Tíminn - 24.05.1972, Qupperneq 5
Miövikudagur 24. mai. 1972.
TÍMINN
5
Ánægðir með sam-
komuna í Laugar-
dalshöll
segja Hinrik Bjarnason og séra
Bernharður Guðmundsson
ÓV-Reykjavik.
,,Ég var mjög ánægöur meö
samkomuna,” sagði Hinrik
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Æskulýösráös Reykjavikur, er
Timinn talaði viö hann f gær um
hvitasunnusamkomuna i
Laugardalshöllinni. „Vissulega
voru á henni annmarkar, en þá
tökum við, sem að samkomunni
stóöum, fúslega á okkur, enda
voru þeir annmarkar einkum
tæknilegir. Unga fólkið var til
mikillar fyrirmyndar, en þaöjsem
helzt mátti aö þessu finnayvar, að
samkoman varö ekki eins sam-
felld og viö hefðum óskaö, þannig
að i staöinn fyrir,að þarna hefði
verið ein heildardagskrá, voru
þetta smærri „prógrömm”, sem
vitaskuld voru misjafnlega vel
heppnuö.
Hinrik sagðist ekkert hafa haft
á móti þeim, er stóðu fyrir ytan
Laugardalshöllina með spjöld, er
á var letrað meðal annars „Jesús
Kristur til sölu” og „Fer gróðinn
inn á giróreikning Jesú?”
„Mér þótti sattt að segja að-
dáunarvert, hvað þetta fólk var
þolinmótt,” sagði Hinrik, ,,en hitt
er svo annað mál, að Jesús
Kristur hefur verið seldur i ýms-
um myndum siðustu 2000 árin, og-
vist er, að það fitnar enginn giró-
reikningur peningalega af þessari
samkomu.”
Séra Bernharður Guðmunds-
son, æskulýðsfulltrúi Þjóð-
kirkjunnar, sem stjórnaði sam-
komunni, sagðist einnig vera
mjög ánægður með samkomuna,
þegar á allt væri litið. „Astæðan
fyrir þvi, að Jesú-fólkinu var ekki
veitt meiri eftirtekt en raun bar
vitni, var sú, að það heyrðist ein-
faldlega ekki í þvi nema rétt við
sviðið. Trúbrot hafði flutt mjög
góða dagskrá þar á undan, og það
var náttúrlega misskilningur að
láta Sviana koma inn strax á eft-
ir. Satt að segja veit ég ekki um
neinn, sem hefði getað komið inn
á i þá stemmingu, sem Trúbrot
skildi eftir sig,” sagöi sér Bern-
harður.
„Við verðum náttúrulega aö
gæta að því,” sagði séra Bern-
harður ennfremur, „að Svíarnir
eru alls ekki neinir skemmti-
kraftar, og kannski má segja,að
það sé vafamál, hvort þeir hafi
átt heima á þessari samkomu.
Þeir hafa notið sin miklu betur á
smærri stöðum, þar sem and-
rúmsloftið hefur verið annað, og
má nefna sem dæmi, að i
Samkomugestir i Laugardalshöllinni. (Timamynd Gunnar)
Bústaðakirkju fyrir helgina var
klukkan orðin tvö, þegar gestir
fengust loks til að fara. Sömu
sögu er að segja af Akureyri, þar
sem þeir voru með samkomu á
annan i hvitasunnu.
En mér finnst sú staðreynd, að
þegar samkomunni lauk f Laug-
ardalshöllinni sátu hópar fólks
með þeim um alla ganga og sungu
kristileg lög, tala sinu máli. Og
maður veit aldrei, hvenær Orðið
ber ávöxt. Ég veit til dæmis til
þess, aö á Hótel Esju, þar sem
þau búa, er stanzlaus straumur
ungs fólks á herbergið til þeirra.
