Fréttablaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 43
MIÐVIKUDAGUR 19. maí 2004 35
Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 6 og 8
SÝND kl. 3.45 M/ÍSL. TALI
SÝND kl. 3.30, 5.30, 8, og 10.30 B.i. 12
SÝND kl. 6, 8 og 10
HHH
Skonrokk
HHHH
HP kvikmyndir.com
SÝND kl. 4, 6, 8, 10 og 12 á miðnætti B.i. 14
POWERSÝNING kl.10 og 12 á miðnætti PÉTUR PAN kl. 4 M/ÍSL. TALI
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 16 SÝND kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 16
PASSION OF CHRIST kl. 8 Síð. Sýn. B.i 16
SÝND kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 SÝND kl. 5.10 og 10.30 B.i. 16
RUNAWAY JURY kl. 8 og 10.30 Síð. Sýn.
HHH
Ó.H.T. rás 2
HHH
DV
HHH
Tvíhöfði
Vinsælasta
myndin á
Íslandi
Brad Pitt, Orlando Bloom
og Eric Bana i magnaðri
stórmynd undir leikstjórn
Wolfgang Petersen.
STÓRVIÐBURÐUR
ársins er kominn!
Fyrsta stórmynd ársins þar
sem hetjan Van Helsing á í
höggi við Drakúla greifa,
Frankenstein og Varúlf.
Frábær ævintýramynd hlaðin
tæknibrellum eins og þær
gerast bestar
í anda Indiana Jones.
Æðisleg ævintýramynd
fyrir alla fjölskylduna.
■ FÓLK Í FRÉTTUM
800 7000 - siminn.is
Aðeins
hjá Símanum
Ef þú hefur VIT valmynd hefur þú aðgang
að öllu því sem skiptir máli um bíó.
Þetta er einfalt, þú ferð bara inn í VIT valmyndina,
velur þér flokka og færð sent SMS skeyti um hæl.
Ef þú hefur ekki valmyndina, þá sendir þú SMS:
vit kvik 1, á númerið 1848.
Flokkarnir eru:
Nýtt í bíó
Kvikmyndahús
Sýningartímar
Gagnrýni
Topplistar
Væntanlegtí símann
Fáðu sent
allt um
bíó
þinn
Hvert SMS skeyti kostar 19 kr.
Við erum á fimmtu viku í sjövikna upptökuferli,“ segir Sölvi
Blöndal, höfuðpaur Quarashi, sem
er við upptökur á nýrri breiðskífu
sem kemur út á Íslandi og í Japan í
september.
„Við erum að vinna svolítið stíft
við að henda saman plötu sem verð-
ur skemmtileg. Við förum okkur
bara hægt enda erum við að reyna
gera hluti sem okkur hefur ekki
gefist tími til þess að gera áður.“
Sölvi segir vakningu vera í
sveitinni og að útkoman eigi eftir
að koma skemmtilega á óvart.
Hann uppljóstrar að Steini hefur
verið að spila smá slagverk og að
nýjasti liðsmaður sveitarinnar, Eg-
ill „Tiny“ Thorarensen, leyni víst á
sér sem gítar- og bassaleikari.
Gaukur Úlfarsson bassaleikari sér
þó um flestar flétturnar eins og
vanalega en fjöldi annarra hljóð-
færaleikara kemur við sögu.
Delphi hefur aðstoðað við forritan-
ir auk þess sem mikið er
um raddanir og fleiri
pælingar sem Quarashi
hefur látið vera til þessa.
„Við ætlum að rífa
okkur ansi rækilega út úr
rappmetalnum. Þetta er
rosalega ólíkt þeim lög-
um sem við höfum þegar
látið leka út. Race City
kemur t.d. út á plötunni í
allt annarri mynd. Ég
henti öllu úr laginu. Hér
áður fyrr hefur þetta
alltaf verið hálfgerð til-
raunastarfsemi af minni
hálfu, að skjótast inn í
hljóðverið hér og þar. Nú
er bandið að þéttast sam-
an, bæði texta- og tónlist-
arlega. Það er meiri
heildarmynd yfir öllu
saman en nokkurn tím-
ann áður.“
Sölvi hefur greinilega
verið að gramsa í gömlu
plötunum sínum nýverið því hann
segir áhrifavalda sína flæða sterk-
ar í gegnum sig en áður. „Þetta er
rosaleg „retro“-plata,“ segir hann.
„Það er alveg rafmagnsgítar en
hann er bara meira í ætt við það
sem var að gerast á sjöunda ára-
tugnum en á þeim tíunda. Við erum
ekki að eltast við neitt gamalt hæp
á þessari plötu heldur eru sterkar
vísanir í tónlist sem ég var að
hlusta á sem unglingur, í fyrsta
skiptið. Áhrif frá Led Zeppelin,
Bítlunum og The Beach Boys og
fleira. Það er virkilega persónuleg
áskorun að takast á við sínar uppá-
haldsplötur og viðurkenna að þær
höfðu áhrif á mann.“ ■
TÓNLIST
QUARASHI
■ Er við upptökur á nýrri breiðskífu sem
Sölvi Blöndal, höfuðpaur, segir vera allt
öðruvísi en hinar.
QUARASHI
Hélt heljarinnar garðveislu á föstudaginn til þess að fagna því að fyrsta áfanga á upptökum
nýju plötunnar er lokið.
Quarashi fer aftur í tímann Leikkonan GeenaDavis eignaðist
tvíbura 6. maí síð-
astliðinn. Strákarnir
heita Kian Williams
og Kaiis Steven og
eru við hestaheilsu.
Leikkonan er 47 ára
gömul en eiginmaður hennar er
15 árum yngri og starfar sem
skurðlæknir. Þau eiga tveggja
ára gamla dóttur fyrir og giftu
sig í september árið 2001.