Tíminn - 24.05.1972, Page 10
10
TÍMINN
Miðvikudagur 24. mai. 1972
— Anderscnarnir i brúnni á Ilanska Pétri. Kjærst skipstjórinn Kmil Andersen, kokkurinn Ingveld
Andersen og stýrimafturinn Jóel l>ór Andersen.
Á SJÓSTÖNG
VID EYJAR!
Klp-Keykjavik
Mikill ferðamannastraumur
var til Vestmannaeyja um hvita-
sunnuna. Voru farnar margar
flugferðir inilli lands og Eyja,
auk þess sem Herjólfur og önnur
skip og bátar komu með fólk.
Stærsti hópurinn kom þó með
Gullfossi, sem lá þar við bryggju
yfir helgina. Meðal farþega var
bópur sjóstangaveiðimanna, en i
Eyjum fór fram alþjóða-sjó-
stangaveiðimót, sem var vel sótt.
Auk þess fór fram stórmót i golfi
og svo kepptu heimamenn við
Akureyringa i knattspyrnu.
Heldur var veður leiðinlegt i
Eyjum yfir hvitasunnuna, suð-
austan rok og bræluskratti eins og
karlarnir kölluðu það. Sögðu þeir
þetta vera Gullfossbrælu, en það
væri alltaf bræla, þegar Gullfoss
kæmi þar i höfnina.
Þrátt fyrir það voru menn
harðir við að sækja sjóinn með
stangirnar, og voru 7 bátar i þvi
að flytja fiskimennina á miðin.
Fyrri daginn var veitt frá kl. 16.00
til 21.00 en þann siðari frá kl. 7.00
til 16.00. Var mikill handagangur i
öskjunni,þegar komið var á miðin
og dregið af kappi. Veiðin var
góð, menn fengu þetta um og yfir
300 kg, en sumir fóru þó niður i
nokkra fiska.
1 sveitakeppninni sigraði a
sveit Vestmannaeyja.sem veiddi
samtals 1011,1 kg. önnur varð
sveit Karls Jörundssonar Akur-
eyri með 946,9 kg og þriðja b sveit
Vestmannaeyja með 865,3 kg. í
allt voru sveitirnar 9 talsins —
allar islenzkar, en auk Is-
lendinganna voru keppendur frá
Bandarikjunum, Skotlandi, Eng-
landi og Þýzkalandi.
t sigursveitinni voru þeir Sævar
Sæmundsson, Óli Gaard Jensen,
Jón ögmundsson, og Sveinn
Jónsson, sem jafnframt fisknasti
einstaklingurinn með 316 kg.,
þar af veiddi hann 301,5 kg
siðari daginn. Mestan afla
kvenna fékk Margrét Helga-
dóttir, 227,3 kg, en stærsta fiskinn
dró Konráð Árnason, Akureyri
þorsk, sem vóg 5,9 kg. Hann fékk
einnig flesta fiska eða 323 talsins.
Aflahæsta skipið i mótinu varð
Danski Pétur, skipstjóri Emil
Andersen. Fékk „áhöfn hans”
samtals 2044,6 kg. Emil vann þar
með skipstjórbikarinn til eignar,
en hann hefur tvivegis áður verið
með aflahæsta skipið i þessum
mótum.
Fyrir utan þessi verðlaun voru
einnig veitt verðlaun fyrir stærsta
fiskinn af hverri tegund og hlutu
þau þessi:
Ufsi 3,4 kg. Jón Sæmundsson,
Keflav.
Karfi,l,5kg. Sveinn Jónsson,
Vestm.
Lýsa 1,4 kg. Sveinn Jónsson,
Vestm.
Keila5,8kg. Karl Jörundsson,
Akureyri
Lúða3,2kg. Kristinn Jóhanness.
Akureyri.
Þorskur5,9kg Konráð Árnason,
Akureyri,
Ýsa 3,6 kg. Eirikur Sigurgeirss.
Vest.
Steinbitur 2,8 kg. Reynir Eyjólfss.
Reykjavik.
Fyrir sjóstangaveiðimennina
og golfarana voru haldin kveðju-
hóf,og var mikið fjör hjá báðum
aðilum. En sjálfir slógu Eyja-
skeggar upp dansleikjum eina
minútu eítir miðnætti á hvita-
sunnudag. Var þegar uppselt á
báða dansleikina, enda dunaði
dansinn fram á rauða morgun.
Út með stöngina.....og hann er á
Tveir vænir ufsar á i einu
.
— Karlarnir mæna upp i brúna og biða eftir skipun frá skipstjóranum
um að renna út.
(Timamyndir —klp—)