Tíminn - 07.06.1972, Síða 15
Miövikudagur 7. júni 1972
TÍMINN
15
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN
EFNA AFTUR TIL ÓDÝRU
KAUPMANNAHAFNAR'
FERÐANNA í SUMAR
Sumarferð á vegum félaganna farin i næsta mánuði
Rætt við Kristinn Finnbogason, formann fulltrúaráðsins
félaganna i Reykjavik og Lista-
safns rikisins, en Listasafnið
iætur húseignina Austurstræti 12 i
skiptum fyrir Glaumbæ, sneri
Timinn sér til Kristins Kinnboga-
sonar, formanns fulitrúaráös
Framsóknarfélaganna i Reykja-
vík, og spurðist fyrir um þaö,
hvar starfsemi féiaganna i
Reykjavik yröi til húsa i fram-
tiðinni.
Sagði Kristinn, aö ljóst væri, að
húsnæðið i Austurstræti 12
hentaði ekki vel fyrir starfsemi
félaganna. Sömuleiðis væri hús-
næðið að Hringbraut 30, þar sem
skrifstofur flokksins eru m.a. til
húsa, oröið of litið. Væri nú verið
að leita að hentugu húsnæði, þar
sem hægt væri að halda fundi og
samkomur. Mjög bagalegt hefði
verið að missa Glaumbæ, en þar
hefðu Framsóknarfélögin i
Reykjavik haft sina aðal aðstöðu
til fundahalda.
—Hvað er að frétta af starfsemi
félaganna, Kristinn?
—1 vetur sem leið var starfsemi
félaganna mjög þróttmikil. Efnt
var til funda um margvisleg þjóð-
félagsmál, auk þess sem fram-
sóknarvist var haldin reglulega
Alf— Reykjavík. — 1 tilefni af
þvýað nú hafa verið undirritaðir
makaskiptasamningar milli
Húsbyggingarsjóös Framsóknar-
Kristinn Finnbogason.
Séð yfir miðborg Kaupmannahafnar
að Hótel Sögu. Þá efndu félögin til
ýmiss konar skemmtana, og full-
trúaráðið gekkst fyrir árlegu
þorrablóti.
—Hvað um starfið i sumar?
—Það er alltaf daufara yfir
starfinu á sumrin. Þó er að venju
gengizt fyrir ýmsum ferðum.
Ráðgert er að fara i hina árlegu
sumarferð Framsóknarfél-
aganna i júli. Farið verður að
Þingvöllum. Hveravöllum.
Laugarvatni, Gullfossi og Geysi,
og stanzað við Hvitárvatn. Þessi
ferð verður auglýst nánar mjög
fljótlega, en ég get upplýst að far-
gjaldi verður mjög stillt i hóf.
—Verður efnt til utanlands-
ferða, eins og i fyrra?
— Já. Kaupmannahafnarferðir-
nar i fyrra reyndust svo vinsæl-
ar, að við ákváðum að efna til
þriggja ferða til Kaupmanna-
hafnar i sumar. Fyrsta ferðin
verður farin 22. júni n.k. og komið
heim aftur 6. júli. önnur ferö er
fyrirhuguð i júli, en ekki er búið
að timasetja hana enn, og þriðja
ferðin verður 3. til 10. ágúst.
Þessar ferðir eru mjög ódýrar,
kosta aðeins kr. 7500.
Þá vil ég geta þess, að fyrir-
huguð er ferð til Búlgariu 15. - 28
september. Allar nánari upp-
lýsingar um þessar feröir eru
veittar á skrifstofu flokksins
(simi 24480), en þaö má skjóta
þvi inn i, vegna ferðanna til
Kauprhannahafnar, að þaðan
getur fólk ferðazt aö vild sinni.
Þaðan eru ferðir til allra átta.
—Er nokkuð annað á döfinni hjá
ykkur?
—Ekki nema það, að við erum
þegar farnir að hugsa fyrir
vetrarstarfinu næsta ár. Það þarf
að skipuleggja starfsemina meö
góðum fyrirvara.
Hænuungar í þúsundatali
Jónasi Halldórssyni i Svein-
bjarnargerði i Eyjafirði. Þá eru
einnig til vélar, sem taka 10 þús-
und egg og eru þær t.d. hjá þeim
Teiti Guömundssyni, Móum og
Matthiasi Einarssyni, Teigi, en
þessir fjórir eru með þeim
stærstu i alifuglarækt hér á landi.
