Tíminn - 26.05.1972, Qupperneq 20

Tíminn - 26.05.1972, Qupperneq 20
Fl gefur flugvél til land- græðslu- starfa KJ-Reykjavík A aöalfundi Flug- félags islands í gær, var samþykkt aö gefa Gljá- faxa DC-3 til notkunar við landgræöslustörf og veröur vélin afhent síðar á árinu. I fréttatilkynningu frá Flug- félaginu segir, að forstjóri félagsins, örn Ó. Johnsen, hefði sagt frá þvi, að fyrir nokkrum mánuðum hefði landbúnaðarráðuneytiö haft samband við sig vegna áburðardreyfingar á öræfi landsins og örfoka land. Aburðardreyfingu hefur verið sinnt úr litlum flugvélum, en áhugi væri fyrir að gera stærra átak. lslenzkir at- vinnuflugmenn hefðu sam- þykkt að leggja fram vinnu við slikt endurgjaldslaust. örn tók þess næst að sér að afla upp- lýsinga frá Nýja Sjálandi, en þar munu DC-3 flugvélar vera i áburðardreyfingu. Að fengn- um upplýsingum kom i ljós,að frekari vitneskju var þörf,og bauð Flugfélagið, að einn starfsmaður þess færi til Nýja Sjálands og kynnti sér málið. F'erðina fór Gunnar Valgeirs- son, flugvirki. Tvö meginat- riði komu i Ijós. Breytingar á flugvélunum eru það miklar, að vart verður hægt að nota þær til annars á eftir. Enn- fremur, að langan tima tekur að koma útbúnaðinum i flug- vélarnar. örn sagði: ,,Upp- blástur lands er stór- vandamál. Degar svo viðrar l'ara þúsundir smálesta af jarðvegi á haf út dag hvern. Djóðgarðurinn er i hættu, við cigum á hættu að Uingvellir l'ari undir sand. Uað er tillaga stjórnar og forstjóra Flug- lélags lslands,að félagið leggi nokkurn skerf til að hindra þessa óheillaþróun og til upp- græðslu örfoka lands. Tillagan, sem þessir aðilar leggja fyrir aðalfund Flugfélags Islands er svohljóðandi: Aðalfundur Flugfélags Islands h.f. 25. mai 1972 heimilar stjórn félagsins að gefa flugvélina ,,GLJA- FAXA" TF-ISH til notkunar við landgræðslustörf og verði flugvélin afhent viðkomandi aðilum eigi siðar en við lok sumaráætlunar 1972.” Uessi tillaga stjórnar og for- stjóra Flugfélags Islands var samþykkt af öllum fundar mönnum. Föstuclagur 26. mai 1972. Nikolaij Podgorny forseti Sovétrfkjanna og Nixon Bandarikjaforseti undirrituöu enn einn samning i gær og skrifa aö öllum likindum undir SALT-samningana í dag. Fimmtu samningarnir undirritaðir í Moskvu SALT-samningarnir nær örugglega undirritaðir í dag NTB-Moskvu Leiðtogar Bandarikjanna og Sovétrikjanna undir- rituðu i gær enn einn samning á milli rikjanna tveggja, þann fimmta, sem undir- ritaður er siðan Nixon Bandarikjaforseti hóf viðræður sinar i Moskvu á mánudaginn. Samningurinn, sem undirritaður var i gær, fjallar um aðgerðir, sem miða að þvi að komast hjá árekstrum skipa rikjanna á alþjóða- siglingaleiðum. Búizt hafði verið við, að undir- ritaður yrði einnig samningur um verzlun og viðskipti, en af þvi hefur þó ekki orðið. Viðræðunefndir landanna tveggja á samningafundunum um takmörkun gjöreyðingarvopna- búnaðar i Helsinki halda áfram viðræöum,en i gær var að minnsta kosti tvisvar frestað brottför aðalsamningamanna rikjanna frá Helsinki til Moskvu. Þykir þaö benda til, að unnið sé af kappi við að leggja siðustu hönd á undir- búning undirritunarinnar og veröa samningarnir því nær örugglega undirritaðir i Moskvu i dag. Nixon hélt áfram viðræðum sinum viö sovézka leiðtoga i gær- dag eftir undirritunina, og talaði hann þá við Podgorny forseta og Kosygin forsætisráðherra. Eins og fyrr taka þeir Rogers og Kissinger þátt i viðræðunum, og segja fréttamenn I Moskvu, að aðdáun Sovétmanna á Kissinger leyndi sér ekki. Þvi siður leynir sér aðdáun landsmanna á forsetafrúnni bandarisku, Patriciu Nixon. Hún fór i búðir i fyrradag, og segja fréttamenn, að stór hópur