Tíminn - 17.06.1972, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Laugardagur 17. júní 1972.
oum \iiu:
Krókor á oióti bragði
hvað þú hefðir gert i minum spor-
um? Fimm gullpeningar eru lag-
legur skildingur á þessum erfiðu
timum. Maðurinn var lika
áreiðanlegur i greiðslum, og
borgaði alltaf skilvislega, þegar
hann tapaði. Hann snaraðist bak
við tjald, og við skiptum um yfir-
hafnir og höfuðföt. Þvinæst
bjuggum við böggul, sem hafði
aðeins inni að halda nokkur kál-
höfuð og fáeinar gulrætur, og af
stað fór ég. Ég get ekki skilið, að
nokkuö saknæmt sé i þessu. Hér
átti hlut að máli eitthvert erki-
flón, haldinn af óskiljanlegri veð-
sýki, og hafði auðsjáanlega sand
af peningum. Og veðmálið hef ég
unnið heiðariega, ,,hélt Jean
Victor áfram. ,,Nú sný ég heim til
að fá peningana mina. Ef þið
trúið mér ekki, þá komið með til
veitingastofu minnar. Þar munuð
þið finna borgara Hateau, og ég
mun vissulega finna þar mina
fimm gullpeninga lika”.
Chauvelin hafði hlýtt á frásögn
Jean Victors likt og i draumi, og i
drauminum moraöi af púkum og
illum öndum. Tournefort virti
hann fyrir sér, og ógnaði að sjá
þann svip vonleysis og máttvana
reiði, sem færðist yfir andlit
Chauvelins. Hermennirnir hlógu
og skemmtu sér við sögu Jean
Victors, en vildu þó ekki láta hann
lausan. „Hafi Jean Victor sagt
sannleikann áðan,” mælti foringi
þeirra við Chauvelin, „þá munu
nóg vitni vera þarna i „Bon
Copain”. Eigum við að fara
þangað með fangann og biða þar
frekari fyrirskipana?”
Chauvelin gaf samþykki sitt til
kynna með þvi einu að kinka kolli,
eins og leikbrúður gera. Hann
hélt enn á samanbrotna bréf-
miðanum i hendinni, honum fann-
st blaðið brenna hönd sina. Jafn-
vel Tournefort rak nú upp ill-
girnislegan hlátur. Hann hafði
leyst upp böggulinn, sem Jean
Victor kastaði niöur af brúnni.
Hann reyndist hafa að geyma tvö
kálhöfuð og gulrótaknippi.
Tournefort bauð svo hermönnun-
um að halda af stað með fangann,
og héldu þeir leiðar sinnar með
hlátrum og glensi. Brátt
hljóðnuðu fótatök þeirra, og allt
varð kyrrt og hljótt við Signu-
brúna.
Chauvelin stóð enn um stund,
eins og negldur niður, þögull og
hreyfingarlaus, til þess er hann
var viss um að vera aleinn eftir.
Þá braut hann upp miðann með
hönd, sem titraði mjög.
Bréfmiðinn hafði inni að halda
fjórar linur, skrifaðar með
blýanti og i flýti, og litið stjörnu-
merki neöan undir, það voru
sömu, heimskulegu ljóðlinurnar,
sem oft áður höfðu gert honum
gramt i geði, auðmýkt hann og
niðurlægt i allra augum og á allan
hátt:
Menn sjá hana hér og sjá hana
þar,
menn sjá hana nærri allstaðar.
Hvað er hún annars hér að vilja,
sú horngrýtis Rauða akurlilja?”
Chauvelin kreisti blaðið saman
i hönd sér. Hann stundi hátt við,
er hann hljóp af stað yfir brúna,
eins og herskarar illra anda væru
á hælum hans.
