Tíminn - 17.06.1972, Blaðsíða 3
Laugardagur 17. júni 1972.
TÍMINN
3
„Landhelgisgæzlan getur ekki
tekið við störfum varnarliðsins”
- nema að mjög takmörkuðu leyti, sagði Luns í gær
ÓV—Rey kjavik
Jósep Luns, framkvæindastjóri
NATO, sagði á fundi með frétta-
mönnum i gærmorgun, að það
væri sin einlæga ósk, að islenzk
stjórnvöid létu ekki verða af þvi
að láta „varnarliðið” i Keflavik
fara fyrir árið 1974. Myndi það
raska mjög valdajafnvæginu i
Evrópu og gera öllum erfiðara
fyrir að halda friðinn iheiminum,
þar sem island væri hernaðar-
lega mjög mikilvægt, sérstaklega
með tilliti til landfræðilegrar af-
stöðu.
Luns sagði, að umsvif Sovét-
manna á Atlantshafi — svo og á
Miðjarðarhafi — ykjust stöðugt
og nefndi hann ýmsar tölur i þvi
sambandi, svo allir mættu sann-
færast. — Vegna þessara vaxandi
umsvifa, sagði framkvæmda-
stjóri NATO, — þá fer þörfin fyrir
loftherstöð hér vaxandi.
Jósep Luns sagði ennfremur,
að á fundum sinum viö islenzka
ráðamenn, hefði hann verið
fræddur um afstöðu Islendinga i
landhelgismálinu — i þvi gæti
hann að sjálfsögðu ekkert gert —
eins hefðu verið rædd öryggismál
Evrópu og herstöðvarmálið. —
Enn hefur ekkert verið endanlega
ákveðið um öryggismálaráð-
stefnu Evrópu, sagði fram-
kvæmdastjórinn, en auðvitað
Luns á blaðamannafundinum i
gær.
(Timamynd G.E.)
vonast allir til, að hún verði hald-
in og að hún verði til þess að
draga mjög úr spennu.
Luns var að þvi spurður, hvort
vera Grikklands og Portúgals i
NATO væri réttlætanleg og svar-
aði hann þvi til, að engum likaði
stjórnarfarið i löndunum, en
NATO væri engin „Brésnef-kenn-
ing”. NATO væri ekki ætlað að
koma á einhverju ákveðnu þjóö-
skipulagi i rikjum meðlimaland-
anna, en Grikkland og Portúgal
væri mjög mikilvæg frá
hernaðarsjónarmiði og innan
NATO rikti enginn ágreiningur
um verulandanna i samtökunum.
Undir lok fundarins, sem var
heldur stuttur, var framkvæmda-
stjórinn að þvi spurður, hvort is-
lenzka landhelgisgæzlan gæti
ekki tekið við störfum varnarliðs-
ins, en þvi svaraði hann á þann
veg, að svo gæti ekki orðið nema
að mjög takmörkuðu leyti.
Luns fer héðan i dag og óskaði
Islendingum til hamingju meö
daginn.
Hafnfirzkir mál-
ararsýnaverk sín
i tilefni dagsins verður haldin
sýning á verkum hafnfirzkra
málari i Iðnskólahúsinu. Þar
sýna 9 málarar og verður
sýningin opin i dag frá kl. 16,00
til 22,00 og á morgun frá kl. 14,00
til 22,00
Þeir, sem þarna sýna eru:
Bjarni Jónsson, Eirikur Smith,
Gunnar Hjaltason, Gunnlaugur
S. Gislason, Jón Gunnarsson,
Jónas Guðvarðarson, Pétur
Friðrik, Sigurbjörn Kristinsson
og Sveinn Björnsson.
Smásöluálagning hækkar
en heildsöluálagning ekki
KJ — Reykjavik
Verðlagsnefnd samþykkti á
fundi sínum i gærmorgun að heim
ila hækkun á álagningu i smá
solu, en engin hækkun hefur verið
leyfð á álagningu i heildsölu.
Þessi hækkun á álagningu sam-
svarar 0,8 — 2,5% hækkun á vöru-
verði, og fer það eftir þvi, hvaða
vörutegundir er um að ræða.
Fjórir fulltrúar launþega greiddu
atkvæði á móti hækkun á álagn-
ingu.
