Tíminn - 07.06.1972, Page 17
BLÓMLEG STARFSEMI UMSE
- 50 ÁRA AFMÆLIS SAMBANDSINS MINNZT NÝLEGA
Fulltrúar og gestir á ársþinginu að llúsabakka.
Dagana 22. og 23.april
s.l. var 51. ársþing Ung-
mennasambands Eyja-
fjarðar haldið að Húsa-
bakka i Svarfaðardal.
Til þingsins mættu 62
fulltrúar frá öllum sam-
bandsfélögum 15, að
tölu. Gestir þingsins
voru: Hafsteinn Þor-
valdsson formaður
UMFÍ, Sigurður Geirdal
framkvæmdastj. UMFí,
Gisli Halldórsson forseti
ÍSÍ, Hermann Guð-
mundsson fram-
kvæmdastj. ÍSÍ, Sveinn
Björnsson varafor-
maður ÍSÍ og Guðmund-
ur Benediktsson fyrr-
verandi formaður
UMSE.
Framkvæmdastjóri sam-
bandsins, Þóroddur Jóhannsson,
lagði fram starfsskýrslu s.l. árs,
er greindi frá margþættu starfi
sambandsins. Veitt var fyrir-
greiðsla um iþróttakennslu til
sambandsfélaganna eftir óskum
þeirra. Mót voru haldin i
mö'rgum greinum iþrótta, svo og i
skák og bridge. Auk þess tók
sambandið þátt i mörgum mótum
út á við, i frjálsum iþróttum,
starfsiþróttum, knattspyrnu og
skák.
Sumarbúðanámskeið var
haldið að Laugalandi i Eyjafirði
og var þátttaka mikil Þá var
sambandið aðili að hátfðahöldum
við afhjúpun minnisvarða Daviðs
Stefánssonar, skálds, sem reistur
var að Fagraskógi. Einnig var
það aðili að bindindismóti i
Vaglaskógi, Bændahátið Ey-
firðinga og spurningakeppni við
H.S.Þ.
Mörg mál voru rædd og tekin til
afgreiðslu á þinginu s.s. varðandi
iþróttir og iþróttamannvirki,
samkomuhald, 1100 ára afmæli
íslandsbyggðar, Eyfirðingavöku,
bindindismál, og landgræðslu.
Það mál, sem mest áherzla var
lögð á, var að skapa þyrfti fjár-
hagsgrundvöll fyrir fullu starfi
framkvæmdastjóra fyrir sam-
bandið,sem þá yrði til aukinnar
fyrirgreiðslu við sambands-
félögin og aðra þá, er hennar hafa
notið.
1 stjórn sambandsins voru
kjörnir: Sveinn Jónsson for-
maður, Haukur Halldórsson
varaformaður, Haukur Stein-
dórsson ritari, Birgir Marinósson
gjaldkeri og Vilhjálmur
Björnsson meðstjórnandi.
Arsrit UMSE kemur út á
næstunni og eru þar yfirlit um
starf sambandsins og sambands-
félaganna á s.l. ári ásamt öðru
efni.
Innan UMSE eru nú nær eitt
þúsund félagsmenn.
Hinn 8.april s.l. voru 50 ár liðin
frá stofnun Ungmennasambands
Eyjafjarðar. Þess var minnzt
með kvöldskemmtun á þrem
stöðum á sambandssvæðinu,
dagana 7., 8. og 9.aprii,þar sem
þættir úr starfi sambandsins voru
raktir i máli og myndum. Sam-
bandsfélögin lögðu fram ýmis
skemmtiatriði, og að lokum var
dansað.
Að kvöl,di fyrri dags árs-
þingsins 22.april var svo haldinn
afmælisfagnaður að Vikurröst á
Dalvik og var þar saman komið
um 250 manns.
Fyrst fór fram iþróttasýning i
iþróttahúsinu á Dalvik og sýndu
þar nemendur barna- og
unglingaskólans undir stjórn Jóns
Halldórssonar, iþróttakennara.
Einnig voru sýndir þjóðdansar
undir stjórn Þuriðar Arnadóttur
iþróttakennara.
Siðan var gengið til borðhalds,
er Sveinn Jónsson formaður sam-
bandsins stjórnaði. Þar rakti Jón
Stefánsson Dalvik helztu þætti úr
sögu sambandsins. Avörp fluttu:
forráðamenn UMFI og ISI, for-
ystumenn iþrótta- og ungmenna-
samtaka á Akureyri, og úr
nágrannabyggðum, svo og
nokkrir aðrir gestir.
