Tíminn - 25.05.1972, Síða 1
K3NIS
ÞVOTTAVÉLAR
Lundúnaviðræðurnar:
ER BRÁÐABIRGÐA SAM-
KOMULAG HUGSANLEGT?
Ráðherrar verjast allra frétta, en viðræður halda áfram í dag
TK-London.
islenzku ráðherrarnir
byrjuðu viðræðurnar við
brezka ráðarnenn i gær-
morgun. Þeir gerðu grein fyr-
ir skoðun islenzku rikis-
stjórnarinnar i landhelgis-
málinu og eindregnum vilja
hennar til þess aö færa út i 50
miiur þann 1. september n.k.
I hádeginu snæddu ráðherr-
arnir með Sir Alec Douglas
Home, utanrikisráðherra
Breta, og héldu siðan við-
ræðunum áfram að loknum
hádegisverði. — Seinni hluta
dags I gær var ákveðið að
halda þessum viðræðum
áfram i dag, og ráðherrar
beggja stjórna vörðust allra
frétta um það, hvað þeir hefðu
boðiö fram sem samkomu-
lagsgrundvöll.
Á blaðamannafundi, sem
var boðaður óformlega i
islenzka sendiráðinu i gær kl.
18, komu fulltrúar allra helztu
fréttastofnana hér i London.
Utanrikisráðherra var þar
spurður spjörunum úr. Þar
var bæði beitt rökum Breta og
islenzku rikisstjórnarinnar.
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra lagði áherzlu á það, að
tilgangurinn með þessum við-
ræðum viö brezku rikisstjórn-
ina væri að reyna að finna
friösamlega lausn, sem gæti
oröið oss öllum til góðs i þess-
ari deilu, sem nú væri hafin
milli rikjanna. Jafnframt
lagði utanrikisráðherra
áherzlu á það, „að Alþingi
hefði með öllum greiddum
atkvæðum þingmanna ákveð-
iö að islenzk fiskveiðilögsaga
yrði færð út i 50 sjómilur frá
grunnlinum þann 1. septem-
ber n.k. Frá þessari ákvörðum
hefði hvorki hann né neinn
annar leyfi til að hvika.”
Sjávarútvegsráðherra og
hann væru komnir til Lundúna
til þess að reyna að finna lausn
á þvi vandamáli, sem Islend-
ingar gerðu sér grein fyrir að
skapaðist i þeim bæjum og
þorpum á Bretlandi, þar sem
að togaraútgerð væri megin
undirstaða atvinnulifs.
Á þessum óformlega blaða-
mannafundi, þar sem voru
fulltrúar flestra stærstu
fréttastofnana hér i borg,
komu fram ýmsar spurningar
um nánari atriði hugsanlegs
samkomulags milli rikis-
stjórna Bretlands og Islands,
en ráðherrar vörðust allra
frétta af þvi, þar sem viðræð-
um verður haldið áfram i dag.
Lúðvik Jósefsson sjávar-
útvegsráðherra svaraði mjög
mörgum spurningum blaða-
manna um veiðar á tslands-
miöum, þróun islenzka
togaraflotans frá striðslokum
og breytingar á islenzka báta-
flotanum eftir að sildin hvarf.
Lúðvik skýrði þau sjónarmið,
sem liggja til grundvallar
ákvörðun tslendinga um að
færa út fiskveiðilandhelgina,
ekki aöeins til þess að vernda
fiskveiöistofninn, heldur
einnig til þess aö tryggja, að
Islendingar hafi meirihlutann
af þeim veiddum fiski, sem
kemur á land af tslandsmiö-
um.
t dag klukkan þrjú er hins-
vegar ákveðinn opinber blaða-
manna fundur I tslenzka
sendiráðinu i Park Street.
Þangaö hefur verið boðið öll-
um þeim blaðamönnum, sem
hafa áhuga á fiskveiöum og
náttúruvernd.
Frá viðræðufundi Einars Agústssonar utanrikisráöherra, Lúöviks Jósefssonar, sjávarútvegsráðherra og Sir Alec Douglas Home I
London I gær. (Simamynd UPI)
Er iðgjaldagrundvöllur bif-
reiðatrygginga brostinn?
