Tíminn - 11.06.1972, Side 1
IGNIS
KÆLISKAPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
☆☆☆
86500
SKART-
GRIPUM
FYRIR
MILUÓN
STOLIÐ
Klp-Reykjavík laugardag.
I nótt var brotizt inn í
skartgripaverzlun Ingi-
mars Davíðssonar að
Laugavegi 92 og þaðan
stolið miklu verðmæti í
gull-og silfurvörum.
Er áætlað, að verðmæti
þess/ sem stolið var, skipti
hundruðum þúsunda króna,
eða a.m.k. einni millj. að
sögn eigandans, sem ekki
var þó búinn að fullkanna
allar hirzlur. Það voru mest
hringir og armbönd ásamt
skyrtuhnöppum úr gulli og
silfri, sem stolið var, en
einnig öðrum verðmætum
hlutum.
I þessu sama húsi var
einnig brotist inn i bilasöl-
una Bilaval og á lóðinni
fyrir utan stolið lítilli bif-
reið. Hún fannst siðan í
morgun á hvolfi við af-
leggjarann að Korpúlfs-
stöðum og var mikið
skemmd.
11500 seiðum
sleppt í
3 vatnsföll
EB—Reykjavík.
11500 gönguseiðum, aðallega
laxaseiðum, frá Kollafjarðar-
stöðinni verður i sumar sleppt í 5
ár i 3 landsfjórðungum. Eru það
árnar Rimhúsaáll undir Eyja-
fjöllum, Hitará, Stóra-Laxá,
Vatnsdalsá og Tungulækur við
Skaftá.
í vetur voru alls um 300 þús.
seiði i Kollafjaröarstöðinni, þar
af 150 þús. gönguseiði. Þór
Guðjónsson veiðimálastjóri
sagði i viðtali við Timann, að
aldrei fyrr hefði eins mikið verið
af seiðum i laxeldisstöðinni og i
vetur.
goðinn
Okkur þykir tilhlýðilegt að
birta þessa mynd af flórgoðanum,
sem lá á eggjum sinum suöur I
Hafnarfiröi fyrir helgi, um leið og
þing fuglafræöinga er að hefjast
hér á iandi. Nú er sá árstfmi sem
fuglaiif stendur meö hvað
mestum blóma, og hér á landi er
paradís fuglaskoðunarmanna.
Flórgoöinn er farfugl hér á
landi og verpir á grynningum á
sikjum og við tjarnir, gjarnan i
sefi eins og á myndinni
(Timamynd Magnús Magnússon)
KOMU MEÐ 24 ÞUS.
SVARTFUGLSEGG
Piltarnir tveir höfðu það gott eftir sex daga dvöl í Hælavíurbjargi
GS—ísafirði
Snemma i gaer-
morgun komu bátarnir
Bryndis og Reynir til
ísafjarðar með um 24
þúsund svartfuglsegg úr
Hælavikurbjargi, en
söluverð á skyggndu
eggi er 25 kr. Piltarnir
tveir, sem veið höfðu i
sex daga samfleytt á
syllu i bjarginu, komu
hinsvegar ekki til ísa-
fjarðar, þvi þeir fóru á
Hornbæina, þar sem
þeir ætla að halda til
þar til farið verður i
seinna sigið i
Hælavikurbjarg.
Á föstudaginn geröi bezta
veröur við Hælavikurbjarg, og
gátu bátarnir þvi komist upp
undir bjargiö, en eggin voru látin
slga niður I bátana. Þeir
Brynjólfur Óskarsson og
Sigurður Magnússon, sem veriö
höfðu i bjarginu i eina sex daga,
höfðu þaö ágætt á syllunni þar
sem þeir héldu til. Syllan sem
þeir voru á, er um 240 metra niður
I bjarginu og um tvö hundruö
metra löng. Þar er mikið af fugli,
og tindu þeir eggin frá fuglinum
um leiðog fuglinn verpti. Eru þvi
eggin sem komið var meö til Isa-
fjarðar ný og góð.
30 þúsund
króna verð-
laun á
Hellumótinu
KJ — ReykjaVik
A Fjóröungsmóti sunnlenzkra
hestamanná,sem fram fer á Hellu
um mánaöamótin Júni — júli i
sumar, verða veitt hæstu
peningaverðlaun, sem veitt hafa
veriö á hestamannamóti
hérlendis. Sigurvegarar i 250
metra skeiði og 2000 metra hlaupi
fá 30 þúsund krónur i verölaun, og
, auk þess fá þeir gullhúðaða
silfurpeninga, en slikir peningar
voru veittir I fyrsta skipti á kapp-
reiöum Fáks i vor.
