Tíminn - 08.06.1972, Side 1

Tíminn - 08.06.1972, Side 1
IGNIS K/ELISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SÍMI: 19294 ☆☆☆ V / 86500 Nær 20 mynd listarsýningar á Listahá tíðinni 1972 OV-Reykjavík. A Listahátiðinni 1972 eru marg- ar myndlistarsýningar og eru raunar svo gott sem öll söfn opin þá daga.sem hátiðin stendur yfir. Vinsælt er það fyrirkomulag að selja einn miða á allar sýningar, enda hafa margir notað sér það tækifæri til að kynnast öllu þvi helzta, sem er að gerast i islenzkri myndlist. Sýningin á Skólavörðuholti við Ásmundarsal hefur vakið mikla athygli eins og venjulega þegar þar hefur verið sýning. Mynd þessa tók Gunnar Andrésson, ljósmyndari Timans, af sýning- unni þar. Bætur almanna- trygginga hækka um 12% KJ-Reykjavik Gefin hefur verið út reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga og samkvæmt henni hækka bætur almanna- trygginga, nema fjöl- skyldubætur og fæðingarstyrkur, um 12% frá 1. júli n.k. Kemur hækkun þessi til útborgunar á greiðslu- dögum i júlí. Akureyri fær 100 lítra vatns á sekúndu í haust Þetta skemmtilega verk er eftir. Jón Benediktsson og heitir „Að- koma”. Piltarnir tveir enn í Hælavíku rbjargi ÓV-Reykjavik Eins og skýrt hefur verið frá I Timanum i fyrradag, hafa tveir piltar frá tsafirði, Sigurður Magnússon, og Brynjólfur Óskarsson, veriö i tjaldi á syllu i Hælavikurbjargi siöan fyrir helgi og hafa þeir ekki komizt niður vcgna veðurs. Þegar Timinn hafði samband við Vestfiröi i gær, voru piltarnir enn i bjarginu, en tekizt haföi að koma til þeirra mat, þannig að ekki væsir um þá. Veður var tekið að lægja á Vestfjörðum i gær, svo að reikna mátti með,að farið yrði að taka niður þau egg, sem piltarnir voru með, en ef það verður ekki gert innan tiöar, eyöi- leggjast eggin, og yrði þaö aö sjálfsögðu mikið tjón, slfkt kom fyrir i fyrravor, þá eyðilögðust um 3000 fuglaegg. Eggin verða tekin niður i loft braut, en piltarnir siðan hiföir upp á brún, eins og tiðkast i bjargsigi. Þeir eru báðir vanir fjallamenn, Sigurður sagður einn skæðasti bjargmaður hér á landi og eru þeir með talstöð i bjarginu, þannig að þeir geta látiö vita af sér. Heiðagæsin örugg- iega ekki tii skaða ■ segir Arnþór Garðarsson dýrafræðingur ÓV-Reykjavik Arnþór Garðarsson dýrafræðingur hefur undanfarið dvalið i Þjórsárverum við rann- sóknir á heiðagæsinni marg- frægu, og heldur hann aftur austur sunnudaginn 18. júni. 1 viðtali við Timann i gær, sagði Arnþór að rannsóknir, hans — og annarra — beindust fyrst og fremst að þvi að kanna, hvort „forsvaranlegt” væri að láta hluta af landinu — eða það allt — á þessum slóðum undir vatn, eins og nú -væri talaö um. — Minar rannsóknir hafa einkum beinzt að beit, hvernig fæöusam- setningin er hjá gæsum, hve mikið þær taka til sin af groðri, og hvað þær skila miklu á landiö aftur, það er i gegnum saur. Viö maedum^hvað beitin er mikil, og þess háttar. Undirbúningsrann- sóknir voru framkvæmdar i fyrra, og i lok sumars reiknum við meö að hafa i höndum upp- lýsingar um hvaöa áhrif gæsabeit hefur á landið á þessu stigi. Eins könnum við hvaða gróður- tegundir heiöagæsin étur mest, og hvaða næringargildi fæða hennar hefur. — Svo er Jón Baldur Sigurösson þarna fyrir austan lika, sagði Arnþór ennfremur, — en hann kannar aöallega viðkomu heiða- gæsarinnar fjölgun og þess háttar. Eins kannar .hann kjóa- stofninnn þarna fyrir austan, hve