Tíminn - 17.06.1972, Qupperneq 21
Laugardagur 17. júní 1972.
TÍMINN
21
Hinn 1. janúar árið 1969 opnuðu
Loftleiðir eigin skrifstofu i
Belgiu, i aprilmánuði 1971 i Sviss
og febrúar 1971 á ttaliu, en um-
boðsskrifstofur höfðu áður gætt
hagsmuna Loftleiða i þessum
löndum.t Beirut, Libanor. opnuðu
Loftleiðir eigin skrifstofu i júni-
byrjun 1970.
Fyrir rúmlegum tveim árum, i
marzmánuði 1970, opnuðu Loft-
leiðir nýja skrifstofu i Frankfurt.
Er starfsfólki hennar ætlað að
samræma alla sölustarfsemi
Loftleiða i Evrópu, Asiu og Afriku
undir yfirstjórn aðalskrifstofunn-
ar i Reykjavik.
Vestanhafs
Enda þótt Loftleiðir hafi átt um-
boðsmenn i New York allt frá ár-
inu 1946 var það ekki fyrr en siðla
árs 1951 að Loftleiðir opnuðu þar
eigin skrifstofu. Eins og fyrr segir
var fyrsta áætlunarferðin farin
þangað 25. ágúst árið 1948, og
fyrsta fasta vikulega ferðin hófst
12. júni 1952, en siðan hafa Loft-
leiðir flutt rúmlega 2 milljónir
farþega til og frá New York.
25 vikulegar þotuferðir eru nú
farnar, til og frá New York.
t San Francisco hafa Loftleiðir
haft skrifstofu frá 1954, og i
Chicago frá 1956. t febrúarmán-
uði 1969 opnuðu Loftleiðir sölu-
skrifstofu i Washington D.C. og
um svipað leyti aðra i Miami.
Skrifstofa var opnuð i Los Angel-
es i febrúarmánuði 1970, og i
aprilmánuði i fyrra var sjöunda
Bandarikjaskrifstofan opnuð i
Houston, Texas.
Hinn 1. marz, 1968 opnuðu Loft-
leiðir eigin skrifstofu i Mexico-
borg, einu ári siðar i Quito, Ecua-
dor,i desember 1970 i Caracas,
Venezuela og loks var f jórða Mið-
og Suður-Amerikuskrifstofa Loft-
leiða opnuð i Bogota, Columbia
19. mai 1971.
Auk þessa eru aðalumboðsskrif-
stofur Loftleiða viða i Mið- og
Suður-Ameriku. Ollu sölustarfi
Loftleiða i Norður- Mið- og Suður-
Ameriku er stjórnað frá aðalskrif
stofu félagsins i Rockefeller Cent-
er New York.
Flugflotinn
Eins og fyrr var frá greint hófust
millilandaferðir Loftleiða með
flugvélum af gerðinni DC-4 Sky-
master, og voru þær notaðar til
áramóta 1960/61. I kjölfarið kom
svo fyrsta fiugvélin af þeim fimm
DC-6B Cloudmasterflugvélum,
sem Loftleiðir eignuðust. Þær
voru siðar leystar af hólmi með
kaupum á fimm flugvélum af
gerðinni Rolls Royce 400, en hin
fyrsta þeirra tegundar kom til
tslands 29. mai 1964. Fjórar voru
lengdar og rúmuðu þá 189 far-
þega. Eftir það voru Rolls-Royce-
vélarnar um tima þær flugvélar,
er höfðu mest farþegarými af
þeim, er i förum voru þá yfir
Norður-Atlantshafið.
Hinn 14. mai 1970 kom fyrsta
leiguþota Loftleiða til tslands, og
eftir það tóku Rolls-Royce flug-
vélarnar að þoka fyrir þotunum,
unz siðasta ferð þeirra var farin i
októbermánuði 1971. Frá þvi i
byrjun sl. nóvembermánaðar
hafa þotur eingöngu verið notað-
ar til áætlunarferða Loftleiða.
Þær fimm Cloudmaster flugvél-
ar, sem Loftleiðir eignuðust, voru
i förum á vegum Flughjálpar frá
Sao Tome til Biafra árið 1969 er
borgarastyrjöld geisaði i Nigeriu,
en árið 1970 ákvað Flughjálp að
gefa þær Rauða krossinum i Perú
til liknarflugs. Rolls-Royce flug-
vélum Loftleiða var öllum breytt
til hinnar upprunalegu CL-44
vöruflutninga-gerðar. Þær voru
seldar að hálfu sænska útgerðar-
fyrirtækinu Salenia, og siðar
leigðar vöruflutningaflugfélaginu
Cargolux, sem stofnað var 4.
marz 1970, en Loftleiðir éru að 1/3
hluta eigandi þess.
i marzmánuði 1969 stofnuðu Loft-
leiðir hlutafélagið Hekla Holdings
Ltd. til þess að annast sölustarf
fyrir flugfélagið International Air
Bahama, sem Hekla Holdings
keypti siðar sama ár. Þetta félag
heldur nú uppi sex vikulegum
áætlunarferðum milli Nassau og
Luxemborgar með þotum af
gerðinni DC-8-63 og stjórna Loft-
leiðir flugrekstrinum.
