Tíminn - 26.05.1972, Síða 9
Föstudagur 26. mai 1972.
TÍMINN
9
Framíöktta rflckKurínn
Framkvs.mdavl'iöri; Krlstfán Benedtkissðti, Rjtsijötart Þörarirtti
Þörarinsson (álj)r Artdtés Kttefjánssort, íón HetjiaíOrt, ludrtSi
G. Þorsteinssort og Tómav Kftrtvson, Ao$týsin$a5tiórt: Stetrt-
grímur Oíslason. Rltsfjérnarskrffstofur t '6dduhi5»irtU, sfmet
18306. Skrifstofur : Banfcestræfj 7, :~-
18300
m23.
Áskrtftargíald lcr.: 22S.0Q á mánuai: :lnnan!amts.
Afgrelðslusfmi
: Augfýsingasími:: :19523, i iABrar : : skrifstofur:-:
ik^lSKtKtieilntaktS.
simi xlj830Gi.
íxjilatiSátiolid
Biaðaprertt h;f; (-Offeatl ::
Nýju jarðræktarlögin
Nýlokið Alþingi samþykkti ný jarðræktarlög,
sem fela i sér ýmsar merkilegar brey tingar frá
fyrri lögum. Nokkrar helztu breytingarnar eru
þessar:
1. Vélasjóður verður lagður niður, þar sem
ræktunarsamböndin gegna nú orðið hlutverki
hans, en Búnaðarfélag fslands mun annast þá
leiðbeiningastarfsemi, sem áður heyrði undir
hann.
2. Aukaframlag til jarðræktar, sem Land-
nám rikisins hefur greitt, verður nú innifalið i
framlagi jarðræktarlaganna og er hér um
verulega vinnuhagræðingu að ræða.
3. Framlag til ræktunar verður jafnhátt, án
tillits til hektarafjölda, en hámarksframlag
var áður bundið við 25 ha túnstærð.
4. Framlag til endurræktunar túna, grænfóð-
urræktunar, votheysverkunar og súgheys-
verkunar eru talsvert aukin frá þvi, sem verið
hefur.
5. Tekið er upp nýtt framlag til hagaræktun-
ar, þegar vissum skilyrðum hefur verið full-
nægt varðandi sléttun, sáningu og túnstærð.
6. Sú breyting er gerð á framlagi til girðinga,
að það nær jafnt til girðinga um heimahaga og
ræktunarlönd.
7. Tekið er upp framlag til kölkunar
ræktunarlands. Reynsla hefur leitt i ljós, að
kölkun lands er viða hin mesta nauðsyn.
8. Tekin er upp sú heimild,að greiða megi
30% hærra framlag á félagsræktun, ef hlutað-
eigandi bændur hafa ekki viðunandi ræktar-
lönd, en jarðir þeirra eru góðar bújarðir að
öðru leyti.
9. Sú breyting er gerð á framlagi til fram-
ræslu, að það nær nú einnig til uppmoksturs úr
eldri skurðum, kilræsa og ræsa úr plaströrum.
Nokkur reynsla er fengin af plaströrum og
þykir hún spá góðu um þurrkun lands á þann
hátt.
10. Tekinn er upp nýr liður um framlag til
vatnsveitna á einstaka sveitabæi. Rikissjóður
hefur til þessa aðeins greitt framlag til slikra
vatnsveitna, þegar fleiri bæir mynduðu félag
um þær. Sliku verður ekki komið við, nema
óviða.
11. Tekið er upp framlag til vélageymslu.
Þýðingarmikið erf að vélar séu geymdar i full-
nægjandi húsnæði, og ætti þessi styrkur að ýta
undir það.
12. Fjárhagsleg aðstaða búnaðarsambanda
er verulega bætt frá þvi, sem verið hefur. Þau
fá t.d. eftirleiðis greiðslu 65% af ferðakostnaði
héraðsráðunauta.
Loks er svo að geta þess, að ýmsar breyting-
ar hafa verið gerðar á jarðræktarlögunum,
sem eiga að auðvelda þau i framkvæmd, t.d.
