Tíminn - 28.06.1972, Side 5
Miðvikudagur 28. júni 1972
TÍMINN
5
Gekk að peninga-
kassanum í íbúð
og stal 40 þús. kr.
00—Reykjavik.
Að morgni laugardags s.l. urðu
hjón, sem búa i Kleppsholtinu
þess vör, að einhver óviðkomandi
aðili hafði komizt inn á heimili
þeirra og stolið 40 þúsund kr.
islenzkum 300 dönskum krónum
og einu sterlingspundi. Siðast
vissu hjónin um peningana á
mánudagsmorgun i siðustu viku,
og vissu ekki til, að þeir hefðu
verið hreyfðir þar til á íaugardag,
að gripa átti til þeirra, en þá var
kassinn, sem þeir áttu að vera
geymdir i^tómur.
Hjónin vita ekki til, að óvið-
komandi aðilar hafi veriö i ibúð
þeirra. Á nefndu timabili hefur
hún ekki verið mannlaus, nema
þegar frúin hefur skroppið i
verzlanir, en segir að mögulegt sé
að hún hafi gengið ótryggilega frá
dyrum og ekki læst nægilega vel á
eftir sér.
En það hefur verið talsvert
erfitt fyrir þjófinn að komast að
peningunum. Voru þeir geymdir i
peningakassa i læstum skáp
var lykillinn i læstri skúffu og
lykilinn að henni hafði
húsbóndinn i veski sinu. En samt
tókst að stela peningunum, en
hvenær eða með hvaða hætti er
hjonunum hulin ráðgáta.
Þaö færist mjög i vöxt að
þjófar fara inn i ibúðir fólks, og
er það oft ekki erfitt þvi að iðu-
lega virðist fólk skilja dyr eftir
ólæstar, þótt enginn sé i
ibúðunum og eru hæg heima tökin
hjá þjófunum, þegar þeim er allt
að þvi boðið að gjöra svo vel.
Sovézkir verka-
lýðsleiðtogar í
heimsókn hér
llluti unglinganna,
beinendurnir eru
sem voru i ..opnu liúsi'
krjúpandi fremst.
i Kreiöholtsskóla á föstudaginn
siðustu viku. I.eið-
(Timamynd: ÓV)
EB—Reykjavik.
Verkalýðsleiðtogar frá Sovét-
rikjunum hafa dvalizt hér á
landi siðustu daga i boði Alþýðu-
sambands Islands. Hér er um að
ræða Ivan Vladychenko, aðalrit-
ara miðstjórnar sovézka Alþýðu-
sambandsins, Eugeniu Ignat-
geva, fulltrúa verkafólks i mat-
vælasambandi Sovétrikjanna, og
Fjodor Korvjakov frá byggingar-
mannasambandi i Leningrad.
Boðað var til blaðamannafund-
ar með þessum verkalýðsleiðtog-
um i fyrradag, þar sem þeir lýstu
yfir ánægju með komu sina hing-
að og kynni sin af verðalýðs-
hreyfingunni hér. Siðan svöruðu
þeir spurningum fréttamanna.
Fram kom á fundinum, að
sovézka verkalýössambandið
hefur boðið Alþýðusambandi Is-
lands að senda fulltrúa til Sovét-
rikjanna einhvern tima á næst-
unni. Ennfremur kom fram, að
Sovétmenn vilja fá menn til lands
sins til að kynna þar starfsemi is-
lenzku verkalýðshreyfingarinn-
ar.
,,Opið hús" í Breið-
holti og Ár-
bæjarhverfi
ÓV—Reykjavik
Á þriðjudaginn i siðustu viku
(20. júni) hófst i Breiðholts- og
Árbæjarhverfum starfsemi á
vegum Æskulýðsráðs Reykjavik-
Tónskóla Sigursveins slit-
íð í óttunda skipti
Áttunda starfsári Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar er
nú nýlokið. Það hófst 20. septem-
ber '71. Auk skólastjóra störfuðu
við skólann 20 stundakennarar. f
skólanum voru 296 nemendur og
skíptust þeir þannig á námsgrein-
ar:
Pianó 91, harmónium 14, fiðla
23, selló 5, gitar 46, flauta 10,
altflauta 6, kiarinett 7, fagott 1,
trompett 12, básúna 1, blokk-
flauta og nótnalestur 80. Nær allir
nemendur i skólanum luku vor-
prófi. Námsstigum luku 29
nemendur þannig: Fyrsta stigi 16
nemendur, öðru stigi 9, þriðja
stigi 2 nemendur og fjórða stigi 2.
t tónfræði luku 42 nemendur
fyrsta stigi og 41 öðru stigi.
Tónskóli Sigurvins.
