Tíminn - 24.05.1972, Page 18

Tíminn - 24.05.1972, Page 18
18 TÍMINN Miðvikudagur 24. mai. 1972. BEST ER HÆTTUR AÐ LEIKA KNATTSPYRNU - ætlar að einbeita sér að næturlífinu Knattspyrnusniliingurinn og glaumgosinn heimskunni George Best, Manchester United, hcfur gefið út þá yfirlýsingu,að hann sé búinn að leggja knattspyrnu- skóna á hilluna fyrir fullt og allt. Ilann lýsti þessu yfir i brezka stórblaðinu Sunday Mirror s.l. sunnudag. Það taka ekki allir þessa yfirlýsingu alvarlega, þvl að talið er, að með henni sé hann að afsaka sig. Ilann lét nefnilega Þegar Lorimer kom inn á, komu mörkin Skotland sigraði N-lrland 2:0 á Hampden Park i Glasgow s.l. laugardag i brezku meistara- keppninni. Þaö var ekki fyrr en fjórum min. fyrir leikslok að Skotum tókst að skora — fyrra markið skoraði Denis Law, eftir fyrirgjöf Peter Lorimer (hann kom inn á fyrir Johnstone), og siðara markið skoraði svo Lorim- er sjálfur á siðustu min. 40.000 þús. áhorfendur sáu leikinn. trska liðiö lék allan leikinn með átta menn i vörn — liðið saknaði greinilega Georg Best, en hann segist vera hættur að leika knatt- spyrnu (sjá annarsstaðar á siðunni). Skozka liðið var þannig skipað: Clark (Aberdeen), Borwnie (Hibs), Donachie (Man. City), Bremner (Leeds), McNeil (Celtic), Moncur (Newcastle), Law (Man.Utd.), Johnstone (Celtic), Gemill og O’Hare (Derby), Graham (Arsenal) og Lorimer (Leeds). Lið Ira var þannig skipað: Hola í höggi I hvitasunnukeppni Golfklúbbs- ins Lcynis á Akranesi, sem haldin var um siðustu helgi, fór aldurs- forseti klúbbsins, Óðinn S. Geir- dal, liolu i höggi. Þetta gerðist á 7. braut, sem er par 3 og 130 metra löng. Sló Óðinn með 7. járni og fór beint i holuna, án þess að kúlan rynni nokkuð eftir flötinni. Jennings (Tottenham), Rice (Arsenal), Clemence (Sheff. Wed.), Jackson (Nottm. For.), Neill (Hull), Hunter (Ipswich), Neagan og Dougan (Wolves), Mcllory (Man. Utd.), Graig (Newcastie) og McMordie (Middlesbro.), — DKNIS LAW ekki sjá sig i Glasgow s.I. fimmtudag, þegar n-irska lands- liðið kom þar saman til að undir- búa sig fyrir leikinn við Skota. llann valdi frekar Spán — þar sem hann gat svallað og sukkað eins og hann vildi með vinum sin- um — heldur en að leika landslcik fyrir heimaland sitt. Best segist vera farinn á taug- um, hættur að svara i sima og að hann fari algjörlega úr sambandi, þegar dyrabjöllunni er hringt heima hjá honum. Ennfremur segisthann vera farinn að drekka mikið upp á siðkastið — fram til 4- 5 á næturnar. Þess vegna hefur hann ákveðið að hætta að leika knattspyrnu, leikinn sem hann hefur lifað fyrir. Eins og flestir vita, sem hafa fylgzt með enskri knattspyrnu, hefur Best veriö vandræðamaður hjá liði sinu Man. Utd. Hann hefur ekki mætt á æfingar og leiki — frekar valið svall á næturklúbb- um Lundúnaborgar. Siðustu árin hefur hann skapað sér miklar óvinsældir hjá áhorf- endum, dómurum, mótherjum og jafnvel félögum sinum hjá Man. Utd. Hann er sinöldrandi i leik — hefur oft verið dæmdur i keppnis- bann fyrir að brúka kjaft við dómara og mótherja. — Hvenær stekkur fyrsta konan yfir 7 metra? Ennþá hefur engri konu tekizt að stökkva yfir 7 m i langstökki, en staðfest heimsmet kvenna i greininni i dag á Heide Rosen- dahl, Vestur-Þýzkalandi, 6,84 m, setti 1970. Rússneska stúlkan með langa, skritna nafninu Tatjana Schtschelkanowa, hefur stokkið 6,96 m, en þá var vindur of mikill. Það gerðist 1966. Vestur-Þjóðverjar gera sér auðvitað miklar vonir um sigur i þessari grein á OL i Miinchen, og byggja vonir sinar mest á Rosen- dahl. En fleiri koma til greina. Margrit Herbest frá Hamborg stökk lengst allra kvenna i fyrra, 6,81 m. Hún er 22ja ára og hefur sýnt miklar framfarir siðustu árin. Hvað sem gerist i langstökki kvenna á þessu ári, er það sú greinin, sem V-Þjóðverjar gera sér hvað mestar vonir um á Olympiuleikunum. 