Tíminn - 25.05.1972, Blaðsíða 20
Moskvuheimsóknin:
Sameiginleg geimferð Rússa
og Bandaríkiamanna 1975
c
Fimmtudagur 25. mai 1972.
NTB-Moskvu
Undirrita&ir voru tvennir
samningar i Moskvu 1 gær á milli
Sovétrikjanna og Bandarikjanna.
Nixon Bandarikjaforseti og Kosy-
gin forsætisráöherra Sovétrikj-
anna undirrituöu samvinnusátt-
mála um geimvisindi, og Rogers
utanrikisráöherra Bandarikj-
anna og Kirkjilin yfirmaöur vis-
indastofnunar Sovétrikjanna
undirrituöu samning um sam-
vinnu i tækni og visindum.
Samkvæmt geimferðasáttmál-
anum fara Sovétmenn og Banda-
rikjamenn i sameiginlega geim-
ferð 1975. Tengd verða saman
geimför af geröunum Apollo og
Sojus, og mun það gerast 15. júni
þaö ár. Þegar hefur tenginga-
tækjabúnaður geimfara rikjanna
verið staðlaður
Leiðtogar rikjanna héldu áfram
fundum sinum i gær og gera þaö
einnig i dag, en eftir hádegi i dag
koma til Moskvu aðalsamninga-
menn rikjanna i SALT-viöræðun-
um i Helsingfors og halda fund
meö ríkisstjórnum sinum. (Sjá
nánar aöra frétt hér á siðunni.)
Nixon lagði i gær blómsveig á
leiði óþekkta hermannsins og hélt
siðan aftur til Kremlar til að
ráðgast við samfylgdarmenn
sina, þá Kissinger og Rogers.
Eftir aö hann hafði undirritað
geimferðarsamninginn, þáði
hann boö Bresjnefs um að heim-
sækja sumarhús sovézka leiötog-
ans, en það er um þaö bil 16 km
fyrirutan Moskvu. Boð Bresjnefs
hefur verið túlkað á þann veg, að
andrúmsloftið á fundum þeirra sé
þægilegra og afsiappaðra en búizt
hafði verið við.
Þrir geimfarar verða i hvoru
fari 1975, og munu þeir fara sam-
an umhverfis jörðina i þrjá sólar-
hringa.
og Ifkur á undirritun SALT samninganna á morgun
NTB-Moskvu, Helsingfors
Allt bendir nú til þess, að hinir
svokölluðu SALT-samningar um
takmörkun kjarnorkuvopna-
búnaðar, veröi undirritaöir i
Moskvu, áöur en Nixon Banda-
rikjaforseti heldur þaðan um
helgina.
Gerard Smith, aðalsamninga-
maöur Bandarikjanna i Helsing-
fors, heldur til Moskvu með her-
flugvél I dag til skrafs og ráöa-
geröa viö Nixon og aðstoðarmenn
hans, sérstaklega þá Rogers og
Kissinger. Fréttum ber ekki sam-
an um, hve lengi Smith verður I
Moskvu, og segir i sumum, aö
hann haldi rakleiðis til baka, en i
öðrum^ að hann verði i nokkra
daga. Ef Smith staldrar við i
Moskvu, má búast við að SALT-
samningarnir verði undirritaðir
ekki siðar en á föstudag, og rennir
það stoðum undir þann grun, aö
Vladimir Semjonov, varautan-
rikisráðherra Sovétrikjanna og
aöalsamningamaður stjórnar
sinnar i Helsinki, fer einnig til
Moskvu i dag.
Upphaflega áttu þeir Smith og
Semjonov að fara saman til
Moskvu með lest, en siðari hluta
dags i gær bárust þær fregnir, að
Smith færi meö sérstakri herflug-
vél frá bandariska hernum.
Aðrir samningamenn stjórn-
anna tveggja verða eftir I
Helsingfors og halda viöræöum
áfram, þar sem enn hefur ekki
náöst endanlegt samkomulag um
nokkur mikilvæg túlkunaratriði,
en talsmenn viðræðunefndanna
létu i ljós bjartsýni i gærkvöldi.
Melvin Laird, varnarmálaráð-
herra Bandarikjanna, sagði i
gær, að hann væri i stöðugu sam-
bandi við bandarisku sendinefnd-
ina i Helsingfors og að hann
myndi gefa NATO stöðugar
skýrslur um gang viðræðnanna.
