Tíminn - 23.06.1972, Síða 5

Tíminn - 23.06.1972, Síða 5
Föstudagur 2:i. júni 1972. TtMINN 5 íbúar Hvammstanga vongóðir um hitaveitu EB-Reykjavik íbúar Hvammstanga eru nú vongóðir um að geta innan skamms hitað upp hús sin með heitu vatni, fengnu frá Laugar- bökkum, sem eru um átta kíló- metra frá kauptúninu. Samkvæmt upplýsingum Brynjólfs Sveinbergssonar mjólkurbússtjóra á Hvamms- tanga, eru tæknilegir möguleikar á þvi að ljúka hitaveitufram- kvæmdunum fyrirhuguðu þar vestra á 6 - 7 mánuðum og nemur áætlaður kostnaður vegna þeirra 24 milljónum króna. Brynjólfur sagð^að mjög miklar likur væru á þvi, að lánsfé vegna fram- kvæmdanna fengist innan skamms,þannig að framkvæmdir gætu hafizt i sumar. 1 fyrra var borað eftir vatni á Laugarbökkum, og komu þar upp 16 sekúndulitrar af 97 stiga heitu vatni. Kappreiðar á laugardag við Pétursey Hestamannafélagið Sindri i Mýrdal og undir Eyjafjöllum heldur sinar árlegu kappreiðar laugardaginn 24. júni n.k. á kapp- reiðavellinum við Pétursey. Mótið hefst með hópreið kl. 14,00, en siðan hefst sýning gæð- inga. Að þeim loknum hefjast kappreiðar, og verður þar keppt i skeiði, stökki og folahlaupi. Einn- ig verður sköpuð aðstaða fyrir 2000 metra æfingahlaup fyrir þá sem ætla að taka þátt i þvi hlaupi á mótinu við Rangárbakka, sem fram fer um aðra helgi. Þá verð- ur einnig 800 metra brokkkeppni, naglaboðreið og sýning unghesta i tamningu. Lokaskráning sýningar- og kappreiðahesta verður á Sindra- velli tii föstudagskvölds, en ann- ars er hægt að tilkynna þátttöku til Halldórs Gunnarssonar i Holti. Að kappreiðunum á laugardag loknum verður dansleikur i Leir- skálum i Vik. Veruleg skógrækt í upp- siglingu í Húnaþingi Húnaþing er eitt fárra héraða landsins, þar sem allir skógar hafa eyðzt i rás aldanna. A næstu árum verður gerð tiiraun að marki til þess að hefja þar veru- lega skógrækt og veita héraðinu á ný nokkuð af þeim skrúða, er það hefur fyrir löngu misst. Eins og blaðið skýrði frá fyrir nokkru hefur Skógrækt rikisins fest kaup á Gilá i Vatnsdal, en jafnframt hefur skógræktar- Keppt um Shellbikarinn SB-Reykjavik. Arleg flugkeppni um Shellbikarinn fer fram um helgina á vegum flugmálafélags Islands. Skiptist keppnin i yfir- landsflug og lendingar. Yfir- landsflugkeppnin hefst kl. 12 á^ hádegi á laugardag frá Sand-' skeiði, en lendingakeppnin verður á sunnudag. Ollum flugmönnum er heimil þátttaka, en keppnin er ein- menningskeppni. Siðast tóku þátt i keppninni 12 flugmenn, og er gert ráð fyrir, að svipuð þátttaka verði núna. Jón E.B. Guðmunds- son er handhafi Shellbikarsins og íslandsmeistari 1971 i vélflugi. sjóður Húnavatnssýslu keypt aðra jörð i sama skyni, Fjósa i Svartárdal. Þessi sjóður var stofnaður með rausnarlegri gjöf þriggja bræðra, sem ættaðir voru úr héraði, Friðriks Björnssonar læknis, Guðmundar kaupmanns og Einars, sem dó fyrir mörgum árum. Þessir bræður eru nú allir látnir, en vona má, að nýir skógar i Svartárdal og trúlega viðar i Húnavatnssýslu muni um langan aldur beri þvi vitni, hverjir þeir voru og hvernig þeir hugsuðu til lands sins og heimahaga. Bæði Gilá og Fjósar eru smájarðir og ekki til mikils búreksturs fallnar. Á hinn