Tíminn - 07.06.1972, Qupperneq 16
16 TÍMINN Miðvikudagur 7. júni 1972
Fjúka íslands-
Krá lcik Hrciðabliks ug Vals. (iuðinundur Pórðarson. hinn sókndjarfi miðherji Breiðabliks, sést á þess-
ari mynd skora fyrra mark félags sins ileiknum. Sigurður Dagsson. markvörður, fær ekki við neitt ráð-
ið.
(Timamyndir Róbert).
metin
í kvöld?
Tímaseðillin
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
í kvöld
Eins og fram kemur annars
staðar á siðunni, hefst júni-
mót FRl á Laugardalsvellin-
um i kvöld, en mótið mun
standa tvo daga. Timaseöill-
inn i kvöld litur þannig út:
Kl. 20.00: 400 m grindahlaup,
hástökk karla, kúluvarp karia
spjótkast kvenna.
Kl. 20.10: 100 m grindahlaup
kvenna.
Kl. 20.15: 200 m hlaup karla.
Kl. 20.20: 500 m hlaup.
Kl. 20.30: Spjótkast karla,
langstökk karla
Kl. 20.45: Kúluvarp kvenna.
Kl. 20.50: Hástökk kvenna, 200
m hl. kvenna.
Kl. 21.00: 800 m hl. kvenna.
Kl. 21.10: 800 m hl. karla. B.-
riðill.
Kl. 21.20: 800 m hl. karla. A.-
riðill.
Kl. 21.30: 4x100 m boðhl. karla
Kl. 21.35: 4x100 m boðhl.
kvenna.
Enginn fótur fyrir því, að
„keypt séu röng áhöld í
mörgum tilfellum”
Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi, svarar Asgeiri Guðmundssyni,
formanni Fimleikasambandsins
A iþróttasiðu Timans laugard.
27. mai sl. birtist viðtal við Asgeir
Guðmundsson, formann Fim-
leikasambands lslands, um hið
ágæta námskeið sambandsins,
sem lauk þann dag.
Frábær norskur iþróttakenn-
ari, Tore Johansen, gæddur mik-
illi kennslureynslu og kunnáttu,
nákvæmur og glöggur i allri for-
sögn, annaðist kennsluna, og hin
14 ára stúlka, Liv Gulbrandsen,
aðstoðaði hann með sýningum
sinum. Geta hennar og hæfni var
undraverð.
Um leið og ég leyfi mér að
þakka námskeiðið, sem iþrótta-
kennarar og nemendur Iþrótta-
kennaraskóla Islands sýndu mik-
inn áhuga, vil ég óska samband-
inu til hamingju meö þetta fram-
tak og vona, aö það lyfti undir is-
ienzka getu og hæfni i leikfimi.
Ekki skal þvi gleymt, að stjórn
Fimleikasambandsins og að-
stoöarfólk hennar stóö ötullega að
framgangi námskeiðisins, en þar
var Astbjörg Gunnarsdóttir
fremst i flokki.
Einnig er vert að geta aðstöð-
unnar, sem námskeiðinu var búið
i iþróttahúsi Seltjarnarnes-
hrepps, og er vert að leggja á það
áherzlu, að Tore Johansen hafði
um forráðamenn hreppsfélags-
ins, skólans og svo starfsfólk
hússins sérstök viðurkenningar-
orð við mig.
Námskeiðið, forstaðan og að-
staðan var til sóma isi. iþróttalifi.
Eitt var það i viðtalinu við for-
manninn, sem ég verð að láta i
ljós undrun mina á, en það er um-
sögn hans um leikfimitækin:
,,...keypt eru röng áhöld i
mörgum tilfellum” og ,,....og að
við teljum það ekki i verkahring
Fimleikasambandsins að sjá um
kaup á þeim”.
Tæki þau, sem isl. iþróttahús
eru búin, eru annaðhvort smiðuð
hér heima samkv. viðurkenndum
alþjóðlegum teikningum eða þau
eru keypt að utan og þá frá fyrir-
tækjum, sem njóta viðurkenning-
ar erlendra skólayfirvalda eða
fimleikasambanda svo sem:
Turn Mayer i Vestur-Þýzkalandi
(framleiðandi til Ólympiuleika,
Evrópu- og heimsmeistara-
keppni): Janssen og Fritssen,
Hollandi (framleiddi fyrir
Olympiuleikana i Mexico 1968):
Þorsteinn Einarsson
Strand og Skrivrit i Sviþjóð og
Virklund i Danmörku.
Ég hefi verið milligöngumaður
um smiði eða innflutning tækja
bæði fyrir skóla og félög og vil þvi
alvarlega bera af mér að keypt
séu ,,... röng áhöld i mörgum til-
fellum”.
Rétt er þaö, að ekki er það i
verkahring Fimleikasambands-
ins að leggja út fé fyrir tæki skóla
eða félaga, en ekkert vildi ég
frekar en njóta samstarfs þess i
framtiðinni við val þeirra tækja,
sem félög fela mér að útvega.
Eðlilegt er, að áhugafélög eða
deildir félaga, sem leggja sér-
staklega stund á keppnisleikfimi,
útvegi sér og eigi sértæki til
þeirra iðkana eins og hefur verið
tilfellið með ÍR, KR, Armann,
Siglfirðinga q.fl.. Til kaupa slikra
stórra og dýrra tækja hafa félögin
hlotið 33% styrk frá iþróttasjóði.
