Tíminn - 23.06.1972, Page 2

Tíminn - 23.06.1972, Page 2
2 TÍMINN Köstudagur 23. júni 1972. ÞJÓÐNÝTTUR BITHAGI 011 beit á óræktuðu landi er i raun og veru þjóðnýtt. Með þvi er ekki aðeins átt við, að þeir, sem eiga beitarfénaö, en ekkert land, telja sér heimilt að aka með hann út á þjóðvegina á vorin og sleppa honum þar, sem gróður- lendi sýnist sæmilegt. Hitt er öllu heldur haft i huga, að þegar kostnaöarliöir við búrekstur eru reiknaðir til ákvörðunar við verð á búvöru, gildir hið sama um úthagann og sjálft lifsloftiö: Hvorugt er reiknað til verös. Fóðurþörf búfjár að sumrinu er alls ekki talin með, þegar ákvarðaðer, hvað bændur eigi að bera úr býtum fyrir framleiðslu sina. Stundum er verið að býsnast' yfir verði á kjöti og mjólk, sem þó er raunar ekki dýr matur miðað við margt annað. En hér siá menn aö minnsta kosti, að ekki er þessi liður ofreiknaður, þar sem hann er alls ekki talinn með. Sumarhaga verða bændur þó að eiga. Bóndi KMBÆTTISHROKI Landfari góöur, má ég biðja þig fyrir örfáar linur. Það veröur ekki spunninn lopinn af mikilli mælgi, þvi að ég er búinn að sjá, að þér er ekki gefið um það. En sem sagt: Mér verður hugsað til bóndans á Teigi i Mosfellssveit, sem setti lögbann á framkvæmdir hitaveitu Reykja- vfkur, er forráðamenn hennar ætluðu að böölast yfir land hans, án þess að eiga einu sinni orðastað við hann. bað, sem ég vil koma á framfæri er þetta: Hvernig stendur á þvi, að almannastofnanir, sem hafa i veltunni tugi og hundruð milljóna, sem eign þegnanna sjálfra, leitast ekki við að ná samningum, þegar svona stendur á? Hvaða réttlæti er það, að einstaklingar, efnalitlir sem efnaðir, verða að eiga svo mikið i húfi eins og hér er tilfellið? Þetta er sannarlega ójafn leikur og tæpast samboðið þjóðfélagi, sem skreytir sig með þeim nöfnum, er við notum oft og iðulega. Ahættan er svo óralangt frá því að vera jöfn, þegar annars vegar er einstaklingur, sem ekki má sin mjög mikils efnalega, en hins vegar stofnanir, sem haldið er uppi af almannafé og sækja peninga eftir þörfum i vasa borg- aranna. Sá embættishroki sem birtist i þessu, er óþolandi og það ætti að vera fyrsta boðroð þeirra manna, sem þess konar stofnunum stjórna, að reyna ævinlega að ná samningum.svo fremi sem þess er kostur, áöur en málum er fleygt i dómstólana. Fátækur maður á þess bókstaflega engan kost að standa i svona striði. Það þýðir, að honum er meinað að ná hugsanlegum rétti, og þar meö er réttaröryggi i landinu feykt út i veður og vind. Er ekki sagt svo, að rikir og fátækir eigi að vera jafnir fyrir lögunum? Með þökk fyrir birtinguna. Gjaldþegn hitaveitunnar. Þetta er nýi, hvíti 12 volta 53 amp. SÖNNAK- rafgeymirinn í V.W., Opel o. fl. nýja þýzka bfla. Fjöibreytt úrva) SÖNNAK-rafgejtma ávallt fjrrir- liggjandi. 3. ógúst 15 daga 18. ógúst 15 daga '1. september 15 daga 15. september 15 daga 29. september 22 daga 20. oktober 10 daga Allt úrvalsferðir að sjdlfsögðu. FERÐASKR/FSTOFAN URVAL Eimskipafélagshúsinu simi 26900 ARMULA 7 - SIMI 84450 •rí7.KUHysi> LA FÖSTUOAGA ^ verga enn „úf- isaelu íslenzku húd^ ti ku. þegar ^Wnafiur, Módel- r, sem Í8,enzkUrr ”Clda a»a töstudaga, n og Rammagerðin og nýjustu t aS kynna sérstæð i9,enzkUrn u»ar- skínrvavörum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.