Tíminn - 26.05.1972, Blaðsíða 16
TÍMINN
Föstudagur 26. mal 1972.
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Danir leika án atvinnu-
manna sinna á íslandi
Landsleikurinn við Islendinga liður f undirbúningi fyrir Olympíuleikana í knattspyrnu
Tómas Jónssun meft svig-
bikarinn.
Einsog fram hefur komið
i fréttum, hafa Danir
tryggt sér rétt til að leika í
lokakeppni Olympiu-
leikanna í knattspyrnu, en
eins og kunnugt er, sigruðu
þeir Rúmena, bæði á
heimavelli og útivelli, og
nægði þaðtil að hljóta sæti i
lokakeppninni.
Nú hefur verið tilkynnt i Kaup-
mannahöfn, að Danir muni senda
Olympiulið sitt til keppni i
Reykjavik 3.júli n.k. en það þýðir,
að engir atvinnumenn verða með
i liðinu, sem leikur landsleik gegn
lslendingum á Laugardals-
vellinum.
Aftur á móti hafa Danir ákveðið
að tefla sinu sterkasta liði fram i
landsleikjum gegn Finnlandi og
Sviþjóð i júni. Munu þeir kalla á
atvinnuleikmenn sina, sem leika
viðsvegar i Evrópu, til liðs við
sig.
Þessar fréttir benda til þess, að
danska landsliðið* sem hingað
kemur i byrjun júli, verði ekki
eins sterkt og búizt hafði verið
við. Hins vegar þýðir það ekki, að
danska liðið verði veikt. Danir
munu leggja mikla áherzlu á að
samþjálfa Olympiulið sitt fyrir
átökin i Miinchen. Danir hafa oft
náð mjög góðum árangri á ólym-
piuleikunum i knattspyrnu.
Skemmst er aö minnast þess, er
þeir hlutu silfurverðlaun á Ólym-
piuleikunum i Róm 1960.
Tómas Jónsson náði
bezíum heildarárangri
Gunnar
Kára.
Sigurösson, formaður
Skotarnir
ærðust - og
margir
slösuðust
Glasgow Rangers sigraði
Dynamo Moskva i úrslitaleik
Evrópukeppni bikarhafa, en
þetta er þriðji leikur liðanna.
Leikurinn fór fram i Barce-
lona á Spáni og lauk 3:2 en
Glasgow Rangers skoraði
þrjú fyrstu mörkin. 20-30
þúsund Skotar fóru yfir til
meginlandsins til að fylgjast
með löndum sinum. I mikilli
sigurvimu eftir leikinn
slösuðust fjölmargir
áhorfendur, en Skotarnir
kunnu sér engin læti.
Skarðsmótiö, hið árlega
lokamót skiðamanna, skar
endanlega úr um það hver
hljóta skyldi svigbikarinn
1972, en hann hlýtur sá
skiðamaður, sem nær bezt-
um samanlögðum árangri í
sex af þeim tíu svig- og
stórsvigskeppnum vetrar-
ins, sem gefa stig.
Svigbikarinn var afhentur á
Siglufirði að loknu Skarðsmótinu
nú um helgina og sagði Ólafur
Nilsson, sem afhenti hann fyrir
hönd Skiðasambands íslands, að
keppnin um bikarinn hafi verið
afar hörð og skemmtileg allt frá
Valsmenn höfðu
nærri misst
af lestinni
- en tókst að sigra Þrótt, 3:2, og leika
úrslita gegn Fram í Rvíkurmótinu
til
Litlu munaði aö Valsliðið tapaði
af lestinni i Reykjavikurmótinu i
knattspyrnu. Valsmenn áttu i
mestu brösum með Þrótt, en tókst
þó að sigra með eins marks mun,
A Grafarholtsvelli fór fram um
siðustu helgi undankeppni hvita-
sunnukeppninnar og voru leiknar
18 holur með forgjöf. Þeir 16
fyrstu komast áfram og leika
holukeppni. Er keppt um bikar,
sem verið hefur i umferð siðan
1944. Fyrst var þetta litil krús, en
siðan hefur verið byggður undir
hana myndarlegur hnallur, svo
að nöfnin komist fyrir — og er
þetta þvi orðinn all merkilegur
gripur.
tJrslit i undankeppninni urðu
þessi:
Guðmundur Ófeigsson, 87-19 68
Gunnar Ólafsson, 88-20 68
Hákon Guðmundsson, 93-24 69
Þeir Guðmundur og Gunnar
léku aukakeppni um 1. verðlaunin
og sigraði Guðmundur i henni á 2.
holu.
