Tíminn - 03.06.1972, Síða 1
IGNIS
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
☆☆☆
186-500
✓
120börn út Réttarholtsskóla eru
nú að æfa barnaóperuna Nóaflóð
eftir Benjamin Britten, sem flutt
verður i Bústaðakirkju á Lista-
hátfð. Mun þetta verða fjöl-
mennasta atriði,sem flutt verður
á hátíðinni. 70 börn leika og
syngja dýrin,sem bjargast i örk-
ina, 50 börn leika i hijómsveitinni,
sem alls telur 64, en 14 hljóðfæra-
leikarar eru úr Sinfóniuhijóm-
sveitinni. Sjálfan Nóa syngur
Kristinn Hallsson, konu hans
Ruth L. Magnússon og hlutverk
guðs er i hönd Rúriks Haralds
sonar. Garðar Cortes stjórnar
fiutningnum. i kirkjunni er búið
aö koma örkinni fyrir og verða
æfingar stundaðar af kappi fram
á mánudag, en þá verður
óperanfyrst flutt. Myndin
er tekin á æfingu i gær.
Tímamynd GE.
Dauðadómur yfir
Loftleiðum
ef flugleiðunum
verður skipt
- sagði Alfreð Elíasson
forstjóri á aðalfundinum
í gær
00—Reykjavik.
A aðalfundi Loftleiða i gær vék
Alfreð Eliasson framkvæmda-
stjóri að viðræðum þeim, sem
staðið hafa yfir milli Loftleiöa og
Flugfélags fslands um samvinnu
eða samruna. Sagði hann, að sér
þætti ekki timabært að stefna
beint að fullkominni sameiningu,
heldur byrja á samstarfi, sem
leiða mundi til hagræðingar og
sparnaðar.
Sagði Alfreð, aö samningavið-
ræður stæðu enn yfir og að það
væri von sin, að félögin skipu-
legðu áætlanir sinar þannig, að
ekki veröi flogið á sömu leiðum
samtimis. En félögin hafa náð
þeim áfanga, að þau eru hætt að
undirbjóða hvort annað. Sagðist
framkvæmdastjórinn hafa heyrt
þvl fleygt, að ríkisstjórnin mundi
ef til vill skipta flugleiðum milli
félaganna. Taldi hann það al-
ranga stefnu, ef samvinna tækist
um áætlunarferðir, og að það
mundi jafngilda dauðadómi yfir
Loftleiðum, ef réttur félagsins
yröi skertur á nokkurri flugleið.
Ég tel, sagði Alfreð, að flug-
leiðum félaganna hafi verið skipt
fyrir 20 árum, þegar Loftleiðir
voru hraktar af innanlands-
leiöum, sem félagiö hafði byggt
upp aö miklum hluta.
I Sjö sækja i
i um Hvanneyrii
aEJ—Reykjavík, föstudag. "
■ Um mánaðamótin rann út"
" umsóknarfrestur um skóla-"
■ st jórastööuna við bænda-B
"skólann á Hvanneyri, og sóttu “
■sjö um embættið. ■
■ ■
■ Umsækjendur eru: Agnar"
"Guðnason, ráðunautur,"
■ Gunnar Bjarnason kennari á«
jHvanneyri, Jóhannes Eiríks-J
■ son kennari, Jón Viðar Jón-»
Jmundsson sérfræðingur.á
■Magnús B. Jónsson ráðu-«
‘nautur á Selfossi, Ólafur R.“
■ Dýrmundsson sérfræöingur, ■
Jog dr. Stefán Aðalsteinsson “
■ deildarstjóri við Rannsóknar-■
“stofnun landbúnaðarins.
aWnHpB
ígsimsm
• .
*
I ... > II I
■ 'S'iY''’
- , >
Steypu-
bílar inn
á Þórs-
mörk
i dag horfa vættir Þórsmerkur
upp á það, sem þær hafa aldrei
fyrr séð: Steypubilar munu
brjótast yfir Krossá inn á Mörk-
ina og rjúfa þar friðinn. En það
er i góðu skyni gert,
Ferðafélag Islands er sem sagt
aö koma upp meiri og betri húsa-
kynnum þarna innfrá. Þrjátiu
manna flokkur úr Reykjavik fór
þangað austur i gærkvöldi. Þessi
flokkur átti að grafa grunninn,
þegar morgnaði, en siðan verður
steyptur grunnur seinna i dag.