Búizt er viö mikilli þátttöku á
Fjórðungsmótinu, en
skrásetningu hesta lýkur 15. júni
n.k. Brautirnar á skeiðvellinum
viö Hellu hafa verið lagöar leir-
blönduðum vikri, og viröist sem
það nýmæii ætli að gefast vel.
Flugvél McGoverns
nauðlenti vegna
sprengjuhótunar
NTB-Pittsburg
Fjórir sjón varpsmenn
meiddust á föstudag, er flugvél,
sem George McGovern, forseta-
frambjóðandi var farþegi i,nauð-
lenti á flugvellinum I Pittsburg,
vegna sprengjubótunar.
McGovern sakaöi ekki.
Vélin, sem var af geröinni
Boeing 737, var á leið frá New
York til Oklahomaborgar. Auk
McGoverns voru 30 aörir far-
þegar um borð. Hringt var til
flugfélagsins United Airlines og
sagt,að sprengja væri i vélinni.
Flugstjórinn fékk skipun um aö
nauðlenda i Pittsburg, þar sem
vélinni var siöan ekið út I horn á
vellinum og farþegar látnir renna
sér út um neyöarrennibrautirnar.
Þá var það aö fréttamennirnir
meiddust, er þeir skullu illa niður
á asfaltið. Engin sprengja fannst i
vélinni.
GEYSIR SKVETTI
ÚR SÉR
KJ—Reykjavík
Geysir skvetti úr sér I gær, eftir
að vatni hafði veriö hleypt úr
skálinni. Engin sápa var notuö til
að koma gosinu af stað, en
hlýviðriö sem verið hefur að
undanförnu, hefur greinilega
haft örfandi áhrif á þennan
frægast goshver f heimi.
Fyrripartinn i vor hefur
hverinn öðru hvoru skvett úr sér,
án þess að nokkur sápa væri látin
i hverinn, og viröist af þessu sem
Geysir gamli sé eitthvað að lifna
við.
Til stendur aö setja sápu I
hverinn á næstunni, en i fyrra-
sumar, gaus Geysir öðru hvoru,
eftir að sápa haföi veriö sett i
hverinn.
Gosin sem komið hafa að
undanförnu, likjast ekki þeim
gosum sem ferðamönnum eru
sýndar myndir af, þvi vatniö
hefur aöeins farið vel upp fyrir
skálarbarminn á hvernum.
HEFUR FJALLFINKA
NUMIÐ LAND í
BÆJASTAÐASKÓGI ?
Hvergi á landinu ber fáséða
fugla, svokallaöa flækinga, eins
oft fyrir augu og i Austur-Skafta-
fellssýslu. Á hverju einasta ári
kemur þangað meira eða minna
af útlendum fuglum, mest-
megnis evrópskum, en þó einnig
ameriskum i bland. Kveður mest
að þessu á haustin, en það er þvi
háð, hvernig vindum er háttað á
hafinu, hversu mikil brögð eru að
komum þessara fugla.
Slangur af sjaldhittum fuglum
er þar þó einnig á vorin og
sumrin, og er ýmist vitað eða lik-'
legt, að sumir þeirra verpi þar
Sigurður Björnsson á
Kviskerjum skýrði Timanum frá
þvi i gær, aö hann teldi miklar
likur til þess, að fjallfinka hefði
orpið i Bæjarstaðaskógi undan-
farin ár, þótt ekki hefði heppnazt
að finna hreiður hennar, og i vor
hefur fjallfinku einnig brugðiö
fyrir þar inn frá.
Erfitt væri aö komast að raun
um, hversu margir fuglar þess-
arar tegundar héldu sig i skóg-
inum, þvi að sjaldan sæist nema
einn i einu. Væri hugsanlegt aö
sömu fuglarnir sæjust aftur og
aftur, en samt gæti veriö, að
fáeinir fuglar af þessari tegund
héldu sig þarna.
Hringdúfur tvær sáust á Kvi-
skerjum á dögunum og stað-
næmdust þar nokkuð. Sannað er,
að þær urpu eitt áriö i Svinafelli,
þvi að þær sáust þar með unga.
Þær munu einnig hafa orpiö þar
árið eftir, en varpið mistekizt aö
þvi sinni.
Svala hefur einu sinni orpið i
Svinafelli, og nú i ár hefur ein-
mitt talsvert borið á svölum,
bæði landsvölum og bæjar-
svölum. I vetur var mikið um
vepjur i öræfum og þar um slóðir,
en Sigurður sagðist búast við, aö
þær hefðu allar fariö burt. Þeirra
hefur ekki orðið vart i vor.
Annars hafa vepjur komið upp
ungum austur á Mýrum,en ekki
verður með neinni vissu sagt, að
þeir hafi nokkru sinni orpiö i
öræíum. Þess er þó að gæta, aö
ekki er mikið á hreiðrum
vepjunnar. —J.H.