Tíminn - 19.05.1972, Side 3
Föstudagur 26. maí 1972.
TÍMINN
3
Bandarískar kvikmyndir í Hvern hatarðu mest?
Peking
Einn liðurinn i bættri sambúö
Bandarikjanna og Kina, er sýn-
ing bandariskra kvikmynda i
Peking. Ekki verður um auðug-
an garð að gresja af bandarisk-
um kvikmyndum i Peking til að
byrja með, þvi Kinverjar hafa
ekki fjárfest nema i tveimur
bandariskum kvikmyndum enn
sem komið er. Það er kvik-
myndin Joe Hill, og fjallar um
ömurleg örlög bandariska
verkalýðsleiðtogans, og hin
myndin er Jane Eyre.
ógreiddir simareikningar
Bandariska simaþjónustan hef-
ur farið fram á fyrirfram-
greiðslu vegna uppsetningar á .
simum og og simanotkunar i .
sambandi við þing bæði demó-
krata og republikanaflokksins,
sem haldin verða i sumar.
Ástæðan er sú, að demókrata-
flokkurinn hefur enn ekki greitt
simareikninga sina frá siðasta
þingi, en reikningurinn hljóðar
upp á ca. 144 milljónir króna.
Þykir simafélaginu ekki
ástæðulaust, að reyna að
tryggja, að það sitji ekki uppi
með tvo ógreidda reikninga eft-
ir önnur fjögur ár.
★
Lét gera sig ófrjóan
Það gerist nú æ oftar, að karl-
menn láti gera sig ófrjóa, og
einn þeirra, sem það hefur gert
er Viggo Petersen, danskur sál-
fræðingur. Astæðan fyrir þvi að
hann lét gera þetta er sú, að
kona hans þolir engin getnaðar-
varnarlyf. Þau hjón eiga þrjú
börn, og höfðu ekki hugsað sér
að eignast fleiri börn. Viggo
segir, að það hafi ekki verið erf-
itt að taka þessa miklu ákvörð-
un, sér i lagi vegna þess, að i
starfi sinu hafi hann séð svo
mikið af börnum, sem hafa ver-
ið óvelkomin i þennan heim, og
orðið að liða fyrir það æ siðan.
Reyndar segist Viggo hafa
fundið til svolitils þunglyndis
fyrst eftir aðferðina, en það hafi
þó horfið, enda hafi hann hugsað
út i það, að konur komast úr
barneign, og sætta sig við það,
og þvi sé ekkert eðlilegra en að
karlmenn hætti að gera átt börn
á einhverjum ákveðnum tima.
Á myndinni sjáið þið Viggo og
konu hans, og tvö af börnum
þeirra, Tinu 6 ára, og Erik 12
ára. Þau eiga heima á sveitabæ
skammt fyrir utan Hróarskeldu
i Danmörku.
Hið heimsfræga vaxmyndasafn
Madame Tusaud i London hefur
látið fara fram skoðanakönnun
meðal gesta safnsins, þar sem
kannað er, hvaða persónu úr
sögunni gestirnir hata mest.
Komið hefur i ljós, að Hitler er i
fyrsta sæti. 1 öðru sæti er Mao
Tse-tung, og fjöldamorðinginn
Jack the Ripper er i þriðja sæti.
t fjórða sæti kom enginn annar
en Richard Nixon, sem reyndar
getur varla talizt til söguper-
sóna enn sem komið er frekar
en Mao foringi, en fólk mátti
einnig velja hatursmenn úr hópi
hinna lifandi, ef reikna mátti
með, að viðkomandi ætti eftir að
teljast til sögufrægra persóna i
★
framtiðinni, og það munu þeir
Mao og Nixon eflaust gera.
Dracula var i fimmta sæti, en
þegar kannað var, hverjir væru
mest elskaðir af gestum safns-
ins varð Edward Kennedy i
fyrsta sæti, þótt undarlegt
megi virðast, og i öðru sæti varð
Winston Churchill.
★
Skáldsaga Mussolinins
kvikmynduð
ttalski einræðisherrann Musso-
lini skrifaði ekki eins og Hitler
bókina Mein Kampf, en hann
skrifaði þó bók. Þegar hann var
27 ára gamall, eða þar um bil,
skrifaði hann skáldsögu, sem
birtist sem framhaldssaga i
★
dagblaði árið 1910. ttalski kvik-
myndagerðarmaðurinn Alfredo
Bini, hefur nú keypt réttinn til
þess að gera kvikmynd eftir
þessari skáldsögu. Sagan heitir
Claudia Particella, ástmær
kardinálans. Sagan kom út 30
árum áður en Pius páfi XI út-
nefndi Mussolini „manninn,
sem forsjónin sendi okkur."
Ekki hefur verið skýrt frá þvi
enn, hvenær kvikmyndin verður
fullgerð, eða hverjir eiga að
fara með hlutverk i myndinni,
en án efa mun marga fýsa að sjá
mynd, sem gerð verður eftir
sögu jafn þekkts manns og
Mussolini var.
*
Flutti aðeins góðar fréttir
Kaliforniska dagblaðið „Góðar
fréttir”, sem hafði það að mark-
★
miði sinu, að segja aðeins frá
góðum og skemmtilegum at-
burðum hefur orðið að hætta að
koma út eftir tveggja ára starf-
semi. Astæðan er sú, að blaðið
fékk ekki nægilega mikiö af
auglýsingum, til þess að útgáf-
an gæti borgað sig. Auglýsendur
hafa lýst þvi yfir, aö þeir trúi
ekki á sölumátt góðra frétta, og
þar sem ekki sé hægt að búast
við,að blaðið seljist i nægilega
stóru upplagi borgi sig ekki að
auglýsa i þvi. Ekki hefur blaðið
sjálft skýrt frá þvi, að þaö sé
hætt útkomunni, enda flokkast
sú frétt ekki undir góðar fréttir,
og má þvi ekki birtast i blaðinu
sjálfu. Þegar blaðið var á há-
tindi frægöar sinnar, seldist það
i 10 þúsund eintaka upplagi, en
það er ekki nægilegt upplag til
þess að það borgi sig, aö gefa
blaðið út.
★
— Hann er stórkostlegur hnefaleikari. Bara verst, hvað hann er — Heyrðu, eigum við ekki að
nærsýnn. klóra hvort öðru á bakinu?
DENNI
DÆAAALAUSI Hvar eru myndabækurnar?