VII
Greifafrú de Sucy fór aldrei til
Englands. Hún var ein þeirra
frönsku kvenna, sem vildu frem-
ur búa við fátækt i elskuðu heima-
landi sinu, en lifa i allsnægtum
einhversstaðar erlendis. Hún lifði
af allar ógnir frönsku stjórnar-
byltingarinnar, og i endur-
minningum sinum talar hún um
þennan ókunna mann, Bertin
Hún vissi aldrei hver hann var,
hvaðan hann kom, né hvert hann
fór. Hún vissi aðeins, að hann
kom eins og engill af himnum
sendur, færandi henni holl ráð og
hjálp, þegar öll sund virtust lok-
uð. Ekki virtist annað biða henn-
ar og barna hennar tveggja, en
hungur og vesaldómur. Ókunni
maðurinn átti stefnumót við
greifafrúna á óliklegustu stöðum i
afkimum Parisar. Eitt kvöldið
trúði hún honum fyrir sögunni um
gimsteinaskrin sitt, og hvar það
væri fólgið. Hún dirfðist varla að
vænta þess, að hann fyndi gim-
steinana. Innan sólarhrings kom
hann til hins fátæklega bústaðar
hennar i Itue Blanche, þar sem
hún bjó undir gervinafni ásamt
börnum sinum, og færði henni þá
gimsteinana. Sama kvöldið bað
hún ókunna manninn að verja
gimsteinunum i peninga. Næsta
dag færði hann henni alla upp-
hæðina i reiðu fé.
Ilún sá hann aldrei eftir þann
dag. Borgari Tournefort varð
fyrirslæmum vonbrigðum i þetta
skipti. Hefði hann þorað, þá hefði
hann kært Chauvelin fyrir mistök
og klaufahátt. Auðvitað hefðu
þeir átt að taka Rateau hondum i
veitingastofunni „Bon Copain”.
En i stað þess að vera gripinn
þar, slapp þessi ósvifni þorpari,
og sást aldrei né heyrðist eftir
það, hvorki i „Bon Copain” eða
„Liberté”.
Gestirnir i veitingastofu Jean
Victors staðfestu frásögn hans i
öllum atriðum, þeir sögðu að
Itateau hefði veriö allraheiðar-
legasti karl. Þegar hann hafði
lengi beðið, og Jean Victor var
enn ókominn, gerðist Rateau
óþolinmóður. Hann kvaðst hafa
sérstakt starf að inna af hendi
fyrir stjórnina, hinum megin
Ermasundsins, og kvað ekki
duga að fresta þvi. En áður en
hann fór lagði hann hina fimm
gullpengina Victors á borðið.
Allir furðuðu sig á, að svona litil-
fjörlegurverkamaður haföi svona
mikla peninga i vösum sinum og
virtist alls ekki spar á þá. En á
þessum timum var ekki spurt
mjög nákvæmlega eftir þvi,
hvaðan góðum borgara og
ættjarðarvini kæmu peningar,
sizt, ef hann var ósinzkur á þá.
Og borgari Rateau var áreiðan-
lega góður ættjarðarvinur og
bezti karl að auki.
Þeir drukku allir minni hans i
súra vininu hans Jean Victors.
Siðan fór hver til sins heima.
(Endir)
Laugardagur 17. júni
Þjóðhátiðardagur
íslendinga.
8.00 Morgunbæn.Séra Þorsteinn
B. Gislason fyrrum prófastur
flytur.
8.10 tslenzk ættjarðarlög.
9.15 „Völuspá”, tónverk eftir
David Monrad Johansen.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Frá þjóðhátfð í Reykja-
vik.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 óskalög sjúklinga.
14.30 Þingvallaþátturi umsjón
Jökuls Jakobssonar. Rætt
við Eystein Jónsson for-
mann Þingvallanefndar og
séra Eirik J. Eiriksson
þjóðgarðsvörð.
15.25 Miðdegistónleikar:
16.15 Veðurfregnir Ungt
listafólk.
16.45 Barnatimi:
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Hornin gjalla.
18.30 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Beint útvarp úr Matt-
hildi.
19.45 Aiþingishátiðarkantata
Páls tsólfssonar.
20.30 „Skyldi manninum ekki
leiðast að láta krossfesta
sig?”Dagskrá frá listahátið
21.45 Fornir dansar, hljóm-
sveitarverk eftir Jón
Ásgeirsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Útvarpað frá útidansleikjum í
götum Reykjavikur og leik-
in danslög af hljómplötum.
02.00 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR 18. júní
8.00 Morgunandakt. Biskup
íslands flytur ritningarorð
og bæn.
10.25 Loft, láð og lögur.
. 10.45 islenzk einsöngslög.
