Tíminn - 14.06.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 14.06.1972, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Miövikudagur 14. júni 1972. Reynir þjálfar ísfirðinga Umsjón: Alfreð Þorsteinsson Landsmót UMFÍ verður haldið í Borgarfirði árið 1974 - samþykkt að taka skák þá inn í stigareikning iandsmótsins A myndinni hér fyrir ofan.sem Ijósmyndari Timans Kóbert tók, sést óli blaöasali, viröa fyrir sér hina ýmsu gripi sem eru til sölu. Nú þarf ekki að fara til Múnchen til að eignast minjagripi um Olympíuleikana - það er hægt að fá þá í Aðalstræti 16 Nú geta þeir sem ekki komast á Olympiuleikana i Mffnchen i sum- ar, komið i Aðalstræti 16 (Eymundssonar húsinu) og keypt sér minjagripi um Olympiuleik- ana. Hefur OL nefnd Islands komið sér þar upp verzlun, sem selur minjagripi. A boðstólum eru margir fagrir munir, sem erfitt er að lýsa i stuttu máli. En sjón er sögu rikari og vil ég benda þeim, sem hal'a áhuga á að næla sér i minjagripi, að hafa hraðann á, ef þeir ætla að ná sér i fagra gripi þvi að það má búast við þvi, að hinir l'ögru gripir seljist fljótlega upp. 'l'ildrögin að verzlun þessari, eru þau, að þýzka OL-nefndin, sendi þeirri islenzku minjagripi lyrir þá, sem hafa áhuga á að eignast minjagripi um OL-leik- ana i Múnchen, en komast þangað ekki til aö fá sér þá. SOS. 18. Sambandsráðsfundur UMFl var haldinn i Hótel Akranesi laugardaginn 3. júni og hófst fundurinn kl. 9. árdegis. A fundinum mættu fulltrúar frá flestum héraðssamböndum landsins auk stjórnar og starfs- manna UMFl. Gestir fundarins voru, Uorsteinn Einarsson. iþróttafulltrúi, Daniel Ágústinus- son, Reynir Karlsson, æskulýðs- fulltrúi rikisins, og Gylfi tsaksson bæjarstjóri. Aðalverkefni fundarins var að ganga frá reglugerð um 15. Landsmót UMFÍ, sem haldið verður i Borgarfirði árið 1974. Keglugerðir landsmótanna eru viðamiklar, og stöðugt þarf að endurhæfa þær nýjum tima og að- stæðum, enda vaxa mótin sifellt hvað snertir þátttakendafjölda og keppnisgreinar. Fundurinn sam- þykkti að lokum reglugerð, sem felur i sér nokkra lengingu á Landsmótunum frá þvi sem áður hefur verið, þannig að 15. Lands- mótið mun hefjast um miðjan föstudag og ljúka á sunnudags- Vilhjálmur og Erlendur á 100 manna skránni ÖE—Reykjavik. Nýlega kom út afrekaskrá allra tima i frjálsum iþróttum eftir ltalann Roberto Quercetani, 100 beztu i hverri grein. 1 þessari miklu skrá er að finna tvo islenzka frjálsiþróttamenn, þá Vilhjálm Einarsson, sem er i 22. sæti i þristökki með 16,70 metra, og Erlend Valdimarsson, sem 74. i kringlukasti með 60,06 m. kvöldi, nokkuð var fjölgað grein- um mótsins einkum i sundgrein- um og einnig var samþykkt að taka skák nú inn i stigareikning landsmótsins. Annað verkefni fundarins var að fjalla um félags og fræðslumál UMFÍ,en þau mál eru nú i endur- skoðun hjá samtökunum, en UMFÍ hefur nú starfrækt Félags- málaskóla um 3ja ára skeið með góðum árangri. Var fundurinn sammála um að taka þennan þátt föstum tökum i framtiðinni og stórauka fræðslustarfsemi sam- takanna, bæði hvað við kemur leiðbeinendur i iþróttum og fé- lagsmálum. Á fundinum voru þeir Þorsteinn Einarsson, og Daniel Ágústinus- son sæmdir Gullmerki UMFl fyrir mikil og góð störf i þágu Ungmennafélaganna um langt árabil. Ungmennafélagið Skipaskagi var gestgjafi fundarins