Fréttablaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 16
16 19. maí 2004 MIÐVIKUDAGUR
JØRGEN NASH LÁTINN
Danski listamaðurinn Jørgen Nash er lát-
inn, 84 ára að aldri. Hann er hvað þekkt-
astur fyrir að hafa fjarlægt höfuðið af stytt-
unni af litlu Hafmeyjunni í Kaupmanna-
höfn árið 1964.
Dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur:
11 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
DÓMSMÁL Maður á fertugsaldri var
dæmdur í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær fyrir að slá mann hnefa-
höggi í andlitið á skemmtistað í
miðborg Reykjavíkur í apríl á síð-
asta ári.
Fórnarlambið, rúmlega fimm-
tugur maður, nefbrotnaði, hlaut
bólgu, fleiður á vörum og gervi-
gómur í efri gómi hans brotnaði.
Ákærði játaði brot sitt skýlaust
en hann á að baki alllangan saka-
feril sem hófst árið 1985 þegar
hann var 17 ára.
Með brotinu rauf hann 10 mán-
aða skilorð fangelsisdóms frá því í
nóvember 2000 og var sá dómur
tekinn upp og manninum ákvörðuð
refsing í einu lagi fyrir bæði brotin.
Við ákvörðun refsingar var
tekið tillit til þess að ákærði játaði
brot sitt greiðlega en með hliðsjón
af ítrekuðum skilorðsrofum hans
kom skilorðsbundin refsing ekki
til greina að þessu sinni.
Maðurinn var dæmdur til að
borga fórnarlambinu 108.514 í
skaðabætur auk dráttarvaxta og
alls sakarkostnaðar, þar með tald-
ar 50.000 krónur í málsvarnar-
þóknun skipaðs verjanda síns.
RÁN Eiganda verslunarinnar H-sels
á Laugarvatni tókst í fyrrakvöld að
yfirbuga þjóf sem haft hafði með
sér fjármuni á brott úr verslun-
inni. Jón Þór Ragnarsson, eigandi
verslunarinnar, elti þjófinn til
Þingvalla þar sem honum tókst að
hafa hann undir með aðstoð veg-
faranda og halda honum þar til lög-
regla kom.
„Þessi maður virðist hafa fylgst
með okkur frá því rétt fyrir lok-
un,“ segir Jón Þór. „Þegar allir við-
skiptavinirnir voru farnir út legg-
ur hann bílnum þannig að hann sér
vel inn í verslunina.“ Jón Þór seg-
ist sjálfur nýlega hafa yfirgefið
verslunina en þar hafi barnshaf-
andi dóttir hans og tvær aðrar
stúlkur verið að ganga frá.
„Þá ryðst hann hérna inn,
gengur að borðinu og teygir hönd-
ina ofan í kassann eins og hann
ætli sér að taka upp úr honum,“
segir Jón Þór. Dóttir hans, sem
var að gera upp, hafi hins vegar
hvergi látið sér bregða þar sem
hún hafi talið kunningja sinn vera
að stríða sér. „Hún sló á höndina á
honum og sagði: „Hvað ertu að
gera?“ og skellti kassanum aftur.
Þá sá hún að hún þekkti ekki
manninn sem reiddi um leið
stærðar rörtöng til höggs og
lamdi í glerborðið fyrir framan
hana, sem splundraðist.“
Stúlkurnar þrjár hrökkluðust
bak við og maðurinn óð þá í kass-
ann, að sögn Jóns Þórs. Náði
maðurinn bæði að hafa með sér
peninga og símakort. „Hann var þó
ekki vitmeiri en svo að stúlkurnar
sáu nákvæmlega hvernig bíllinn
var og náðu númerinu,“ segir Jón
Þór.
Stúlkurnar höfðu strax sam-
band við lögreglu og Jón Þór. „Það
blossaði upp reiði í mér við að
þetta skyldi eiga sér stað,“ segir
Jón Þór. „Þannig að ég henti mér í
skó og sagðist fara á eftir honum.“
„Þegar ég kem að þjónustumið-
stöðinni á Þingvöllum sé ég bíl sem
gæti passað við lýsinguna sem þær
gáfu mér,“ segir Jón Þór. „Ég sá
mann labba frá bílnum í áttina á
bak við húsið þar sem hann hvarf
mér sjónum nokkra stund en þegar
ég kem á móts við afgreiðsluað-
stöðuna sé ég að maðurinn stendur
í símaklefa.“
Jón Þór segist hafa lagt fyrir
aftan bílinn til þess að koma í veg
fyrir að maðurinn kæmist í burtu
meðan beðið væri eftir lögregl-
unni. Þá hafi maðurinn gengið ró-
lega út úr símaklefanum í áttina að
bílnum og gefið Jóni Þór bendingu
um að færa sig. Þegar Jón Þór hafi
ekki sinnt bendingunum hafi mað-
urinn komið askvaðandi með rör-
töngina. „Hann rifti upp hurðinni
og hrópaði á mig hvort ég ætlaði
ekki að færa mig,“ segir Jón Þór.
