Tíminn - 14.06.1972, Qupperneq 20

Tíminn - 14.06.1972, Qupperneq 20
1 ,Frelsisbarátta er ekki skaðleg umhverfinu” - segja fulltrúar Kína á umhverfisráðstefnunni NTB—Stokkhólmi Kina leikur nú eitt aöalhlut- verkið á um h verfisráö- stefnúnni i Stokkhólmi, eins og menn hafa raunar lengi átt von á. Klnverjarnir hafa komiö meö hraöa gagnrýni og jafnvel árásir á Bandarikin. Auk þess hafa þeir sett fram ótal brcytingartillögur viö hina sameiginlegu yfir- lýsingu. sem ætlunin er aö gcfin veröi út frá ráðstcfn- unni. Ukur eru þvi til aö eitt- hvaö dragist, aö yfirlýsingin sjái dagsins Ijós. Sérfræöingar hafa undrazt hvað Bandarikjamenn svöruðu ásökunum Kinverja litið. Þeir hafa aðeins sagt, að það sé leitt, að Kinverjar dragi inn i umræðurnar mál, sem ekki séu á dagskrá ráð- stefnunnar. Vissir menn vilja álita, að Kinverjar séu að þessum útúr- dúrum til að vekja athygli á sér, en annarsstaðar er látinn i ljós uggur um.að Kinverjar hafi uppi áætlanir um að eyði- leggja ráðstefnuna. í fyrradag léku Kinverjar- nir nýjan leik innan þeirrar nefndar, sem að þeirra ósk var sett á laggirnar til að endurskoða sameiginlegu yfirlýsinguna. Allt átti þar að gerast fyrir lokuðum dyrum, en ekki leið á löngu, unz fréttin barst út, þvi að það voru einungis Kinverjarnir, sem héldu þagnarloforðið. Þeir höfðu sem sagt viljað láta setja I yfirlýsinguna setningar eins og: „Einkaauö- valdshyggjan og heimsvalda- sinnuð nýlendustefna stór- veldanna á sök á eyðileggingu umhverfisins” og „frelsis- barátta er ekki skaðleg um- hverfinu”. Alls lögðu fulltrúar Kina i nefndinni fram tiu breytinga- tillögur við yfirlýsinguna og samkvæmt góðum heimildum voru ýmsar þeirra a 11 umfangsmiklar. Þar að auki var svo það, að tillögurnar voru ekki lagðar fram fyrr en mörgum klukkustundum eftir að fresturinn var útrunninn. Kinverska fulltrúanum var vinsamlegast bent á þetta, en svaraði aðeins kurteislega, að land hans væri fúst til að halda áfram viðræðum um texta yfirlýsingarinnar. Umræðurnar i nefndinni stóðu fram yfir miðnætti i fyrrinótt og lýkur trúlega ekki fyrr en siöari hluta dags i dag. Alls komu fram 45 breyt- ingartillögur við textann. Seint i fyrrakvöld lauk framsöguræðum hinna 114' sendinefndaformanna og i gær hófst næsti áfangi ráð- stefnunnar, meðhöndlun mála, sem samþykkt hafa verið. Sænskir Vietnam-hópar boðuðu til mikilla mótmæla- aðgerða i Stokkhólmi i gær- kvöldi og var búizt við, að þúsundir manna tækju þátt i þeim. Óttazt var, að til átaka kynni að koma við lögregluna. Svart: Reykjavik: Torfi Stefánsson og Kristján Guð- mundsson. ABCDEFQH 00 •4 0» a H Hvltt: Akureyri: Sveinbjörn Sigurðssonog Hólmgrimur Heiðreksson. 25. leikur Reykvikinga: He6+e4 Frank Sinatra finnst hvergi - átti að koma til yfirheyrslu um Mafíuna SB—Rcykjavik Söngvarinn frægi, Krank Sinatra viröist vera horfinn spor- laust. Hann átti aö koma til vfir- heyrslu hjá bandariskri þing- nefnd fyrir hclgina, cn kom ckki og fannst hvcrgi, þegar fariö var aö lcita hans. Yfirheyrslan var um samband það, sem Sinatra er sagöur hafa viö Mafiuna. Sinatra flaug til London fyrr i vikunni og bjó þar á hóteli, er hann á sjálfur. Þaðan var hann farinn og enginn vissi hvert. Einkum var það starf Sinatra, sem varaforseti veðhlaupabraut- ar i Massachusetts, þar sem vitað er, að Mafian starfrækti mikia svikamyllu i formi veðbanka. ÞegarSinatra kom ekki, hótaði formaður þingnefndarinnar að láta senda út áhrifameiri innköll- un, sem getur leitt til þess, að Sinatra verði eftirlýstur af FBI. Sérfræðingar telja, að innkallanir Listahátíðin: Einleikstónleikar André A listuhátiö i kvöld leikur bandariski pianóieikarinn André Watts á einleikstónleikum I Há- skólabiói klukkan 20.30. i Austur- bæjarbiói eru fjórðu og siðustu kammertónleikarnir, flutt verk eftir Jón Leifs, Seiber og Beet- hoven og i Iðnó sýnir Leikfélag Reykjavikur „Leikhúsálfana" i 3. sinn. Það var i febrúar 1963, sem André Watts vakti fyrst heimsat- hygli. Hann var á sautjánda ári, þegar Leonard Bernstein kynnti hann fyrir sjónvarpsáhorfendum á „Tónleikum unga fólksins”. Leikur hans vakti þvilika athygli, að nokkrum dögum siðar var hann beðinn um að hlaupa i skarðið fyrir Glenn Gould, sem veiktist skyndilega, á áskriftar- tónleikum New York Philharmonic Orchestra. „Æðis- gengnasta lófatak ársins”, sagði eitt stórblaðið i frétt sinni af þeim tónleikum. André Watts hélt ótrauður áfram háskólanámi