Tíminn - 24.05.1972, Blaðsíða 9
Miövikudagur 24. mai. 1972.
TÍMINN
9
Athugasemdir við skrif
á SUF-síðu 18. maí sl.
Það hefur væntanlega ekki
farið framhjá mörgum af
lesendum Timans, að for-
ysturhenn SUF hafa orðið mjög
uppnæmir vegna ráðstefnu um
Framsóknarflokkurinn i nútið og
framtið, sem FUF i Reykjavik
efndi til þ. 29.og 30. april s.l.
A SUF — siðunni þ. 18/5 s.l.
birtust siðan beinar persónulegar
árásir á aðstandendur ráð-
stefnunnar, sem SUF - forustan
kallar: „einangraðan minnihluta
með einangraðar sérskoðanir i
sameiningarmálinu”. SUF —
siðan telur, að stefna flokksins i
sameiningarmálinu sé skýr og
vitnar til þess, að miðstjórnar-
fundur nú i vetur hafi hlustað með
mikilli athygli á Eystein Jónsson
flytja skýrslu um málið.
Ég skora á SUF - siðuna að
birta þessa skýrslu, — a.m.k.
þann kafla, þar sem Eysteinn
skýrði frá þvi, að hér væri um að
ræða verkefni, er tæki mörgárað
framkvæma, og enginn gæti sagt
um.hvort nokkur árangur næðist.
Það sakaði ekki heldur að láta
fylgja með ummæli Ólafs
Ragnars Grimssonar, á sama
miðstjórnarfundi, þar sem hann
mæltist til,að sameiningarmálið
væri tekið út af dagskrá, þar sem
mörg mikilvægari mál þyrfti að
ræða.
Ég tel ekki óeðlilegt, að i
stórum og breiðum flokki, eins og
Framsóknarflokkurinn er, hafi
menn ólikar skoðanir á ýmsum
málum, m.a. á sameiningar-
málinu.
En það er alvarleg ógnun við
lýðræðið i flokknum, þegar SUF
— siðan i Timanum, sem er mál-
gagn ungra framsóknarmanna
um allt land, er notuð til persónu-
legra árása á einstaka flokks-
Við hér á Sögueyjunni erum
miklir menn og þurfum ekki
að sjá f skildinginn. Loftleiðir
og Flugfélag Islands eru i
kapphlaupi um örfáa farþega,
sem fara til Skandinaviu og
London, og oft eru þess dæmi,
að þotur, sem taka i sæti 120-
160 manns, eru að skrölta á
þessum flugleiðum með frá 10-
30 farþega. Allir sjá hvilik só-
un þetta er með þessu dýru
tæki. Frændur okkar Skandi-
navar gátu og vildu ekki sóa
svona fjármunum út i bláinn,
en við, sem teljum 200 þúsund
hræður, erum að leika
milljónaþjóö. í innanlands-
flugi högum við okkur á svip-
aðan hátt, viöa hafa risið upp
samtök úti um land með miklu
brambolti til að stofna flug-
rekstur, t.d. á tsafirði hér um
árið, og fór það á höfuðið sem
kunnugt er. Vestmannaeying-
ar stofnuðu Eyjaflug, það fór
sömu leið með miklu fjárhags-
tjóni, og varð þar sorglegt
dauða slys.
1 mörgum héruðum er verið
að koma á fót tilraunum með
ný flugfélög, sem eiga að
keppa um þennan litla mark-
að, meðal annars til að annast
sjúkraflug. Undanfarna ára-
tugi hefur Björn Pálss. rekið
sjúkraflug, eins og alþjóð er
kunnugt, og er hann löngu
menn og flokksfélög vegna ,,sér-
skoðana”.
Þorsteinn Ólafsson viðskipta-
fræðingur, fulltrúi SUF i blaðstj-
órn Timans, skrifar grein i
Timann þ. 18/5 s.l., sem hann
nefnir „Flokksþráhyggja”. Þar
gagnrýnir hann harðlega þá
flokksmenn, sem lýst hafa yfir
stuðningi við stefnu og forystu-
menn Framsóknarflokksins.
Þ.Ó.telur þetta vera alvarlegan
kvilla, er hann nefnir flokksþrá-
hyggju. Telur hann liklegt, að
slikir menn muni snúa „Faðir-
vorinu” uppá flokkinn. En lengi
getur vont versnað. Sú uggvæn-
lega þróun, að ungir framsóknar-
menn lýsi yfir stuðningi við
Framsóknarflokkinn, er ekki eina
ástæðan fyrir því, að blað-
stjórnarmaður þessi stingur
niður penna. Nei! Þessir „flokks-
þráhyggjumenn” — sem hann
nefnir svo — hafa einnig orðið
uppvisir að þvi að gagnrýna
stjórnSUF! Og af hverju má ekki
gagnrýna stjórn SUF? — Það er
af þvi að stjórn S.U.F. hefur
á undanförnum árum
verið sú „vakandi gagnrýnis-
rödd”, sem hefur gagnrýnt stefnu
og forystu Framsóknarflokksins.
