Tíminn - 09.06.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 09.06.1972, Blaðsíða 1
IGNIS K/ELISKAPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 ☆☆☆ 127. tölublað — Föstudagur 9. júni 1972 — 56. árgangur. 128. J ^ Suduriands braut 22 86500 BÝST VIÐ HLÝJ- UM MÚTTÖKUM - sagði fiðlusnillingurinn Yehudi Menuhin við komuna til (slands í gær ÓV-Reykjavík Rússnesk/bandarlski fiðlu- snillingurinn Yehudi Menuhin kom ásamt konu sinni til fs- iands laust fyrir klukkan 18 I gærkvöldi. Móttökustjóri Listahátiðar, Signý Sen, tók á móti listamanninum og konu hans á Keflavikurflugvelli, svo og nokkrir fréttamenn. Fréttamaður Timans fékk tækifæri til að ræða stuttlega við Menuhin og konu hans, og sagðist þeim svo frá i upphafi, að þau hefðu komið hér áður, það hefði verið fyrir 15 árum eða svo, þegar þau voru á leið yfir Atlantshaf. Talstöð flug- vélar þeirra hefði bilað, og þvi hefði verið lent hér, en það hefði verið um miðja nótt og þau þvi ekkert séð. — Ég býst við m jög hjartan- legum og hlýjum móttökum á hljómleikum minum hér, svaraði Menuhin aðspurður. — Ég hlakka sérstaklega til tónleika minna með Vladimir Ashkenazy en það var raunar fyrir hans orð,að ég kom hing- að. Ég er að endurgjalda hon- um gamla skuld, ef svo má að orði komast. Þau hjónin fara héðan aftur á þriðjudaginn, og sagði frúin okkur, að þau vonuðust til að sjá eitthvað meira en allt það „blauta grjót og myrkur”, sem þau sáu hér fyrir 15 árum. Frh. á bls. 6 V i / Yehudi Menuhin og kona hans ganga niður úr Pan Am þotunni á Keflavikurflugvelli I gær. (Timamynd : Gunnar) Þetta er DAS húsið við Vogaland innst í Fossvoginum, þar sem Fischer mun e.t.v. sitja yfir skákum sínum á daginn, þegar heims- meistaraeinvígið fer fram. « J , FÆR FISCHER DAS HÚSIÐ FYRIR SIG? - Spasskí vill fá einkabíl og tennisvöll Klp-Reykjavik Meðal þess, sem Bobby Fischer hefur farið fram á að verði fyrir hendi hér I Reykja- vik, þegar hann keppir við Spasski um heimsmeistara- titilinn i skák, er einbýlishús eða ibúð á góðum og kyrrlát- um stað, þar sem hann geti hvilt sig og farið yfir skákir sinar i ró og næði. Heyrzt hef- ur, að þegar sé búið að útvega húsið, og sé það DAS-húsið að Vogalandi 11, sem veröur vinningur i happadrætti DAS I april á næsta ári. Ekki ætti að væsa um kapp- ann i þvi húsi, þvi að það er um 160 fermetrar að stærð með 6 herbergjum og búið fullkomnum húsbúnaði og öll- um þægindum. Fischer mun samt búaá Hótel Loftleiðum, en þar hefur verið frátekin fyrir hann svlta, nafnið Gimli. sem ber Fischer hefur einnig farið fram á aðstöðu til að leika Bowling (keiluspil), en það er iþrótt, sem hann hefur gaman af að glima við á milli þess, sem hann teflir. Þar sem Bowlingsalur er ekki til i Reykjavik, hefur orðið úr, að hann fái afnot af salnum á Keflavikurflugvelli, sem er mjög fullkominn. Fischer hefur ekki farið fram á að fá einkabifreið fyrir sig og sina menn, en segist gera sér að góðu leigubif- reiðir. Spasski og hans menn hafa aftur á móti farið fram á að fá einkabifreið til afnota meðan á keppninni stendur, og mun einhver bifreiðainnflytj- andi ætla að lána Rússunum nýja bifreið fyrir sig. Annaö, sem Spasski hefur beðið um, er tennisvöllur, þar sem hann getur æft sig. Slikur völlur er heldur ekki til hér i Reykjavik, en nú munu vera að hefjast framkvæmdir við gerð hans. Spasski leikur dag- lega tennis, og það gerir Fischer einnig^Hann stóð sig mjög vel i tenniskeppni i La