Tíminn - 17.06.1972, Qupperneq 5
Laugardagur 17. júní 1972.
TÍMINN
5
Hjónhætt
komin
í tjaldi
vegna
gasleka
Klp—Reykjavík.
Fullorðin hjón úr Reykjavik
voru hætt komin i tjaldi sinu aust-
ur við Laugarvatn fyrir nokkrum
dögum, þegar leki kom að gaskút,
sem þau höfðu inni hjá sér vfir
nóttina.
Hjónin höfðu notað gaskútinn
fyrr um daginn, og lokaði bóndinn
vcl fyrir hann áður en þau fóru að
sofa. Hann gleymdi þó að setja
hann út fyrir tjaldskörina, eins og
hann var vanur, og hitti þá svo á,
að kúturinn fór að leka með
pakkningu.
Maðurinn vaknaði um kl. S um
morguninn og komst með
naumindum út úr tjaldinu og náði
siðan i konuna. Áttu þau þá bæði
mjög erfitt um andardrátt og var
konan fallin i dásvefn. Hann
komst i næsta tjald og hitti þá svo
vel á, að þar var hjúkrunarkona,
sem vissi hvað átti að gera í þessu
tilfelli. Eflir fyrstu hjálp var náð í
lækni frá Laugarási og kom
hann og gaf fólkinu sprautu og
súrefni. Þau voru síðan flutt i bæ-
inn og lögð inn á sjúkrahús.
Viðræður í
London og
Brussel
Á mánudaginn verða á ný teknar
upp viðræður islenzkra og
brezkra ráðamanna um land-
helgismálið, og munu þær standa
i einn tii tvo daga. Þá hefjast á
mánudaginn i Brussel viðræður
um samninga islands viö Efna-
hagsbandalagið
Maður
drukknar
Það slys varð á miðvikudags-
kvöldið, er togarinn Narfi var að
fara á veiðar frá Reykjavik, að
einn skipverja Aöalsteinn Björn
Hannesson, Grænuhlið 5 i
Reykjavik féll útbyrðis og
drukknaði. Ekki cr nánar vitaö
um tildrög slyssins.
Hátíðahöld í
Mosfellssveit
Þjóðhátiðarnefnd Mosfells-
sveitar efnir til íjölbreyttra
hátiöahalda 17. júni. Farið
verður i skrúðgöngu að hátiða-
svæðinu við Varmá, þar sem séra
Bjarni Sigurðsson predikar við
guðsþjónustu, Oddur Ólafsson
alþingismaður flytur minni
dagsins og Matthildur Jóhanns-
dóttir flytur ávarp fjallkonunnar.
Lúðrasveit drengja leikur og
Telpnadór Varmárskóla
syngur.Þá fiytur Jón M. Guð-
mundsson oddviti ávarp og sömu-
leiðis Páll Magnússon nýstúdent.
Siðan verður sundkeppni og dag-
skrá ætluð yngstu kynslóðinni.
Að lokum veröur handknattleiks-
keppni. Um kvöldið verður dans-
leikur i Fólkvangi á Kjalarnesi,
og þar verða einnig skemmti-
atriði. Strætisvagnaferðir verða
milli Hlégarðs og Fólksvangs.
Dagskrá hátiðarhaldanna i'
Hafnarfirði i dag, verðurmeð liku
sniði og verið hefur undanfarin
ár. Hún hefst kl. 13,13 með skrúð-
göngu til kirkju, þar sem Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson
predikar. Siðan verða skemmti-
atriði óg iþróttasýningar á
Hörðuvöllum og um kvöldið
verður dansað við Bæjarút-
gerðina, þar sem hljómsveitin
Trúbrot leikur fyrir dansi.
Ferðastyrkur til rithöfundar
I fjárlögum fyrir árið 1972 er 85 þús. kr.
fjárveiting handa rithöfundi til dvalar á
Norðurlöndum.
Umsóknir um styrk þennan óskast sendar
stjórn Rithöfundasjóðs Islands, Garða-
stræti 41, fyrir 13. júli 1972. Umsókn fylgi
greinargerð um, hvernig umsækjandi
hyggst verja styrknum.
Reykjavik, 13. júni 1972.
Rithöfundasjóður íslands.
SELJUM ALLAR FAANLEGAR
nauðsynjavörur
KAUPUM HVERS KONAR
framleiðsluvörur
Umboð fyrir Sámvinnutryggingar og Lif-
tryggingafélagið Andvöku.
kaupfélag Króksfjarðar
KRÓKSFJARÐARNESI
Nýjar heyþyrlur frá
Vinnubreiddir: 4,60 og 3,80 metrar.
Nýju Fella heyþyrlunar eru sterkbyggðar og endingar-
góðar. Þærvinna ótrúlega vel á jöfnu sem ójöfnu landi.
Hægt er að skástilla Fella heyþyrlunar þannig að heyið
kastist ekki á girðingar eða í skurði. Það er mjög auðvelt
og létt að setja í flutningsstöðu og fer þá lítið fyrir vél-
unum. Framúrskarandi niðurstöður prófana erlendis og
hjá Bútæknideildinni að Hvanneyri sanna yfirburði nýju
Fella heyþyrlana.
Hafið samband við okkur og kynnisl kostum og
nýjungum Fella heyþyrlanna.
Við bjóðum hagstæð verö og greiðsluskilmála.
'H
F
LÁGM0LI 5, SlMI 81555
Lofum
þeima&Rfá
AlIt á sama Stað Laugavegi 118- Sími 22240
EGILL VILHJÁLMSSON HF
Er hann gangtregur?
Fáóu þér Champion kerti |
SKJALDBÖKUVIÐBRAGÐ?
Hikstar við inngjöf? Seinn í gang? Blessaður fáðu þér ný
CHAMPION kerti og leyfðu honum að sýna hvað hann getur.
Eigum einnig platínur í flestar gerðir bifreiða.