Eins og gefur að skilja er eng-
inn smá handagangur i öskjunni,
þegar nokkur þúsund kjúklingar
brjótast út úr eggjunum i einu, og
engu minni, þegar þeir eldast og
farið er að kyngreina þá og þeir
teknir frá, sem eiga að lifa og þeir,
sem eiga að fara á veisluborð eða
i sölu.sem varphænsni.
Við brugðum okkur i gær i
heimsókn til hinnar góðkunnu
bóndakonu Helgu Larsen á Engi,
en hún er einnig með litla klakvél
af þessari sömu gerð, og hefur
selt varphænsni um allt land i
fjöldamörg ár.
Við fórum til að sjá, hvernig
þessar vélar vinna og fræðast um
þaö hjá þessari dugandi bónda-
konu.hvernig búskapurinn gengi.
I-ielga sagði okkur, að þessar
vélar væru stórkostlegar i einu
orði sagt. Hún væri búin að eiga
þær i einn mánuð, og hefði á þeim
tima fengið jafnmarga unga og á
fjórum mánuðum i fyrra, en þá
hefði hún verið með gamla vél.
Þessi væri öll sjálfvirk, það væru
bara tölur og takkar, sem ætti að
fylgjast með, og svo að setja egg-
in i aðra þeirra.
Þetta væru tvær vélar. Onnur
væri ungavél, þarsem eggin væru
höfð i 17 til 18 daga, og kallaði hún
hana Auðbjörgu. llin væri klak-
vél, þar sem eggin væru i 3 daga,
og sú vél héti Stálrún-Inga.
Ungavélin tæki 1728 egg, en hún
léti i hana 1536 egg i einu. Til
þessa hefði hún fengið um 1300
unga i hvert sinn, og væri
helmingurinn af þeim hænur.
Þær seldi hún lifandi um allt land,
og gæti hún nú loks staðið við ali-
ar pantanir. Einn og einn hani
væri látin fljóta með, en yfirleitt
Klp-Reykjavik.
A undanförnum árum hefur ali-
fuglarækt verið vaxandi þáttur i
landbúnaði hér á landi. Þar er
hænsnaræktin stærst i sniðum, og
hefur hún gefið vel af sér i aðra
hönd. Nokkurstórbú hafa sprottið
upp, þar sem ræktaðir eru holda-
kjúklingar og fjöldinn allur er til
að búum, bæði litlum og stórum,
þar sem eru varphænsni.
Alltaf þarf að vera að endur-
nýja stofninn. Til þess eru not-
aðar klakvélar og eru þær nú i
seinni tið orðnar ærið mikil verk-
færi, bæði flókin og stór.
Þær fullkomnustu, sem til eru
hér á landi, eru danskar vélar,
er heita FUNKI og eru fluttar inn
af Dráttarvélum h/f. Þær eru til á
þessum stóru búum, þar sem
ræktun holdakjúklinga fer fram,
svo og minni vélar á nokkrum
öðrum stöðum.
Þessar vélar taka um 20 þúsund
egg,eins og t.d. þær, sem eru hjá
þeim Jóni Guðmundssyni á
Reykjum i Mosfellssveit og
Litla heimasætan að Engi gælir
við einn hinna 1300 hænuunga,
sem komu úr útungunarvélinni
þar, daginn áður.
Að Teigi i Mosfellssveit er eitt fullkomnasta hænsnabú landsins. Þar eru hænurnar I stórum og full-
komnum búrum, sem gott er að þrifa og gefa I. Eggin frá þeim falla niður í sérstaka grind, eins og sést á
þessari mynd. (Timamyndir -klp-)
léti hún lóga þeim, þvi að hún
væri ekki i holdakjúklingarækt
eins og sumir aðrir, sem hefðu
þessar vélar.
,,Ég er búin að unga út fyrir
kalla um allt land siðan 1945,”
sagði Helga. ,,Þá kostaði það eina
krónu ef komið var með eggið og
siðan aðra krónu fyrir að ala ung-
ann upp i 3 vikur. Verðið hefur nú
breytzt frá þvi, góöurinn minn.
Þótt ekki sé það mikiö miðað við
margt annað. En það er alltaf
jafn gaman að bjástra við þetta,
þvi það er sælustund að sjá þessa
litlu hnoðra fara tistandi af stað,
og ekki er það siður nú, þegar
svona vel gengur með þessi
undraverkfæri, sem hún Auö-
björg min og Stálrún-Inga eru”
Helga Larsen á Engi við ungavélina Stálrúnu Ingu, ásamt aðstoðar
manni sfnum Frits ó. Eirfkssyni. I vélinni er að þessu sinni um 1300
litlir og fallegir hænuungar.