Tíminn - 02.06.1972, Page 1

Tíminn - 02.06.1972, Page 1
 IGNIS KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SÍMI: 19294 ☆☆☆ 121. tölublað — Föstudagur 2. júni 1972—56 árgangur. 86-500 Sigið í Látrabjarg Eggjataka á landahillu í skipti JH—Reykjavík Á Miðlandahillu, stærstu hillu Látrabjargs, hefur ekki verið sigið til eggjatöku síðan árið 1922, þar til nú á dögunum. Þá var Sigurður Kristjánsson frá Heimabæ á Hvallátrum þar vestra við níunda mann þeirra erinda að endurnýja gömul kynni sin við bjargið. Meðal manna þeirra, sem fóru með Sigurði á bjargið, voru kunnir iðju- höldar og forstjórar hcr syðra. Annars fór Sigurður niður á hilluna i fyrra, en þá voru egg þar orðin unguð, svo að ekki varð af eggjatöku. Að þessu sinni var fuglinn litt orpinn, er þeir Sigurður komu vestur, og síða n höfðust þeir þar við vikutima til þess að biða eftir varpinu. Þeir segja þá sögu, að raunar hafi ekki verið blóm- legt að þessu sinni i bjarginu. Fuglinn, sem einkum er lang- via, hafi verið svo magur, að mótað hafi fyrir bringu- beininu, og hafi ekki verið sjón að sjá bjargið að þessu sinni. Telja Sigurður og félagar hans, að fuglinn eigi svo langt að sækja i æti, sem mest- megnis er trönusild, að hann sé nálega örmagna, er hann kemur i bjargið með björg i bú sitt. Varp var einnig miklu rýrara en eðlilegt má kallast, og er þar til dæmis, að i svo- Mið- fyrsta 1922 nefndri StefniskJeif, þar sem veriöhafa áttatfu til nlutiu egg undanfarin ár, voru nú aðeins tólf. Óvenjulega mikið bar lika á svokölluðum örverpum — eggjum, sem eru miklu smærri en eðlilegt er. Timinn bar þetta undir, Asgeir Erlendsson, vitavörð á Hvallátrum, mann nauö- kunnugan Látrabjargi og fuglalifi þar vestra. Hann kvaðfuglinn hafa verið feitan, er hann kom af hafi nokkru fyrir sumarmál, og meðan loðnugangan fór þar hjá vestra, hljóti hann að hafa haft gnægð ætis. Að öðru leyti kvað hann sér ekki kunnugt um hagi bjargfuglins eins og stæði. Skákborðið úr íslenzku grjóti Þessa dagana er staddur hér á landi fulltrúi Spasskys, og er hann að kynna sér allar aðstæöur i Reykjavik vegna einvigisins milli Spasskys og Fischers. Maöur þessi heitir Nocolay Krogius og er dósent i sálfræöi. Þegar að einviginu kemur, mun hann verða aðstoðarmaður Spasskys. í fyrradag skoöaöi Krogius Laugardalshöllina i fylgd Guð- mundar G. Þórarinssonar, og er þeir komu út þaðan, sagði Rússinn, að sér litist mjög vel á höllina sem keppnisstað. t gær skoðaði Krogius Hótel Sögu, og að skoðun lokinni lét hann i ljós ánægju sina yfir hótelinu. Meöan á einviginu stendur, á Spassky að búa á Hótel Sögu, en Fischer verður á Loftleiðum. Guðmundur G. Þórarinsson, forseti Skáksambands tslands, sagði i viðtali við blaðiö I gær, að Krogius hefði bent á punkta, sem gott hefði verið aö fá fram, og væri Krogius mjög samvinnu- þýður og lipur. Akveðið er, að skákborðiö, sem notað verður i einviginu, verði úr islenzku grjóti, það er að segja ef þeir Fischer og Spassky sam- þykkja það. Gunnar Magnússon húsgagnaarkitekt teiknaði boröið, Ragnar Haralz húsgagna- smiður mun sjá um gerð þess,og Steinsmiðja Sigurðar Helgasonar mun útvega og höggva til grjótið. Að einviginu loknu ætlar islenzka skáksambandið að gefa Þjóö- minjasafninu skákborðið, og verður þaö varðveitt þar til minn- ingarum þessa einstæðu keppni. Skáksambandi tslands hafa borizt tilboð frá nokkrum þekktum kiukkufyrirtækjum, sem vilja gefa skákklukkuna og peningaupphæð að auki. Meðal þeirra fyrirtækja, sem hafa haft áhuga á að gefa „einvigisklukk- una”, er bandariska fyrirtækiö Bulowa Watch. Þá er og unnið að ýmsum breytingum á Laugardalshöll- inni, bæði vegna einvigisins og listahátiðarinnar. 