Tíminn - 17.06.1972, Qupperneq 19
Laugardagur 17. júní 1972.
TÍMINN
19
Flugmenn
Framhald
af bls. 1.
með þær undirtektir, sem þeir
fengu, og verkfallið verður. En
eðlilegt er, að SÞ hafi frumkvæði
að alþjóðasamningi til varnar
flugránum.
t Alþjóðasambandi atvinnu-
flugmanna eru félög i 64löndum,
og taka að minnsta kosti félög í 50
löndum þátt i verkfallinu, m.a. i
Bandarikjunum, þar sem félags-
menn eru yfir 40 þús., i Bretlandi
ogyfirleitt flestum þeimlöndum,
þar sem stór flugfélög erurekin.
FjallagrÖS Framhald af bls. 1.
til annarra landa, ef tiltækt væri
nóg af þeim. Þannig er blaðinu
kunnugt um, að borizt hafa hing-
aö til lands fyrirspurnir um slikt
frá Þýzkalandi og Japan.
Haraldur Z. Guðmundsson,
fyrrverandi eigandi Hunangsbúð-
arinnar, hefur til dæmis skýrt
blaðinu frá þvi, að veturinn 1970
barst honum pöntun á fjallagrös-
um frá fyrirtæki einu i Búenos
Aires i Argentinu, Oscar Fedrico
Bunge, á þrem til fimm smálest-
um af fjallagrösum i einni send-
ingu til reynslu. Argentinumenn
eiga ekki völ á þess konar lifgrös-
um á sléttunum syðst i Suður-
Ameriku, og hið latneska nafn
fjallagrasanna, cetraria island-
ica, bendir beint til tslands.
Fjallagrös verða sem sagt ekki
gripin upp hvar sem er. Þau eru
þó fáanleg i Sovétrikjunum,
danskir aðilar hafa selt grös, sem
þeir fá frá Prins Eðvarðsey, og
eitthvað mundu Kanadamenn og
Bandarikjamenn einnig fást við
þess konar verzlun.
Þetta argentínska fyrirtæki,
sem hér er vitnað til, gat
fengið fjallagrös frá Moskvu
fyrir tuttugu og sjö þúsund
krónur hver hundrað kilógrömm,
komin i höfn i Búenos Aires, og
þýzkt fyrirtæki i Hamborg vildi
útvega þau fyrir sem næst þrjú
hundruð og fjörutiukrónur kiló-
grammið.
Þess er þó að geta, að
Argentinumennirnir vildu ekki
aðeins fá grösin tind, það er að
segja hreinsuð á þann hátt, er
tiðkast að selja þau hér, heldur
einnig söxuð og pökkuð i tveggja
punda poka.
Oscar Federico Bunge fékk
héðan litið sýnishorn flugleiðis,
en þvi miður gat Hunangsbúðin
ekki látið fyrirtækinu i té fjalla-
grös, svo aö smálestum næmi.
Þetta var árið, sem Hekla gaus og
spúði óhollustu úr iðrum sinum
vitt um landið. Þá urðu fjallagrös
torfengin i bili, að minnsta kosti
torfengnari en áður, auk þess sem
það hefði ekki veriö álitleg kynn-
ing á nýrri tegund söluvöru, ef
hún hefði reynzt menguð flúor við
efnagreiningu hjá kaupandanum.
Siðan hefur þetta mál legið niðri,
að þvi er blaðið bezt veit.
Frá Japan munu hafa borizt
fyrirspurnir um hugsanlega út-
vegun á hreindýramosa, þvi að
hann mun hagnýttur þar i landi.
Þá hafa Þjóðverjar leitað fyrir
sér um kaup á hvitum mosa, sem
notaður er i leðuriðnað i Þýzka-
landi, en þar hefur ef til vill verið
um svokallaðan hvitmosa að
ræöa, en það er gróður auðfengn-
ari annars staöar en hér.