Bezta árangri án forgjafar náði
Haukur V. Guðmundsson, sem
lék á 78 höggum (39:39)
3:2. Hafði fyrirfram verið búizt
við yfirburðasigri Valsmanna.
Með þessum úrslitum eru Vals-
menn komnir i úrslit. Þeir leika
úrslitaleik gegn Fram, sem hefur
einu stigi betur, en það þýðir, að
F'ram nægir jafntefli til aö hljóta
Reykjavikurmeistaratitilinn i
knattspyrnu 1972.
A fyrstu minútum i leiknum
gegn Þrótti skoruðu Valsmenn
tvö heppnismörk, sem bæði komu
upp úr innköstum. Fyrra markið
skoraði Ingi Björn Albertsson
með skalla á 2. minútu. Siðan
skoraði Alexander úr þvögu, sem
skapaðist i markteig. Var staðan i
hálfleik 2:0, Val i hag, en Þróttar-
ar áttu þó engu minna i þessum
hálfleik.
A 2. minútu i siðari hálfleik kom
svo fyrsta mark Þróttar. Gunnar
Ingvarsson skaut frá miðju. Sveif
knötturinn yfir Sigurð Dagsson,
markvörð Vals, sem var illa stað-
settur, — og i markið. Atta minút-
um siðar jafnaði Helgi Þorvalds-
son fyrir Þrótt, 2:2, með skoti frá
markteigslinu. En siðasta orðið i
þessum leik átti Ingi Björn, sem
skoraði fallegt mark eftir að hafa
einleikið frá miðju.
Eins og fyrr segir, áttu Vals-
menn i miklum erfiðleikum.
Þróttarar voru sizt verri aðilinn i
þessari viðureign — en tvö
heppnismörk Valsmanna i byrjun
gerðu það að verkum, að þeir
hlutu ekki annað eða bæði stigin.
upphafi. Þegar liða tók á veturinn
var ljóst, að baráttan um sigurinn
myndi fyrst og fremst standa
milli þeirra Arna Óðinssonar,
Akureyri, Hafsteins Sigurðsson-
ar, tsafirði og Tómasar Jónsson-
ar, Reykjavik. Stórsvigskeppni
Skarðsmótsins gerði siðan út um
sigurinn, en i henni hafði Tómas
Jónsson, Reykjavik nokkra yfir-
burði.
Fyrstu tiu menn i bikarkeppn-
inni urðu þessir: stig.
1. Tómas Jónsson R. 3,75
2. Árni Óðinsson, Á. 5,23
3. Hafsteinn Sigurðsson 1 7,93
4. Viðar Garðarsson A. 24,36
5. Jónas Sigurbj.s. A. 24,46
6. Guðmundur Jóhannesson 126,15
7. Hákon Ólafsson S. 30,32
8. Haukur Jóhannsson A. 34,36
9. Reynir Brynjólfsson A. 34,53
10. Arnór Guðbjartsson R. 37,70
Arangur þátttakenda i þessari
keppni er mældur eftir stigakerfi
alþjóða skiöasambandsins og er
sá sigurvegari, sem hlýtur fæst
stig. Framangreindur stigafjöldi
sýnirr hve mörg stig hver kepp-
andi hefur hlotið að meðaltali i
hverri af þeim sex keppnum, sem
til útreiknings koma.
Þetta er i fyrsta skipti, sem
þessi keppni fer fram og hlaut
Tómas Jónsson, Reykjavik, veg-
legan bikar til eignar, sem gefinn
er af Fischer — skiðaumboðinu,
heildverzlun Magnúsar Haralds-
sonar. (FráS.K.Í.)
Spánverjar
sigruðu 1:0
Spánn sigraði Uruguay i lands-
leik i knattspyrnu með 1:0.
Leikurinn fór fram i Madrid á
þriðjudagskvöld og var vináttu-
leikur.