sinu, þrátt fyrir þennan skjóta frama. Hann leyfði sér aðeins stuttar tónleikaferðir, fyrst til Lundúna i júni 1966 til að leika með London Symphoný Watts Orchestra og ári siðar til Berlinar til að leika með Filharmóniu- hljómsveitinni þar. „Hann sigraði Berlinarbúa með gáfu sinni og yfirþyrmandi krafti” sagöi Der Telegraf. Skömmu sið- ar hófst einstök sigurganga i Paris — „fágætur virtúós" sagði Paris-Presse — um MOnchen, Milano, Aþenu ogTeheran. Henni lauk i New York, þar sem Harold Schonberg skrifaði i New York Times: „Hann hefur þroskazt i rétta átt, brætt saman tækni og gáfur. Þessi flutningur i B-dúr konsert Brahms skipaði Watts i flokk úrvals pianósnillinga vorra daga”. Þennan sama konsert mun Watts leika á lokatónleikum Listahátiðar i Reykjavik i Laugardalshöllinni. Nú hófust reglulegar tónleika- ferðir André Watts. Hann lék með öllum fremstu hljómsveitum Bandarikjanna við þvilikar und- irtektir, að það var gert að um- talsefni i leiðara New York Times. Það var ekki aðeins svo, að miðar seldust upp mörgum vikum fyrir tónleika hans, heldur varð CBS-sjónvarpið að endur- taka „Franz Liszt-sjónvarpstón- í kvöld leika" hans vegna áskorana. Það var þvi engin tilviljun, að Nixon Bandarikjaforseti valdi André Watts til að leika fyrir gesti sina, þegar hann tók við embætti i janúar 1969. Tónleikaferðirnar verða sifellt lengri og lengri meö ári hverju. Viðbrögð áhreyrendanna og gagnrýnendanna eru lika á einn veg: „Á 22. ári er Watts þegar kominn i hóp risanna” sagði gagnrýnandi Le Figaro i Paris. 1 Siiddeutsche Zeitung sagði tón- listargagnrýnandinn fyrir rúmu ári: „Ég á engin orö! Það er alveg ótrúlegt, að 22 ára maöur skuli þegar hafa náð hinum mestu snilldartökum”. Nú er svo komið, að tónleikahaldarar um viða ver- öld hafa pantað tónleika hjá Watts tvö ár fram i timann. Það er þvi hin mesta heppni, að gest- um Listahátiðar i Reykjavik gef- ast tvenn tækifæri til að heyra André Watts — fyrst á einleiks- tónleikum, þar sem hann leikur m.a. Schubert og Liszt og siðan með Sinfóniuhljómsveit íslands undir stjórn André Previn, þar sem hann leikur annan pianókon- sert Brahms. Dame Margot Fonteyn de Arias á sviöinu, frægasta ballettdansmær I heimi. Frægasta dansmær í heimi: Fonteyn ÓV—Rcykjavik Frægasta ballettdansmær i heimi, Margot Fonteyn, kemur til islands siöar i þessum mánuöi og dansar á tveimur sýningum i Þjóöieikhúsinu, 27. og 28. júni næstkoinandi. Miöasala hefst viku áður, eöa þann 20. júni klukkan 13.15. Guðlaugur Rósinkranz, þjóð- leikhússtjóri skýrði frá þessu á fundi með fréttamönnum i gær. Sagði Þjóðleikhússtjóri, að hingað hefði fyrir skömmu komið einn af forráðamönnum American Impressarie, umboðs- fyrirtækis Fonteyns, og hefði kemur hann boðið Þjóðleikhúsinu að Margot Fonteyn dansaði hér, er hún færi frá Bandarikjunum til Evrópu siðar i þessum mánuði. Þjóðleikhússtjóri sagðist hafa tekið boðinu, og er umboðs- maðurinn kom aftur frá Kaup- mannahöfn, þar sem hann ræddi við ballerinuna, var hann með tilboð upp á vasann. — Og við sömdum, sagði Þjóöleikhússtjóri. Ungfrú Fonteyn kemur með hóp dansara og hljómlistar- manna með sér hingað til lands. Mótdansari hennar sjálfrar er þekktur dansari frá Vinaróper- Framhald á bls. 19 Myrti þrjá unglinga - sem tjölduðu á landareign hans NTB—Helsingfors Þrír ungir piltar voru fyr- ir mánuði skotnir til bana, er þeir sváfu i tjaldi sínu viö vatn eitt í Finnlandi. 32 ára óöalseigandi þar í ná- grenninu hefur nú játað að hafa skotið unglingana með köldu blóði, vegna þess að honum líkaði ekki, að þeir skyldu tjalda á landareign sinni. Kvaðst óðalseigandinn hafa fengið sér gönguferð um nóttina niður að vatninu og þá kom ég auga á tjaldið. Hann var með 9 mm Colt-skammbyssu og skaut piltana hvern af öðrum, þar sem þeir sváfu. Þeir voru 14, 17 og 18 ára, tveir þeir yngri voru bræður. Eftir verknaðinn fór óðalseigandinn heim og sofnaði. Hann var strax grunaður, er likin fundust, en ekki voru fyrir hendi nægar sannanir gegn honum fyrr en nú nýlega, er hann var hand- tekinn og játaði. til yfirheyrslu hjá þingnefnd geti aldrei orðið nægileg ástæða til að maður verði framseldur frá öðru landi og getur þvi Sinatra fengið að vera i friði, ef hann kýs að búa i útlegð. Ekki er þó talið, að svo verði, þvi Siriatra á marga hátt- setta vini i Bandarikjunum, m.a. Spiro Agnew, varaforseta.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.