1 þvi sambandi er t.d. verið að loka göngunum upp i salinn, og búið er að panta gluggatjöld fyrir alla glugga, þar sem ekki voru tjöld fyrir. Djúpivogur: TUNDURDUFLIÐ ÞARF AÐ FINNAST áður en byrjað verður á hafnarframkvæmdum kantur á Djúpavogi. Áður en hægt er að byrja á þessum fram- kvæmdum, verður að segulmæla höfnina vel, þar sem hætta er talin á, að tundurdufl leynist þar, frá þvi á striðs- árunum. Tundurdufl það, sem hér um ræðir, rak inn á Djúpavog og sökktu Bretar þvi á sinum tima, en hirtu ekki frekar um það. Maður frá Vita- og hafnarmála- stjórn var á Djúpavogi fyrir stuttu með mælitæki, og mældi hann höfnina alla, en varð ekki var við duflið. Þrátt fyrir það er ákveðið að 'leita meira, og mun jafnvel verða reynt að fá Varnar- liðið til að mæla upp höfnina. Veriö getur, að duflið hafi hreyfzt mikið úr stað, bæði vegna iss, sem komið hefur inn á Djúpavog, skrúfugangs skipa og ölduróts. Eins getur verið,að það liggji ein- hvers staðar vel falið. Áður en byrjað verður að reka niður stálþilið, verður komið upp grjótgarði til að ha£a vinnupalla ÞÓ—Reykjavik. í sumar stendur til að reka niður 30 x 50 metra stálþil i höfninni á Djúpavogi. Þegar þessum framkvæmdum lýkur, verður kominn sæmilegasti viðlegu- Sólarhring á undan áætlun frá Japan OÓ—Reykjavik. Fyrri Fokker Friendshipflug- vélin, sem Flugfélag Islands keypti frá Japan, kom til Reykja- vikur i gær. íslenzk áhöfn flaug vélinni frá Japan og var haldið þaðan 25, þ.m. eða sama daginn og flugvélin var afhent. Búist var við vélinni til íslands i dag, en hún kom sólarhring á undan áætlun. Flugvélin fer nú i skyndi- skoðun, en siðan i áætlunarflug. Er hún máluð I litum All Nippon flugfélagsins og gefst ekki timi til að mála hana i litum Ft fyrr en siðar. (Seinni flugvélin verður af- hent 10. júli og er væntanleg hingað 16. eða 17 júli. Flugvélar þessar voru smiðaðar 1964, og eru eins og þær tvær vélar, sem El. á fyrir sömu gerð, nema hvað hreyflarnir eru kraftmeiri og flughraði þeirra um 10% meiri en hinna vélanna.) Á myndinni er áhöfnin, sem flaug vélinni frá Japan, en menn- irnir eru Sigurður Haukdal, flug- stjóri, Gunnar Valgeirsson, véla- maöur og Þór Sigurbjörnsson,að- stoðarflugmaður. Timamynd GE. á. Þegar svo stálþilinu hefur verið komið fyrir, veröur hafizt handa um að dýpka höfnina, og efninu, sem upp kemur, verður sennilega dælt innfyrir stálþiliö. Leghella Jóns iðnnema jörðuð í uppfyllingu JH — Reykjavik I Sunnudagsblaði Timans var fyrir nokkru vikið að þvi, að all- sérkennilegum safngrip hefði verið tortimt, er lögreglan i Reykjavik braut i sundur hellu þá, sem iðnnemar færöu aö húsi Vinnuveitendasambands Islands 1. mai og reistu upp við fánastöng þess með tilheyrandi áletrun um sorgleg afdrif Jóns Jónssonar iðnnema. Við eftirgrennslan af hálfu Iön- nemasambandsins hefur komið i ljós, að lögreglan fór með hellu- brotin inn á Skúlagötu og fleygði þeim i uppfyllingu, sem þar er veriö aö gera. Nú er búið að bæta þar ofan á mörgum smálestum af mold og grjóti, svo að næstum þvi mun orðið jafntorvelt að finna gripinn og gullskipið, sem lengst hefur verið leitaö austur á söndum Fleiri en við hér hjá Timanum létu sér fljótt skiljast, að hella þessi var sögulegur steinn og eftirsóknarverður. Til dæmis falaðist skrifstofustjóri Vinnu- veitendasambandsins, Baröi Friðriksson, þegar eftir þvi að fá helluna keypta, og mun hann hafa ætlað að skreyta garð sinn með henni nú fyrst um sinn. Um uppruna þessa hellubjargs er það að segja, að iönnemar sóttu það upp i öskjuhlið.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.