Jóhann Danielsson söng við
undirleik Áskels Jónssonar, sem
einnig stjórnaði almennum söng.
Fimm stúlkur úr Hrisey sungu
við gitarundirleik og Birgir
Marinósson flutti frumort ljóð til
UMSE. Að lokum var dansað.
Sambandinu bárust mörg
heillaskeyti, peningagjafir,
minningargjafir og góðir gripir.
Þrir eldri ungmennafélagar,
þeir Guðmundur Benediktsson
frá Breiðabóli, Helgi Simonarson
Þverá og Jón Stefánsson Dalvik,
voru heiðraðir með starfsmerki
UMFI og hinn siðastnefndi var
einnig sæmdur gullmerki ISI.
A næstunni kemur út 50 ára af
mælisrit UMSE, og þar rakin
starfssaga þess og sambands-
félaganna, viðtöl við yngri og
eldri ungmennafélaga, auk fleira
efnis og mynda.
Jón Stefánsson flytur sögu UMSE.
Heiðraðir
af ÍBR
Gunnar Már Pétursson
A ársþingi Iþróttabandalags
Reykjavikur, sem hófst s.l.
föstudag voru þrir kunnir
iþróttaforustumenn i Reykjavik
heiðraðir. Hlutu þeir IBR-
stjörnuna fyrir vel unnin störf i
þágu reykviskra iþróttamála á
mörgum undanförnum árum.
Þeir, sem heiðraðir voru,
voru Árni Arnason, formaður
Handknattleiksráðs Reykja-
vikur, Gunnar Már Pétursson,
formaður Vikings, og Haraldur
Gislason, stjórnarmaður i
Knattspyrnuráði Reykjavikur.
Óþarfi er að kynna þessa
menn. Arni Arnason hefur gengt
trúnaðarstörfum fyrir hand-
knattleiksmenn, var um skeið
formaður HSI, en hefur siðan
átt sæti i stjórn HKRR og er nú-'
verandi formaður ráðsins.
Gunnar Már Pétursson hefur
unnið að málefnum Vikings um
margra ára skeið. Haraldur
Gislason starfaði i mörg ár I
stjórn knattspyrnudeildar KR
og var formaður hennar, en
situr nú i stjórn KRR. -alf.
Arni Arnason
llaraldur Gislason
Leika í
Munchen
Nú er vitað hvaða 16 þjóðir taka
þátt i lokakeppninni i knattspyrnu
á Olympiuleikunum i Miinchen:
Evrópa:
Vestur-Þýzkaland, Ungverjaland,
Sovétrikin, Danmörk, Austur-
Þýzkaland, og Pólland.
Noröur- og Suður-Amerika:
Bandarikin, Mexikó, Brasilia og
Colombia.
Afrika:
Ghana, Marokko og Súdan
Asia:
Burma,Malasia og Iran.
Hafsteinn Þorvaldsson afhendir Helga Simonarsyni t.h. starfsmerki
UMFI.
AKUREYRINGAR GEGN
KEFLVÍKINGUM
- í kvöld í minningarleik um Jakob Jakobsson
Alf-Reykjavik.
— í kvöld, miðvikudags-
kvöld, fer fram á Akureyri
hinn árlegi minningarleik-
ur um Jakob Jakobsson.
Leikur lið íþróttabanda-
lags Akureyrar gegri liði
íslandsmeistara Kefla-
víkur. Hefst leikurinn kl.
20.
Akureyringar hafa verið
mjög sigursælir i minningar-
leikjunum, sem háðir hafa verið
hingað til, og tapað aðeins einu
sinni. Var það i fyrra, en þá léku
þeir gegn KR-ingum.
Eins og kunnugt er, leikur
Akureyrar-liðið i 2. deild i ár.
Engu siður eru Akureyringar
staðráðnir i að velgja Islands-
meisturunum undir uggum i
leiknum i kvöld. Akureyringar
unnu fyrsta leik sinn i 2. deildar
keppninni um helgina, en þá léku
þeir gegn Húsvikingum. Jó-
hannes Atlason, fyrirliði lands-
liðsins, þjálfar og leikur með
Akureyrarliðinu.