Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 17

Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 17
F'óstudagur 2. júni 1972. TÍMINN 1. deildar síðan Baráttan í 1. deild Um helgina, heldur baráttan um toppinn og fallið áfram i fyrstu deild, leiknir verða fjórir leikir, þrir i Reykjavik og einn suður _j Keflavik. Verður þvi mikið að gera hjá knattspyrnu- unnendum á Stór-Reykjavikur- svæðinu og vona þeir örugglega allir, að biessuð sólin brosi sinu bliðastu um helgina. Ef það verður flugveður frá Vestmannaeyjum á laugardag- inn, kemur úrvalslið úr Eyjum, ÍBV, til Reykjavikur og leikur á Laugardalsvellinum við Fram, má búast við, að þar verði hart barizt. Bæði þessi lið, komu á óvart i 1. umf. fyrir að leika langt undir getu — en i leiknum á laugardaginn, þýðir ekki að vera með neitt hálfkák, liðin verða að taka á öllu sem þau eiga, til að fara með sigur af hólmi. Á sunnudaginn verður mikið að gera hjá leikmönnum Vikings, þeir fá ekki að leika á heimavelli eins og Framarar, heldur verða þeir að fá sér ökutúr til Kefia- vikur, þar sem þeir leika við heimamenn á grasvelli staðarins. Má búast við,að Suðurnesjamenn og sjómenn i landlegu, hópist á völlinn þar, til að sjá fyrsta, 1. deildarleikinn þar á árinu. tslandsmeistararnir ÍBK, sem komu heim um s.l. helgi frá Akra- nesi, með tvö stig i pokahorninu, eru liklegri til sigurs, en Bikar- meistarar Vikings, i leiknum. Uað má búast viðrað Vikingar séu ósammála þvi. En um svipað leyti og Vikingar koma aftur til Reykjavikur, eru ungu ljónin úr KR að fara fram á orustuvöllinn, þau mæta Akur nesingum á Laugardalsvell inum á sunnudagskvöldið. L>að eru ekki mörg ár siðan liðin háðu marga baráttuleikina um tslandsmeistaratitilinn. L>ó að það verði kannski ekki i ár, má alltaf búast við spennandi leik, eins og alltaf þegar iiðin mætast Að spá þar úrslitum, er svipað og ætla sér að spá um heimsendi, um það geta aðrir en ég spáð. t>að verða ekki margir leik- menn Breiðabliks og Vals, sem mæta til leiks á grasskóm , þegar liðin leiðá saman hesta sina á mánudagskvöld n.k. Ástæðan fyrir þvi er,að liðin leika á Mela- vellinum gamla, sem er skráður heimavöllur Breiðabliks i 1. deild. Uar er ekki stingandi strá, eins og fyrri daginn, og kemur það sér vel fyrir Breiöabliksliðiö, sem er talið mesta malarlið 1. deildar. En Valsliðið getur lika leikið á möl og má þvi búast við að það sigri leikinn. SOS. STAÐAN: KR 2 2 0 0 5 : 1 4 Fram 1 1 0 0 1 :0 2 ÍBK 1 1 0 0 3 : 1 2 Breið. 2 1 0 1 3 :5 2 Vikingur 1 0 0 1 0 : 1 0 tBV 1 0 0 1 2 :3 0 Valur 1 0 0 1 1 :2 0 tA 1 0 0 1 1 :3 0 Markhæstu menn: Atli Héðinsson, KR 3 Steinar Jóhannsson, tBK 2 Óskar Valtýsson, tBV 1 Matth ías Hallgrimsson, 1A 1 Alexander Jóhannesson, Val 1 ólafur Friðriksson, Breið. 1 Simon Kristjánsson, FRAM 1 Bókaðir: Matthias Hallgrimsson, tA 1 Bergsveinn Alfonsson, Val 1 Atli b. Héðinsson, KR 1 örn Óskarsson, tBV 1 Óskar Valtýsson, tBV 1 Þór Hreiðarsson, Breið. 1 Sigurbergur Sigsteinss. Fram 1 Guðmundur bórðarson, Breið. 