mikið er af kjóa, svartbak op! ref, og hve mikið af eggjum heiða- gæsarinnar fer i fæöu þessara þriggja dýrategunda. Auk þessara rannsókna verða framkvæmdar ýmsar aðrar rannsók'nir i Þjórsáverum i sumar og sagöi Arnþór#að þessar rannsóknir i heild væru vafalaust viðtækustu liffræðirannsóknir, sem gerðar heföu verið hér á landi. Kauk þess fara ýmsir menn þangað austur og fást viö tak- markaðar rannsóknir á ákveðnum hlutum. — Nú hefur gæsinni þarna fyrir austan verið bölvað all hressi- lega, er ekki svo, Arnþór? — Það er nú aðallega grágæsin, sem gerir óskunda. Heiðagæsin fer ekki i varplönd og sækir ekki i beitiland sauðfjár, þannig að i rauninni hefur hún ákaflega litla hagnýta þýðingu fyrir okkur. Auk þess bendir ýmislegt til þess, að gæsabeit geti haft jákvæð áhrif. Bæöi er það fyrir úrgang gæsar- innar og svo það, að hún grefur mikið eftir rótum ákveöinna tegunda, og getur á þann hátt stuðlað aö aukinni jarðvegs- Frh. á bls. 5 SB-Reykjavík Lagning nýrrar vatnsveitu fyrir Akureyri hefur nú staðið yfir siðan i fyrrahaust og gengið ágætlega. Vatniö er leitt úr bor- holu á Vaglaeyrum f Hörgárdal til Akureyrar og er leiðin um 12 1/2 km. Undanfarið hefur verið unnið að þvi að sjóða saman leiösluna sjálfa, sem er úr plaströrum frá Reykjalundi. Verkinu á að ljúka nú i haust. Sigurður Svanbergsson vatns- veitustjóri á Akureyri sagði i við- tali við Timann i gær, að hafin væri bygging dælustöðvar á Vaglaeyrum, þvi að dæla þyrfti vatninu upp i 120 m hæð yfir sjávarmál yfir Moldhauga- hálsinn. Þangað væri leiðslan úr stálpipum, 1200 metrar, og voru þær lagðar i fyrrahaust. Undanfarna mánuði hefur Sigurður Jóhannsson frd verk- smiðjunni að Reykjalundi unnið að þvi að sjóða saman aðal- leiðsluna i 300-400 metra langa búta, sem biða þess nú aö verða soðnir saman aftur á sinum endanlega stað. Reyndar er þegar búið að koma 5 km leiðslunnar endanlega fyrir. Við lagninguna vinna 25-30 manns, ásamt vinnuvélum vatns- veitunnar, og gengur verkiö vel, og ekki hefur þurft að vinna neina eftir- eða vaktavinnu. Sigurður sagði, að áætlunin stæðist fylli- lega, ef svona gengi áfram. Nýja leiðslan flytur 100 sekúndulitra, þegar hún er full- nýtt, og ð það aö nægja Akur- eyringum næstu 20 árin. Endur- skoðuð kostnaðaráætlun nýju vatnsveitunnar, er 46 milljónir, og eru i þeirri tölu allar fram- kvæmdir, einnig, þær, sem veröa á næstu árum, eftir að veitan er komin i gang. Farið að vilja Gríms- eyinga í hafnargerð SB -Reykjavik Hafnarframkvæmdir eru nú að hefjast að nýju i Grímsey,en eins og frægt er orðið, gleypti Ægir fyrri framkvæmdir. í þetta sinn verður farið að hugmyndum Grims- eyinga sjálfra um hafnarstæðið, og þykjast þeir þess full- vissir, að nú muni garðurinn standast allar ásóknir hafsins. Nýlega var haldinn fundur i Grimsey með verkfræðingum hafnarmálastjórnar og fleiri ráðamönnum, og bar það vott um áhuga eyjarskeggja á málinu, aö þeir komu nær allir á fundinn. Tæki til hafnargerðarinnar eru komin á staðinn, og nú er bara beðið eftir mann- skapnum, til að fram- kvæmdirnar geti hafizt. Annars er allt gott að frétta úr eynni. Gróður er þar með ágætum og áreiðanlegt, að þær 100 kindur, sem i Grimsey eru, munu fá nægar hey- birgðir til vetrarins. Tólf bát- ar eru gerðir út frá eynni, þ.á.m. ný ellefu lesta trilla. Fiskeri hefur verið óvenjugott

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.