Tvennir tímar.
Hinn 17. júni 1947 voru skrifstofur
Loftleiða i litlu leiguhúsnæði i
Hafnarstræti. 1 maimánuði 1964
fluttu Loftleiðir aðalskrifstofur
félagsins i eigið húsnæði á
Reykjavikurflugvelli, og vinna
þar nú hátt á annað hundrað
starfsmenn i mörgum deildum.
Hinn 17. júni 1947 hófst brottför
farþega Loftleiða frá gömlum
flugvélaumbúðakössum á
Reykjavikurflugvelli, og á fyrsta
áratug föstu áætlunarferðanna
var farþegum veittur beini i
gömlum herbröggum.
Með samningi, sem gerður var
árið 1962 milli Loftleiða og is-
lenzkra stjórnvalda tóku Loftleið-
ir við afgreiðslu almenns flug-
rekstrar á Keflavikurflugvelli og
siðar annarri starfsemi i flug-
stöðvarbyggingunni þar. Að gerð-
um þessum samningum fluttu
Loftleiðir flugreksturinn frá
Reykjavik til Keflavikurflug-
vallar. Enda þótt margt standi
enn til bóta, og ráðagerðir séu
uppi um byggingu nýrrar flug-
stöðvar, sem nauðsyn ber til að
reisa á Keflavikurflugvelli, þá
ber þess að geta, að frá þvi er
Loftleiðir komu þar til sögu hafa
margvislegar umbætur verið
gerðar, sem valda þvi,að stundar-
dvöl á Keflavikurflugvelli þarf
ekki að vera farþegum ófýsan-
legri en i ýmsum öðrum flug-
stöðvum. Viðbygging hefir nú
stytt göngu milli flugvélar og
húsaskjóls. Afgreiðslurými fri-
hafnarinnár hefir verið aukið og
bætt, og hin stóra og fjölbreyti-
lega verzlun Islenzks markaðar,
sem opnuð var i ágústmánuði 1970
freistar margra til kaupa á þvi,
sem þar er á boðstólnum. Með
þeirri lengingu flugbrauta á
Keflavikurflugvelli, sem nú er af-
ráðin, eykst öryggi ferðanna um
hann, og þar með vex sá fjöldi
farþega, sem fær aðstöðu til þess
að eiga stutta eða langa viðdvöl á
tslandi.
Fyrsta starfsárið reyndust far-
þegar Loftleiða 484 i innanlands-
flugi. Árið 1971 fluttu Loftleiðir
298.872 farþega landa i milli. Sá
kapituli i flugsögu Loftleiða hófst
hinn 17. júni fyrir aldarfjórðungi.
Hann mun alltaf verða eftir-
minnilegur i sögu áætlunarflug-
ferða yfir Norður-Atlantshafið og
áreiðanlega varðveitast vel i ann-
álum islendinga, en þess vegna
hafa nú nokkur minnisatriði frá
ferli hans verið rifjuð upp.
Stjórn Loftleiða skipa nú Kristján
Guðlaugsson hæstaréttarlögmað-
ur, sem er formaður hennar, Al-
freð Eliasson aðalframkvæmda-
stjóri Loftleiða, E.K. Olsen, flug-
rekstursstjóri Loftleiða, Einar
Árnason forstjóri og Sigurður
Helgason, framkvæmdastjóri
Loftleiða i New York, en hann er
varaformaður félagsstjórr.arinn-
ar.
íslandsmót
Keflavikurvöllur
leika sunnudag kl. 3,00
Sjáið spennandi leik —
Forsala frá kl. 1
. ÍBK
# TILBOÐ
óskast i eftirtaldar vélar er verða til sýnis
á lóð Vélasjóðs, Kársnesbraut 68, Kópa-
vogi mánudaginn 19. júni og þriðjudaginn
20. júni kl. 1-5.
Priestman Wolf (eldri gerð)
Skurðhreinsivél
Traktor Ford Major
Poclain skurðgrafa TC 45
Hy-Mac skurðgrafa 580
Beltadráttarvél BTD 20
Priestman skurðgrafa cub VI
Priestman skurðgrafa cub V
Jarðýta IHTD9
Diskaherfi
árg.1947
” 1966
” 1966
” 1963
” 1964
” 1959
Tilboðin verða opnuð 'á skrifstofu vorri
miðvikudaginn 21. júni kl. 10.00
Réttur áskilinn að hafna tilboðum sem
ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Býður félagsmönnum og öðrum viðskipta- vinum góðar vörur við hagstæðu verði.
Það er yður i eigin hag að efla heimabvsffifðir
w■ ■ vi ■■ viiniiy w11 og skipta við kaupfélagið — IU
hvort sem um er að ræða vörukaup eða
vörusölu.
Kaupum fisk af bátum til frystingar og
söltunar.
kaupfélag Stykkishól STYKKISHÓLM1 ms
Fylling: 100% TERYLENE
Fellur aldrei saman.
Tekur ekki raka.
Þolir vélþvott.
Hindrar ekki útgufun.
Margar gerðir.
12 nýtizku iitir.
Betra en dúnn.
Centerfill ábyrgð.