Tíminn - 24.05.1972, Side 7
Miðvikudagur 24. mai. 1972.
TÍMINN
7
Þegir á þinginu
Thomas William Edward Coke,
fimmti jarl af Leicester, braut
fyrir nokkru venju fjölskyldu
sinnar, og tók til máls i efri mál-
stofu brezka þingsins, en þá var
verið a6 ræ6a um náttúruvernd
og óhreinindin i náttúrunni.
Þetta er i fyrsta skipti,sem hann
i 22 ár, hefur tekið til máls i
deildinni, eða allt frá þvi hann
tók þar sæti fyrst. Faðir hans
sat i deildinni i 23 ár, og sagði
aldrei eitt einasta orð. Ap hans
var á þingi i 32 ár, einnig an þess
að segja orð. Þó setti langafi
hans meti ð, sem þegjandi
þingfulltrúi, þvi hann var á
þingi i 67 ár, án þess að tala. Á
sk jaldarmerki ættarinnar
stendur eitthvað á þa leið, að
þolinmæðin þrautir vinni allar,
eða, i beinni þýðingu, að sá vitri
sé þolinmóður.
Vinur Heaths
smyglaði eiturlyfjum
Einn af siglingavinum Edwards
Heath forsætisráðherra Breta,
Terence Hiscock, var fyrir
nokkru handtekinn fyrir eitur-
lyfjasmygl. Var hann dæmur i
fimm ára fangelsi. Hiscock er
einn af áhöfninni á snekkju
Heaths, og var með forsætisráð-
herranum þegar hann vann
merkan sigur i kappsiglingu
★
fyrir nokkru. Hiscock var tekinn
fyrir að smygla eiturlyfjum frá
Marokko til Englands. Þegar
hann var handtekinn var hann
klæddur i siglingajakkann, sem
lið Heaths notar, og meira að
segja með merki forsætisráð-
herrans á brjóstinu en það kom
fyrir ekki. Hann var handtekinn
og fundinn sekur.
Konungsgæðingur
aður upp
stopp-
Friðrik konungur VII, sem var
uppi á árunum frá 1808 til 1863
átti hest, sem Perle hét. Þetta
var uppáhaldshestur konungs-
ins, og þegar köngur dó var
hesturinn gefinn Danner greif-
inju. Þegar hesturinn hrökk upp
af, var hann stoppaður upp, og
lengi vel var hann hafður á safni
á Alaborg, en svo fór þó að lok-
um, að hann var settur þar upp
áháaloftog engin vegsemd sýnd
eftir það. Nú er búið að draga
hann niður af loftinu á nýjan
leik, og ákveðið hefur verið að
hressa heldur upp á útlit hans,
og koma honum svo fyrir i hest-
húsinu i Kristjánsborgarhöll.
En þar mun eiga að opna safn
áður en langt um liður. Ef dæma
má af útliti Perle veitir ekki af
að hressa eitthvað upp á gæð-
inginn.
Tito að hætta
Sagt er, að Tito hafi ákveðið að
hætta að vera forseti júgóslav-
neska kommúnistaflokksins i
næstamánuði, en þá verður hann
áttræður. Hins vegar ætlar hann
að halda áfram að gegna
störfum forseta landsins, og
yfirhershöfðingja júgóslav-
neska hersins. Titó hefur verið
veikur að undanförnu og ætlar
þvi heldur aö fara að minnka við
sig, að þvi er sagt er. Búizt er
við, að hinn 62 ára gamli
Edward Kardelj taki við stjórn
kommúnistaflokksins af Tito.
270 þús. kr. ekki nóg
Flestum mundi þykja
allsæmilegt, að fá 3000 dollara
eða um 270 þúsund króna laun á
mánuði, en ein er sú kona, sem
sættir sig ekki við þessa upp-
hæð. Konan heitir Mary Alice
Firestone, en hún giftist Russell
Firestone milljónamæringi i
Palm Beach i Florida árið 1961.
Árið 1967 skildu þau, og þá var
ákveðið, að Mary Alice Fire
stone skyldi fá 3000 dollara með-
lag frá manni sinum mánaðar-
lega, en nú hefur hún sem sagt
farið þess á leit við dómstól i
Florida, að tekið verði til athug-
unar, hvort hún geti ekki krafizt
hærri upphæðar. Er talið lik-
legt, að henni verði dæmd mun
hærri upphæð, þar sem sagt er,
að ekki sé hægt að ætlast til
þess, að kona, sem i hjónabandi
hefur vanizt á mikil lifsþægindi
þurfi að sætta sig við eitthvað
mun minna eftir skilnaðinn. A
meðan þau Mary Alice og Russ-
ell bjuggu saman, lét hann hana
fá á hverjum mánuði 3000 doll-
ara, aðallega til þess að eyða i
veðmál og kappreiðar, en hún
hafði mjög mikið gaman af að
veðja á kappreiðahesta. Þá fékk
hún mánaðarlega um 5000 doll-
ara til þess að kaupa fyrir fatn-
að, bila, leigja sér flugvélar og
til annars álika. Þegar hjónin
höfðu verið gift i ein þrjú ár fór
Mary Alice fram á skilnað, þar
sem maður hennar hefði haldið
fram hjá henni, og einnig beitt
hana ofbeldi og likamsmeiðing-
um. Varskilnaðurinn endanlega
staðfestur i desember 1967 eins
og fyrr segir. Russell Firestone
er erfingi gúmmifyrirtækja og
annarsrsem ber sama nafn, og
flestir þekkja að minnsta kosti
af Firestone—hjólbörðunum.
Konan i FBI
Konur i Bandarikjunum hafa
löngum unnið utan heimilis, og
gegnt ábyrgðarmiklum stöðum,
verið forstjórar fyrirtækja og
hvað eina, og engum þótt mikið.
Eitt hefur þeim þó ekki tekizt
fram til þessa, og það er að fá
vinnu sem leynilögreglumenn
hjá FBI, alrikislögreglunni.
Astæðan hefur verið sú, að Ed-
gar Hoover heitinn, yfirmaður
lögreglunnar var algjörlega á
móti þvi, að ráða kvenfólk i slik-
ar stöðnr En Honver lézt fvrir
skömmu, og nú hefur nýr maður
tekið við stjórninni i bili, L. Pat-
rick Gray, og hefur hann til-
kynnt, að konur geti sótt um
störf hjá FBI þegar i stað. Hér á
myndinni sjáið þið unga konu,
frú Cynthiu Edgar, sem er 25
ára gömul. Hún hafði sótt um
störf hjá FBI, en fengið þvert
nei. Hún hefur nú látið hafa það
eftirsér, að hún muni koma um-
sókn sinni i póstinn einhvern
næstu daga. Hún er lögfræðing-
ur að mennt, og hefur starfað i
stjórnardeild þeirri, sem fjallar
um jafnrétti kynjanna á vinnu-
markaðinum i Bandarikjunum.
Trúlega verður hún fyrsti kven-
lögregluþjónninn i FBI, áður en
langt liöur.
DENNI
DÆMALAUSI
Wilson! Geturðu lánað mér sim-
ann þinn? Ég þarf að hringja
norður I Þingeyjarsýslu og heilsa
upp á fólkið á Bjarnastöðum.