Tíminn - 30.05.1972, Side 1
IGNIS
KÆLISKAPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
☆☆☆
Verkfallinu
frestað
Um miðnætti s.l.
ákváðu deiluaðilar að
verkfalli stýrimanna á
kaupskipaflotanum
verði frestað i viku, eða
til mánudagsins 5. júni.
Ákvörðunin um
frestingunina var gerð
til að gefa Félagsdómi
ráðrúm til að kveða upp
dóm varðandi ágreining
þann, sem risinn er milli
deiluaðila um lögmæti
verkfallsins.
Stöðvast
matreiðsla
á veitinga-
húsunum?
KJ—Eeykjavik.
t gærkvöldi var haldinn fundur
hjá sáttasemjara i deilu veitinga-
húsaeigenda og matreiöslu-
manna. Matreiðslumenn hafa
boðað verkfall frá og með mið-
vikudegi i þessari viku, og mun
töluvert bera á milli i þessari
deilu.
Þá voru framreiðslumenn og
hljómlistarmenn með lausa
samninga, ásamt öðru starfsfólki
á veitingahúsum, en samningar
við þessa hópa eru betur á vegi
en við matreiðslumenn. Er þvi
ekki útilokað,að matreiðsla stöð-
vist á veitingahúsunum frá og
með miðvikudeginum — rétt i
þann mund,er erlendir ferðamenn
fara að fylla öll hótel og veitinga-
staði.
118. tölublað — Þriðjudagur 30. mai 1972 — 56. árgangur.
V, Suduriands braut: 22
nýC
m7) 3S
86-500
Er straumandar-
eggjum smyglað
landi?
ur
Straumönd og egg
hennar alfriðuð
SJ-Reykjavik
Likur benda til, að
straumandaregg séu
tekin ólöglega við
Laxá i Þingeyjarsýslu
og þeim smyglað úr
landi i hagnaðar-
skyni. Straumöndin
hefur verið alfriðuð
frá 1966 og einnig egg
hennar. Staumöndin
er sjaldgæfur fugl, og
egg hennar enn fágæt-
ari. ,,Það er ákaflega
hættulegt, ef menn
stunda athæfi sem
þetta” sagði, dr.
Finnur Guðmundsson
hjá Náttúrufræði-
stofnun íslands i við-
tali við Timann, ,,og
stofna þannig islenzku
straumöndinni i
hættu. Það hefur
aldrei verið mikið af
henni hér, aðeins
slæðingur, og henni
hefur farið fækkandi
undanfarið. Straum-
öndin hefur mikið að-
dráttarafl fyrir ferða-
menn og fuglaskoð-
ara.
Mörgum þeirra er
hápunktur islands-
ferðar að koma norð-
ur i Þingeyjarsýslu og
sjá straumendur við
Laxá.”
I norðlenzka fréttablaðinu
Degi birtist fyrir nokkrum
dögum frétt meö fyrirsögninni
„Ctlendir kaupa straum-
andaregg”, sem gefur ástæðu
til að ætla, að einhver brögð
séu að ólöglegri eggjatöku og
að ástæða sé til að brýna fyrir
mönnum, aö algerlega er
bannað að taka straumandar-
egg, selja þau eöa flytja úr
landi.
Hér er um að ræöa frétta-
bréf frá Gunnlaugi Tryggva
Gunnarssyni I Kasthvammi i
Reykdælahreppi, S. Þing., þar
sem sögð eru almenn tíðindi
úr sveitinni. Þar á meðal er
þessi klausa: „Mér sýnist, aö
endur séu með fleira móti i
Framhald á bls. 7.
Sendiráð
Kína á
Loftleiða-
hótelinu
ÓV—Reykjavík.
olafur Jóhannesson, for-
sætisráðherra, sem gegnir
störfum utanrikisráðherra
á meðan Einar Ágústsson
er erlendis, tók í morgun á
móti kinversku sendiráðs-
starfsmönnunum og veitti
viðtöku erindisbréfi þeirra.
Hefur þar með verið opnað
kinverskt sendiráð í
Reykjavík, og er það til
bráðabirgða í Loftleiða-
hótelinu, þar sem sendi-
ráðsstarfsmennirnir sjö
halda til, þar til heppilegt
húsnæði hefur fundizt undir
sendiráðið.