Útilokað að
Solsjenitsyn fái
verðlaunin
afhent í Sovét
— sagði Furtseva menntamálaráðherra
NTB-Moskvu
Menntamálaráöherra
Sovétrikjanna frú Jakaterina
Furtseva, sagði I gær,að ekki
kæmi til mála.að Alexander
Solsjenitsyn, nóbelsverð-
launahafi i bókmenntum árið
1970 fengi að taka á móti verö-
launum sinum i Sovét-
rikjunum.
Sagði ráðherrann þetta á
fundi með sovézkum og er-
lendum blaðamönnum i
Moskvu. Jafnframt sagöi hún,
að hún sæi enga ástæðu til að
Sovetrikin tækju þátt i slikum
skripaleik.
—Við trúum ekki, að
Solsjenitsyn hafi fengiö verð-
launin fyrir verk sin, sagði
ráðherrann, — heldur er þetta
póiitisk verðlaun fyrir baráttu
hans gegn sovézka þjóöskipu-
laginu og þegnum landsins,
sem er svo greinileg i bókum
hans.
Ráðherrann sagði einnig.að
enginn hefði bannað
Solsjenitsyn að fara til Stokk-
hólms og taka á móti verð-
laununum þar. Frú Furtseva
neitaði þvi ekki, að
nóbelsverðlaunahafinn hefði
hæfileika til ritstarfa og sagði,
aö vissulega gæti hann skrifað
„almennileg verk, ef hann
kærði sig um þaö”.
Hún sagði, að hann vildi
aftur á móti ekki viðurkenna
byltinguna — Og hann
viðurkennir ekki það góða,
sem hefur áunnizt i landi
okkar, sagði hún. — Hann er i
uppreisn við allt samfélagið,
og þvi ættum viö að gefa út
þaö sem hann skrifar, fyrst
svo er? spurði hún.
Flugvélar-
rán í Afríku
NTB-Jóhannesarborg
Tveir vopnaðir menn rændu i
gær suður-afriskri farþegaflugvél
af gerðinni Boeing 727 og neyddu
flugstjórann til að lenda i
Blantyre, höfuðborg Malawi,
fyrrum Nýassalands.
Vélinni var rænt, er hún var á
leið frá Salisbury i Rhódesiu til
Jóhannesarborgar, og kröfðust
ræningjarnir þess, að farið yrði
með þá til Tananarive á
Madagaskar, að öðrum kosti
myndu þeir sprengja vélina i loft
upp með dýnamiti.
Svart: Reykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
Hvítt: Akureyri: Sveinbjörn
Sigurðssonog Hólmgrimur
Heiðreksson.
20 leikur Reykvikinga: Ha8 — d8
Vertíðin hafin hjá Hvítármönnum:
1-3 LAXAR í NET
EB-Reykjavik
Þá er laxinn farinn að
streyrna i net laxveiði-
bændanna viö Hvitá I Borgar-
firði. Lögðu þcir net sin fyrst i
fyrradag og í gærmorgun voru
þeir farnir að fá’ann.
Kristján Fjeldsted bóndi I
Ferjukoti sagði i simtali við
Timann I gær, að yfirleitt
heföu i gærmorgun veriö
komnir 1-2 laxar i hvert net, 3
laxar i net hefði verið það
mesta, og væru fiskarnir 8-12
öldungadeildin samþykkir
að hætta fjárveitingum til
stríðsins í Indó-Kína
pund. Hann er sem sé eitthvaö
farinn að ganga.
Það sem háir þeim Hvitár-
mönnum, er rokið þar efra
undanfarna daga, og i gær var
þar noröaustan strekkingur.
Hvitá er talsvert mórauð, að
sögn Kristjáns, og net þvi
óhrein mjög. Vatniö i ánni er
nú 8 stiga heitt, og er þaö mjög
óvenjulegt hitastig miöað við
árstima. Ekki er áin vatns-
mikil þessa dagana, hefur
dregið úr vatnsmagni hennar
undanfarna daga.
Pillan góð gegn krabbameini
- niðurstöður rannsókna á Puerto Rico
ÓV-Reykjavik
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sókna er gerðar hafa verið á
Puerto Rico á undanförnum átta
árum, hefur komið i ljós, að
,,pillan”fyrirbyggir krabbamein i
leghálsi kvenna.
Alls voru athugaðar 9.634
konur, og þar af notuðu 4.864
pilluna, en hinar aðrar aðferðir til
varnar getnaði. 1 ljós kom eftir
átta ára stöðugar rannsóknir á
konunum, að þeim. sem notuðu
pilluna, var minna hætt við að fá
krabbamein i legháls og móðurlif.
Einnig kom i ljós, að pillan er gott
varnarmeðal fyrir annars-og-
ýmiss-konar smitun i móðurlifi og
er reiknaö með, aö það sé
hormónainnihald pillunnar, sem
þar sé að verki.