ýmsir liðir færðir saman og skýrslugerð gerð
einfaldari á þann hátt.
Tvimælalaust eiga hin nýju jarðræktarlög að
geta orðið til mikils ávinnings fyrir landbúnað-
inn og bændastéttina.
ERLENT YFIRLIT
Frakkar neituðu að veita
Tsiranana liðveizlu
Yfirhershöfðingja afhent völdin á Madagaskar
Ramanantsoa.
UM skeið hafa verið miklar
óeirðir i Tananarive,
höfuðborg Malagasi-lýðveld-
isins, sem er þekktara undir
nafninu Madagaskar. Oeirðir
þessar hófust i tilefni af þvi, að
nokkrir leiðtogar stúdenta
höfðu verið fangelsaðir, og
tóku fyrst stúdentar og siðar
verkamenn þátt i þeim.
A.m.k. um 40 manns hafa fall-
ið i þessum róstum. Stjórnin
reyndi að koma til móts við
uppþotsmennina með þvi að
láta hina fangelsuðu stúdenta
lausa og fallast á ýmsar kröf-
ur þeirra um námsskilyrði. En
það nægði ekki til að lægja öld-
urnar, heldur risu þær enn
hærra og beindust aðallega
gegn Tsiranana forseta. Þess
var krafizt, að hann legði nið-
ur völd. Þegar rósturnar höfðu
staðið i nokkra daga, sá
Tsiranana þann kost vænstan
að láta forsætisráðherraemb-
ættið alveg af hendi, en hann
hefur farið með það, ásamt
forsetaembættinu, og verið
raunverulegur einræðisherra
landsins. Jafnframt tilkynnti
hann, að hann hefði falið yfir-
hershöfðingjanum, Gabriel
Ramanantsoa, að mynda
stjórn og fara með aðalvöldin i
landinu. Tsiranana ætlar sér
að verða forseti áfram, en
hafa minni völd en áður. Vafa-
samt þykir, að þetta muni
nægja til að koma á friði, þar
sem andstæðingar Tsiranana
halda áfram að krefjast þess,
að hann fari alveg frá.
ÞÓTT kosningar þær, sem
hafa farið fram á Madagaskar
að undanförnu, bendi til
mikilla vinsælda forsetans,
virðist reyndin önnur. I fyrra
fékk flokkur hans, sem telur
sig sósialdemokratiskan, 104
þingsæti af 107 alls. 1 forseta-
kosningunum, sem fóru fram i
janúarmánuði siðastl., var
Tsiranana endurkosinn forseti
i þriðja sinn gagnsóknarlaust.
Óeirðirnar, sem hafa verið i
höfuðborginni undanfarið,
bera hinsvegar ekki vitni um
miklar vinsældir hans. Miklar
óeirðir urðu lika i Tananarive
á siðastl. vori. Þær voru ekki
kveðnar niður fyrr en fransk-
ar hersveitir skárusbi íeikinn.
Fyrst var Kinverjum kennt
um þær, enda var þeim stjórn-
að af flokki, sem hefur tengsl
við Peking. Siðar bárust for-
setanum skjöl, sem hann taldi
sanna, að sendiherra
Bandarikjanna hefði hvatt til
uppreisnar gegn honum. Hann
vék þvi sendiherranum og
öðrum æðstu mönnum
sendiráðsins úr landi Qg
breytti það engu, þótt
Bandarikjamenn teldu sig
geta sannað, að hér væri um
falsskjöl að ræða.
SITTHVAÐ er það, sem hef-
ur valdið óánægju með
Tsiranana á siðari árum, en
óneitanlega var hann vinsæll
um skeið. Flokkur hans varð
aðalflokkur landsins, þegar
Madagaskar fékk heima-
stjórn, og hefur haldið þeirri
stöðu siðan. Tsiranana hefur
verið óslitið forseti siðan 1959.