1 Úrslit i fyrra: Fram — Vestmannaeyjar 3:1 Keflavik — Vikingur KR —Akranes 1:3 Breiðablik — Valur 2:0 Vikingur lék ekki i 1. deild i fyrra, en árið 1970 sigraði Keflavik á heimavelli 1:0. Fram- Vestmannaeyjar 3. júní - Laugardalsvöllur kl. 16.00 KR - AKRANES 4. júní - Laugardalsvöllur kl. 20.00 Kristinn Jörundsson, Fram „Það verður ekki auðvelt að sigra Eyjamenn” —Leikurinn gegn Vest- mannaeyjum leggst vel i mig, þó að það eigi kannski eftir að há okkur i leiknum, að nokkrir leikmenn eiga við meiðsli að striða. En liðið styrkist mikið við komu Erlends Magnússonar, sem gat ekki leikið með okkur gegn Viking. —Eg . veit, að Vest- manneyingar verða erfiðir i leiknum, þvi að þeir eru ekki enn þá búnir að sætta sig við tapið gegn Breiðablik um s.l. helgi. —Við sigruðum þá i fyrra 3:1 og erum við allir & þeim buxum að endurtaka þann sigur nú i ár. En það verður ekki auðvelt að sigra Eyja- menn — þeir hafa alltaf sterku liði á að skipa. —Jú, vist hef ég áhuga á að skora mörk, en það skiptir engu máli, hver skorar mörkin fyrirokkur, bara að þau verði skoruð. Atli Þ. Hcftinsson, KR „Erum ákveðnir í að halda toppsætinu” Rikharftur Jónsson, þjálfari Akraness. „Verðum með í baráttunni í 1. deild” —Ég er mjög ánægður með -KR-liðið og leiki okkar gegn Val og Breiðablik. Fyrst við erum komnir i toppsætið, erum við ákveðnir að halda þvi, og stefnum að þvi, að ná 8 stigum áður en við förum i æfingarbúðir 17. júni n.k. —Leikurinn við Akranes á sunnudaginn leggst vel i mig og erum við KR-ingarnir ákveðnir að selja okkur dýrt i þeim leik — enda eru alltaf baráttuleikir þegar erki- fjendurnir mætast. bað er ómögulegt að spá, hvernig leikurinn fer — það lið, sem hefur heppnina með sér, vinnur. —Jú, ég fer alltaf á völlinn, til að bæta mörkum við markasafnið mitt og tek alla ,,sénsa” til að koma ..tuðrunni” i netið. — Við ætlum að vera með i bar- áttunni um tslandsmeistaratitil- inn og vinna KR á sunnud. KR-ingar eru alltaf hættulegir mótherjar, sem má vara sig á. — Ég efa ekki, að leikurinn verði skemmtilegur spennandi og vel leikinn. Leikmenn Akraness eru i mjög góðu formi og mórall- inn góður. — Það var sagt fyrir leik okkar gegn Keflavik, að leiðinda- málið, sem kom upp hjá lands- liðinnmundi binda okkur saman. Það verkaði alveg þveröfugt á liðið, strákarnir voru i einu taugastriði allan leikinn gegn Keflavik — enda er ekkert gaman að leika undir þeirri pressu, sem hefur hvilt á okkur að undan- förnu. — En sem sagt, við komum til Reykjavikur á sunnudaginn, til að vera með i baráttunni I 1. deild. „Ég reyni alltaf að skora mörk” gegn Vikingi, en maður reynir alltaf að skora mörk, þótt það takizt ekki alltaf. —Vikingsliðið leikur yfir- leitt mikið betri knattspyrnu heldur en liðið sýndi gegn Fram s.l. sunnudag, en við náðum okkur aldrei á strik i leiknum, svo endurtók gamla sagan sig: Við eigum alltaf i e r f i ð 1 e i k u m m e ð Framaranna. —Það verður erfiður leikur hjá okkur i Keflavik á sunnu- daginn, en við látum það ekkert á okkur fá, þvi við ætlum að byrja sigurgöngu okkar þar. Þótt Keflvikingar hafi sigrað Akurnesinga upp á Skaga, erum við ekki hræddir við þá. —Ég er ákveðinn i að fara að koma mér á listann yfir markhæstu menn og hef ég þvi hugsað mér að skora mark eða mörk i Keflavik. Við