1>S{>5Í0G4« PUMA ^ Svaf stjórn HSI á verðinum? Þegar ákveðið var, hvaða dómarar ættu að dæma á OL-leikunum knattspyrnu- SKÓR Enn einu sinni hefur veriö gengið framhjá íslenzkum dóm- urum. Nú hefur endanlega verið ákveðið, hvaða handknattleiks- dómarar koina til með að dæma leikina i handknattleikskeppnin- inni á Olympiuleikunum i Múnchen i sumar. Dómarancfnd sú, scin valdi dómarana til aö dæma i Mlinchen, virðist engan áhuga hafa haft á fslenzkum dómurum, þegar hún ákvað fjölda dómara frá hverju landi, þvi enginn íslendingur var til - nefndur til að dæma í Múnchen. Eins og menn muna, þá dæmdu þeir Karl Jóhannsson og Björn Kristjánsson i undankeppni Olympiuleikanna við góðan orðs- týr, þegar þeir dæmdu Ameriku- riðilinn. Eftir góða frammistöðu þeirra i New York, þar sem riðill- inn var leikinn, gerðu islenzkir dómarar sér vonir um, að dóm- arar héðan færu til MQnchen. En sú von brást alveg, þegar fréttir bárust um,að enginn Islendingur hefði veriö valinn til að dæma i Mtinchen. Aftur á móti kom það mjög Loks kom enskur sigur Malarskór: Pelé Mexico, stærð 6 1/2—101/2 verð kr. 2060,00 Benfica Super, stærð 7—12, verð kr. 1946,00 London City, stærð 6 1/2—9, verð kr. 1798,00 Puma Rapid, stærð 5—12, verð kr. 1590,00 Pelé Santos, stærð 3 1/2—8, verð kr. 1430,00 PeléRio, stærð 3 1/2—7, verð kr. 984,00 Grasskór: Puma Tottenham, stærð 7—10 1/2, verð kr. 2205,00 Sportvöruverzlun Ingólfs Oskarssonar Klapparstig 44 — Simi 11783 — Reykjavík Það virðist sem enska landslið- ið sé búið að jafna sig eftir að V- Þjóðverjar slógu það úr Evrópu- keppni landsliða. Enska liðið sigr aði Wales 3:0 á Ninian Park i Cardiff s.i. laugardag i brezku meistarkeppninni, sem nú er hafin. Mörk Englands skoruðu: Emlyn Hughes (Liverpool) á 25. min., Rodney Marsh (Man. City) á 70. min. og Colin Bell (Man. City) á 70. min. 34.000 áhorfendur sáu leikinn, sem var all sæmilega leikinn. Alf Ramsey hvildi þá Allan Ball (Arsenal), Martin Chivers og Martin Peters (Tottenham). En lið Englands var þannig skipað i leiknum: Banks (Stoke), Madeley (Leeds), Hughes (Liverpool), McFarland (Derby), Moore (West Ham), Hunter (Leeds), Storey (Arsenal), Bell (Man. City), McDonald (Newcastle), Summerbee og Marsh (Man. City). Allar likur eru á þvi að úrslita- leikurinn i keppninni verði á laugardaginn kemur á Hampden Park i Glasgow — milli Englands og Skotlands. Mike Summerbee — er aftur i náðinni hjá Alf Rams- ey — hann átti góðan leik gegn Wales. áóvart, þegar fréttist, að a.m.k. þrjú dómarapör frá löndum, sem ekki eiga kapplið í MUnchen koma til með að dæma þar. Við þessar fréttir vaknaði sú spurning hjá mörgum: Svaf stjórn HSl á verðinum, þegar ákveðið var, hvaða dómarar ættu að dæma i MQnchen? Hefur stjórn HSÍ ritað Olympíunefndinni bréf, spurzt fyrir um þetta mál, og jafnframtborið fram kvörtun? SOS. Danskir knattspyrnumenn á OL-leikana í Míinchen Danska landsliöið I knattspyrnu sigraði Rúmeniu óvænt i lands- leik, sem fram fór i Bukarest um helgina. Danirnir sigruðu 3:2, og unnu sér þar með rétt til að leika á Olympiuleikunum i Múnchen i sumar. Fyrri leik liðanna.sem fór fram i Kaupmannahöfn, lauk einnig með sigri Dana, 2:1. Kom sigurinn mjög á óvart i Dan- mörku, þar sem menn áttu ekki von á sigri i Rúmeniu. 20,63 m í kúluvarpi kvenna Nadesja Tsjisjova, Sovét- rikjunum, setti nýtt heimsmet i kúluvarpi kvenna fyrir helgina, hún varpaði 20,63 m og bætti eigið heimsmet um 20 sm. Afrekið vann hún i fyrstu tilraun. Þessi sovézka kraftkona er 173 sm á hæð og vegur 89 kg!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.