Almennt var heimilað, að
hámarksálagning hækki um 6%,
en 10% hækkun var heimiluð á
matvörum, nýlenduvörum og
skófatnaði. Vörur, sem sex-
mannanefnd ákveður verðlag á,
falla ekki undir þessar ákvarð-
anir.
Talið er, að meðalálagning á
matvörup hækki almennt úr 15% i
15,9% og hæst i 16,5.
Smásöluálagning á ýmsum
búsáhöldum og járnvörum
hækkar úr 29.8% i 31.6% á timbri
úr 27.4% i 29% á ávöxtum úr 41% i
45.1%.
Sprottin af öðru en
sameiningarvilja
Nýtt land, sem kom út i gær,
svarar Alþýöublaöinu fullum
hálsi um sameiningarmálin. t
upphafi forustugreinar blaös-
ins segir á þessa leiö:
„Undanfariö hafa alþýöu-
flokksmenn i ræðu og riti tön-
last á sameiningu viö Samtök
frjálslyndra og vinstri manna.
í eldhúsdagsumræðum frá
Alþingi kvörtuöu þeir undan
scinagangi i viðræöum við sig.
i blaöi þeirra 24. og 25. f.m.
heldur þessi kvartsára rödd
áfram aö glymja. Ekki er aö
lasta aö málinu sé haldiö vak-
andi. En ástæða er til aö
minna á, aö það var fyrir at-
beina Samtaka Frjálslyndra
og vinstri manna aö Alþýðu-
flokknum var boöin aöild aö
myndun núverandi rikis-
stjórnar, sem þcir þáöu ekki,
og veröur sú blygðunarsemi
Alþýöuflokksins ekki skrifuö á
reikning samtakanna. Sú neit-
un og önnur framkoma
alþýöuflokksmanna á siöasta
þingi veröur þvi ekki til þess
aö örva þessar viðræöur eöa
til þess aö gera þær trúverö-
ugar i augum almennings. Sá
eftirrekstur sem nú er geröur i
þessu efni hlýtur þvi aö vera
af öörum toga spunninn en
beinum sameiningarvilja.”
Hver mundi trúa slíku?
Nýtt land segir ennfremur:
„Formaöur Samtakanna,
llannibal Valdimarsson, lýsti
því réttilega á siöasta stjórn-
arfundi þcirra, hvernig kjós-
cndur heföu verið blekktir i
siöustu kosningum, þar sem
áróöur hinna flokkanna heföi
fyrst og fremst beinst aö þvi
aö telja fólki trú um þaö, að
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna væri ekki neitt i neinu,
þau fengju engan mann kosin
á þing, öll atkvæði þeim
grcidd féllu dauð niöur. Sam-
tökin ættu þvi mun meira fylgi
en i Ijós hefði komið i kosning-
unum. Hafi alþýðuflokksmenn
komizt aö svipaðri niöurstöðu,
þó ekki sé hún látin uppi, þá
getur maöur fariö aö skilja
þessa bráðu nöltsótt, sem
gripið hefur um sig i herbúö-
um þcirra. Nú er bezt að segja
þaö eins og það er, aö þaö eru
kannski sizt af öllu þessir
menn, sem fyrir þessu jarmi
standa, sem marga innan
Samtakanna langar aö sam-
einast. Og þótt sá atburöur
geröist einhvern daginn aö
þeir settust niður og undirrit-
uðu einhverja klásúlu þess
efnis, aö nú væri stundin kom-
in, þcir reiöubúnir. Hver
mundi trúa sliku? Mennirnir
sem staöið hafa i þvi á undan-
förnum árum aö sundra póli-
tiskri samstööu þess fólks,
sem sömu hagsmuna á aö
gæta.”
Pólitisk refskák
Loks segir Nýtt land:
„Veröi um sameiningu aö
ræöa hlýtur hún aö gerast
annars staöar en viö samn-
ingaborö þessara manna. Hún
gcrist einfaldlega I huga hvers
og eins hvar sem hann er til
sjávar eöa svcita. Menn trúa
ckki þessu sifellda rausi um
sameiningarviija mannanna,
sem slaöiö hafa á undanförn-
um árum i endalausu valda-
brölti og látið lönd og leiö
hagsmuni þeirra, sem þeir
þykjast vera aö berjast fyrir.
Teflt þrotlaust sina pólitisku
refskák, og ekki er óliklegt, aö
þcssir tilburöir séu einn leik-
urinn í henni.
