Tíminn - 17.06.1972, Blaðsíða 24

Tíminn - 17.06.1972, Blaðsíða 24
il s<san iJJ ®qp á Mallorkaferðir Sunnu - Beint með DC 8 stórþotu. eða ferðir með Lundúnadvöl. Vegna mikilla viðskipta og góðra sambanda gegnum árin á Mallorca getur aðeins Sunna boðið þangað „islenzkar" ferðir með frjálsu vali um eftirsóttustu hótelin og íbúðirnar. sem allir er til þekkja, vilja fá. Eigin skrifstofa Sunnu í Palma með islenzku starfsfólki tryggir farþegum örvggi og góða þjónustu - Þér veljið um vinsælu hótelin i Palma - eða baðstrandabæiunum Arenal. Palma Nova. Magaluf, eða Santa Ponsa. Sunna hefir nú einkarétt á Islandi fyrir hin víðfrægu Mallorqueenes hótel, svo sem Barbados Antillas. Coral Playa. De Mar, Bellver. Playa de Palma Luxor o. fl. - Trianon ibúðirnar i Magaluf og góðar ibúðir í Santa Ponsa og höfuðborginni Palma. öll hótel og ibúðir með baði. svölum og einkasundlaugum, auk baðstrandanna. sem öllum standa opnar ókeypis eins og sólin og góða veðrið. FEBBASKRIfSTOIAN SIINHA BANKASTRIETI7 SIMM1640012070 / júní 1972 vrði farþegum ekki hleypt l'rá iiorði og vélinni skipað að snúa aftur með þá. Að fenginni þriðju synjuninni ákvað Flugfélagið að fresta að- gcrðum, en farþegarnir stóðu þá lerðbúnir i Keflavik og töskur þeirra komnar um borð i vélina. Air Spain mun hal'a sent is- lenzkum yfirvöldum umsókn um lendingarleyli i maimánuði sið- astliðnum. l>að fékk hins vegar engin svör fyrr en einum og hálf- um sólarhring áður en fara átti fyrstu ferðina. Þá var samþykkt á fundi i flugráði að heimila sex lendingar. Spænsk yfirvöld virðast telja þessa afgreiðslu ófullnægjandi. Sjónarmið þeirra virðist vera það, að lendingarréttindi séu gagnkvæm milli þjóðanna. ts- lenzkar flugvélar fái samkvæmt Framhald á 17. siðu. i ' l.augardagur - „Sakna þess að geta ekki haldið alltaf áfram að skrifa" KB-lteykja vik — fcg sakna þess að geta ekki haldið alltaf áfram að skrifa, sagði Guðrún frá Lundi við blaða- mann Tfmans, eftir að henni hafði i gær verið úthlutað 100 þúsund krónum úr Kithöfunda- sjöði tslands, ásamt fimm öðrum rithöfundum, þeim Indriða G. Þorsteinssyni, Guðmundi Böðvarssyni, Hannesi Sigfús- syni, Stefáni Júliussyni og Oddi Björnssyni. Guðmundur G. Hagalin skálar viö Guðrúnu frá Lundi að lokinni afhendingunni. (Timimynd Gunnar) Flugvél frá F.í. neitað um lendingarleyfi á Spáni - spænsk yfirvöld féllust svo á eina ferð seint í gærkvöldi Babb er komið i bátinn um flug- samgöngur milli islands og Spán- ar. i fyrradag var flugvcl frá Flugfélagi islands, sem átti að fara til Mallorku með á annað hundrað islendinga á vcgum ferðaskrifstofunnar Sunnu, þri- vegis neitað um lendingarleyfi á spænskri grund, og fékk það ekki breytt ákvörðun Spánverja, þótt flugmálastjóri reyndi að fá spænsk yfirvöld til þcss að brcyta ákvörðun sinni. Farþegarnir, sem komnir voru suður á Keflavikurflugvöll, urðu að snúa heim, og var farangur þeirra innsiglaður þar syöra. I fréttatilkynningu frá ferða- skrifstofunni Sunnu segir svo: Spönsk yfirvöld hala neitað is- lenzkum flugvélum um lending- arleyfi á Spáni, og er þvi öllum is- lenzkum ferðaskrifstofum fyrir- munaðað flytja farþega sina mcð islenzkum vélum til ferðamanna- staða eins og Mallorca, Costa del Sol og Kanarieyja. Kr þetta gert vegna þess, að islenzk yfirvöld hafa neitaö spönskum