Tíminn - 01.06.1972, Blaðsíða 1
IGNIS
K/ELISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26Ó60
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
☆☆&
Einar ræðir við
utanríkisráðherra
Hollands í dag
og Scheel á morgun
TK—Reykjavik
Einar Ágústsson utan-
rikisráðherra hefur
undanfarna daga setið
ráðherrafund Atlants-
hafsbandalagsins i
Bonn. Fundinum lauk í
gær, og er greint frá
honum annars staðar i
blaðinu.
í dag mun Einar
Ágústsson eiga viðræður
við utanrikisráðherra
Hollands, en 2. júni
ræðir hann við Walter
Scheel utanrikisráð-
herra Vestur—
ÞýzkalandsV og verður
landhelgismálið þá á
dagskrá.
Sudurtands
braut ^
120. tölublað — Fimmtudagur 1. júni 1972 — 56. árgangur.
UPPSKERA FYRIR 100
MILLJ. AF 12 HEKTURUM
JH—Reykjavik.
Ylrækt er orðin mikil
atvinnugrein. í landinu
eru nú um hundrað
garðyrkjustöðvar, og
um hundrað manns
vinnur við ylrækt ár-
langt. Tólf hektarar
lands eru undir gleri, og
heildsöluverðmæti
gróðurhúsaframleiðsl-
unnar nam um hundrað
milljónum króna siðast
liðið ár.
Mest kveður að
gróðurhúsarækt i uppsveitum
Árnessýslu, Hveragerði, Mos-
fellssveit og Borgarfirði, og þegar
hafa myndazt nokkur þorp og
byggðahverfi, sem eiga jarðhit-
anum og ylræktinni tilveru sína
að þakka.
Núna einn góðviðrisdaginn i
vikunni bauð blaðafulltrúi
bændasa m takanna, Ingi
Tryggvason, blaðamönnum og
ýmsum fleiri gestum austur i
Arnessýslu til þess að hitta þar
máli forystumenn, bæði innan
félagssamtaka garöyrkjubænda
og sérfræðinga, sem vinna á
þessu sviöi.
Garðyrkjuskólinn i Hveragerði
hefur smám saman verið aö fá
ágæt húsakynni, þar sem öll að-
staða til þess að mennta garð-
yrkjufræðinga er miklu betri en
hún var áöur. Tveir ráðunautar
vinna að staöaldri að leiðbeining-
ÞÓ—Reykjavik.
Beechcraft flugvél landflugs,
sem hefur verið að flytja veöurat-
hugunarstöö Knuth greifa frá Cap
Nord til Cap Moltke, var fyrir þvi
óhappi i siðustu ferð sinni, að
hjólbarðinn hægra megin sprakk,
og hefur vélin þvi verið i
lamasessi frá þvi á laugardag.
Flugvélin fór til Grænlands á
föstudagsmorgun, og átti að ljúka
flutningunum á laugardag. Kom
vélin ekki til baka á sunnudag og
þar sem ekki náðist loftskeyta-
samband við Cap Moltke, var vél
frá Varnarliðinu beðin um að
grennslast fyrir um vélina á
þriðjudagsmorgun. Flugvél frá
Keflavik flaug norður eftir og er
þangað kom, stóð Beechcraft vél-
in á flugbrautinni á Cap Moltke,
og var þá sprungið á hægra aðal-
hjóli vélarinnar. Að öðru leyti var
allt i lagi, og ekkert amaði að
flugmönnunum, þeim Jóni Valdi-
marssyni og Sigurði Haraldssyni.
1 gærkvöldi fór svo Tryggvi
Helgason flugmaður á Piper
Aztec vél sinni norður til Cap
Moltke. Hafði Tryggvi með sér
felgu og dekk, og var flugvirki
. meö honum i förinni. Bjóst
Tryggvi við að verða um 7
klukkustundir á leiðinni, og eru
vélarnar væntanlegar til baka i
dag.