Músikfundir voru haldnir mánað-
arlega með þátttöku flestra nem-
enda. Haldnir voru þrennir al-
mennir nemendatónleikar, jóla-
tónleikar i Hagaskóla, vortónleik-
ar i Austurbæjarbiói og i april
voru haldnir skóiatónleikar i
skólahúsnæðinu við Hellusund
fyrir þá nemendur, sem lengst
eru komnir. Auk þess voru
músikfundir á vegum nemenda-
félags skólans.
Á skólaárinu gerðust þau tið-
indi i sögu skólans, að staðfestar
voru reglugerðir fyrir tónskólann
og styrktarfélag hans. Þá gekkst
styrktarfélagið fyrir þvi, að
kaupa húseignina Hellusund 7
handa skólanum. Þar fór mestöll
kennslan fram i vetur, við mjög
bætta aðstöðu frá þvi sem áður
var. Húsið er eign skólans og mun
hann eiga i nokkrum fjárhagsörð-
ugleikum næstu árin vegna þess,
en vonandi stendur það til bóta.
Siðastliðinn vetur var efnt til
happdrættis vegna húskaupanna
og var það að mestu i umsjá
nemendafélags tönskólans. Var
þvi vel tekið af styrktarfélögum,
foreldrum nemenda og öðrum
aðildarmönnum Margir einstakl-
ingar lögðu fram lið sitt við þess-
ar framkvæmdir, þar á meðal
unnu áhugamenn úr hópi styrkt-
arfélaga og kennara i sjálfboða-
vinnu við endurbætur á húsinu,
svo hægt væri að hefja kennslu i
þvi. Ollum þessum aðilum færir
tónskólinn alúðarþakkir fyrir
framlag þeirra.
Þriðjudaginn 2. mai voru
námsskirteini afhent og skólan-
um slitið.
Reykjavik, 15. júni 1972,
Skólastjóri.
ur fyrir unglinga eldri en 13 ára.
Er ,,Opið hús” i skólum hverf-
anna og geta unglingarnir komið
þangað á timabilinu frá kl. 20-23
og dundað sér við tafl, spil, tón-
listaráheyrn og ýmisskonar leik-
tæki.
Fréttamaður Timans leit inn á
„Opið hús" i Breiðholtsskóla sl.
föstudagskvöld og voru þar þá
fyrir um það bil 40 unglingar.
Virtust þau una sér vel og stelpur
i fótboltaspili ráku upp skræki og
dilluðu sér i takt við músikina af
Mandölu, nýjustu plötu hljóm-
sveitarinnar Trúbrots.
Umsjónarmaður kvöldanna
sagði fréttamanni, að þessi hópur
væri ivið minni en á þriðjudags-
kvöldinu, enda opið i Tónabæ með
hljómsveit þetta kvöld. Þó var
hann ánægður með aðsokn og
sagðist vissulega búast við henni
aukinni, er spyrðist út, að ,,heil-
mikið stuð" væri á þessum kvöld-
um.
Breiðholtsbúar á þessum aldri
skipta hundruðum og er þetta
fyrsti visirinn að þvi að koma á
skipulögðu æskulýðsstarfi i
hverfinu. Mjög hefur verið kvart-
að yfir skrilslátum ungmenna i
Breiðholti og ekki þýðir að neita
þvi, að eitthvað hefur verið um
slik. En taka verður tillit til þess,
að Breiðholtið er ungt hverfi i
tvennum skilningi, að minnsta
kosti. Yfirgnæfandi meirihluti
ibúanna er ungt fólk og flest er til-
tölulega nýflutt i hverfið. Þvi er
að sjálfsögðu ekkert til þar, sem
kallast mætti „hverfisvitund" —
og hvenær hefur verið byggt nýtt
hverfi i Reykjavik, sem ekki hef-
ur i byrjun verið kallað „óþverra-
bæli" og fleiri ljótum nöfnum:
ókyrrð og rótleysi hlýtur að fylgja
nýjum hverfum, þar sem býr
fólk, er kemur úr mismunandi
umhverfi. Sömu sögu er áreiðan-
lega að segja úr Árbæjarhverfi,
en að visu er þaö hverfi nú orðið
dáiitið eldra.
Nú hefur verið kjörinn i Breið-
holti prestur, sem i blaðaviðtölum
hefur lýst þvi yfir, að hann telji
æskulýðsstarf mjög mikilvægt i
hverfinu og er þvi fyllsta ástæða
til að hvetja Breiðholtsbúa — svo
og borgarbúa alla — til að hlúa að
nýbyrjaðri starfsemi ÆR.
,,Opið hús" verður framvegis á
þriðjudags- og föstudagskvöldum
i skólum margnefndra hverfa, á
timanum frá kl. 20-23, eins og áð-
ur segir.
tírvals hjólbaröar
Flestar gerbir ávallt
fyrirliggjandi
FHótoggóöhjónusta
KAUPFELAG
TALKNAFJARDAR
TÁLKNAFIRDI