Costa i Kaliforniu nýlega, sigraöi þar m.a frægan gaml- an tennisleikara, Hank Green- berg, sem sigraði i þessu sama móti i fyrra. Það yrði áreiðanlega gaman að fá að sjá þá kappana, Spasski og Fischer, reyna sig I tennis meðan á skákeinviginu stendur. En varla er við þvi að búast, þvi að trúlega vill hvor- ugur hætta á að tapa. Borunin á Vatnajökli: Komnir niður fyrir Öskjugosið 1961 KJ-Reykjavik — Það er hávetur á Bárðarbungu, þar sem við höfum verið að bora, sagði Bragi Árnason efnafræðingur i viðtali við Timann i dag, — um nætur hefur frostið kom- izt i 10 stig, — Fyrir tveim dögum var búið að bora 60 metra niður, og eitt HREINDÝRIN A TUNUM BÆNDA AUSTUR A LflNDI EB-Reykjavik. Sjaldan eða aldrei hef- ur sézt eins mikið af hreindýrum i hyggð á Austurlandi og i vor, þrátt fyrir snjóléttan og mildan vetur þar, eins og annars staðar á land- inu. Hafa bændur þar eystra þurft að reka dýrin af túnum sinum eins og búpeninginn. Hreindýrin eru afar spök og það eina, sem þau virðast óttast að ráði i byggð eru hundar, enda hafa þeir reynzt vel, þegar þurft hefur að koma hreindýrunum af vel sprottnum túnum. Frh. á bls. 6 öskulag var komið i ljós, sagði Bragi. — Þetta öskulag var á 30 metra dýpi, og var frá öskjugos- inu 1961. Við búumst við að koma næst að öskulögunum frá Kötlu- gosinu og gosi, sem var i Grims- vötnum. — Borunin hefur gengið eins og menn bjuggust við, sagði Bragi, — hægt og sigandi. Það tók hálfa aðra viku að komast á staðinn og undirbúa borunina, og úr þessu ætti að fara að komast meiri skriður á borunina sjálfa. — Staðurinn þar sem borað er, er I um 1800 metra hæð, og það hafa komiðstórhriðardagar hjá okkur, en við erum búnir að grafa okkur niður i fönnina, svo aö við erum orðnir óháðir veðri við borunina. Læknadeilan A fundi fulltrúa fjármálaráðu- neytisins og Læknafélags Reykjavikur með sáttasemjara I fyrrakvöld náðist samkomulag um launakjör sjúkrahúslækna. Margir fundir hafa verið haldnir, og voru sjúkrahúslæknar búnir að segja upp störfum. Þeir sem fyrst sögðu upp, ætluöu að hætta störf- um á morgun. 10. júni. Samkomulagiö verður lagt fyr- ir félagsfund i Læknafélaginu, og hefst hann kl. 5,30 i dag. Isíands fliekor, Hollands tulpancr, en nyfiskad hummer Rá Sardinien, er en skidtur mitt i sommaren ... Oö-Reykjavik Islenzkar stúlkur, hollenzkir túlipanar, nýveiddur humar á strönd Sardiniu, eða skiðaferð um mitt sumar. Þetta er það eftirsóknarverðasta sem ferðamálasérfræðingar sænska vikublaðsins Se, geta boðið löndum sinum að njóta i sumarleyfinu. 1 nýútkomnu hefti blaðsins er varið mörgum siðum til að kynna Svium dásemdir heimsins. hvernig þeir fái notið þeirra fyrir viðráðan- legt verð, og hvert hver og einn á að halda til að fá óskir sinar uppfylltar. Reykjavlk er talin með þeim borgum heimsins, sem bezt eru fallnar til að skemmta sér i. og er varið meira rúmi til að segja frá cfásemdum lifsins hér en annars staðar. Til dæmis er þetta látið duga um England. „Swinging London”, viku- dvöl frá 445 krónum. En Reykjavik þarf aö kynna betur.Þar er f jöldi diskóteka og danshúsa, og þar uppgötva skemmtanasjúkir Sviar, að það eru ekki þeir sem ráða stefnunni, þvi það er islenzka stúlkan, sem á frumkvæðið og heldur um stjórnvölinn. Það er aldeilis munur fyrir Svenson, að skemmta sér á veitingahúsi I Reykjavik, en t.d. i Briissel. Þeimrsem þangað leggja leið sina er Frh. á bls. 6

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.