og var að- staða öll og fyrirgreiðsla á Akra- nesi til mikillar fyrirmyndar. Hótel Akranes bauð fundar- mönnum til glæsilegs hádegis- verðar, Umf. Skipaskagi bauð til kaffi drykkju og bæjarstjórn Akraneskaupstaðar bauð fulltrú- um til skoðunarferðar um Akranes, þar sem skoðuð var iþróttaaðstaða og ýmsar menningar og félagsstofnanir á staðnum, þvi næst var snæddur kvöldverður i boði bæjarstjórnar- innar, þar sem Þorvaldur Þor- valdsson forseti bæjarstjórnar- innar flutti ágrip af sögu staðar- ins. Að lokum þágu Ungmenna- félagar kvöldkaffi i boði Daniels Ágústinusarsonar og konu hans. Fundur þessi þótti takast hið bezta, var bæði árangursrikur og ánægjulegur, og færir UMFÍ Akurnesingum hinar beztu þakkir fyrir móttökurnar. Daniel Ágústinusson Austurriki sigraði Sviþjóð i undankeppni HM i knattspyrnu með 2:0 i Vin i gær. í landskeppni B-liðs A-Þjóð- verja og Búlgara sigruðu þeir fyrrnefndu með yfirburðum 144 stigum gegn 57. Siebeck hljóp 110 m grind á 13,5 sek. Shcenke hljóp 200 m á 20,7 sek og Fachse kastaði sleggju 73,14 m. Hver hefur áhuga á að taka þátt í Bláskóga- Skokkinu 2. júlí þáttökutilkynningar þurfa að berast Reynir Karlsson, hinn gamalkunni knattspyrnu- maður og þjállari úr Fram, mun þjálfa 2. deildarlið lsfirðinga næsta mánuð. tsfirðingar, sem hafa verið þjálfaralausir um tima, leituðu til Reynis og báðu hann að koma vestur til að kenna og þjálfa knattspyrnu. Ekki er að efa, að Reynir komilifii knattspyrnumenn á lsafirði, þennan stutta tima, sem hann dvelur þar við þjálfun. sos. Trimmnefnd Héraðssambands- ins Skarphéðins efnir til móts fyr- ir almenning sunnudaginn 2. júli n.k. og hefur það hlotið nafnið Bláskóga-Skokk, en aö fornu var svæðið i kringum Þingvallavatn nefnt Bláskógar. Leiðin, sem skokkað verður, er nánar tiltekið sú, sem i daglegu tali er nefnd Lyngdalsheiði. Lagt verður af stað Þingvallamegin og endað að Laugarvatni. (Sjá meðf. kort.) Varla gefur að lita fegurri og sögufrægari göngu- eða hlaupaleið. Vegalengdin er 16.8 km. fyrir 25. júní Fólki er i sjálfsvald setl, hvort það gengur eða hleypur eða hvorutveggja, en vegalengdina verður að fara á 3 klst. eða skemmri tima. Allir þátttakendur munu fá sérstakt heiðursskjal og auk þess munu hinir 3 fyrstu i hverjum aldursflokki hljóta sér- stök verðlaun. Þátttakendum verður skipt i flokka eftir aldri sem hér segir: A. flokkur 14—15 ára B. flokkur 16—18 ára C. flokkur 19—34 ára D. flokkur 35 ára og eldri. öllum er heimil þátttaka, kon- um og körlum, innlendum og út- lendum. Þetta verður fyrsta mót sinnar tegundar hér á landi, en viða er- lendis eru þau afar vinsæl og þátttaka mikil. Almennur áhugi fyrir útivist og hreyfingu, sam- hliða ekki of erfiðu viðfangsefni, gera það að verkum, að fjöldinn getur verið með. Á leiöinni verða staðsettir bilar eða tjöld, þar sem þátttakendur geta fengið sér hressingu, ef þeir vilja. Við endastöðina að Laugar- vatni geta svo allir farið i gufubað og sund. Það er ætlun Trimmnefndar HSK, að Bláskógaskokkið verði árlegur viðburöur. Þátttökutilkynningar þurfa að berast simleiðir eða bréflega fyr- ir 25. júni til Brynleifs Stein- grimssonar læknis, Selfossi eða Leifs österby, Selfossi. Einnig má tilkynna þátttöku til skrifstofu ISÍ. i Laugardal, Reykjavik.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.