Cap Moltke er i aðeins 500 km.
fjarlægð frá Norðurpólnum.
um i þágu garðyrkjubændanna.
En þar er margs að gæta i svo
ungri atvinnugrein, og mörg
verkefni og mikilvæg við að
glima. Má þar nefna tilraunir
margs konar, val á afbrigðum,
lýsingu i gróðurhúsum og ótal
margt annað.
Eitt af þvi, sem stöðugt vofir
garðyrkjunni, er sjúkdóma-
hættan, og þvi er ekki að leyna, aö
hingað eru sifellt aö berast nýir
jurtasjúkdómar frá öðrum lönd
um. Skýrði Axel Magnússon
ráðunautur frá þvi, að oft væri
litið á það treystandi, þótt heil
brigðisvottorð fylgdu innfluttum
jurtum, þvi að hann vissi dæmi
þess, að útflytjendur hefðu undir-
rituöeyðublöð á skrifborði sinu og
útfylltu vottorðin sjálfir. Mjög er-
fitt er að útrýmá meindýrum,
sem leggjast á garðjurtir, þvi að
öll slik skordýr mynda ónæma
stofna á mjög stuttum tima.
„Hversdags-
draumur”
„Hversdagsdraumur” nefn-
ist annar af einþáttungum
Birgis Engilberts, sem sýndir
verða á Listahátið, nánar til-
tekið I Þjóðleikhúsinu 5. júni.
„Hversdagsdraumur”
gerist uppi á borði hjá blóma-
pottinum og öskubakkanum,
sagði höfundurinn i viðtali við
Timann um daginn, en hann
gerir talsvert af þvi aö beina
augunum að því smáa og
stækka það á sviöinu. Bessi
Bjarnason er uppi i blónta-
pottinum og Margrét Guð-
mundsdóttir situr I blóm-
knappinum.
Tfmamynd Gunnar.
Loka veitingahúsin?
FL0GIÐ MEÐ VARA-
DEKK TILGRÆNLANDS
OÓ—Reykjavik.
Verkfall matreiöslumanna i
veitingahúsum átti að hefjast á
miðnætti s.l. Deiluaðilar hafa
setið fundi með sáttasemjara, en
samkomulag hefur ekki náöst. Kl.
16.30 i gær hófst enn fundur með
sáttasemjara, en vinnuveitendur
fóru fram á að verkfallinu yröi
frestað, og hefur væntanlega
verið ákveöiö á þeim fundi, hvort
matreiðslumenn verða við þvi.
Stóö fundurinn enn yfir i gær-
kvöldi, er blaðiö fór i prentun.
Ferðamannastraumurinn til
landsins er nú að hefjast, og
verður mjög bagalegt fyrir
veitingamenn að geta ekki selt
mat i veitingahúsunum
Þá er búið að leggja deilu
félags starfsfólks i veitinga-
húsum og vinnuveitenda fyrir
sáttasemjara, en það hefur boöaö
verkfall eftir viku.
Indriði hættur
Sú breyting verður á rit-
stjórn Timans frá og með
deginum i dag, að Indriði G.
Þorsteinsson rithöfundur
lætur af störfum, þar sem
hann hefur tekið að sér fram-
kvæmdastjórn væntanlegrar
þjóðhátiðar árið 1974.
Indriði hefur gegnt rit-
stjórastörfum siðan i árs-
byrjun 1962, að undanteknu
einu ári, er hann var i leyfi, en
áður hafi hann alllengi veriö
blaðamaður hjá Timanum.
Þakka bæði samstarfsmenn
og blaðstjórn Timans honum
langt og mikið starf og óska
honum góðs gengis i nýja
starfinu.
Jón Helgason, sem haft
hefur með höndum ritstjórn
Sunnudagsblaðs Timans siöan
það hóf göngu sina árið 1962,
tekur við störfum Indriöa,
daglegri verkstjórn og frétta-
stjórn.
Andrés Kristjánsson mun
aftur á móti annast ritstjórn
Sunnudagsblaösins fram-
vegis.