bóginn eru þær langt inni i landi i skjól- sælum dölum, þar sem veðurfar er með þeim hætti, að vel hentar barrskógum. Þessvegna má gera sér góðar vonirum,að skógar dafni þar prýðilega, þegar yfirstignir hafa verið þeir örðugleikar, sem eru þvi samfara að rækta skóg á landi, þar sem enginn runnagróður er fyrir og einskis lauffalls hefur notið öldum saman. J.H. Fullkomin röntgentæki til Siglufjarðar JÞ-Siglufirði A miðvikudag voru afhent ný röntgentæki i sjúkrahúsið á Siglu- firði. Við athöfn af þvi tilefni skýrði Ólafur Þorsteinsson læknir frá þvi, að tækin væru þýzk og þau fyrstu af þessari stærð og gerð, sem tekin væru i notkun hér á landi. Iýokkur fleiri myndu nú i pöntun á öðrum stöðum. Tæki þessi eru mjög fullkomin og er allt sjálívirkt frá stjórnborði. Verð tækjanna er nú orðið um 3 1/2 milljón, með þeim breytingum,sem gera þurfti til að koma þeim fyrir. Þórður Þor- varðsson frá Vik sá um upp- setninguna. Ólafur læknir þakkaði öllum er að höfðu unnið og stuðlað að þvi, að sjúkrahúsið eignaðist þessi ágætu tæki. Einkum nefndi hann i þvi sambandi Kvenfélag sjúkra- hússins, sem gaf 1,2 milljónir og gerði þar með kleift, að tækin komu nú þegar. Sagði hann þetta ekki i fyrsta sinn, sem kven- félagið styddi sjúkrahúsið, það hefði nú lagt fram um 4 milljónir króna til kaupa á tækjum og búnaði. Aðspurð sagði formaður kven- félagsins, að raunar væru það bæjarbúar sem ættu skildar þakkirnar, þvi að alla þessa peninga hefði félagið fengið hjá þeim, einkum með sölu fermingarskeyta. Viðstaddir athöfnina á sjúkra- húsinu voru fréttamenn, stjórn sjúkrahússins og kvenfélagsins, ásamt ýmsum forystumönnum bæjarins. Fagnandi nýjum Ford Escort Litlir bílar eru vinsælir vegna þess að þeir eru ódýrir og spara kaupendum sínum peninga. Að þessu leyti er Ford Escort í flokki með smábílum. En þegar kemur út á vegina, kemur munurinn í Ijós. Þótt Ford Escort kosti ekki meira en aðrir ódýrir bílar, eru þetta samt allt önnur kaup. Ford Escort er afburða bíll, ekki sízt á misjöfnum veg- um. Auðveldur og öruggur í akstri, stöðugur á beygj- um og lætur vel að stjórn. Ford Escort hefur því hina vinsælu eiginleika sport- bílsins, en hann hefur líka þægindi fjölskyldubílsins. Hægt er að fá 2ja eða 4ra dyra bíl, og fjölda viðbótar- hluta. Það er engin tilviljun að Ford Escort er mesti sigur- vegari í kappakstri á vegum og hefur unnið meira en 200 sigra í siíkri keppni á síðustu tveimur árum. Ford Escort sameinar þægindi og hagkvæmni fjöl- skyldubílsins með rúmgóðum sætum og gólfrými — og hins vegar hraða og öryggi sportbílsins. Kynnið ykkur Ford Escort, og hann sannar yfirburði sína í reynd. Fordumboðin á islandi eru seljendur að Ford Escort. Escort ánægja Ford visar veginn Ærd, Sigló-síld í sumarleyfi JÞ-Siglufirði Lagmetisverksmiðja rikisins á Siglufirði, Siglósild, hætti störfum nú 20. júni, og fór þá allt starfsfólk i sumar- leyfi. Vinna hefst aftur i byrjun ágúst, og verður þá tekið til þar sem frá var horfið við að framleiða gaffal- bita á Rússlandsmarkað. Munu nú til um 9000 tunnur af hráefni, og er gert ráð fyrir, að það endist töluvert fram á veturinn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.