Það var háskólinn á Puerto
Rico,sem stóð fyrir þessari til-
raun, sem hófst 1966. Hafa
konurnar verið rannsakaðar
nákvæmlega á tveggja mánaða
fresti allar götur siðan, og varð
útkoma eins og að ofan greinir
Rannsóknir á verkunum
pillunnar á likamsstarfsemi
kvenna hafa annars veriö i fullum
gangi á Puerto Rico siðan 1956, en
þaö var ekki fyrr en 10 árum
siðar, að ákveðið var að hefjast
handa við þessa skipulegu til-
raun.
Konurnar voru valdar af mikilli
kostgæfni og i báðum hópum eru
konur með samskonar menntun,
fjárhagsafkomu og þess háttar.
Við tilraunina voru notaðar
allar gerðir getnaðarvarnatafla^
en þær sem innihalda sérlega
mikið magn af progesteron
virtust reynast hvað áhrifa-
rikastar i baráttunni gegn
krabbameini.
NTB-Washington, Saigon
Oldungadeild Bandarikjaþings
samþykkti i gær frumvarp Mike
Mansfield, leiðtoga demókrata i
deildinni, sem var þess efnis, að
eftir l.sept. næstkomandi væri
Bandarikjastjórn óheimilt að
veita fé til striðsrekstursins i Viet
nam. Frumvarpið fól einnig i sér,
að frá og með sama tima hættu
Bandarikin allri þátttöku i bar-
dögum i Indó-Kina, ef Norður-
Vietnamar féllust á vopanhlé.
Þykir þetta töluvert áfall fyrir
„haukana” i Pentagon, en nánari
fréttir höfðu ekki borizt seint i
gærkvöldi.
200 suður-vietnamskir hermenn
gengu á land um það bil 85 kil-
ðmetrum norðan við Quang Tri i
gær, og mætti þeim hörð stór-
skotaliösárás Norður-Vietnama.
Sagði herstjórnin i Saigon siðla
dags i gær, að mannfall væri litið i
liði Saigon-stjórnarinnar, en þvi
meira i liði „óvinanna”, og hefði
stjórnarhernum miðað nokkuð
áleiðis inn til landsins, eða um
það bil einn og hálfan kilómetra.
Bandariskar sprengjuflugvélar
af gerðinni B-52 héldu áfram
árásarferðum sinum á Norður-
Vietnam i gær og i nótt, og herma
áreiðanlegar heimildir, að allt
það mannfall , sem orðið hafi i
liði Norður-Vietnama, sé af
þeirra völdum.
Hressilegt kynlíf bezta
m egru n a raðf erði n!
- segir í grein eftir bandarískan lækni
NTB-New York
Iþróttir, leikfimi og
megrunarlyf ýmiss konar eru
ekki lengur auðveldasta að-
ferðin til að losna við auka-
kilóin, segir bandariski
læknirinn Abraham Friedman
i grein i nýjasta hefti viku-
ritsins Ladies Home
Journal.Það sem dugar bezt
er að hafa samfarir nokkrum
sinnum i viku.
Dr. Friedman segist hafa
tekið eftir þvi á undanförnum
25árum, að feitustu sjúklingar
hans áttu yfirleitt við kynlifs-
vandamál að striða. I stað
þess að lifa heilbrigðu og eðli-
legu kynlifi, átu sjúklingar
hans. Margir þeirra, sem ekki
höfðu getað náð af sér
„yfirvigt” á venjulegan hátt,
léttust þegar eftir að þeir
höfðu farið að ráðum Fried-
mans um að lifga upp á kynlif
sitt.
Astæðuna fyrir þvi, að lif-
legt kynlif sé grennandi, segir
Friedman vera þá, að við
samfarir stigi púlsinn allt upp
i 150 slög á minútu, og við
hverjar samfarir brenni
maðurinn allt að 200 hita-
einingum (kalorium) fyrir
utan þann svita, sem
áreynslan framkalli.
Dr. Friedman byggir
kenningar sinar á þvi að fólk
fari gjarnan á fætur um
miðjar nætur til að borða i
þeim tilgangi að deyfa kyn-
hvöt sina. — Slikar máltiðir,
segir Friedman, — innihalda
allt að 700 kalorium, og ef
maður fylgdi eðlishvöt sinni,
sparaði maður sér 900
kaloriur.
Sjálfur sagðist Friedman
hafa létzt um 7 kiló á þeim
þremur árum, sem liðin eru
siðan hann gekk i hjónaband.