Iðgjöld Samvinnutrygginga, Andvöku og Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga rúmar 500 millj.
KJ-Reykjavik
A aðalfundi Samvinnutrygg-
inga, sem haldinn var á fimmtu-
daginn i Reykjavik, kom m.a.
fram, að félagið tapaði 24 milljón-
um króna á bifreiðatryggingum á
árinu 1971, og i fyrsta sinn i 25 ára
sögu félagsins varð tap á rekstri
þess, sem orsakaðist eingöngu af
ökutækjatryggingum. Virðist af
þessum tölum mega ráða, að ið-
gjaldagrundvöllur bifreiða-
trygginganna sé brostinn, enda
samþykkti aðalfundurinn tillögu
til dómsmálaráðherra um endur-
skoðun á tryggingaupphæðum og
iðgjaldagrundvelli ábyrgðar-
trygginga bifreiða fyrir 1. mai
i97:t.
Hér á eftir fer hluti af fréttatil-
kynningu um aðalfund Sam-
vinnutrygginga, og Liftrygginga-
félagsins Andvöku:
Aðalfundir Samvinnutrygginga
og Liftryggingafélagsins And-
vöku voru haldnir fimmtudaginn
18. þ.m. að Hótel Sögu i Reykja-
vik. Einnig fór fram 1. aöalfundur
Endurtryggingafélags Sam-
vinnutrygginga h.f. Fundinn sátu
18 fulltrúar viðsvegar aö af land-
Frh á bls. 3.
Gróður
mánuði
fyrr á
ferðinni
ÞÓ-Reykjavik.
— Miöaö við árstima er sprett-
an mjög góð, og ég tel, að gróður-
inn sé mánuöi fyrr á feröinni en I
fyrra, sagöi Agnar Guönason
ráöunautur, er við ræddum viö
hann.
— Ég var siðast norður i Arnes-
hreppi á Ströndum, sagöi Agnar,
— en þar hefur spretta verið mjög
dræm undanfarin ár. Þar er nú
alveg sérstaklega lifvænlegt. t
Bjarnarfirði, sem var alveg
dauöur fyrir tveimur árum, er nú
t.d. allt vel gróið upp og grænt.
Agnar sagði, að menn væru rétt
farnir aö bera á tún, en samt sem
áður væri reiknað með þvi, aö
heyskapur geti hafizt i byrjun
júni viða á landinu, a.m.k. á
Suðurlandi, I Eyjafiröi og viða á
Austfjöröum. Sagði Agnar, aö
reiknað væri með, að nú yröi 1
miklu minna sáð af grænfóöri en
undanfarin ár, vegna þess hve vel
liti út með sprettuna. Aldrei hefur
veriö sáð meira grænfóðri en i
fyrra, en þá var sáð I 4500
hektara. Nú er talið, aö ekki verði
sáö grænfróðri i nema rúma 3000
ha. á þessu ári.
Skákeinvígið:
Engin
vasatöfl eða
myndatökur
ÞÓ-Reykjavik.
Undirbúningur Skáksambands
lslands að einviginu milli þeirra
Fischers og Spassky er nú i full-
um gangi, og eru, eins og gengur
og gerist þegar svona undirbún-
ingur á sér stað, mörg ljón á veg-
inum. T.d. veröur stranglega
bannað af hafa meö sér mynda-
vélar og vasatöfl inn i Laugar-
dalshöllina.
t viðtali, sem Timinn átti i gær
við Guðmund G. Þórarinsson,
kom fram, að lögfræöingur
Fischers hefði sett þaö skilyrði,
að enginn fengi að hafa meö sér
myndavél eða vasatafl inn á
keppnisstaðinn. Til þess að koma
i veg fyrir þetta, verða hafðir
verðir i Laugardalshöllinni, sem
eiga að koma i veg fyrir aö fólk
geti tekið myndir eða teflt á vasa-
tafl i höllinni.
Kveðjugrein
Svarthöfða
— Sjá bls. 3
Frá aðalfundi samvinnutryggingafélaganna. Yzt til hægri er forstjórinn Asgeir Magnússon og við hlið
hans stjórnarformaðurinn Erlendur Einarsson.