Tíminn - 20.06.1972, Qupperneq 1

Tíminn - 20.06.1972, Qupperneq 1
fÍGNÍSl ÞVOTTAVÉLAR TD/MjbLcUtAAéJLaUi* A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 v „EG TEL AÐ TUNDURDUFL HAFI GRANDAÐ TOGARANUM” -sagði skipstjórinn á Hamranesi Oó-Reykjavik. — Þaö er mitt álit, aö tundurdufl hafi sprungiö undir skipinu, sagöi Bjarni Guðmundsson, skipstjóri á togaranum Hamranesi, sem sökk út af Snæfellsnesi á sunnudagskvöld. — Ég held, að duflið hafi sprung- ið beint undir botninum, en get ekki sagt nákvæmlega um þaö. Ég var inni í „be- stikkinu" og sá ekki sjálfur þegar sprengingin varð og gatið kom á skiptið. Við vorum að toga suðvestur af Jöklinum, í Faxadýpi. Allt i einu varð sprenging, og skipið nötraði stafna á milli. Þegar þetta varð var trollvakt og engir menn í lestinni. — 1 fyrstu virtust mér dælurnar hafa undan lekanum, en siðan jókst hann svo, að ekkert var hægt að gera. t lestinni voru um 60 tonn af fiski, og hefur það sennilega bjargað þvi, að ekki fór verr. Hefur fiskurinn veitt sprengjunni mótspyrnu og haml- að þvi, að sjórinn streymdi strax óhindrað i skipið. — Þegar lekinn jókst, var ég hræddur um að ketilsprenging yrði, eða að skipið mundi kantra. Við settum þvi björgunarbátana út og höfðum þá tilbúna. Ég sendi strax út neyðarkall og ræsti allan mannskapinn út, þegar ég varð var við lekann i lestinni. Fleiri skip voru á svipuðum slóðum og Hamranesið, þegar það sökk. Fyrstur á vettvang var togarinn Narfi, og tók hann menn ina upp, en þeir voru i tveim gúmmibjörgunarbátum. Voru þeir þá búnir að vera i bátunum i um klukkutima. Á Hamranesinu var 21 maður. Þurfti að fara með skipið inn nýlega til að gera við spilið, og struku þá fjörir af, en 25 manna áhöfn átti að vera á togaranum. Hamranes var búið að vera á sjó i 10 daga. Fyrst við Grænland, en þar var allt fullt af is og ekkert að hafa, en var kominn á heima- mið og fiskaði sæmilega, fram að slysinu. Sprengingin i Hamranesinu varð siðdegis á sunnudag, en lek- inn virtist vera litill i fyrstu, og hélzt skipið á floti fram eftir kvöldi. Hamranes var einn af ný- sköpunartogurunum, byggt i Englandi árið 1947, og hét það áð- ur Egill Skallagrimsson. Það var 610 lestir að stærð. Skráðir eig- endur eru Jón Hafdal og Haraldur Jónsson i Hafnarfirði, en fyrir áramótin siðustu urðu eigenda- skipti, þótt ekki væri búið að ganga endanlega frá þeim. Þeir sem gerðu skipið út voru skip- stjórinn, Bjarni Guðmundsson i Hafnarfirði og Haraldur Július- son i Vogum. Sjópróf hefjast i Hafnarfirði i dag. Hamranesið sekkur i djúpið 40 sjómilur út af Snæfellsnesi. Myndirnar tók einn skipsbrots mannanna, Þjóðverjinn Fritz Glahn, sem var kyndari á togaranum. Eyjapiltar til Norðfjarðar SB-Reykjavik. Vestmanneyingarnir fim.m. sem eru nú á ferðinni umhverfis landið á tveimur gúmbátum, komu á sunnudaginn til Breið- dalsvikur og lögðu af stað til Norðfjarðar i gær. Ferðin hefur gengið að óskum fram til þessa. Fréttaritari Timans á Breið- dalsvik, Guðmundur Arason, hitti ferðalangana að máli áður en þeir lögðu aftur i hann i gær. Létu þeir hið bezta af ferðalaginu, sögðust hafa verið 14 tima frá Eyjum til Hornafjarðar, en þar dvöldust þeir á þjóðhátiðardaginn og skruppu um nágrennið. A leiðinni frá Hornafirði til Breiðdalsvikur komu þeir við i Papey og fannst mikið til koma. Það er undir veðrinu komið, hvað viðdvölin á Norðfirði verður löng, en eitthvað er hann að hvessa fyrir austan núna, að sögn Guðmundar. Þegar til Seyðis- fjarðar kemur, ætla Eyjapeyjar- nir að láta fyrsta áfanga ferðar- innar lokið og hafa þar talsverða viödvöl. GRATLEG F0RSMÁN Siá bls. 3 Skozki þjóðernisflokkurinn styður 50 mílna fiskveiðilögsögu íslands Sendimaður kominn til þess að tjá íslenzku ríkisstjórninni þessa ákvörðun Þjóðernissinna- flokkurinn skozki hefur sent einn af forystu- mönnum sinum, Mr. Cameron Aitken, vara- formann flokksstjórnar- innar í Glasgow, hingað til landsþeirra erinda að færa ólafi Jóhannessyni forsætisráðherra og rikisstjórninni islenzku bréf, þarsem lýst er full- um stuðningi við fyrir- ætlanir Islendinga um útfærslu fiskveiðilögsög- unnar. Ólafur Jóhannesson var i gær staddur á fundi i Osló, en kemur heim i kvöld, og mun Mr. Aitken afhenda honum bréf sitt á morgun. Þjóðernissinnaflokkurinn skozki hefur fengið um tólf af hundraði atkvæða i almennum kosningum, þótt hann eigi ekki nema einn mann á þingi Breta vegna kosningafyrirkomu- lagsins, svo að stuðningur hans við málstað okkar er mjög mikils verður. Áður hefur flokksþing þjóð- ernissinnaflokksinsskozka lýst fullum stuðningi við Is- lendinga og skorað á skozk og brezk stjórnarvöld að fara að dæmi þeirra og færa landhelg- ina út i fimmtiu milur. Enn fremur ber flokkurinn mjög fyrir brjósti, að snúizt verði til varnar gegn mengun sjávar. Mun hann ræða öll þessi at- riði við Ólaf Jóhannesson for- sætisráðherra, er fundum þeirra ber saman á morgun. 1 skozkum blöðum var skýrt frá i vikunni sem leið, að for- maður þjóðernissinnaflokks- ins, dr. Robert Mclntyre, hefði látið svo ummælt, að það væri Skotum fyrir beztu, að fyrir- ætlanir Islendinga næðu fram að ganga.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.