wallace á jöröinni, eftir skotárásina.
Simamynd.
Á blaðsíðu 18, er sagt frá stjórnmálaferli Wallace og skoðunum hans
t
Létt Traust
Rúmgóð
Ferðizt frjáls — hvert
sem er— hvenær sem er
— og flytjið með yður
þak yfir höfuðið.
/
\arniai Sfy&áibbm h.f
Suðurlandsbraut 16 - Reykjavik • Simnefni: >Volver« - Simi 35200