flugfélög- um um gagnkvæm réttindi. Upphaf málsins var það, að ferðaskrifstofan Sunna ákvað að taka á leigu stærri flugvélar til að flytja farþegatil MallorcaogCosta del Sol vegna hinnar miklu að- sóknar þangað. Káðgert var að nota hinar stóru DC-8 þotur Loft- leiöa, eftir þvi sem þær fengjust, og svo þotur af sömu gerð frá spánska flugfélaginu Air Spain. Var betta skipulagt og ákveðið i april siðastliðnum. Þegar Sunna fór að sækja um gjaldeyrisleyfi fyrír spönsku vélarnar, settu gjaldeyrisyfirvöld það skilyrði, að skrifstofan tæki á leigu vélar frá Flugfélagi Islands i ákveöinn fjölda ferða. Ella yrði ekki veitt gjaldeyrisleyfi fyrir hinar stóru þotur frá Spáni. Þótt þetta væri óhagkvæmara fyrir Sunnu og farþega hennar, var ekki um annað að ræða en að ganga að þessum skilyrðum. I samræmi við það var geröur leigusamningur við Flugfélag Is- lands um flug til Mallorca 15. júni. Eins og venja er, sótti flug- félagið um lendingarleyfi hjá spönskum yfirvöldum. Þessari umsókn synjuðu spænsk yfirvöld á þeim forsendum, að islenzk yfirvöld hefðu synjað spænsku flugfélagi um lendingarleyfi hér á landi. Synjunin kom að morgni þess dags, sem fara átti og við frekari umleitanir var hún þri- vegis endurtekin. Jafnframt var tekið fram, aö búið væri aö til- kynna spænskum flughöfnum, að ef vél Flugfélags Islands kæmi samt sem áður til Spánar i óleyfi, — sagði Guðrún frd Lundi, þegar henni hafði verið úthlutað 100 þús. úr Rithöfundasjóðinum Gúömundur<l. Hagaljn afhenti rithöfundunum andvirði pen- inganna fyrir hönd sjóðstjórnar, en þeir Einar Bragi og Knútur Hallsson eru auk hans i þeirri stjórn. Þetta er i fimmta sinn, sem slik úthlutun fer fram á vegum sjóðsins, og nú hafa alls 26 rithöfundar hlotið slika úthlutun. Indriði G. Þorsteinsson þakkaði siöan fyrir hönd rit- höfundanna, sem úthlutað var til i gær. Ekki þarf að taka fram, að Guðrún frá Lundi hefur lagt stóran skerf i Rithöfundasjóðinn, enda bækur hennar viðlesnar og þvi vel að þessari viðurkenningu komin. Þrátt fyrir að vera komin á 86. aldursárið, var Guðrún hin hressasta, þegar úthlutunin fór fram. Aðspurð sagði hún að vænt- anlega kæmi 26. bók hennar út i haust, enda væri bókin i setn- ingu núna, og hún væri að skrifa þá 27. — Það hlýtur að verða sú siðasta, sagði hún, þegar blaða- maður Timans tyllti sér niður hjá henni, er úthlutunin hafði farið fram. — Ég sakna þess að geta ekki haldið alltaf áfram að skrifa, Svart: Reykjavik: Torfi Stefánsson og Kristján Guð- mundsson. bætti þessi skáldkona við. Guðrún kvaðst hafa dvalist i Reykjavik siðustu vetur, en nú væri hún hins vegar á leiö til heimabyggðar sinnar fyrir norðan. — Ég vonaðist til að geta farið i þessari viku, en svo keihur hver heppnin á fætur annarri, sagði hún. Við hlið Guðrúnar sat Marin Jónsdóttir dóttir hennar. Hún kvaðst ekki skrifa eins og móðir hennar. Hins vegar hefur sonur Guðrúnar Angantýr Jónsson, gefið út tvær ljóðabækur. A meðan við ræddum við Guð- rúnu.kom menntamálaráðherra, Magnús Torfi Ólafsson, til skáld- konunnar og skálaði við hana i kampavini, eftir að hafa kynnt sig og óskað henni hjartanlega til hamingju með úthlutunina. Hvltt: Akureyri: Sveinbjörn Sigurðssonog Hólmgrimur Heiðreksson. 27. leikur Akureyringa: Dc2-d3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.