— Og blaðstjórnarmaðurinn
tekur William Fulbright, sér til
vitnis um það, að það
að gagnrýna flokk sinn, sé hin
æðsta þjónusta og mestu „gull-
hamrar”. — Ekki getur Þ.Ó.
þess, hver ástæðan sé fyrir þvi, að
stjórn SUF þolir ekki slika „gull-
hamra.”
Ég get mér þess til, að ástæðan
sé hin viðfræga hógværð og litil-
læti helztu forystumanna SUF.
A SUF-siðunni 18/5 s.l. er
rammagrein undir fyrirsögninni:
„Hvi ekki sannleikann um ráð-
stefnuna?”
landfrægur fyrir sitt mikla og
óeigingjarna starf. Marga
hættulega ferð hefur hann
flogið til Grænlands i tvisýnu
veðri. Það eru yfir 3000
sjúklingar, sem Björn hefur
flutt á tveim áratugum, og hve
mörgum mannslifum hann
hefur bjargað með snarræði
sinu og dirfsku, veit vist eng-
inn. Austfirðingar eru nú
komnir af stað meö stofnun
flugfélags, og andar heldur
köldu til starfsemi Flugþjón-
ustu Björns Pálssonar. Þó hef-
ur hann haft i vetur ágæta
flugvél staðsetta á Egilsstöð-
um til þjónustu fyrir Austur-
land. „Þegar Björn kom á Ló-
unni” heitir grinfyrirsögn i
Þjóðviljanum, sem á að vera
þakklæti til Björns frá Aust-
firðingum. Undirskriftin er
S.A. Það er gert grin að aldri
vélarinnar, sem er þó endur-
byggð og i fyrsta flokks standi.
Það er rætt um skipulagningu
á læknisþjónustu, og þvi ekki
að skipuleggja sjúkraflug á
sama hátt, svo að fjárhags-
lega sé hægt að þjóna þvi og
alltaf sé flugvélakostur til
staðar.
Islendingar munu seint
gleyma fórnfúsu starfi Björns
Pálssonar, og veröur honum
vart fullþakkað það, sem hann
hefur gert fyrir þjóð sina.
Austfirðingur.
Hinn „sannleikselskandi”
greinarhöfundur, sem að visu
lætur ekki nafn sins getið, spyr
siðan ýmissa spurninga, sem eru
flestar svo listilega samdar að
vera jafnframt ósannar full-
yrðingar.
Ein spurningin hljóðar svo:
„Hvers vegna er ekki sagt frá
þvi, að fundarstjóri neitaði að
bera upp tillögu Ólafs Ragnars
Grimssonar, þegar meirihluti
ráðstefnugesta óskaði eftir þvi og
studdi þá ósk i atkvæðagreiðslu?
Svarið er: Af tiilitssemi við ólaf
Ragnar Grimsson. Þegar fyrir-
spurnartima um erindi Hannesar
Jónssonar var lokið og ráðstefnu-
gestir komnir i kaffihlé, kom
Ó.R.G. til fundarstjóra Friðjóns
Guðröðarsonar, hdl og skýröi
honum frá þvi, að hann ætti eftir
að bera fram örstutta fyrirspurn
til Hannesar og fór fram á að fá
að spyrja(áður en Guömundur G.
Þórarinsson hæfi erindi sitt, sem
var næst á dagskrá.
Fundarstjóri varð viö þessari
bón.
En i stað þess að beina fyrir-
spurn til frummælenda eins og
Ó.R.G. hafði boðað, ávarpaði
hann ráðstefnuna og kvaðst
harma þann ófrið og hávaða, sem
á ráðstefnunni væri. — Vegna
þessa ófriðagkvaðst hann ætla að
bera fram tillögu til ályktunar
fyrir ráðstefnuna — sem allir
ættu að geta oröið sammála um,
vegna þess að i henni væru
einungis orðréttar setningar upp
úr stefnuályktun flokksins.
Óskaði hann eftir(að atkvæði yröu
greidd þegar i stað. Spruttu þá
fram ýmsir aðstoðamenn og
dreifðu ályktun ó.R.G. meðal
ráðstefnugesta , en fylgjendur
Ó.R.G. gerður háreisti.
Fundarstjóri kvaðst harma
þessa framkomu Ó.R.G. — Hér
hefði verið svikizt aftan að sér,og
kynni hann sliku illa. Kvaðst hann
ekki hafa búizt við slikri fram-
komu af manni i stöðu Ó.R.G.
Ó.R.G. hefði alla möguleika á að
ræða þessi mál undir dagskrár-
liðnum „almennar umræður” og
myndi hann halda áfram dagskrá
eins og auglýst hefði verið. —
Ekki sætti Ó.R.G. sig við þessa
afgreiðslu mála og hélt uppi
miklu málþófi, en fylgismenn
hans öskruðu og létu illum látum.