Þegar ég nefni sér-tæki
keppnisleikfimi á ég við: Tvislá,
olympiu-jafnvægisslá, svifrá,
fjaðradýnu, langar dýnur og gólf-
þekjur fyrir frjálsar gólfæfingar.
(Bráðabirgðar gólfþekju keypti
Reykjavikurborg nýlega fyrir 100
þús. kr.)
Tekið skal fram, að þessi tæki
eru ekki meðal þeirra tækja, sem
samkv. reglugerð 1959/1969 eiga
að vera i skólasölum og varða
skólaleikfimi.
Ef einhverjir vankantar eru á
kaupum iþróttatækja i sali, vildi
ég fúslega verá með að sniða þá
af. Þorsteinn Einarsson
Staðan og
markhæstu
leikmenn
Nú hafa öll 1. deildar liðin leikið
a.m.k. tvo leiki, KR og Breiðablik
hafa leikið þrjá leiki. Hafa öll lið-
in tapað einu stigi eða fleiri, nema
Fram, sem unnið hefur báða sina
leiki.
Staðan i deildinni er þá þessi:
Fram 2 2 0 0 3:0 4
KR 3 2 0 1 5:3 4
Keflav. 2 1 1 0 3:1 3
Breiðab. 3 1 1 1 5:7 3
Akranes 2 1 0 1 3:3 2
Vik. 2 0 1 1 0:1 1
Valur 2 0 1 1 3:4 1
Vestm. 2 0 0 2 2:5 0
Markhæstu leikmenn 1. deildar
eru:
Atli Héðinss., KR 3
Steinar Jóhannss. , IBK 2
Matthias Hallgrimss.,IA 2
Alexander Jóhanness., Val 2
Hinrik Þórhallss., Brblik 2
Næsti leikur i 1. deild verður
háður n.k. laugardag. Þá leika i
Vestmannaeyjum IBV og Viking-
ur.
Ilermann Gunnarsson, Val. er i góðri æfingu um þessar mundir og átti
skinandi góðan leik gegn Breiðablik. Hér sést hann i viðureign viö einn
varnarmanna Breiðabliks.
ÖE-Reykjavik.
Fyrsta frjálsiþróttamót
sumarsins, sem haldið er á
Laugardalsvellinum, júnimót
Nú er lokið þrem opnum mótum
i golfi, sem gefa stig til landsliðs
GSI. Eru það Faxakeppnin i Vest-
mannaeyjum, Þotukeppnin i
Hafnarfirði og Pierre-Robert-
keppnin hjá Golfklúbbi Ness.
Þeir, sem eru i lOefstu sætunum
i þessum mótum, fá allir stig, efsti
maður 10 stig, annað maður 9
o.s.frv. Alls hafa 18 menn hlotiö
stig til þessa, og eru 10 efstu
þessir:
Stig Mót
1. Björgvin Hólm, GK -23 3
2. Einar Guðnas., GR 19,5 2
3. Sigurður Héðinss., GK 18 2
4. Óttar Yngvas., GR 15 2
5. Þorbjörn Kjærbo, GS 14 2
6. Július R. Júliuss., GK 11 3
7. Gunnl. Ragnarss., GR 10,5 3
8. -9. Jón H. Guðlaugss., GV 10 2
8.-9. Jóh. Ó. Guðmundss., io 2
10. Atli Aðalsteinss., GV 8 1
Alls eru mótin, sem gefa stig, 9
talsins, og fer þaö 4. fram um
næstu helgi. Er það Bridgestone-
Camel-keppnin hjá Golfklúbbi
Suðurnesja. Eftir það verður hlé
á þessum mótum fram til 18. júli,
er Coca Cola-keppnin fer fram
hjá Golfklúbbi Reykjavikur.
FRl, hefst i kvöld kl. 8. og heldur
áfram annað kvöld á sama tima.
Eftir hina skemmtilegu keppni
milli Guðmundar Hermannsson-
ar og Hreins Halldórssonar i
kúluvarpinu á EÓP-mótinu i sið-
ustu viku má fastleg búast við, að
sú grein verði i sviðsljósinu.
Báðir kapparnir eru skráðir til
leiks og munu sjálfsagt leggja sig
fram til hins itrasta. Auk þeirra
keppa Erlendur Valdimarsson og
Páll Dagbjartsson i kúluvarpinu.
Keppnin i 800 m hiaupinu verð-
ur einnig hörö, en alls eru 13
hlauparar skráðir til leiks, þ.á.m.
Ágúst Ásgeirsson IR, Böðvar
Sigurjónsson UMSK og Einar
Óskarsson UMSK. Bjarni
Stefánsson og Vilmundur Vil-
hjálmsson KR ásamt Sigurði
Jónssyni HSK taka þátt i 200 m
hlaupinu. Barátta verður sjálf-
sagt hörð i langstökki, spjótkasti
og hástökki.Þá verður og keppt i 5
km hlaupi og 400 m grindahlaupi
karla.
Þátttaka verður góð i kvenna-
greinum, og ef vel viðrar má
búast við 3 til 4 íslandsmetum.
Lára Sveinsdóttir A er liklegur
sigurvegari i 100 m grindahlaupi,
200 m hlaupi og hástökki, og bar-
áttan getur orðið hörð i 4x100 m
boðhlaupi milli UMSK og
Armanns. Ragnhildur Pálsdóttir
UMSK tekur þátt i 800 metra
hlaupi, og metið liggur laust.
Helzti keppinautur hennar verður
Lilja Guðmundsdóttir ÍR. Þá
verður keppt i kúluvarpi og spjót-
kasti kvenna.