Svo vel vildi til, að ungur og
harðduglegur bóndi i Fljótshliö,
Bergur Kortsson á Torfastöðum,
er nýbúinn að koma upp steypu-
stöö fyrir neðan bæ sinn, og það
verður eitt af fyrstu verkefnum
þessar nýju steypustöðvar Bergs
að steypa grunninn fyrir Ferða-
félagið. Sendir hann tvo steypu-
bila á vettvang þeirraerinda. Við
vonum að landvættirnar þarna
innfrá taki þessari nýbreytni ekki
illa, og hvorki reiðist ginnheilög
goð né hlaupi fram jöklar.
Einar og Scheel ræddust við í Bonn í gær:
Leggja ber höfuðáherzlu
á bráðabirgðasamkomulag
KJ — Reykjavík
I gær átti Einar
Ágústsson utanrikisráð-
herra viðræður við
Walter Scheel utanrikis-
ráðherra Vestur —
Þýzkalands um land
helgismálið, og var
ákveðið á þeim fundi að
halda annan í þessum
mánuði. Á NATO-
fundinum, sem nýlokið
er í Bonn, var ekki rætt
um málefni islands að
öðru leyti en því, að
utanrikisráðherra
ítrekaði sjónarmið
íslands i varnar-
málunum.
Timinn náöi tali af Einari
Agústssyni aö loknum fundi hans
með Scheel, og hafði hann þetta
um fundinn að segja:
— Ég fór á fund Scheel utan-
rikisráðherra i dag, og með mér
voru Hans G. Andersen og Arni
Tryggvason, en með Scheel voru
von Henk og fleiri embættismenn.
Ég lagöi frairi sjónarmið islenzku
rikisstjórnarinnar á svipaðan
hátt og gert var á fundunum I
London nýlega. Scheel utanrlkis
ráðherra tók tillögu okkar til
nánari athugunar, og var ákveðiö
að hafa annan fund seinna I
þessum mánuði. Viðræöurnar
voru mjög vinsamlegar, og mér
fannst koma greinilega fram aö
leggja bæri höfuðáherzlu á að
ná bráöabirgöasamkomuiagi 1
þessu máli. Þar sem máliö er enn
i athugun, tel ég ekki rétt að
skýra nánar frá einstökum
atriðum.
Hvaö með fundinn meö
hollenzka utanrikisráöherranum
á fimmtudag?
— Um þann fund er mikið að
segja. Ég ræddi við hann á sama
hátt og utanrikisráðherra Belgiu
og Luxemborgar, og fór ágætlega
á með okkur, litið kom út úr þeim
fundum á þessu stigi.
— Bar málefni Islands á góma
á NATO-fundinum?
— Ég itrekaði okkar sjónarmiö
i varnarmálunum á fundinum, á
svipaðan hátt og ég hef áður gert,
en að öðru leyti voru varnarmál
tslands ekki rædd.
Verður Galloway-kynið haft
í Flatey á Breiðafirði?
Klp — Reykjavík.
Áð undanförnu hefur sérstök
nefnd, skipuð af landbúnaðar-
ráðuneytinu, verið að kanna
staði, þar sem hægt væri að koma
á fót hoidanautastofni af
Galloway-kyni. En cins og
kbnnugt er, voru i vetur sam-
þykkt lög á Alþingi, um heimild
til að flytja inn djúpfryst holda-
nautasæði af Galloway-kyni.
Vegna sýkingarhættu verða
gripirnir fyrst um sinn að vera á
vel einangruðum stað. Hafa
nefndarmennirnir, sem eru þeir
Jónas Jónsson, Páll A. Pálsson og
Ólafur E. Stefánsson, ferðazt viða
um i þeim tilgangi að finna heppi-
legan stað. Hafa þeir m.a. farið
um Borgarfjörð og út I Flatey á
Breiðafirði i þeim tilgangi.
Þeir ráðgera nú að fara á fleiri
staði á landinu, og að þeirri
skoðunarferð lokinni, verður
tekin ákvörðun um framtiðar-
heimili þessa stofns hér á landi.
Nokkur biö getur orðið á þvi, að
hafizt verði handa i þessu máli,
og má teljast gott, ef þaö verður i
haust. Eftir er að finna staðinn,
og þar þarf þá jafnvel að byggja
nýtt fjós, sem tekur sinn tima.
Siðan þarf að safna gripum um
landið, og þá fyrst má fara panta
sæðið að utan. Það kemur hingað
i sérstökum umbúðum, og verður
á þvi 196 gráðu frost i flutning-
unum.