sigrum leikinn 2-0. Vorum of bjartsýnir og töpuöum — Ég er ekki allt of bjart- sýnn á leikinn gegn Fram. Framarar eru alltaf erfiðir á heimavelli, og þvi reynum við að gera okkar bezta á Laugar- dalsvellinum á morgun. — Við vorum allt of bjart- sýnir, þegar við mættum Breiðabliki, og þess vegna töpuðum við leiknum. Þar höfum við lært af reynslunni, að það má ekki vanmeta and- stæðingana. Það er mjög mikil óánægja hér I Eyjum eftir þann leik. — Leikurinn við Fram verður erfiður, en örugglega skemmtilegur og tvisýnn. Ég get ekki spáð um úrslit hans — við erum ákveðnir að berjast fram á siðustu min. Við vitum ekkert um styrkleika Fram- liðsins, það hafa orðið miklar breytingar hjá liðinu siðan við lékum gegn þvi siðast. — Við erum ekki eins hræddir fyrir leikinn gegn Vikingi á sunnudaginn og við vorum fyrir leikinn uppi á Skaga um s.l. helgi. En það verða allir leikir erfiðir i sumar, eins leikurinn gegn Vikingi. — Við tökum að sjálfsögðu á móti Vikingunum i Keflavik og stefnum að þvi að halda báðum stigunum eftir heima. — Það má mikið ganga á, ef Vikingarnir ætla að hefja sigur- göngu sina hér i Keflavik. en annars getur allt gerzt i knatt- spyrnu. — Ég get ekki sagt um það, hvort ég skora mark i leiknum Kirikur Þorsteinsson, Viking. gangi allt vel hjá okkur i leiknum. En samt vanmetum við ekki Breiðabliksliðið, þvi að þaft er mikið baráttulið. Við ætlum okkur ekki að brenna okkur á sama soðinu og i fyrra, þá vanmátum við þá og töpuðum. Ef bæfti liðin ná góöum leik, er ég ekki i vafa um, hvernig fer, sigurinn verður okkar. —Jú, ég het mikinn hug á að skora mörk og tel ég,að fram- linan hjá okkur eigi eftir að falla vel saman i sumar og skora mikið af mörkum. —Margir spá okkur falli i sumar, eftir að við töpuðum gegn KR, en ég álit, að við styrkjumst við mótlætið, sem við fengum þá, og eigum eftir að bita vel og dyggilega frá okkur. Viö þá, sem spá okkur falli, vil ég segja: „Spyrjið að leikslokum”. Steinar Jóliannsson Kcflavík. „Sigurganga okkar hefst í Keflavík” „Spyrjið að leikslokum” —Leikurinn gegn Breiöablik leggst mjög vel i mig - ég hef það á tilfinningunni, að það Hermann Gunnarsson, Val „Úrslitin eru ákveðin fyrirfram” — Það var deyfð yfir Breiðabliksliðinu, þegar það lék gegn KR, það má kannski segja^ að við höfum verið of öruggir, þvi að okkur gekk vel með þá i fyrra og eftir góða byrjun i Eyjum um s.l. helgi, en leikurinn þar var mikið harðari, meiri hraði var i honum og viljinn var meiri hjá okkur þar. —Ég hef alltaf sagt, að úrslit leikja eru ákveðin fyrir fram — þótt lið fái góð tækifæri til að skora, er oft eins og það eigi ekki að skora úr þeim. — Leikurinn við Val leggst vel i mig, við ætlum okkur aö vinna hann með þvi að leika af sama krafti og hraða og við lékum i Vestmannaeyjum. —Við erum ekki hræddir, þótt Jóhannes Eðvaldsson. leiki með Val, þar sem knatt- spyrna er flokkaiþrótt, á einn maður i liði ekki að gera svo mikinn usla. Haraldur Krlcndsson, Hrciftahlik. KEFLAVÍK - VÍKINGUR 4. júní - Keflavíkurvöllur kl. 16.00 BREIÐABUK - VALUR 5. júní - Melavöllur kl. 20.00

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.