Tíminn - 07.06.1972, Síða 7
Miðvikudagur 7. júni 1972
TÍMINN
7
-1-
Endurtekning þess,
er goðin skópu
heiminn í árdaga
Eins og frá var sagt i blaðinu i
gær var það Einar Pálsson,sem
setti upp hin goðfræðilega tákn-
hring, sem hjónavigslan i
Grábrókarhrauni fór fram i.
Fræði þau, er til grundvallar
liggja, eru yfirgripsmikil og
flókin, en Einar féllst á aö lýsa
þeim fyrir fréttaritara Timans i
Bifröst i örfáum dráttum. Vegna
þrengsla birtist þessi skilgreining
Einars ekki i blaðinu i gær, auk
þess sem tilfærsla var gerð að
öðru leyti á nokkrum minniháttar
atriðum i frásögninni.
Skilgreining Einars er á þessa
leið:
„Stofnun sú, sem StanislavGrof
er yfirmaður i, leggur stund á
yfirgripsmiklar rannsóknir á
geðlækningum með ýmsum
aðferðum, lyfjafræðilegum og
huglægum, og er m.a. ein af
tveim stofnunum i Bandarikjun-
um,sem nú hefur leyfi til að nota
LSD til rannsókna. Dr. Grof er
einmitt að kanna, hverir af eðlis
þáttum manna séu frumlægir i
vitund mannsins, svokallaðar
frummyndir mannshugarins. I
ljós hefur komið, að þeir eigin-
leikar, sem hann hefur fundið,
eru mjög likir goðsögnum forn-
aldar, mýtólógiunni. A föstudags-
kvöldið hélt hann fyrirlestur og
sýndi myndir, sem fólk hefur
málað undir áhrifum LSD, og það
sást, að fjöldinn allur af þeim
kom nákvæmlega heim við þær
mandölumyndir, sem vlð getum
reiknað út af islenzkum goð-
sögnum, sérstaklega sköpunar-
goðsögnum (creative myths).
„Þegar menn nema land, fylgja
þeir tilteknu ritúali. Það ritúal
byggist á þvi, að land er skorðað
við höfuðdáttum og heigað til bú-
setu. 1 ljós hefur komið, að is-
lenzkir landnámsm. fylgdu hug
takafræði, sem byggist á þvi, að
landsvæði er tengt við himin-
hvolf. Þetta veldur þvi, að svo-
nefnd mandala myndast þ.e. tafl
hrings og höfuðáttanna fjögurra,
auk ýmissa annarra þátta, sem
hér yrði of langt upp að telja.
„Það, sem gerist, þegar maður
og kona i heiðnu-félagi stofna til
hjúskapar, er, að þau endurtaka á
táknræna visu þá athöfn, sem
goðsagan segir, að orðið hafi, er
goðin skópu heiminn i árdaga. í
þessari hugmyndafræði er
Maðurinn svonefndur örheimur
— spegilmynd alheimsins. Milli-
stigið er Miðgarður, þjóðfélag
manna á jöröu hér. Sköpunarat-
höfn Manns, Þjóðfélags og sjálfs
heimsins i árdaga fylgir þannig
sama munstri.
„Þekktasta form i bergristum
Norðurlanda, hringur með krossi,
lokaður hringur, sem þó er
miðaður við fjórar megináttir, er
einmitt mandala. Það, sem
gerðist að Bifröst i nótt, var, að
þessir frægu visindamenn létu
gefa sig saman innan ramma
hinnar islenzku sköpunargoð-
sagnar, innan þeirrar mandölu,
sem var notuð við heimsmynd
Ketils Hængs á Rangárvöllum,
samkvæmt ráðningu goð-
sagnanna. Greinilegt er, að upp-
setning þingsins á Þingvöllum
árið 930 hefur verið miðuð við
heimsmyndarkerfi. Þessi
sköpunargoðsögn er i grund-
vallaratriðum eins og annars
staðar t.d. þekkir Dr. Joseph
Campell, sem gaf brúðina nú
samkvæmt ritúalinu, þetta frá
Tibet og Indlandi, en hann er
þekktasti goðsagnafræðingur
Bandarikjanna.
„Það er hinn sigildi samruni
elds og vatns, sem undirstrikaður
er i athöfninni sjálfri, þar sem
HANN, eldurinn, hinn lóðrétti
þróttur, mætir HENNI, vatninu,
hinni láréttu orku, og þegar þau
tvö mætast , þá kviknar lif.
„Likur benda til að kristnir
menn og heiðnir hafi sameinazt
um þetta ritúal, meðan kristnir
menn urðu að búa innan hins
heiðna samfélags. Athöfnin var
að þessu sinni að sjálfsögðu
kristin, eins og viðstaddir máttu
glöggt skilja,” sagði Einar að
lokum.
TILKYNNING FRÁ SAMTÖK
Citroen-eigenda
í framhaldi af félagsbréfi verður
haldinn fundur i Kristalssal að
Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 8.
júni kl. 20.30.
Stjórnin.