50 ára afmæli
knattspyrnufélagsins
Kára á Akranesi
Knattspyrnufélagið Kári verður
50 ára i dag, föstudaginn 26. mai
og er það þvi elzta starfandi
iþróttafélagið á Akranesii
Það voru 10 drengir á aldrinum
10-14 ára, sem stofnuðu félagið á
sinum tima, en þeir voru: Albinus
Guðmundsson 13 ára, Bjarni I.
Bjarnason 13 ára, Gisli Bjarnason
11 ára, Gisli Sigurðsson 12 ára,
Guðmundur Bjarnason 13 ára,
Guðmundur Sveinbjörnsson 11
ára, Gústaf Asbjörnsson 14 ára,
Sighvatur Bjarnason 10 ára,
Sigurður Helgason 12 ára og
Sigurjón Sigurðsson 12 ára. Af
stofnendum eru nú fjórir látnir,
þeir Albinus Guðmundsson,
Gústaf Ásbjörnsson, Gisli
Bjarnason og Guðmundur Svein-
björnsson. Þeirra er minnzt, sem
duglegra forvigismanna og góöra
félaga.
Þótt stofndagur félagsins sé
talinn 26. mai, var það ekki fyrr
en um haustið sama ár, að endan-
lega var gengið frá stofnun Kára
og lög samþykkt fyrir félagið.
Var það hinn mæti maður, Svein-
björn Oddsson, sem var hinum
ungu stofnendum hjálplegur við
samningu þeirra.
Það verður að biða betri tima,
að rekja sögu Kára, en á þeim 50
árum, sem félagið hefur starfað,
hefur á ýmsu gengið.
Óhætt er að segja, að i dag sé
starfsemi þess með miklum
blóma og hefur félagið á að skipa
góðum leikmönnum i öllum
aldursflokkum knattspyrnunnar.
Fyrsta stjórn Kára var þanmg
skipuð: Gústaf Ásbjörnsson for-
maður, Sigurjón Sigurðsson ritari
og Guðmundur Bjarnason gjald-
keri. Núverandi stjórn Kára er
þannig skipuð: Gunnar Sigurðs-
son formaður, Arsæll Valdimars-
son varaformaður, Kristján
Sveinsson gjaldkeri, Benedikt
Valtýsson ritari og Helgi
Danielssson meðstjórnandi.
I tileíni afmælisins mun
stjórn Kára taka á móti gestum i
Hótel Akranes á afmælisdaginn,
föstudaginn 26. mai milli kl. 20 og
22. Þar verða margir Kára-félag-
ar heiðraðir fyrir margvisleg
störf i þágu félagsins og unnin
iþróttaafrek á undanförnum
árum. Eru allir iþróttaunnendur
og velunnarar Kára boðnir þang-
að velkomnir.
Þá mun afmælisins verða
minnzt með keppnum i ýmsum
iþróttagreinum og á laugardag-
inn 27. mai fara fram kappleikir i
knattspyrnu milli yngri flokka
Kára og KA á iþróttavellinum og
siðar þann sama dag verður efnt
til hófs fyrir yngri félaga Kára i
Hótel Akranes.
Erlendur kastaði 57.26 metra
w
Ragnhildur setti Islandsmet
ÖE-Reykjavik
Erlendur Valdimarsson, IR
kastaði kringlunni 57,26 m á Vor-
mót ÍR i gærkvöldi og átti annað
kast tæpa 57 m en OL-lágmarkið
er 56,50 m. Hann þarf að kasta
yfir 56,50 m á öðru móti, til aö ná
takmarkinu til fulls. Annar
maður, Páll Dagbjartsson, HSÞ
vakti og athygli, kastaði 47,31 m
sem er hans langbezti árangur.
Ragnhildur Pálsdóttir, UMSK
setti nýtt Islandsmet i 1000 m
hlaupi, hljóp á 3:12,8 min. Erfitt
var að hlaupa vegna strekkings-
vinds. Gamla metið var 3:15,4
min. Lára Sveinsdóttir, A, náði
mjög góðum tima I 200 m hlaupi,
25,4 sek. sem er 9/10 úr sek betra
en tslandsmetið, en meðvindur
var of mikill. Vilmundur Vil-
hjálmsson, KR hljóp og 200 m vel,
timi hans var 22,5 sek. Nánar um
mótið á morgun.