Kristinn Hallsson syngur
11.00 Messa i Húsavikur-
kirkju. (Hljóðr. 9. april s.l.)
Prestur: Séra Björn H.
Jónsson. Organleikari:
Steingrimur Sigfússon.
13.30 Landslag og leiðir. Hall-
grimur Jónasson rithöf-
undur talar um útsýnisstaði
á norðurleið.
15.05 „Fiðlarinn á þakinu”.
17.00 Barnatimi: Olga Guðrún
Arnadóttir stjórnar.
18.10 Stundarkorn með pólsku
söngkonunni Bogna
Sokorska.
19.30 Bækur og bókmenntir.
20.00 Frá afmælissamsöng
Karlakórsins Geysis 20.
fyrra mánaðar.
20.50 islenzkir barnabókahöf-
undar I: Haraldur Hannes-
son hagfræðingur talar um
Jon Sveinsson, Nonna
21.30 Arið 1940: siðari hluti.
Helztu atburðir ársins rifjáðir
upp i tali og tónum. Jónas
Jónasson tók saman.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Laugardagur 17. júni.
18.00 Ehdurtekið efni. Eldur i
Ileklu. Kvikmynd um
Heklugosið 1947-8.
18.20 i sumarskapi.
Hljómsveit Ingimars Eydal
á Akureyri leikur og syngur
18.50 Illé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Ávarp forsætisráðherra,
Ólafs Jóhannessonar. ■
20.30 Lúörasveit Reykjavikur
leikur.. Stjórnandi Páll P.
Pálsson.
21.00 Reykjavik vorra daga.
Kvikmynd um Reykjavik,
gerð árið 1946 af Óskari
Gislasyni i tilefni af 160 ára
afmæli borgarinnar.
22.50 Frá setningarathöfn
Umhverfisráðstefnu SÞ i
Stokkhólmi.
24.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur 18. júni
17.00 Endurtekið efni. Hcimur
barnsins. Bandarisk mynd
um atferils- og þroskarann-
sóknir á ungum börnum.
17.30 Þjóölagakvöld Norska
söngkonan, Birgitte Grim-
stad, syngur i sjónvarpssal
18.00 Helgistund. Sr. Þor-
steinn Björnsson.
18.15 Tciknimyndir
18.30 Sjöundi lykillinn.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir
20.20 Veöur og auglýsingar
20.25 Svipmyndir frá Sauðar-
krókshátið. Ýmis atriði frá
100 ára afmælishátið
Sauðárkróks i fyrrasumar,
sem fréttamyndatöku-
maður Sjónvarpsins þar,
Adolf Björnsson, festi á
filmu.
20.45 Dýrasafnið i Tucson.
Mynd frá BBC
21.15 Albcrte. Framhaldsleik-
rit, byggt á sögu eftir
norsku skáldkonuna Coru
Sandel. 4. þáttur.
22.10 Tom Jones.
23.00 Dagskrárlok.
1132.
Lárétt
1) Maður,- 6) Kassi,- 8)
Fraus.- 9) F’ljót,- 10) Vond,-
11) Fugl - 12) Sprænu.- 13)
Keyrðu,- 15) Strax,-
Lóðrétt
2) Gömul.- 3) Féll,- 4) Órar,-
5) Bæn,- 7) Kjaftæði.- 14;
félag
Ráðning á gátu no. 1131
Lárétt
1) Galli.- 6) Nái,- 8) Odd,- 9)
Tár.'- 10) LLL,- 11) Ljá,- 12)
Akk.- 13) Tau,- 15) Missa,-
Lóðrétt
2) Andlát.-3) Lá.-4) Litlaus.
5) Bolli.- 7) Grikk - 14j 'Ás.
HVELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
Mánudagur 19. júní
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Faðir i nauð. Brezkt
sjónvarpsleikrit. Aðalhlut-
verk Michael Craig og Jill
Melford. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
21.25 „Svart og hvitt”. Jazz-
ballett eftir Henný Her-
mannsdóttur og Helgu Möll-
er. t ballettinum eru túlkuð
samskipti hvitra manna og
hörundsdökkra
21.45 Úr sögu siðmenningar.
Fræðslumyndaflokkur frá
BBC. 11. þáttur. Náttúru-
dýrkun.
22.35 Dagskrárlok.