Gistiheimilið á
Blönduósi opnar
SB—Reykjavik
Gistiheimilið i Kvennaskólan-
um á Blönduósi tekur til starfa 17.
júni og veröur opið fram i sept-
ember. Þetta er þriðja sumariö i
röð, sem skólinn er nýttur á þenn-
an hátt og hefur Sigurlaug Egg-
ertsdóttir húsmæörakennari veitt
gistiheimilinu forstööu frá upp-
hafi.
Auk venjulegs gistirýmis eru
bornar fram margvislegar veit-
ingar fyrir þá, er þess óska, s.s.
morgunverður, kaffi og kökur,
smurt brau'ð og kvöldverður.
Ferðafólki meö sinn eigin útbún-
aö er gefinn kostur á aö nýta
hann. Hópferöafólk getur einnig
fengið máltiöir, ef pantað er með
fyrirvara, svo og gistiaðstöðu.
Atta manns starfa við
gistiheimiliöog var mikið að gera
hjá þelm i fyrrasumar.
G/obus?
LAGMÚLI 5, SlMI 81555
HJOLMUGAVELARNAR
slétt land
SPTINTMASTER — 6 hjóla rakstrarvél — Vinnslubreidd 3 m
— Tvimælalaust afkastamesta fáanlega rakstrarvélin — Leitið
nánari upplýsinga.
Raka
jafn vel
óslétt sem
Góðar vörur á hagstæðu verði
tryggja betri
afkomu
Það eru hyggindi — sem i hag koma —
að verzla við kaupfélagið
KAUPFÉLAGIÐ IngÓlfUF
SANDGERÐI
Seljum á hagstæðu verði allar nauðsynjavörur,
búsáhöld, fatnað, vefnaðarvöru, snyrtivörur,
gjafavörur.
Einnig timbur og ýmsar aðrar byggingavörur.
Tökum landbúnaðarvörur í umboðssölu.
kaupfélag Grundf irðinga
GRUNDARFIRÐI °
gj
1ANDSVIRKJIIN
VirkjunTungnaár
við Sigöldu
forvalverktaka í gerð byggingarmannvirkja
Landsvirkjun mun síðar í sumar
að undangengnu forvali á bjóð-
endum óska eftir tilboðum í gerð
byggingarhluta virkjunar Tungnaár við
Sigöldu (150 MW). Verður tilboða
óskað frá verktökum, sem að mati
Landsvirkjunar fullnægja ákveðnum
skilyrðum í hlutaðeigandi forvals-
gögnum.
Helztu þættir verksins verða þessir:
Grjót- og jarðstífla, botnrás, yfirfall,
aðrennslisskurður, inntak, undirstöður
fyrir þrýstivatnspípur, ofanjarðar
stöðvarhús og frárennslisskurður.
Verktökum, sem áhuga hafa á að
bjóða í ofangreint verk, er bent á að óska
bréflega eftir eintökum af forvalsgögn-
um til annars hvors eftirgreindra aðila:
Virkir h.f.
Suðurlandsbraut 6
Reykjavík
Electro-Watt
Engineering Services Ltd.
P. O. Box
8022 Ziirich
Verktakar, sem til greina vilja koma
sem bjóðendur, verða að hafa lagt inn
umsóknir í þá átt í seinasta lagi 1. ágúst
1972 til annars hvors ofangreindra aðila.
Umrætt forval takmarkast við verk-
taka í löndum, sem eiga aðild að Alþjóða-
bankanum ásamt Sviss.
Auglýsing varðandi útboð á véla- og rafbúnaði
Landsvirkjun mun síðar í sumar
óska eftir tilboðum í framleiðslu og af-
hendingu á véla- og rafbúnaði fyrir
virkjun Tungnaár við Sigöldu
(150 MW).
Tæknilegar upplýsingar varðandi
væntanlegt útboð fást gegn skriflegri
beiðni til annars hvors eftirgreindra
aðila:
Virkir h.f.
Suðurlandsbraut 6
Reykjavík
Electro-Watt
Engineering Services Ltd.
P. O. Box
8022 Zurich
Reykjavík, 17. júní 1972
LANDSVIRKJUN