Siðustu árin hefur hann verið
heilsuveill, þótt hann sé ekki
nema 61 árs að aldri, og þvi oft
verið fjarverandi timum sam-
an og stjórn hans þvi lent i
meiri handaskolum en ella. Þá
hefur hann lagt áherzlu á náið
samband við frönsku stjórnina
og hefur hún haft um 4000
manna lið staðsett á
Madagaskar með leyfi
Tsiranana honum til halds og
trausts, eins og kom á daginn
á siðastl. vori. Að þessu sinni
neituðu Frakkar að skerast i
leikinn og lét Tsiranana fyrst
undan siga eftir það. Frakkar
hafa veitt Madagaskar veru-
lega efnahagslega aðstoð og
mestöll viðskipti Madagaskar
Tsiranana
eru við Frakkland. Þrátt fyrir
það, eru Frakkar ekki vinsælir
á Madagaskar, en þeir fóru
þar með nýlendustjórn frá
1885 til 1960. Mikil uppreisn
var gerð gegn Frökkum 1947
og féllu i henni um 80 þús.
manns. Hin nána samvinna
Tsiranana við Frakka, hefur
þvi verið umdeild. Við það
hefur svo bætzt,að siðustu árin
hefur Tsiranana tekið upp
allnána samvinnu við stjórn
Suður-Afriku og hann sjálfur
farið til Suður-Afriku i opin-
bera heimsókn. Þetta hefur
mælzt mjög illa fyrir meðal
blökkumannarikjanna á
meginlandi Afriku, en
Madagaskar tekur þátt i
einingarsamtökum þeirra.
Vafalitið hafa þau látið
skipuleggja áróður gegn
Tsiranana meðal stúdenta og
verkamanna á Madagaskar
og er ekki ósennilegt, að sá
áróður eigi verulegan þátt i
róstunum, sem hafa orðið i
Tananarive að undanförnu.
ÞAÐ ÞARF hinsvegar ekki
að þykja undarlegt, þótt
Madagaskar hafi sérstöðu i
hópi Afrikurikja, þvi að
þjóðernislega séð telja
Malagazar sig ekki Afriku-
menn. Hinir upphaflegu land-
nemar, sem komu þangað
fyrst fyrir um 2000 árum,
komu frá Indónesiu og
Malajaskaga og eru afkom-
endur þeirra i miklum meiri-
hluta meðal landsmanna, þótt
siðar bættust blökkumenn frá I
meginlandinu og Arabar i
hópinn. Þjóðernislega og
menningarlega hefur
Madagaskar þvi nánari
tengsli við Asiu en Afriku.
Eins og kunnugt er, er
Madagaskar fjórða mesta ey-
land i heimi, næst á eftir
Grænlandi, Nýju-Guineu og
Borneó. Fiatarmál landsins er
um 587 þús. ferkm. og fólks-
fjöldinn rúmar sjö milljónir.
Landið er yfirleitt frekar
hálent og er landbúnaður
helzti atvinnuvegurinn, um
90% ibúanna lifa á landbúnaði.
Evrópumenn hófu að leggja
þangað leiðir sinar i byrjun 16.
aldar, fyrst Portúgalar, en
siðan Bretar og Frakkar.
Sambandið við meginland
Afriku hefur alltaf verið held-
ur litið, enda er 385 km breitt
sund á milli og skipakostur
ekki verið fullkominn i
þessum hluta heims.
Madagaskar var einn
afskekktasti hluti heims
þangað til sjóleiðin fannst til
Indlands, en siglingar minnk-
uðu aftur um þessar slóðir eft-
ir að Súezskurðurinn var opn-
aður. Lokun hans siðustu árin
hefur verið Madagskar til
verulegs ávinnings.
Þótt Madagaskar teljist til
vanþróaðra landa, hafa fram-
farir verið þar tiltölulega
meiri en viðast á meginland-
inu. Þannig eru 40% ibúanna
taldir læsir og er það meira en
yfirleitt gerist i hinni svörtu
Afriku.
Þ.Þ.
Þ.Þ.