Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 5

Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 5
Föstudagur 2. júni 1972. TÍMINN 5 BENSINSKATTUR VEGGJÖLD — Afstaða min við afgreiðslu Vegaáætlunar, einkum að þvi er varðar bensinskatt og veggjald, mun hafa valdið misskilningi, sem ég vil leiðrétta með þvi að upplýsa eftirfarandi: 1. Ég beitti mér gegn afnámi veggjalds á hraðbrautir, bæði i fjárveitinganefnd, og i sam- einuðu þingi, þar sem ég gerði grein fyrir afstöðu minni i ræðu, og greiddi atkvæði gegn afnámi veggjaldsins við nafnakall. Afstöðu mina byggi ég annars vegar á óumdeilanlegri og brýnni fjárþörf vegasjóðs. Hinsvegar sýnist mér samanburður á akstri á hraðbrautum og vegleýsum réttmæta fyllilega töku veg- gjalds. 2. Þegar veggjaldið verður fellt niður, væntanlega frá næstu ára- mótum, verður að gera annað tveggja, draga úr fram- kvæmdum sem þvi nemur, eða afla tekna i skarðið. Enginn vildi draga úr framkvæmdum. Nokkrir vildu visa beint á rikis- sjóð,ená fjárlögum ársins voru bein framlög rikissjóðs hækkuð úr 47 i 200 milljónir króna. Var þvi eðlilegt að biða með frekari hækkanir á framlögum rikis- sjóðs, til afgreiðslu næstu fjár- laga. Þessvegna varð það að ráði, aðfylla það skarð, sem varð i tekjuáætlun vegasjóðs við niður- fellingu veggjalda af hraðbraut- um,meðþviað visa til hækkunar bensingjalds, en það er megin- stofninn i tekjum vegasjóðsins. Endanlegar ákvarðanir verða svo teknar siðar, þvi að engin breyting verður á innheimtu veg- gjaldsins á þessu ári. Þess má geta, að veggjald af Reykjanesbraut og Austurvegi var á árunum 1973 - 1975, áætlað um 100 milljónir króna. Mun það samsvara um 30 aura gjaldi á bensinlitra, og tilsvarandi hækk- un á öðrum tekjustofnum vega- sjóðs. Vilhjálmur Hjálmarsson. AUGLÝSING um styrki úr Menningarsjóði Norðurlanda Árið 1973 mun sjóðurinn hafa til ráð- stöfunar fjárhæð sem svarar til um 63 millj. islenzkra króna. Sjóðnum er ætlað að styrkja norrænt menningarsamstarf á sviði visinda, skólamála, alþýðufræðslu, bókmennta, myndlistar, tónlistar, leiklist- ar, kvikmynda og annarra listgreina. Meðal þess, sem til greina kemur að sjóðurinn styrki, má nefna: 1. Norræn samstarfsverkefni, sem stofnað er til I eitt skipti, svo sem sýningar, útgáfa, ráðstefnur og námskeið, 2. samstarf, sem efnt er til i reynsluskyni, enda sé þá reynslutiminn ákveðinn af sjóðsstjórninni, 3. samnorræn nefndastörf, 4. uppiýsingastarfsemi varðandi norræna menningu og menningarsam vinnu. Styrkir úr sjóðnum eru yfirleitt ekki veitt- ir til verkefna, er varða færri en þrjár Norðurlandaþjóðir sameiginlega. Umsóknum um styrki til einstaklinga er yfirleitt ekki unnt að sinna. Þeir, sem sækja um styrki úr sjóðnum til visindalegra rannsókna, þurfa að hafa i huga, að styrkir eru yfirleitt þvi aðeins veittir til slikra verkefna, að gert sé ráð fyrir samstarfi visindamanna frá Norður- löndum að lausn þeirra. Að jafnaði eru ekki veittir styrkir úr sjóðnum til að halda áfram starfi, sem þegar er hafið, sbr. þó 2. lið hér að fram- an. Sjóðurinn mun ekki, nema alveg sér- staklega standi á, veita fé til greiðslu kostnaðar við verkefni, sem þegar er lokið. Umsóknir skulu ritaðar á dönsku, norsku eða sænsku á sérstök eyðublöð, sem fást i menntamálaráðuneytum Norðurlanda og hjá Nordisk kulturfond, Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbeid, Snaregade 10, 1205 Köbenhavn. Umsóknir skulu stilaðar til sjóðsstjórnar- innar og þurfa að hafa borizt skrifstofu sjóðsins eigi siðar en 15. ágúst 1972. Til- kynningar um afgreiðslu umsókna er ekki að vænta fyrr en i desember 1972. Stjórn Menningarsjóðs Norðurlanda. Ökumenn fái ekki 10 ára ökuskírteini eftir fyrsta árið KJ-Reykjavik. A aðalfundi Samvinnu- trygginga,sem haldinn var 18.mai s.l., voru samþykktar nokkrar til- lögur um Brunamálastofnun rikisins, frumvarp til laga um vátryggingastarfsemi og um um- ferðarmál. Aðalfundurinn lýsti yfir stuðningi sinum við frumvarpið um vátryggingastarfsemi en ,,þó varar fundurinn við óþörfum af- skiptum rikisvaldsins af mál- efnum tryggingafélaganna.” Einnig var lýst ánægju með starfsemi Brunamálastofnunar rikisins. Fundurinn litur svo á, að starfsemi þessarar stofnunar þurfi á hverjum tima að vera sem öflugust, til þess að gerðar verði raunhæfar ráðstafanir til að draga úr brunatjónum lands- manna.” Umferðarmál. Eins og svo oft áður á aöal- fundum Samvinnutrygginga, voru umferðarmál þar allmikið til umræðu, og voru samþykktár nokkrar tillögur til dóms- málaráðherra i þvi sambandi. Fara tillögurnar hér á eftir: 1) Gera þarf nú þegar brey tingu á gildistima bráðabirgða ökuskirt- eina, að skirteinishafinn öðlist ekki 10 ára skirteini strax að loknu fyrsta árinu. Slik ráðstöfun myndi hafa i för með sér veruleg áhrif i þá átt að auka varúð ungra ökumanna. 2) Fundurinn telur sjálfsábyrgð tryggingartaka I ábyrgðar- tryggingum ökutækja spor i rétta átt til bættrar umferðar- menningar. 3) Þetta er þriðja árið, sem tryggingarupphæðir hinna lög- boðnu ábyrgðartrygginga öku- tækja eru óbreyttar, þrátt fyrir hinar miklu verðlags- og kaup- gjaldhækkanir undanfarinna ára. Sýnist þvi full þörf á að endur- skoða tryggingarupphæðirnar og iðgjaldagrundvöllinn fyrir l.mai 1973. 4) Starfsemi Umferðarráðs þarf að efla. Ekki verður talið óeðli- legt, að gert sé ráð fyrir þvi, við ákvörðun iðgjalda, að t.d. 1% gangi til þessara mála, sbr. öflun tekna til Brunamálastofnunar rikisins. 5) Gra þarf verulegt átak til að gera innheimtu sekta og önnur viðurlög við umferðarlagabrotum einfaldari, öruggari og áhrifa- rikari i framkvæmd. Óska eftir ungling í sveit 15-16 ára helzt vanan vélum. Uppl. milli 4 og 6 næstu daga i Flögu - simi um Bægisá. Sigurgeir Ágústsson. HUN AEKKI jSINN LÍKA í é ALSJALFVIRK á STÓRK0STLEG ^ og ótrúlega auðveld í TiöTkun Opid til kl. 10 i KVÖLD Vörumarkaðurinn hf. Armúla 1A, — simi 86-112

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.