„Ég var viljandi svifaseinn því lög-
reglan var á leiðinni og ég ætlaði
ekki að lenda í slag.“
„Þá kom hann aftur með töng-
ina á lofti og reif aftur upp hjá mér
hurðina. Ég náði að grípa í töngina
og henti mér út úr bílnum og ofan
á hann.“ Að sögn Jóns Þórs veltust
þeir um í nokkrar mínútur og náði
hann að hafa manninn undir. Þá
kom annar bíll aðvífandi og öku-
maðurinn nam staðar. Hann hjálp-
aði síðan Jóni Þór að halda þjófn-
um þar til lögregla kom nokkrum
mínútum síðar.
Þjófurinn var fluttur í fanga-
geymslur á Selfossi og átti að yfir-
heyra hann síðdegis í gær, að sögn
lögreglu. Þá segir lögregla að bíln-
um hafi verið stolið í Reykjavík
um hádegisbilið á mánudag. Mað-
urinn er talinn hafa verið undir
miklum áhrifum lyfja eða fíkni-
efna.
helgat@frettabladid.is
Microsoft:
Leitar færa í
vefleit
SEATTLE, AP Hugbúnaðarfyrirtækið
Microsoft, sem framleiðir
Windows-stýrikerfið, vinnur nú
hörðum höndum að því að útbúa
hugbúnað sem auðveldar fólki að
finna upplýsingar á netinu.
Microsoft vonast til að geta
keppt við Google, sem hefur náð al-
gjörum yfirburðum í leitartækni á
síðustu árum. Samkvæmt félaginu
verður aukin áhersla á leitarvélar
lykilþáttur í næstu útgáfu af
Windows-stýrikerfinu.
Þetta veldur samkeppnisaðilum
áhyggjum sem óttast að staða
þeirra veikist mjög ef Windows-
stýrikerfið beini notendum frá því
að notast við aðrar leitarvélar. ■
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
HÖRFATNAÐUR
KJÓLAR, SKYRTUR,
BUXUR OG JAKKAR
Kofi Annan:
Meira fé í
friðargæslu
SAMEINUÐU ÞJÓÐINAR, AP Kofi Ann-
an, aðalritari Sameinuðu þjóðina,
vill að aðildarríki SÞ leggi fram
meira fé vegna kostnaðar við frið-
argæslu á vegum samtakanna.
Kostnaður Sameinuðu þjóðanna
gæti hækkað um ríflega þriðjung
frá því sem ráð var fyrir gert í ár;
farið úr 204 í um 277 milljarða
króna.
Annan leggur áherslu á að með
hliðsjón af kostnaði við stríðs-
rekstur sé friðargæsla mjög
ábatasöm fyrir alþjóðasamfélag-
ið. Búist er við að hlutverk Sam-
einuðu þjóðanna við friðargæslu
fari sívaxandi á næstu árum. ■
KOFI ANNAN
Í ÖRYGGIS-
RÁÐINU
Hvatning Kofi
Annan um
aukin útgjöld
til friðargæslu
kom fram á
sérstökum
fundi Öryggis-
ráðs Samein-
uðu þjóðanna
um málið.
AP
M
YN
D
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Maður á fertugsaldri var dæmdur í ellefu
mánaða fangelsi fyrri líkamsárás. Maðurinn
á að baki langan sakaferil og hefur ítrekað
rofið skilorð.
Elti þjóf á Þingvelli
Eigandi verslunar á Laugarvatni elti uppi þjóf sem stolið hafði peningum og símakortum úr
versluninni. Eigandinn náði þjófnum á Þingvöllum og yfirbugaði hann með hjálp vegfaranda.
Barnshafandi dóttir eigandans stóð við afgreiðsluborðið sem þjófurinn braut með rörtöng.
JÓN ÞÓR RAGNARSSON
Eigandi verslunarinnar H-sels á Laugarvatni sem elti þjóf til Þingvalla og hafði hann undir.
GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR
Dóttir Jóns Þórs er barnshafandi. Hún stóð við afgreiðsluborðið
þegar þjófurinn braut það með rörtöng.
SÍMAKLEFINN Á ÞINGVÖLLUM
Þegar Jón Þór kom til Þingvalla var þjófurinn staddur inni í biluðum
símaklefa.