Annað gott dæmi er, að áður en
þau héldu til Akureyrar, hringdu i
okkur þrir ungir menn, sem höfðu
verið á samkomunni i Laugar-
dalshöllinni, og vildu þeir fá að
fara meö norður til að segja frá
þeirri reynslu, sem þeir urðu
fyrir við að fylgjast með þessu
unga fólki. Þannig held ég, að
þrátt fyrir að Jesú-hópnum hafi
ekki verið fagnað með húrra-
hrópum i Laugardalshöllinni, þá
hefur hann haft sin áhrif, og þar
með tel ég,að koma hans á sam-
komuna hafi borgað sig marg-
falt.”
Þingmenn málglaðir á nýafstöðnu þingi:
Töluðu í 412 klst. - og 40 mín. betur
EB-Reykjavík
Á því Alþingi, sem nú
er nýlokið, töluðu al-
þingismennirnir alls í 412
klukkutíma og 40
minútum betur i þing-
sölunum. Líklega hefur
ekki verið talað eins
mikið á neinu þingi. og
þessu, a.m.k. ekki frá
1952, þegar byrjað var að
taka allt það, sem sagt
er á þingfundunum á
segulband.
Þingmenn, þeir, sem áttu
sæti á Alþingi 1960 voru þó
næstum eins duglegir að tala
og þeir þingmenn, sem sátu á
þessu þingi, þvi að á þinginu
1960 töluðu þeir alls i 400
klukkutima. Það mun yfirleitt
vera svo, að málgleði þing-
manna er mikil á fyrsta þingi
eftir valdatöku nýrrar riki-
sstjórnar. Þingmönnum er þá
eðlilega mikið niðri fyrir, eins
og sannaðist á þessu þingi.
Þá ber þess að gæta, að ný-
afstaðið Alþingi var með þeim
lengstu, sem haldin hafa
verið, enda ekki nema eðli-
legt, að þinghald nú hafi verið
lengra en oft áður, þar sem
þingmennirnir eru nú á
launum allt árið.
KÆRUSTUPAR HÆTT K0MIÐ
Klp-Reykjavik.
Ungt kærustupar í Vestmanna-
eyjum var hætt komiö á laugar-
dagskvöldið, er gúmmbáti, sem
þau voru á, hvolfdi, þar sem þau
voru á leið úr Hrauney I Heimaey.
Hafði herrann boðið dömunni i
siglingu út i eina eyna, en heldur
var vont i sjó og ekkert skemmti-
siglingaveður. Parið var á leið
til lands, eins og Eyjaskeggjar
kalla að sjálfsögðu Heimaeyna
sina, þegar hliðaralda sneri bátn-
um við, svoað þau féllu bæði i sjó-
inn.
Þeim tókst báöum að komast
aftur um borð, en þau höfðu þá
misst aðra árina. Ónnur var þó
eftir, þvi að hún var bundin við
bátinn. og tókst herranum að nota
hana sem stýri og ná þannig landi
undan veðri og sjó. Þau gengu
siðan yfir Klifið til byggða, sem
er um 6 km leið, og ekki greiöfær.
Var það vel af sér vikiö,þvi að
vindur var mikill og þau bæði
gegnblaut eftir volkið.
Þegar til byggða kom, var
smalað saman mönnum og haldið
til baka til að bjarga bátnum.
Gekk sú ferð vel og slysalaust.
ÍBÚÐ
Starfsmaður óskast til eftirlits og fl. starfa
i Reykjavik. Þarf að hafa ökuréttindi og
þekkingu á bifreiðum. Húsnæði á staðn-
um.
Tilboð merkt „Framtið 1313” sendist af-
greiðslu blaðsins fyrir 1. júni n.k.
Barnavinafélagið Sumargjöf
Aðalfundur félagsins verður haldinn i
Hagaborg Fornhaga 8, mánudaginn 29.
þ.m. kl. 17,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Sumargjafar.
VANTAR VINNUAFL?
Atvinnumiðlun menntaskóla- og kennaranema
er tekin til starfa.
Vinsamlegast hafið samband við okkur
sem fyrst.
Sími 2-54-50
TILB0Ð ÓSKAST
i Caterpillar jarðýtu D-8 er verður sýnd að
Grensásvegi 9 næstu daga.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri
mánudaginn 29. mai kl. 11 árdegis.
Sölunefnd varnarliðseigna.
.............i