Pétur Tho'rsfeinsson, ráöu-
neytisstjóri i utanrikisráðu-
neytinu, sagði i viðtali viö Tim-
ann i gær, að viðræður Kinverj-
anna við islenzk yfirvöld hefðu
verið venjulegar viðræöur um
opnun sendiráðs. Enn hefði ekki
veriö gengiö frá húsakaupum,
slikt gæti tekið langan tima, en
Framhald á bls. 7.
hafa
8 skip
stöðvast
Margar tillögur um gerö minnispeninga vegna skákeinvígis þeirra
Fischers og Spasskys hefa komið fram. Hér sjáum við eina þeirra, en
það er minnispeningur með inngreyptri mynd af islandi i miðjunni.
Minnispeningar í tilefni
„einvígis aldarinnar”
ÞO-Reykjavík.
Þeir dr. Max Euwe, forseti Al-
þjóðaskáksambandsins og Mars-
hall, lögfræðingur Bobby Fisch-
ers, komu til Reykjavikur á
laugardaginn, og áttu þeir við-
ræður við stjórn Skáksambands
tslands um ýms framkvæmdaat-
riði skákeinvigisins milli þeirra
Fischers og Spasskys.
Guðmundur G. Þórarinsson,
forseti Skáksambands tslands,
tjáði Timanum, að viðræðurnar
hefðu hafizt fljótlega eftir komu
þeirra Euwe og Marshall til
landsins. Stóðu viðræðurnar fram
á nótt, og gengu þær vel fyrir sig.
Dr. Euwe og Marshall héldu siðan
utan aftur á sunnudag, Euwe til
Hollands og Marshall til Banda-
rikjanna.
Guðmundur sagði, að Fischer
væri búinn að boða komu sina til
tslands þann 25. júni n.k., og
myndi hann búa á Hótel Loftleið-
um. Ekki er enn vitað hvenær
Spassky kemur til landsins, en nú
um mánaðamótin er væntanlegur
hingaö fulltrúi frá sovézka skák-
sambandinu, og mun hann
væntanlega tilkynna, hvenær
Spassky kemur til landsins. Gert
er ráð fyrir, að Spassky búi á
Hótel Sögu.
Aðaldómari skákeinvigisins
Framhald á bls. 7.
ÞÓ-Reykjavik.
Verkfall stýrimanna á kaup-
skipuin er nú farið aðsegja til sin,
og i gær voru 8 skip komin tii
hafnar i Reykjavik, og von var á
fleiri i gærkvöldi. — t gær var
einnig skjalfest fyrir Félagsdómi
kæra sú, er skipafélögin höfða á
hendur Stýrimannafélagi tslands,
en skipafélögin telja verkfallið
ógilt. Búizt er við,að úrskurður
félagsdóms verði ekki kunnur
fyrr en i vikulokin. Sækjandi fyrir
skipafélögin er Hafsteinn Bald-
vinsson, lögfræðingur, en verj-
andi fyrir stýrimannafélagiö er
Jón Þorsteinsson. Dómsforseti i
málinu er llákon Guðmundsson.
Björgvin Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands tslands, sagði, að hann
vildi litið um verkfallið segja að
svo komnu máli, annað en þaö,aö
forystumenn Vinnuveitendasam-
bandsins teldu það ólöglegt, og
vitnaöi Björgvin til greinargerð-
ar, sem birtist i öðrum stað í blað-
inu.
Guðlaugur Gíslason, starfs-
maður Stýrimannafélags Islands,
sagði, að kröfur þær, sem stýri-
menn hefðu farið fram á væru, að
miklu leyti i gildi siðan i vetur, er
samið var við aðra yfirmenn en
stýrimenn á kaupskipunum.
Reyndar hefðu forystumenn
Vinnuveitendasambandsins hald-
ið þvi fram, að stýrimenn hefðu
lagt fram nýjar kröfur. Það væri
ekki allskostar rétt. Stýrimenn
hefðu reyndar reynt nýjar leiöir,
en þaö heföi verið gert aö beiðni
sáttasemjara. Sagði Guðlaugur,
að þó svo að reyndar heföu verið
nýjar leiðir, þá heföi ekki verið
farið fram á nýjar kröfur.
Greinargerð frá Vinnuveit-
endasambandi íslands og Vinnu-
málasambandi Samvinnufélag-
anna birtist á bls.3.
Félagsdómur kom saman i gær, I fyrsta skipti á þessu ári. Að þessu sinni var skjalfest mál Vinnuveitendasambands tslands og Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna gegn S'týrimannafélagi tslands. A myndinni eru sitjandi fyrir enda borðsins, frá vinstri: Ragnar ólafs-
son, Einar B. Guðmundsson, Hákon Guömundson, dómsforseti, Gunn laugur Briem og Einar Arnalds. Fremst á myndinni eru Jón Þorsteins-
son, verjandi Stýrimannafélagsins, Hafsteinn Baldvinsson, sækjandi í málinu og réttarritari. Tlmamynd Gunnar.