Manni liggur viö aö óska
þcss aö þeir vildu gjöra svo vel
og láta fólkiö i friöi svo þaö fái,
frjálst og óhindrað aö taka
sinar ákvaröanir.”
Fróölcgt veröur aö sjá,
hvernig Alþýöublaöiö bregst
viöþcssu. Þ.Þ.
UTANLANDSFERÐIR VIÐ ALLRA HÆFI
LONDON
fra kr. 14.102,-
Bernt þotuflug baðar leiðir. brottfor
vikuiega Inmfalið gistmg og morg-
unverður á fyrsta flokks hbtel. Oll
herbergi með baði og sjónvarpi Ferð-
ir milli hótels og flugvallar og ýmis-
legt fieira Þetta verða vinsælar ferðir
til mjlijonaborgarmnar. Leikhús og
skemmtanalif það viðfrægasta i ver
oldinm. en voruhúsin hættulega 1
freistandi.
1
KAUPMANNA-
HÖFN
frá kr. 12.950,-
Brottfor i hverri viku Innifalið beint
þotuflug baðar leiðir. gisting og tvær
máltiðir a dag Eigm skrifstofa Sunnu
i Kaupmannahofn með islenzku
starfsfolki Hægt að vel|a um dvol á
morgum hotelum og fá odýrar fram
haldsíerðir til flestra Evrópulanda
með T,æreborg og Sterling Airwavs.
Nú komast loksms allir ódýrt til Kaup
mannahafnar Allra leiðir liggja til
hmnar glaðværu og skemmtilegu
borgar við sundið
MALLORCA
frá kr. 12.500,-
Beint þotuflug báðar leiðir, eða með
viðkomu i London Brottfor hálfs
mánaóarlega til 15 júni og i hvern
viku eftir það Frjálst val um dvol i
ibúðum i Palma og i baðstrandabæi
unum (Trianon og Granada) eða hin
um 'vmoælu hótelum Anfillas Barba
dos, Playa de Palma. Melia Magaluf I
og fl. Eigin skrifstofa Sunnu i Palma
með islenzku starfsfolki veit»r öryggi
og þjónustu. Mallorka er fjolsottasta i
sólskmsparadis Evrópu.
Fjolskylduafsláttur
COSTA DEL SOL
frá kr. 12.500,-
Brottfor halfsmánaðarlega. og i
hvern viku eftir 27 júli Besnt þutu
flug baðar leiðir eðd með viðdvoi 1
London Sunna hefir samninp urr,
giStirymi a aftirsottum hoteurr ■
Torremolmos (Alay oe Las Paiomasi
og ibuðum luxusibúðunum Playa
mar i Torremolmos og Soficobygg
ingunum Perias og fl i Fuengiroia og
Torremolinos, Islenzkir fararstjorar
Sunnu á Costa del Sol hafa sknfMofu
aðstoðu i Torrcmolinos. þar sem
alltaf er auðvell að ná ti> þéirra. Costa
del Sol er næst fjotsottasta solskms
paradis Evrópu og Sunna getur boð ð
upp á beztu hóte! og ibúóir a hag
kvæmum kjorum
FERflASKRIFSTOFAN SUNNA BANKASTRIETI7
ÝMSAR FERDIR
Nordurlandaferð ISdagar. brotttur
29 juru
Kaupmannahofn Oslo, Pelarnork
Sviþjoó
Kaupmannahofn - Rmarlond
lb dagar, brottfrn 6 juli og 3 águs*
Lkið um Þy/kaland til Rinarlanda
Kaupmannahofn - Rom - Sorrento
21 dagur, brottfor 13 juli,
Vik«i i Kaupmannahofn vika •
Snrrento og viku i Romarborg
Paris - Rmarlond - Sviss
16 dagar, brottfor 20 ágúst
Landið helga - Egyptaland - Libanon
20 dagar brottfor 7 oktober
Kynmð ykkur verð og gæði Sunnu-
ferðanna með aætlunarflugi eða hinu
otrulega odyra leiguflugi SUNNA
gerir ollum kleift að ferðast
Sunna er alþióðleg IATA
ferð«iskrifstofa
1640012070
Fylgizt með ferðaauglýsingum Sunnu í Tímanum á sunnudögum, Yísi á mánudögum
og Alþýðublaðinu og Þjóðviljanum á þriðjudögum og takið þátt í lesendagetraun i lok
mánaðarins, þar sem vinningar eru ókeypis utanlandsferð.