— Eysteinn Jónsson, forseti sam-
einaðs Alþingis, sem sat ráð-
stefnuna, kallaði nokkrun sinnum
yfir hópinn og sagði, að fundar-
stjóri yrði að ráða þessu.
Að lokum sljákkaði i þeim, sem
háværastir höfðu verið, og hélt
fundarstjóri áfram dagskrá.
1 almennu umræðunum lýsti ég
undirritaður þvi yfir, að ég hefði
siður en svo neitt á móti þvi, að
ráðstefnan samþykkti ályktun,
hvar I voru orðréttar setningar
upp úr samþykktum flokksins —
aldrei væri góð visa of oft kveðin
— hinsvegar heföi ég taliö, að
forystumenn S.U.F. hefði getað
sýnt þá tillitssemi við forystu
F.U.F. sem ráðstefnuna hélt, að
hafa samráð um slika ályktun. •
Ég taldi,að i ályktunina vantaði
skýlausan stuðning við Fram-
sóknarflokkinn og þá nauðsyn, að
Framsóknarflokkurinn væri
efldur i framtiðinni og að félags-
hyggjufólkið i landinu
sameinaðist undir merkjum
.Framsóknarflokksins. Ég bar þvi
fram viðaukatilllögu þess efnis,
við tillögu Ó.G.R. og hvatt ráð-
stefnugesti til að samþykkja til-
löguna meö þeirri viöbót. Og
þannig breytt var ályktunartil-
lagan samþykkt af öllum fundar-
mönnum.
Það leið hins vegar ekki á löngu
þar til ljóst varð, hvaða túlkun
Ó.R.G. og fylgismenn hans
ætluðu að leggja i ályktunina, þótt
Þeir þyröu ekki að skýra frá þvi á
ráðstefnunni.
Að lokum vil ég harma þær per-
sónulegar árásir, sem SUF-siðan
hefur látið sér sæma, að halda
uppi gegn Hannesi Jónssyni,
blaðafulltrúa. Málefnaleg gagn-
rýni er eitt, en persónulegar
árásir annað.
Þorsteinn Geirsson.
Form. FUF i Reykjavik.
STÖRF VIÐ LEIKSKÓLA
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða starfs-
fólk við leikskólann Álfaskeiði 16, fóstru,
heilsdagsstarf, fóstru, hálfsdagsstarf,
tvær aðstoðarstúlkur. Umsóknir sendist
undirrituðum eigi siðar en 2. júni nk.
Bæjarstjórinn, Hafnarfirði,
Flugið og íslendingar
Verkamannafélagið Dagsbrún.
FÉLAGSFUNDUR
verður haldinn fimmtudaginn 25. mai kl.
20.30.
í SIGTtJNI VIÐ AUSTURVÖLL
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á þing Verkasam-
bands Islands.
2. Félagsmál.
Félagsmenn fjölmennið og sýnið skirteini
við innganginn.
Stjórn Dagsbrúnar.
BÆNDUR - HÚSFREYJUR
Ég verö 14 ára i haust. Mig langar mikiö til þess aö komast
I sveit og kynnast þar llfi og störfum. Ég hefi góö meömæli
frá skóia minum og geri engar kaupkröfur. Upplýsingar f
sima 83745.
LOKAÐ
vegna jarðarfarar kl. 12-4 i dag.
Hús ga gna ver zlun
Kristjáns Siggeirssonar h.f.
SKURÐLÆKNIR
Hér með er auglýst til umsóknar staða
skurðlæknis við Sjúkrahús Vestmanna-
eyja.
Umsækjendur skulu vera viðurkenndir
sérfræðingar i skurðlækningum.
Launakjör eru skv. samningum Læknafé-
lags Reykjavikur við rikis- og Borgar-
spitala, eins og þeir eru á hverjum tima.
Umsóknarfrestur er til 30. júni 1972.
Umsóknir sendist landlækni.
Bæjarstjóri.
Lausar stöður
Stöður aðstoðarskólastjóra við Mennta-
skólann á Akureyri, Menntaskólann við
Hamrahlið og Menntaskólann i Reykjavik
eru lausar til umsóknar.
Samkvæmt 53. gr. reglugerðar nr.
12/1971, um menntaskóla, skulu aðstoðar-
skólastjórar ráðnir af menntamálaráðu-
neytinu til fimm ára i senn úr hópi fastra
kennara á menntaskólastigi.
Umsóknir um framangreindar stöður,
ásamt upplýsingum um námsferil og
störf, skulu hafa borizt menntamálaráðu-
neytinu fyrir 15. júni n.k.
Menntamálaráðuneytið,
17. mai 1972.
Malnlng I Jamworur
Laugavegi 23 — Símar 11295 & 12876 — Reykjavík
ÚREDAIMA
TRÉllm
Vatnsþétf
Uredana trélím í 5
og 10 kílóa og 12
gramma pakkn-
ingu.
Póstsendum.