hafi safnazt saman í búðinni á meöan frú Nixon dvaldi þar og fagnað henni með dynjandi lófataki. Kærið ekki nakta menn! NTB-Perth, Ástraliu Lagastúdent, stúlka, við vestur-ástralska háskólann i Perth, heldur þvi fram, að verið sé að hrekja hana úr skólanum fyrir að hafa kært nokkra skólabræður sfna, sem komu naktir til skrásetningar- athafnar skólans. Stúlkan heitir Kathlen Mórrissey og er 26 ára gömul. Krefst hún þess, að sér verði greidd fjárupphæð, sem nem- ur rúmlega hálfri milljón is- lenzkra króna, fyrir ærumeið- andi ummæli, sem um hana voru höfð i skólablaði háskól- ans i júni 1969. Er nú fjallað um málið af dómstól i Perth, og er ungfrú Morrissey kom fyrir rétt, sagði hún, að greinin hefði verið skrifuð eftir að hún kærði skólabræður sina fyrir stjórn lögfræðideildar háskól- ans og lögreglustjóra borgar- innar. Sagöi hún einnig að hún hefði lagt fram kæruna vegna þess, að hún vildi ekki að há- skólinn sykki á kaf i siðleysi og yrði fyrir vanviröu. Afleiöing- in varð sú, að áður en langt um leið voru það aðeins tvær manneskjur við háskólann, sem yrtu á hana. Er ekki hægt að segja annaö en að ungfrú Morrissey sé óvenjulegur stúdent nú á tim- um. NTB-Moskvu Bandarikin, Frakkland, Sovét- rikin og Bretland, hafa komið sér saman um að undirrita Berlínar- sáttmálann þann þriðja júni næstkomandi. Pólski vara-utanríkisráðherrann í 4 daga heimsókn KJ-reykjavik Pólski varautan- rikisráðherrann,Jozef Czyrek og frú komu á miðvikudaginn i heimsókn hingað til lands i boði utanrikisráðuneytisins, ásamt fylgdarliði. Dveljast Pólverjarnir hér fram á laugardag. 1 gærmorgun gekk Czyrek Stýrimenn í verkfalli? Þegar blaðiö fór i prentun i gærkvöldi, var allt útlit fyrir, aö verkfall stýrimanna væri aö hefj- ast. Verkfall var boöaö kl. 12 á miö- nætti. varautanrikisráðherra á fund Ólafs Jóhannessonar forsætisráð- herra og formanns utanrikis- málanefndar Alþingis, Þórarins Þórarinssonar, og átti við þá klukkutima viðræður. Þá hitti varautanrikisráðherrann Eystein Jónsson forseta sameinaðs þings og Þórhall Ásgeirsson ráðu- neytisstjóra i viðskiptaráðu- neytinu og um miðjan dag heimsóttu Pólverjarnir forseta- hjónin aö Bessastöðum. Siðan var farið i Þjóðminjasafnið og um kvöldið bauð Pétur Thorsteinsson ráðuneytisstjóri og frú til kvöld- verðar að heimili sinu. 1 dag hittir varautanrikisráð- herrann menntamálaráðherra Magnús Torfa Ólafsson og iðnaðarráðherra Magnús Kjartansson. Þingvalla- hringurinn er næstur á dag- skránni, og móttaka i pólska sendiráðinu eftir ferðalagið. „Færðu íslenzku þjóð- inni kveðjur okkar”, - sagði formaður kinversku sendinefndarinnar við blaðamann Tímans við komuna í gær ÓV-Reykjavik Klukkan rúmlega fjögur i gær komu með Loftleiðavél til Keflavikur 7 Kinverj- ar, meðlimir sendi- nefndar Peking- stjórnarinnar, sem undirbúa eiga stofnun kinversks sendiráðs í Reykjavik. Blaðamaður Tim- ans tók á móti þeim á flugvellinum, en for- maður sendinefndar- innar, Li Hua sendi- fuljtrúi, vildi ekki svara spurningum. Hann sagði þó: ,,Þvi miður, en ég bið þig að færa islenzku þjóð- inni beztu kveðjur okkar.” Fyrir hönd is- lenzkra stjórnvalda tók Pétur Thorsteins- son, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis- ins, á móti Kinverjun- um, og sagði hann, að ekki væri vitað fylli- lega, hve lengi Kin- verjarnir dveldust hér á landi. Hótelherbergi hefðu verið pöntuð fyrirþá til 28. þ.m., en viðræður hæfust i dag, og yrði væntanlega hægt að gefa ein- hverjar upplýsingar um gang mála siðari hluta dagsins i dag. Verður þvi væntan- lega greint nánar frá þessu i blaðinu á morgun.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.